Tíminn - 20.09.1989, Page 1
Samanburöur á skiptingu þjóöartekna í ríkjum OECD sýnir að
hlutur hagnaðarer minnsturá íslandi þrátt fyrir háa raunvexti:
Hlutur launanna
mestur á íslandi
Samkvæmt upplýsingum í nýju fréttabréfi
Verðbréfaviðskipta Samvinnubanka hefur
hiutfall launa í þjóðartekjum á íslandi
verið rúm 70% síðastliðin tvö ár. Þetta er
það hæsta sem þekkist í löndum OECD.
Hlutfall hagnaðar hjá fyrirtækjum er hins
vegar um 27-30% sem er líka það lægsta
sem þekkist meðai OECD ríkja. Þessi
hagnaðarhiuti fyrirtækjanna þarf m.a. að
standa undir fjármagnskostnaði sem hef-
ur verið mikill og meiri en annars staðar á
þessu árabili og það svo að mörg fyrir-
tækjanna hafa farið í gjaldþrot. Ljóst er að
á tímum samdráttar í þjóðartekna mun
reynast nauðsynlegt að breyta þessum
hlutföllum, með því að minnka þann hluta
þjóðartekna sem fer í vaxtagreiðslur, eða
með því að minnka þann hluta sem fer í
launagreiðslur eða með því að sigla fyrir-
tækjum þöndum seglum í strand með því
að minnka enn frekar þann hluta þjóðar-
tekna sem fer í hagnað. _______ _
• Blaðsiða 5
Mjólk
áfram
Ekkert verður af fyrirsjáanlegum mjólkurskorti vegna boð-
aðra aðgerða mjólkurfræðinga í vikunni. Um kl. 19:00 í gær
var skrifað undir samninga hjá ríkissáttasemjara.
Tímamynd Árnl Bjama
Eldur hjá Ú.A. og hátt í 200 milljónir í útflutníngsverðmæti í frystigeymslu:
Óttast reykskemmdir
á lausf rystum f iski
Eldur kom upp í palla- og umbúðageymslu Útgerð- fullunninn fiskur að verðmæti 170-200 milljónir
arfélags Akureyringa síðdegis í gær. Mikill reykur var. Er óttast að sá hluti birgðanna sem lausfrystur
barst inn í frystigeymslur fyrirtækisins þar sem var gæti hafa skemmst af reyk. • Blaðsíða 3