Tíminn - 20.09.1989, Blaðsíða 16

Tíminn - 20.09.1989, Blaðsíða 16
 AUGLYSINGASIMAR: 680001 — RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Tryggvagötu, _____g 28822 SAMVINNUBANKINN í BYGGÐUM LANDSINS JA 1. S NORÐ- AUSTURLAND Á r \ ÁTTHAGAFÉLÖG, FYRIRTÆKI OG EINSTAKLINGAR Glœsilegur aalur til loigu fyrir samkvæmi og fundarhöld á daginn aem á kvöldin. ÞRÖSTUR 685060 VANIR MENN MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1989 Könnun Verslunarráðs íslands átöpuðum viðskiptaskuldum hjá 101 fyrirtæki: Tapaðar skuldir 552 millj. kr. I ár 101 fyrirtæki þurfti að afskrifa 633 milljónir króna sem tapaðar skuldir árið 1988, en það samsvarar til 0,99% af veltu þeirra. Á þessu ári gera sömu fyrirtæki hins vegar ráð fyrir að tapaðar skuldir nemi 552 milljónum króna eða 0,75% af veltu. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Verslunarráð íslands gerði meðal félaga ráðsins, varðandi það tap sem fyrirtæki verða fyrir vegna gjaldþrota og nauðasamninga samhliða samdrætti og erfiðleikum í atvinnurekstri. Samtals 101 fyrirtæki innan ráðs- ins tóku þátt í könnuninni, sem var framkvæmd í byrjun september. Spurt var um heildarveltu og af- skrifaðar viðskiptaskuldir sam- kvæmt ársreikningum 1988ogsam- svarandi tölur fyrir árið 1989, sam- kvæmt fyrirliggjandi áætlunum. Af þessum 101 fyrirtækjum voru 23 framleiðslufyrirtæki, 66 verslunar- fyrirtæki og 12 fyrirtæki í þjónustu. Framleiðslufyrirtækin sem þátt tóku í könnuninni gera ráð fyrir að heildarvelta þeirra í ár verið 12,246 milljarðar króna og þurfi að af- skrifa skuldir að upphæð 78 millj- ónir króna. Verslunarfyrirtækin gera ráð fyrir að þeirra heildarvelta verði 32,396 milljarðar króna og afskrifa þurfi skuldir að upphæð 149 milljónir króna. Þjónustufyr- irtækin sem könnuninni náði til, telja veltu sína 28,837 milljarða á þessu ári og telja sig þurfa að afskrifa 326 milljónir króna. Með hliðsjón af stærð og sam- setningu fyrirtækjanna má gera ráð fyrir að tapaðar viðskiptaskuld- ir í atvinnulífinu í heild verði á árinu 1989 á milli 2,5 og 3,5 milljarðar. - ABÓ Verö á mjólkurvörum lækkar en flugferðir og leigubílar hækka: Smjör lækkar um 34 krónur mjólk um 2,70 Verð á mjólk og mjólkurvörum lækkaði í gær frá því sem ákveðið var í byrjun þessa mánaðar. Verð á mjólkurlítra lækkaði t.d. úr 70,20 kr. niður í 67,50, eða 3,8% og kíló af smjöri lækkaði úr 546 kr. niður í 512 kr., sem er um 6,3% lækkun. Þessi verðlækkun er í fyrsta lagi vegna þess að bændur hafa fallist á að fresta hluta þeirrar hækkunar sem ákveðin var á verði til þeirra um síðustu mánaðamót. Einnig ákvað verðlagsráð að fresta til 1. desember n.k. helmingi þeirrar 1% hækkunar á smásöluálagningu sem versluninni var heimiluð frá 1. september s.l. Verðlagsráð fjallaði ekki einungis um verð á mjólk á fundi sínum í gær. Þar var flugfélögum heimilað að hækka fargjöld innanlands um 6,7%. Leigubílstjórum var heimiluð 4,2% taxtahækkun og sendibílstjór- um um 3,1%. - HEI Deiluaðilar í kjaradeilu álversins funduðu í gærkvöldi: Flestir búast við verkfalli Um miðjan dag í gær hófst fundur hjá ríkissáttasemjara í kjaradeilu starfsmanna í álverinu og ÍSAL. Ríkissáttasemjari reiknaða með löngum fundi. Ef ekki tekst að semja í dag hefst verkfall í álverinu á miðnætti í nótt. Framleiðsla þar stöðvast þó ekki strax því að samn- ingur er í gildi milli ÍSAL og starfs- manna þess um að ef til verkfalls kemur skuli framleiðsla stöðvuð á tveimur vikum. Þessi samningur var gerður vegna þess að tjón álversins . yrði gífurlegt ef starfsmenn myndu hætta vinnu fyrirvaralaust. . Mjög mikil harka mun vera hlaup- in í kjaradeiluna og ekki verður sagt að það hafi ríkt bjartsýni í húsakynn- um ríkissáttasemjara í gær þegar deiluaðilar settust við samninga- borðið. Kröfur starfsmanna munu vera