Tíminn - 20.09.1989, Qupperneq 3
Miðvíkudágiir'2Ó. séþtérhber 1989
Tíminn 3
Eldsvoði hja Utgerðarfelagi Akureyringa. Haít 11200 tonn af unnum fiski i frystigeymslu þeirri sem reykur komst inn i:
Óvíst hvort reykurinn
haf i náð til fisksins
Óvíst er hversu mikið tjón varð þegar eldur kom upp í
palla- og umbúðageymslu Útgerðarfélags Akureyringa um
klukkan tvö í gærdag. Búið var að ráða niðurlögum eldsins
á um klukkutíma. Reykur komst inn í aðalfrystiklefa
fyrirtækisins þar sem 1000 til 1200 tonn af fullunnum fiski
voru geymd. Verðmæti hans er á bilinu 170 til 200 milljónir
króna. í gærkvöldi sagði Gunnar Lórenzson verkstjóri
hraðfrystihúss fyrirtækisins í samtali við Tímann að ekki
væri Ijóst hvort fiskurinn hafi skemmst. Bæði var um að
ræða pakkaðan físk og lausfrystan og var óttast að
lausfrysti fískurinn hafí jafnvel skemmst.
Ekki er vitað um eldsupptök, en
rannsóknarlögreglan var á staðn-
um í gærdag og hafði í gærkvöldi
girt svæðið af, en rannsókn á hvað
kom eldinum af stað átti að fram-
halda í morgun.
Það var klukkan 14.14 að
slökkviliðið á Akureyri var kallað
að pallageymslu fyrirtækisins.
Tómas Búi Böðvarsson slökkvi-
liðsstjóri sagði í samtali við Tím-
ann að þegar þeir komu á vettvang
hafi mjög mikill eldur logað í
vesturenda pallageymslu sem er
við hlið stærsta frystiklefans og
mikinn reyk lagt út unt útihurð
geymslunnar.
Inni í henni var mikið ntagn af
vörupöllunt og umbúðaplast ýmis-
konar, sem við bruna kemur mikill
og svartur reykur af. Sagði Tómas
að sökum þess hafi þeir ekki séð
handa sinna skil innandyra, vegna
reyksins. Töluverður reykur barst
inn um opna hurð frystigeymslu og
sagði Tómas að þeir hefðu ekki
vitað uni þá hurð fyrr en seint og
um síðir og ekki fyrr en slökkvi-
starfi var nær lokið. Eldurinn náði
ekki útbreiðslu fyrir utan geymslu-
húsið, en á tímabili var jafnvel
talin hætta á að hann næði til
ammoníaksgeyma sem stóðu við
pallageymsluna og steinveggur
skildi að. Þak geymslunnar er stór-
skemmt ef ekki ónýtt.
Gunnar Lórenzson verkstjóri
sagði að þeir hefur verið að vinna
að því að dæla hreinu lofti inn í
klefann. Hann sagði að þeir væru
að vonast til þess að ekki hefðu
orðið skemmdir á afurðununt, þó
svo þeir gætu ekki dæmt um það
ennþá. „Þetta er allt vafið inn í
plast og hvort það hefur eitthvað
komist inn fyrir, er ekki komið í
Ijós ennþá,“ sagði Gunnar. Hann
sagði að fiskurinn hafi allur verið
fullunninn og ætlaður til útflutn-
ings á Ameríkumarkað. Óvenju
mikið rnagn var að fiski í klefanum
að sögn Gunnar, enda hefði fram-
leiðslan undanfarið verið mikil.
Aðspurður um ástæðu þess að
hurðin inn í frystiklefann hafi verið
opin, sagði hann að líkast til hafi
hún opnast í eidinum. Talið er
líklegast að samsláttur í rafbúnaði
hafi orðið til þess að hurðin opnað-
ist, því hún var lokuð þegar síðasti
niaður fór út úr húsinu, áður en
eldsins varð vart. - ABÓ
Frá undirritun kjarasamnings mjólkurfræðinga i gærkvöldi. Timamynd: Árni Bjarna
Mjólkurfræðingar sömdu
Mjólkurfræðingar og viðsemj-
endur þeirra undirrituðu nýjan
kjarasamning um kvöldmatarleyt-
ið í gær eftir rúmlega 27 klukku-
stunda samningalotu. f stórum
dráttum felst samkomulagið í því
að mjólkurfræðingarnir fá sömu
launahækkanir og felast í ASÍ
samkomulaginu frá því í vor en að
auki kemur til þóknun sem nemur
4% á samningstímabilinu til þeirra
mjólkurfræðinga sem hafa fram-
haldsmenntun. Samningurinn gild-
ir frá undirskriftardegi til loka
marsmánaðar á næsta ári.
