Tíminn - 20.09.1989, Blaðsíða 6

Tíminn - 20.09.1989, Blaðsíða 6
6 Tíminn Miðvikudagur 20. september 1989 Tímiim MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Aðstoðarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson BirgirGuðmundsson EggertSkúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Frá og með 1. ágúst hækkar: ' Mánaðaráskrift í kr. 1000,-, verð i lausasölu í 90,- kr. og 110,- kr. um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Stjörnuhrap Greint hefur verið frá því að útvarpsstöðin Stjarnan, sem starfað hefur u.þ.b. tvö ár á grundvelli útvarpslaga frá 1985, sé að hætta störfum vegna fjárhagserfiðleika. Fyrirtækið mun vera gjaldþrota. Síst er ástæða til að hlakka yfir óförum af þessu tagi, heldur felst í starfssögu þessa litla fyrirtækis eins konar harmleikur með brostnum vonum um atvinnu og einhverjum fjárhagsáföllum að ætla má. Vonandi greiðist úr atvinnumálum þeirra sem unnu við þetta fyrirtæki og væntanlega komast þeir, sem hætt hafa fé sínu í þessa tilraunastarfsemi í útvarpsrekstri, yfir fjárhagsskaða sinn. Hins vegar er ekki hægt að segja að brestur verði í íslenskum menningarheimi, þótt ein lítil tilraunastöð í útvarpsrekstri heppnist ekki. Peir, sem réðust í að stofna útvarpsstöðvar í samræmi við ákvæði nýrra útvarpslaga, gerðu það á eigin ábyrgð og munu ekki kveinka sér eða kenna öðrum um þótt verr hafi til tekist en vonir stóðu til. Þeir, sem aldrei gerðu sér neinar vonir um að íslenskri menningu yxi ásmegin með hverri nýrri útvarpsstöð, sjá ekki að neitt syrti að, þótt eitt og eitt stjörnuhrap verði á núverandi tilraunaskeiði í útvarpsrekstri í landinu. Útvarpslögin frá 1985, sem tóku gildi 1. janúar 1986, áttu langan aðdraganda, en voru eigi að síður injög umdeild meðan málið lá í frumvarps- drögum og síðan sem formlegt frumvarp, sem lagt var fyrir Alþingi. Pað tók tvö þingár að gera lögin að því sem þau eru, þau voru samþykkt með litlum meirihluta og mikilli andstöðu þeirra sem töluðu gegn málinu. Hafi útvarpslagabreytingin verið hitamál á sinni tíð, þá byggðist andstaðan gegn frjálslegri útvarps- starfsemi að verulegu leyti á ótta manna við það að nýjar útvarpsstöðvar yrðu pólitískar og kæmust undir yfirráð peningamanna með pólitískar fyrir- ætlanir og bætta áróðursaðstöðu. Reynslan af frjálsu útvarpsstöðvunum er alls ekki sú sem ótti andstöðumanna útvarpslaganna byggðist á að þessu leyti. Nýju útvarpsstöðvarnar hafa ekki reynst pólitískt hlutdrægar, sem telja verður mjög mikilvægt atriði. Hins vegar geta hinar nýju útvarpsstöðvar ekki komist hjá gagn- rýni hvað varðar dagskrárstefnu og almenna menningarstefnu. Útvarpslögin frá 1985 eru í endurskoðun, enda beinlínis svo fyrir mælt í lögunum sjálfum að þau skuli endurskoðuð innan þriggja ára frá setningu þeirra. Þessi þriggja ára frestur er liðinn og flest sem mælir með því að endurskoðað útvarpslaga- frumvarp verði lagt fyrir næsta alþingi. Það er þegar tímabært að þingið fái tækifæri til þess að hefja umræðu um lögin og framkvæmd þeirra. Því miður virðist ætla að verða meiri dráttur á að málið komi fyrir þing en efni stóðu til. Tíminn skýrir frá því í gærdag að allt að helmingur þeirra kjarabóta, sem landsmenn hlutu árið 1987, en þar er átt við hækkun tekna um- fram verðlagshækkanir, hafi farið til bifreiðakaupa. Segir í fréttinni, sem byggist á viðmiðun af atvinnu- vegaskýrslum Þjóðhagsstofnunar að kjarabæturnar hafi numið rúm- lega 16 milljörðum króna. „Við- bótarsala“ innfluttra bíla nam hins vegar um átta milljörðum, svo Ijóst má vera hvað huga landans stendur næst þegar eitthvað rýmkast um efnahaginn. Voru enda 23.460 bfl- ar fluttir inn árið 1987, samanborið við 8.620 bfla að meðaltali fyrstu sex ár þessa áratugar, svo fjölgunin er ekki minna en gífurleg. Þá er réttilega bent á í fréttinni að með nýrri „kreppu“ hafl nú aftur saxast á kjarabæturnar, sem þjóðin náði í 1987. Situr því mikill fjöldi fólks uppi með stóraukin útgjöld vegna rekstrarkostnaðar