Tíminn - 02.09.1989, Síða 2

Tíminn - 02.09.1989, Síða 2
12 HELGIN Laugardagur 2. september 1989 B Jkuw*. C JútfeqaU BD<^piÍm*nku5 sátíte" r almiw S XiitL S T AwUiv £ teM Alþingisstaðurinn á Þingvöllum um þær mundlr sem norskl valdsmaðurinn stjórnaðl þar þi nghaldínu. Búð stiftamtmanns Thodals er merkt F á uppdrættinum, en búð fógeta, Skúla Magnússonar, L. Myndlna gerði listamaðurinn Sæmundur Hólm, sem vlð sögðum frá f sein asta blaði. þar að lágu eflaust þær ástæður, að þessum herrum, aðalsmönnunum, hefur ekki þótt fýsilegt að fara hingað til dvalar, en það var nú skilyrði fyrir embættinu í þetta sinn, - og svo hitt, að hér var um að ræða mann, sem hafði unnið sér til ágætis í þjónustu stjórnarinnar og sem hún vildi verðlauna. Thodal var norskur í allar ættir og kominn af fátæku alþýðufólki norð- an úr Þrándheimi. Hann var fæddur árið 1718 á Selnæs á Lurö, sem er eyja í Þrándheimsfirði og vita menn ekkert um uppeldi hans eða líf fyrr en liann er 34 ára gamall, en þess er einhvers staðar getið, að hann hafi verið guðfræðingur að námi. — Fyrstu afskipti Thodals af opinber- um störfum voru þau, að árið 1751 gerðist hann skrifari nefndar, sem sett var samkvæmt samkomulagi við Svía, til þess að mæla og ákveða nákvæmlega landamerkjalínuna milli Svíþjóðar og Noregs, en hún var 200 danskar mílur að iengd, eða 1500 km. - Þetta var erfitt og vandasamt verk, sem stóð yfir í 14 ár, en það mátti svo segja, að Thodal væri lífið og sálin í starfi nefndarinn- ar, og þar mæddi mest á honum, enda viðurkenndi stjórnin dugnað hans. - Meðan á þessu starfi nefnd- arinnar stóð, tókst Thodal á hendur ferð í erindum nefndarinnar, bæði til Stokkhólms og Pétursborgar, þá höfuðborgar Rússa, og í tilefni af þessu, sæmdi stjórnin hann Kancelli- ráðsnafnbót, og lofaði honum góðu embætti þegar nefndarstörfum lyki 1767 og var Thodal þá gjörður að justisráði fyrir vel unnið starf og veitt fulltrúastaðan hjá stiftamt- manninum í Björgvin. - Þegar að því kom, að Thodal skyldi taka við valdsmannsstöðu sinni yfir fslandi, þóttist hann ekki vera nógu vel efnum búinn til þess, að geta haldið sig með hæfilegri rausn, enda var hann fátækur maður. - Hann tók því það ráð, að giftast ríkri norskri kaupmannsekkju, skömmu áður en hann fór til íslands. Hún hét Anna Helena Klow og átti tvö börn af fyrra hjónabandi, son og dóttur. - Fjölskylda þessi fór svo til íslands á einu hinna stóru seglskipa kon- ungsverslunarinnar sumarið 1770 og var að vísu vel reiðfari, en kom ekki út fyrr en eftir Alþingi. Svo settist þetta fólk að á Bessastöðum, en þar biðu þess ýmsar raunir, eins og sagt verður frá. - Frúin dó á fyrsta misserinu, en Thodal sat hér með mikilli prýði í 16 ár. - Fyrirrennarar Thodals í embætt- inu höfðu, eins og áður getur, ekki komið til íslands, hver eftir annan, en haft hér fulltrúa misjafnlega þokkaða, en nú þótti landsmönnum vænt um að fá að sjá framan í æðsta valdamann sinn. - Þeir spáðu líka góðu um kynni hans hér, og þótti hann standa sér nær, en þeir dönsku, sökum frændseminnar, þar sem hann var Norðmaður. íslendingum urðu þetta engin vonbrigði, því að Thodal var vinsæll með afbrigðum og þótti skyldurækinn og duglegur embættismaður. - Ljúfmennið