Þóknunin til þeirra sem iokið
hafa framhaldsnámi er svokallað
námskeiðsálag en það kemur til
greiðslu þannig að 2% greiðast
strax, 1% 1. janúar og 1% l.júní
1990.
Kristján Larsen formaður Félags
mjólkurfræðinga sagði eftir undir-
ritunina að samningarnir væru dýru
verði keyptir. Mjólkurfræðingarnir
féllu frá upphaflegri kröfu sinni um
vinnuréttargjald, eða umsjónar-
álag, en fengu í staðinn fyrrnefnda
þóknun. Einnig náðist ekki sam-
komulag um aldursflokkahækkanir
sem mjólkurfræðingarnirfóru fram
á.
Aðspurður sagði Kristján að
samningurinn yrði lagður fyrir fé-
lagsfund eins fljótt og auðið væri
og hann gerði ráð fyrir að hann
yrði samþykktur. Þess má geta að
60-70% mjólkurfræðinga hafa lok-
ið framhaldsnáminu og fá því fyrr-
nefnda 4% þóknun.
Mjólkurfræðingar mættu því til
vinnu í dag og sagðist Kristján ekki
gera ráð fyrir að til mjólkurskorts
komi á höfuðborgarsvæðinu.
SSH
Vinnsla viö frumvarp um Listaháskóla á lokastigi:
Húsnæðismálin
enn ekki Ijós
Fruntvarp unt laga um Listahá-
skóla íslands verður lagt fyrir í vetur
að sögn Svavars Gestssonar mennta-
málaráðherra. Mikið hefur verið
rætt um að ríkið muni kaupa hús
Sláturfélags Suðurlands í Laugarnesi
undir starfsemi væntanlegs Listahá-
skóla. Menntamálaráðherra sagði
við Tímann í gær að ekkcrt lægi fyrir
um það en húsnæðismálin væru í
athugun. Mikið væri um að ríkinu
væri boðið að kaupa húsnæði og yrði
að gera samanburð á kaupverðinu
við ákvarðanatökuna, en málið væri
fyrst og fremst í höndunt Alþingis.
SSH
Knattspyrnumenn á hjartalyfjum?:
Finnska fyrirtækið Patrek OY eykur eignaraðild sína Steinullarverksmiðjunni hf. um 20%:
Hlutafé aukið um 92 milljónir kr.
Meirihluti hluthafa í Steinullar-
verksmiðjunni hf. á Sauðárkróki
undirrituðu í gær samkomulag um
hlutafjárhækkun í fyrirtækinu er
nemi 91,5 milljónum króna. Þar af
skrifar finnska fyrirtækið Patrek OY
sig fyrir rúmum helming aukningar-
innar, eða 48,6 milljónum og eykur
hlutafé sitt í Steinullarverksmiðj-
unni úr 8% í 28%.
Aukin aðild Patrek að Steinullar-
verksmiðjunni ætti að styrkja sam-
keppnisaðstöðu fyrirtækisins veru-
lega, sérstaklega á erlendum
mörkuðum, en Patrek er eitt stærsta
fyrirtæki Finna og ræður yfir veru-
legum mörkuðum fyrir steinull og er
leiðandi aðili við þróun eingangr-
unarefna. Samfara hlutafjáraukn-
ingunni hafa náðst mikilvægir samn-
ingar við lánadrottna fyrirtækisins
um lengingu lána og lækkun vaxta.
Að sögn Einars Einarssonar fram-
kvæmdastjóra Steinullarverksmiðj-
unnar hf., mun Patrek setja 48,5
milljónir króna v peningum inn í
fyrirtækið, fyrir utan það að verk-
smiðjunni opnist aðgangur að tækni-
og vöruþróunardeild Patreks og það
sé ekki síður mikilvægt fyrir Steinull-
arverksmiðjuna en aukið fjármagn.