um 12-15% launahækkun. ÍSALhefurhafnað þessum kröfum. í fjölmiðlum í gær var greint frá því að Alusuisse vildi gjarnan að það kæmi til verkfalls því að það myndi fæla keppinauta í áliðnaði frá því að byggja álver á íslandi. Ekkert hefur verið staðfest í þessu efni. - EÓ Húsgagnarisar að sameinast Þrjú af stærstu húsgagnafyrir- tækjum landsins, Axis, Kristján Siggeirsson, og Gamla kompaníið, hafa að undanförnu átt í viðræðum um sameiningu í eitt öflugt hús- gagnafyrirtæki. Starfsfólki var til- kynnt um þetta í dag og þess getið að ekki væru fyrirhugaðar upp- sagnir hjá starfsmönnum í fram- leiðsludeildum fyrirtækjanna. Hagræðing í rekstri er aðalorsök sameiningarinnar, og kerhur fram í tilkynningunni til starfsfólks að hið nýja fyrirtæki mun hafa aðsetur í húsakynnum Axis í Kópavogi og Gamla kompaísins á Bíldshöfa í Reykjavík. Fyrirhugað er að hið nýja hluta- félag verði stofnað um ntánaðar- mótin en taki síðan til starfa um áramótin. Li, ' ■ » ~i i Bi H wmmm Til vinstri á myndinni er nýi skúrinn sem m.a. er ætlað að geyma leikföng. Skúrinn er rúmir tíu fermetrar að stærð. Tímamynd: Pjetur „Leifsjstöðvareinkenna" verður vart jafnt í hinu stóra sem hinu smáa: LEIKFANGAGEYMSLA Á RÚMLEGA MILLJÓN Það orð hefur farið af opinberum byggingum að þær séu dýrar og fari oftar en ekki fram úr kostnaðaráætl- un. Eitt lítið dæmi um þetta er lítill skúr sem var byggður yfir leikföng við eitt barnaheimili í Reykjavík. Skúrinn er ekki stór enda var áætlað að það myndi ekki kosta nema nokkur hundruð þúsund að fullgera hann en þegar upp var staðið reynd- ist hann kosta yfir eina milljón króna. Síðastliðið haust var byggður lítill skúr yfir leikföng á leikvellinum Barónsborg sem stendur við Njáls- götu í Reykjavík. Kostnaður við skúrinn fór nokkuð úr böndunum og er áætlað að hann hafi kosta rúma eina milljón króna. „Þetta er eins og oft vill verða með stórar og litlar byggingar. Kostnaður verður meiri en áætlað er vegna þess að á bygging- artímanum er ákveðið að fara út í meiri framkvæmdir en upphaflega var ákveðið. Þetta er ekkert ólíkt og var með flugstöðina, bara smærra í sniðum, „ sagði trésmiður hjá Reykjavíkurborg í samtali við Tímann. Upphaflega var aðeins ætlunin að byggja lítinn óeinangraðan skúr yfir útileikföng. Þegar byrjað var að byggja var hins vegar ákveðið að setja í skúrinn leirbrennsluofn og að þar af leiðandi þurfti að einangra hann og setja í hann rafmagn. Auk þess voru settir stálbitar undir skúr- inn og ákveðið að hafa á honum skýli. Að auki þurfti að ganga frá lóð og lögnum. Margt smátt gerir eitt stórt.og þegar upp var staðið mun skúrinn hafa kostað yfir milljón en upphaflega var áætlað að hann myndi kost nokkur hundruð þúsund. Húsið þykir því nokkuð dýrt miðað við fermetrafjölda en skúrinn mun vera um 10 fermetrar, sem gerir um 100 þús. kr. á fermetrann. Starfs- menn á skrifstofum borgarinnar sögðu að það hefði á engan hátt verið staðið illa að málum. Húsið hefði einfaldlega kostað meira en menn bjuggust við. Til gamans má geta þess að samkvæmt skýrslu Seðlabankans kostar fermetrinn í Seðlabankahúsinu framreiknað til síðustu áramóta ca. 112 þúsund krónur, en inni í þeirri tölu er þó ekki talinn ýmis sérbúnaður s.s. öryggisbúnaður, varaaflstöð, og seðlabrennsluofn. Barónsborg er eitt af elstu barna- heimilum í borginni. Það er afar hlýlegt og á skjólgóðum stað. Húsið sjálft mun vera orðið um 40 ára gamalt. Um tíma stóð til að rífa það og byggja nýtt en horfið var frá því og nú hafa verð gerðar á húsinu nokkrar endurbætur. í sumar var lóðin tekin í gegn og húsið málað. Húsið er því núna í sæmilegu ástandi. „Það lekur a.m.k. ekki eins og mörg þessara nýju húsa gera,“ sagði forstöðukona Barónsborgar í samtali við Tímann. - EÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.