allra þessara nýju bfla, sem vegur fyrir vikið mun þyngra í heimilisút- gjöldum meðalfjölskyldunnar, en var fyrir bflaárin miklu. Þar við bætist, eins og blaðið bendir einnig á í gær, að bifreiðar eru með forgengilegri eignum, enda um fjórðungur þeirra tekinn að ryðga meira og minna, eftir aðeins fjög- urra eða flmm ára notkun. Við- brögð fólks er harðnar á dalnum verða að vonum iðulega þau að reyna að koma nýlegri bifreið sinni í verð, en þegar aukningin er slík sem raun er á verður það oft þrautin þyngri. Þarna er vissulega mjög alvarlegt dæmi um þann óstöðugleika sem einkennir efna- hagslíf á íslandi; menn freistast til þess að leggja út í dýrar fjárfesting- ar, sem ófyrirsjáanleg atvik ef til vill aðeins ári síðar sanna að hafa verið ráðleysa. Óvænt lækkun sú sem varð á tollum og innflutnings- gjöldum vorið 1986, hefur þannig í ýmsu tilliti reynst tvíbentur greiði. Bflar á hverja þúsund íbúa hefðu þá veríð um 526 í lok síðasta árs í stað þess að þeir urðu 566. Þá kom þetta hastarlega og ekki með öllu sanngjarnlega niður á þeim bif- reiðaeigendum, sem fjárfest höfðu í bifreiðum skömmu fyrir þessa hækkun, sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Endursöluverð bifreiða þeirra hlaut að lækka að því marki að ekki gat verið um annað en verulega kjaraskerðingu að ræða. Þá höfðu mörg bifreiða- umboð ekki betrí fjármálaráðgjafa á sínum snærum en svo að þau töldu þessa miklu bflainnflutnings- bylgju vera dagrenningu gullaldar, sem sennilega mundi vara til lang- frama. Þau réðust því sum í bygg- ingar stórra halla með víðáttumikl- um sýningarsölum, sem nú rúma ekki annað en uppgjöf og fyrirsjá- anleg gjaldþrot, komi einhver óvænt bjargráð eða efnahagsbati til sögu, sem ekki hillir undir að sinni. Vissulega koma þær tölur um bifreiðafjölgun, sem hér er um rætt, ekki á óvart. Hún er svo stórfelld að hennar sér stað á strætum borga og bæja um allt land, enda svo komið að eldri bflar, sem voru margir fyrir fáein- um árum, eru orðnir fátíð sjón. Vafalaust má fagna því að ný tæki ættu að stuðla að auknu umferðar- öryggi og fækkun slysa, þótt vel megi vera að freistingin til þess að þenja nýja og kraftmikla bfla vegi þar upp á móti. Þá setur þessi glæsifloti vissulega sitt mark á yfirbragð borgar og byggðar og ætti að réttu lagi að vera til marks um mikla velferð og rúm peninga- ráð þegnanna. Á því mun nú orðinn talsverður misbrestur í mörgum dæmum. En hér kemur aftur að því atriði, sem fyrr er minnst á, að þegar harðnar á dalnum hjálpar nýr og glansandi bfll lítið. Til hans þarf mildu að kosta, ýmis iðgjöld eru há og aðeins smávægileg umferðar- óhöpp valda útlátum, sem koma illilega við fjárhag þess fólks, sem þarf á öllu sínu að halda, er kjör þrengjast. Þær heimildir, sem áður er vitnað til, áætla kostnað vegna hvers fjölskyldubíls um 240 þúsund krónur á núgildandi verðlagi. Þannig verður heildarkostnaður- inn vegna tíu þúsund „aukabfla“ um 2.400 milljónir á ári. Á móti þeim viðbótarkostnaði þarf þjóðin því annað hvort að skera niður liði annarrar neyslu, ellegar afla auk- inna tekna til að mæta honum. Landinn er kunnur fýrír einstakl- ingshyggju og hefur löngum lagt trúnað á þann ritningarstaf að „bfll sé nauðsyn“. Vissulega er hann það og fyrir marga, barnmargt fólk og þá sem lengri leiðir eiga að sækja til vinnu. En þó er dálítil fyrirhyggja nauðsynlegrí en bfll í svo ótryggu efnahagsumhverfi og hér ríkir. Og einnig hjá þeim sem bfll er óumdeilanleg nauðsyn væri nú betur komið, hefði henni veríð fullnægt á ódýrari hátt og menn veríð undir það búnir að á eftir íslenskri sólarglennu er oft skammt í regnskúr. Garrí VITTOG BREITT Lífið er Fyrir langalöngu kom út bók sem í stóð að lífið væri saltfiskur. Þetta þótti svo spaklega mælt að jafnvel cnn í dag leikur gullkornið á tungu þáttagerðafólks ljósvaka- miðla og stjórnendur spurninga- þátta eru svo vel að sér í bókmennt- inni að þeir fara létt með að vitna í lífið og saltfiskinn og þá sjá allir og heyra að