Thodal stiftamtmaður þótti ágætt yfirvald, og einna bestur þeirra manna, sem farið höfðu með æðstu stjómarvöld hér á landi síðan á dögum Hinriks Bjelke höfuðs- manns, en til hans höfðu íslendingar jafnan skírskotað þegar um gott og skörulegt yfirvald var að ræða. - Thodal var hæglátur, ljúfur í viðmóti og lítillátur, og gegndi vel nauðsynj- um manna. Auk þess var hann hinn sannsýnasti og réttlátasti í öllum greinum. - Hann gaf sér gott tóm til þess að íhuga þau mál, sem fyrir hann komu, og þess vegna förlaðist honum sjaldan í úrskurðum sínum. - Það kom alloft fyrir á þessum árum, að eitthvað var borið rangt í eyru stiftamtmanns, eins og gerist, en aldrei var það öðrum að meini, því maðurinn var seinlátur og tor- trygginn, og mjög svo aðgætinn, enda hélt hann hins vegar fast við það, sem hann hafði eitt sinn tekið í sig. - Thodal stiftamtmaður var einstakur friðsemdarmaður og óá- reitinn við aðra, en gjörði sér jafnán far um að sefa deildur og misklíð manna. - Hann fór ávallt vægilega og mannúðlega í sakirnar, þó að embættismönnum og öðrum yrði eitthvað á, án þess þó að sýna of mikla tilslökun eða eftirlátssemi. - Má segja frá mörgum dæmum, sem benda til þessa göfuga hugsana- háttar Thodals. - Það kom fyrir árið 1778, að dugga strandaði við Dranga á Ströndum. Þá var Halldór Jakobs- son sýslumaður í Strandasýslu, og þótti hann fara illa með strandgóssið og allt það, sem við kom strandi þessu. Þessi orðasveimur barst Thodal stiftamtmanni til eyrna, og skipaði hann menn til þess að rann- saka og taka vitni í málinu. Hann fór mjög vægilega í þessar sakir og í stað þess - að ofsækja sýslumann með afsetningu og málaferlum, eins og oft áður tíðkaðist, þegar svo var ástatt, miðlaði hann svo málum við stjórnarráðið danska, að Halldór var aðeins sektaður um 50 rd. í konungssjóð. - Hann vildi heldur ekki hrekja sýslumenn úr embættum eða gjöra þeim illt, þó að t.d. fangar slyppu frá þeim úr haldi, sem oft kom fyrir á fyrri öldum, t.d. slapp Fjalla-Eyvindur, sem kunnugt er, úr haldi hjá Halldóri sýslumanni Jak- obssyni og náðist ekki. - Thodal stiftamtmaður lét aldrei höfða mál á móti sýslumönnum fyrir þessar sakir, en afgerði alltaf með fésektum og áminningum. - Dauðadæmdur fangi strauk frá sýslumanni Barð- strendinga og komst í hollenska duggu, og með því að öll von var úti um að hann næðist, sektaði Thodal sýslumann um 60 lóð silfurs og lét þar við sitja. - Fangi strauk frá Skúla fógeta í Viðey og fann stiftamtmaður að því, en Skúlt sendi þá mann vestur á firði að leita að fanganum, og meira varð ekki úr því. - Hann vorkenndi sýslumönnum að þurfa að geyma fangana og bera ábyrgð á þeim og hafa engin fangelsi. Sambúð Thodals stiftamtmanns við embættismennina í landinu, ver- aldlega og andlega, var með mestu prýði. - Aldrei kom það fyrir, að hann léti taka konungsgjöld lögtaki hjá sýslumönnum, þó að þeir stæðu ekki sem best í skilum, eins og fyrr og síðar var oft gjört, - hann setti ofan í við þá og gekk eftir með hægð, - og náði öllu. - Finni Jónssyni biskupi í Skálholti og Thodal kom ekki í öllu saman, enda voru þeir ólíkir, en þó urðu engar erjur eða óánægja á milli þeirra. - Þegar Thodal fór héðan alfarinn af