Þá opnist nýir markaðir fyrir ís-
lenska steinull í Evrópu fyrir tilstuðl-
an finnska fyrirtækisins. Einar sagð-
ist vonast til þess að innan mjög
skamms tíma yrði unnt að reka
Steinullarverksmiðjuna á fullum af-
köstum, en til þessa hefur verksmiðj-
an verið keyrð á tveimur vöktum á
sólarhring. Nái aukin markaðssetnig
erlendis fram að ganga eins og líkur
benda nú til, mundi það, að sögn
framkvæmdastjórans, þýða að
þriðju vaktinni yrði bætt við og
starfsmönnum fjölgáði um níu.
Eignaraðilar að Steinullarverk-
smiðjunni hafa undanfarnar vikur
leitað leiða til að styrkja stöðu
Tyrkneska landsliðið í fótbolta
sem keppa á við íslendinga í dag
hefur gert garðinn frægan fyrir
óvenjulegar uppákomur síðan þeir
komu hingað í fyrradag.
í gær stóð yfir lyfjakynning á
Hótel Loftleiðum fyrir fslenska
lækna, en Tyrkir munu gista á hótel-
inu. Það vakti óskipta athygli bæði
nærstaddra lækna og fólks úr lyfja-
bransanum þegar Tyrki sem talið er
að hafi verið læknir tyrkneska liðsins
kom við annan mann inn á kynning-
una sem ekki er opin almenningi.
Það var þó ekki nærvera Tyrkjanna
í sjálfu sér sem vakti alla þessa
athygii heldur það hversu ötullega
þeir gegnu fram í því að afla sér
sýnishorna af hinum og þessum
lyfjum. Einn viðstaddra orðaði það
raunar þannig að þeir hafi beinlínis
verksmiðjunnar hér á landi og er-
lendis, s.s. á sviði tækni- og vöru-
þróunar og er sú fjárhagslega endur-
skipulagning sem nú hefur náðst
samkomulag um árangur af þeirri
vinnu.
Aðilar að Steinullarverksmiðj-
unni hf. eru Ríkissjóður sem á 29%
hlutafjár, en átti 38% áður, Patrek
OY sem á 28%, en átti 8% áður,
Sauðárkróksbær með 24% hlutafjár,
átti 31% áður, SÍS sem á nú 12% í
fyrirtækinu, en átti 15% áður, Kaup-
félag Skagfirðinga sem á 5%, en átti
6% áður og ýmsir smærri hluthafar
sem eiga 2% hlutafjár. - ÁG
hreinsað af borðunum, en venjan á
svona samkomum er að læknar taka
eitt og eitt glas af því sem þeir hafa
sérstakan áhuga á að prófa eða
kynna sér nánar. Þannig munu Tyrk-
irnir hafa sópað til sín hjartalyfjum,
fúkkalyfjum, rándýrum insúlin
„pennum", og einum 40 pökkum af
kólesterollyfi, svo eitthvað sé talið.
Hefur því varpað fram að sennilega
væri skynsamlegt að láta leikmenn-
ina gangast undir lyfjapróf fyrir
leikinn! Aðrir hafa bent á að ef
sýnishornin góðu verða notuð á
leikmenn yrði leikurinn í dag auð-
unninn.
En mannasiðir Tyrkjanna fengu
einnig að njóta sín í fyrradag þegar
liðið fór í óleyfi inn á nýjan fótbolta-
völl Mosfellsbæinga í fyrrakvöld.
Nýlega hafði verið sáð í völlinn og
því var hann viðkvæmur fyrir miklu
álagi.
„Þeim hafði verið úthlutað æfinga-
tíma á Tungubakkavelli og þar beið
maður frá okkur til að taka á móti
þeim. Síðan sé ég til þeirra með allt
sitt hafurtask og mikið af mannskap
inn á nýja leikvanginn okkar, sem er
á mjög viðkvæmu stigi og ekkert
farið að hleypa neinum með bolta
þar inná,“ sagði Davíð B. Sigurðs-
son umsjónarmaður íþróttavalla í
Mosfellsbæ. Davíð sagðist hafa farið
strax á staðinn og beðið þá um að
fara á réttan völl. „Þeir vildu ekki
hlíta því og fannst mjög gott að vera
þarna. Ég bað þá um að fara og sagði
að ef þeir yrðu ekki farnir innan
fimm mínútna þá kallaði ég á lög-
regluna. Þeir létu það sem vind um
eyru þjóta og því kallaði ég á
lögregluna. Eitthvað munu þeir hafa
orðið hræddir við það og flýttu
æfingunni, enda farnir þegar lögregl-
an kom,“ sagði Davíð. _
Tyrkneskir taktar