eitthvað kunna þeir nú fyrir sér, auk þess að vera spaug- samir og skemmtilegir. En iiðin er sú tíð að lífið og saltfiskurinn sé lagt að jöfnu og er ekki lengur liægt að segja með sanni að lífið sé freðfiskur, varla gámafiskur, eða yfirleitt nokkur fiskur. Hins vegar má með sanni segja að lífið sé fagrar listir. Að minnsta kosti iífið í Reykjavík sem er að verða svo yfirþyrmandi hámenn- ingarborg að leita verður yfir höf og aldir til að finna hliðstæður, ef það er þá hægt. Auðsæld Á íslandi býr langríkasta þjóð í heimi og jafnframt sú menningar- legasta. Ekki þarf að taka fram að hún er sú menntaðasta. Það vita allir, innan'Hringbrautar sem utan. í því mikla góðæri sem nú gengur yfir þjóðarbúið, þar sem atvinnu- vegirnir moka upp gullinu, fyrir- tæki og bankar vita ekki aura sinna tal og fólkið í landinu býr við slíka auðsæld að það munar ekkert um að spandera sex milljörðum í lott- erí á ári, er lífið fagrar listir. Hin mikla og fjölmenna stétt listamanna skapar, ríki og sveitar- félög borga og almúganum er sagt að njóta. Þótt hann svíkist um það gerir það ekkert til, svo lengi sem kjörnir fulltrúar hans vita að lífið er list og að þeim ber að standa undir henni fyrir hönd umbjóð- enda sinna. Svo er listaást ríkisins og allra hreppstjóranna fyrir að þakka, að skattborgararnir leggja sitt af mörkum í líf og list, og er það eins gott. Annars mundu þeir bara eyða meiru í sjálfa sig og lotterí, sem aftur er undirstaða háskólanna, bærilegra lífs heilsu- veilla og fjörugra boltaleikja á gervigrösum og harðviðarparket- um. Listalíf auðþjóðarinnar ein- skorðast nær eingöngu við höfuð- borgina en svo er listamúsunum fyrir að þakka að í nágrannabæjun- um eru að rísa unaðsreitir fagur- kera, sem veita munu mörgum listfræðingum og svoleiðis fólki mikla og örugga atvinnu um ókom- in ár. Einhverjir græða Listahús margs konar eru um þessar mundir ýmist að rísa eða hrynja og kostar hvert ris eða hrun húsa milljarð. Um helginatilkynnti einn hreppstjórinn að hann ætlaði að koma upp listamiðstöð fyrir milljarð en á næstunni mun hann opna leikhús sem kostar milljarð. Alþýðublaðið, sem aldrei fleipr- ar, skrifaði í gær, að listaráðherr- ann væri nú staðráðinn í að breyta sláturhúsi í marga og öfluga lista- háskóla og mundi það kosta milljarð. Viðgerð á leikhúsi kost?" milljarð og viðbygging við íshús þar sem nú er safn kostaði eitthvað svipað. Sami ráðherra messaði um helg- ina yfir söfnuði sínum og opinber- aði að svar við kreppu, sem auðvit- að er víðs fjarri í landi listarinnar, væri að leggja peninga, helst mikla peninga í menningu og þá mundi vel famast. Þar sem lífið er list en ekki fiskur þarf ekki að hafa áhyggjur af verðmætasköpun eins og í gamla daga, heldur aðeins af listsköpun og hvernig á að búa í haginn fyrir hana með sem allra mestum tilkostnaði. Það eru nefnilega svo margir sem græða á tilkostnaðinum. Verktakar og svoleiðis. Listamenn eru ein fjölmennasta stétt þjóðfélagsins auðuga við Dumbshaf og liggur mikið við að fjölga enn betur í stéttinni með því að koma á fót mörgum og stórum listaháskólum með rektorum og prófessorum og öllu því móverki sem til heyrir. Úreltar stéttir eins og bændur og sjómenn hljóta að hverfa en enginn hætta er á að offramleiðsla eða ofvöxtur hlaupi í listaframleiðsl- una. Hún er ekki háð neytendum, aðeins útausandi stjórnmálamönn- um, sem eru svo grænir að halda að þeim verði þökkuð listafram- leiðslan, ef þeir bara borga nóg. Opinber framfærsla listamanna er svo annar kapítuli, sem vel má minna á þegar þeir fara að svara upp á helgispjöll eins og framin eru hér með þvf að taka ekki undir sama sönginn og allir aðrir kyrja í umræðunni um listir og fjárútlát. Þótt lífið sé list er ekki þar með sagt að allt sem kallað er list sé lífvænlegt, sama hvað samtíminn er áfjáður í að láta blekkjast. En hvað gerir það til á meðan einhverjir græða á því? OÓ i'j'clyí.’I’ m:rjLni. i;c rm ns ;sjí.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.