Tíminn - 20.09.1989, Qupperneq 13

Tíminn - 20.09.1989, Qupperneq 13
Miðvikudagur 20. september 1989 Tíminn 13 GLETTUR - Ekki taka fram í fyrir föður þínum, þegar hann er að hlusta á mig... - Elskar þú mig í alvöru, - eða eru það bara peningarnir mínir sem þú eískar? - Já, ég veit að ég er alltaf að biðja um vatn, - en fiskabúrið lekur... - Jú, hann hefur á réttu að standa, - pabbi hans getur alveg lúskrað pabba þínum... „Kvendjöf- ullinn“ lætur til sín taka Kvikmyndin Kvendjöfull- inn (She Devil) eftir skáld- sögu Fay Weldons þykir lofa góðu. Einkum er stjórnend- um hrósað fyrir val á leikendum í aðalhlutverk. Þær eru skemmtilegar and- stæður leikkonurnar Rose- anne Barr, sem leikur eig- inkonuna (Kvendjöfulinn) og Meryl Streep, sem er svo fín og fullkomin á allan hátt og heillar eiginmanninn (leikinn af Ed Begley Jr.) svo hann yfirgefur konu og börn. Eiginkonan (Roseanne) gerir sínar mótmæla- og hefndarráðstafanir og er heilmikið ágengt í þeim efnum. „Þetta er ekki neinn ærsla- eða skrípaleikur,“ segir leikstjórinn Susan Seidel- man. „En þarna eru átök á milli „fallega, fína fólksins" og „venjulega fólksins", - eða uppreisn þeirra sem allt- af hafa látið í minni pokann, gegn hinum sem allt fá upp í hendurnar.“ Susan bætti því við, að Roseanne væri alls ekki lík þeirri persónu sem þekktust er af sjónvarpsþátt- unum hennar. Hún kæmi öllum svo sannarlega á óvart í þessari mynd. Þarna sjáum við aðalleikarana þrjá úr „Kvendjöflinum" (She Devil): T.v. er Meryl Streep, fallega og fullkomna konan, sem skrifaði svo fallegar sögur, en t.h. er Roseanne Barr í titilhlutverkinu. Eiginmaðurinn, sem Ed Begley Jr. leikur, er svo á bak við og heldur utan um þær báðar r i Burda-tískublöð eru gefin út í 14 milljónum eintaka á 17tungumálum: Aenne Burda, 80 ára, er enn forstjóri og lífið og sálin í fyrirtækinu Aenne Burda er enn aðlaðandi kona og starfsöm þó hún sé orðin áttræð. Hún stjórnar útgáfufyrirtækinu Burda í Offenburg í V-Þýskalandi.Hér afhendir Max Streibl, forsætisráð- herra í Bæjaralandi, henni heiðursverðlaun fyrir útgáfustarf hennar. Milljónir kvenna um allan heim sauma kjóla, blússur og annan klæðnað eftir Burda-sniðum, úr tískublað- inu Burda, sem gefið er út á 17 tungumálum og eintaka- fjöldinn er 14 milljónir. Þetta er útbreiddasta tísku- blað heims. Útgefandi Burda er Aenne Burda, sem nýlega varð 80 ára. Hún segist ekki vera neinn tísku-einræðis- herra, heldur alltaf hafa í huga að í Burda séu föt fyrir konur á öllum aldri. „föt fyrir venjulegar konur eins og þig og mig“, eins og hún segir sjálf. Aenne Burda segir að konur sem vilji komast áfr- am verði að vinna óhemju mikið. Hún giftist ung Franz Burda, sem vann með henni að framgangi fyrirtækisins. Þau eignuðust þrjá syni, sem nú eru á aldrinum 50-57 ára, og þeir vinna líka við stjórn- un fjölskyldufyrirtækisins, en Franz Burda' andaðist 1986. Það var Aenne Burda sem árið 1949 var ekki ánægð mcð að vera „bara húsmóð- ir“. Hún hafði saumað mikið og haft áhuga á tískunni og því gerði hún tilboð í tísku- tímarit sem var að fara á hausinn og komst yfir það. Þá voru 48 manns á launa- skrá, en nú eru 570 starfs- menn hjá fyrirtækinu og um- setningin er yfir 200 milljónir þýskra marka. (6,2 milljarð- ar ísl. kr.) Frú Burda er oft kölluð „Ambassador V-Þýskalands í tískuheiminum“. Þegar hún og Raisa Gorbatsjova komu af stað rússneskri út- gáfu af Burda í Moskvu, sagði Aenne Burda: „Það sem tekur stjórnmálamenn mikinn tíma og erfiði getur hæglega unnist með tísk- unni“ og átti þá við samband og skilning milli þjóða. Rússneska útgáfan af Burda var fyrst 100.000 ein- tök, en er nú komin í 1.300.000 eintök, og eftir- spurnin vex stöðugt. Aenne Burda er enn lífið * og sálin í fyrirtækinu og starfsmenn segja hana létt- lynda og þægilega í um- gengni.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.