landi burt, reið hann austur í Skálholt til þess að kveðja biskup, og sagðist vilja þakka honum fyrir gott og illt. - Plógur og kerra Talsverður rígur var á milli Thod- als og Skúla fógeta, en að kunnugra dómi var það meira Skúla að kenna, enda var hann alltaf í andstöðu við danska yfirvaldið, sem honum þótti halda hlífiskildi yfir dönsku kaup- mönnunum. - Það var líka mál manna, að mjög væri spillt fyrir fógetanum við Thodal, og einu sinni höfðu rógtungur komið ár sinni svo vel fyrir borð, að það lá við að stiftamtmaður viki fógetanum frá embætti fyrir fortölur og róg ann- arra, en ekkert varð samt af því. - Thodal hugsaði sig um, og sá gegn- um róginn og illkvittnina. - Það sýnir líka mannúð og réttlæti stift- amtmanns, að hann lét fógetann ekki gjalda rógs eða óvildar þegar mikið lá við, og hann hafði á valdi sínu, að gera fógetanum óleik, eins og t.d. í málinu mikla við almenna verslunarfélagið. - Þá lét hann Skúla afskiptalausan og hallað- ist hvergi á málstað hans, þegar sumir aðrir lögðu illt til fógetans. - Það er víst, að þá lagði Thodal Skúla heldur liðsinni, þegar fógetinn stóð uppi ráðalaus. - Gott vinfengi var milli þeirra Thodals og Ólafs Step- hensen, sem þá var þó ekki kominn til mestu valdanna. - Thodal var mikill framkvæmda- maður í margar áttir. - í búskap tók hann fram öllum valdsmönnum, sem verið höfðu hér á landi. Áður en hann kom að Bessastöðum, höfðu þar aldrei verið nema 5 kýr hjá þeim dönsku, en hann bætti jörðina svo, að hann gat haft þar 13 kýr. - Hann lét slétta og girða allt túnið, og leit sjálfur eftir öllu, bæði utan húss og innan. - Hann flutti hingað norskan plóg og tvíhjólaða kerru, og þótti slíkt nýstárlegt í þá daga. - Hann gjörði líka ýmsar akuryrkjutilraunir á Bessastöðum, en þær gáfust ekki vel frekar en annars staðar. - Aftur á móti spratt vel í kálgörðum hans þar. - Eins og Norðmenn eru yfirleitt, var Thodal stiftamtmaður nýtinn, hagsýnn og sparsamur, en eigi að síður hélt hann sig vel og var veit- ingasamur. - Á Alþingi við Öxará hafði hann oftast mikið borðhald á hverjum degi meðan þingið stóð og bauð til þess bæði andlegrar og veraldlegrar stéttar mönnum, sem þar voru saman komnir, - og á fæðingardegi konungs gerði hann ætíð góða veislu og bauð til hennar höfðingjum þeim, sem til náðist. - Fyrirrennarar Thodals á Bessastöð- um höfðu haft ýmiss konar gróðabrall og brask, svo sem kaupskap og sjávarútveg, en við þetta fékkst stiftamtmaður ekki. Hann hélt að- eins út einum fiskibát á Álftanesinu til þess að hafa nýjan fisk í soðið handa heimili sínu. - Leggst af „þrumustíH“ Til eru persónulýsingar á Thodal stiftamtmanni og er honum lýst svo: „Hann var með lægri meðalmönnum á hæð, flatvaxinn og ekki óburðaleg- ur, en mjög holdgrannur. Hann var breiðleitur eins og margir Norðmenn, með flatt enni og rétt- nefjaður, brúnamikill, stórskorinn og fyrirmannlegur, en ekki smáfríð- ur, svarteygður heldur en móeygður. Góðmannlegur og ákveðinn í augna- tilliti. Léttur á fæti, en gekk þó stillilega. Ekki var hann fljótur til svars, heldur skoðaði hug sinn áður en hann talaði. Hann riðaði stundum dálítið með höfðinu þegar hann gaf

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.