Tíminn - 29.09.1989, Qupperneq 13

Tíminn - 29.09.1989, Qupperneq 13
Föstudagur 29. september 1989 Tíminn 13 GLETTUR - Er eitthvað sem þú þarft að tala við mig, Margrét, áður en keppnistímabilið í fótboltanum byrjar? - Síðan ég fór að nota gleraugu við aksturinn finnst mér umferðin hafa aukist alveg rosalega - Hvert sinn sem við tökum okkur frídag og förum á veiðar þá er eins og gæsirnar taki sér líkafrí... - Ég er með áhyggjur út af pabba. Hann gekk í gær rakleiðis fram hjá bjórkránni! - Ég er einmana kvenmaður í toppstöðu og ég var að velta fyrir mér hvort þú værir ekki einmana líka? Málarinn fangaði ræningjann á striga Hann var heldur óheppinn ungi ræninginn sem valdi sér andlitsmálarann Ralph Wolfe Cowan að fórnar- lambi. Þó að hann væri snar í snúningum þegar hann stakk hendinni inn um opinn bílglugga málarans og hrifs- aði af honum gullhálsfestina náði Cowan samt að festa sér svo í minni útlitið á þjófnum að hann gerði sér lítið fyrir og málaði af hon- um mynd þegar hann kom heim. Varla hefur ungi maður- inn átt von á því að verða festur á striga hálaunaðs andlitsmálara. Viðskiptavin- ir Cowans eru nefnilega yfir- leitt af allt öðru sauðahúsi en þessi renglulegi maður í skítugu stuttbuxunum, skyrtubolnum og strigaskón- um. f hópi viðskiptavina Cowans er t.d. soldáninn af Brunei sem nýlega greiddi Cowan 600.000 dollara fyrir að gera fyrir sig fjölskyldu- myndir. Cowan hefur líka tekið að sér að gera málverk af John F. Kennedy, Grace furstafrú af Mónakó og Jó- hannesi Páli II. páfa, svo að einhverjir séu nefndir. En ránið sem Cowan varð fyrir þar sem hann sat í bíl sínum á bílastæði við skyndi- bitastað nærri heimili hans á West Palm Beach í Florida, hafði slík áhrif á hann að hann eyddi dýrmætum tíma sínum í að mála mynd af ránsmanninum, sem málar- inn verðleggur á 7.500 doll- ara. Auðvitað sýndi Cowan lögreglunni málverkið um leið og hann kærði ránið og leist iaganna vörðum svo vel á að þeir fengu að taka af því myndir til að hengja upp víðs vegar til að lýsa eftir ræningjanum. Málverkið sem Ralph Wolfe Cowan gerði af ræningjanum er á áberandi stað á vinnustofu málarans. Hann gerir sér vonir um að geta fullgert það sem fyrst en enn vantar rimlana til að myndin geti talist fullgerð. Málverkið sjálft tók málarinn hins vegar í sína vörslu aftur og sagði það enn ófullgert. Það yrði ekki full- gert fyrr en hann gæti málað rimla á sinn stað. Afmælis-ísinn hennar Loni Anderson Það er ekki langt síðan kynbomban Loni Anderson og kvennagullið Burt Reyn- olds gengu í hjónaband og því standa hveitibrauðsdag- arnir sjálfsagt enn. Það má a.m.k. ætla það eftir hinni rómantísku afmælisgjöf sem Burt gaf Loni sinni á afmæl- • isdaginn 5. ágúst. Hann bauð eiginkonunni upp á sítrónuís sem hann gekk sjálfur frá í krystalskál, - og í skálinni hennar Loni var gullnisti með stórum, mjög sérstök- um og fallegum skærgulum demanti, en slíkir demantar eru sjaldgæfir. Gripurinn er áætlaður 3.6 millj. að verð- mæti. Loni Anderson er fædd í St. Paul í Minnesota 5. ágúst 1945 og hún á gifta dóttur, Deirde, sem komin er yfir tvítugt. Þegar Deirde var aðeins 3 ára spurði hún mömmu sína hvort hún fengi svona stór brjóst, eins og mamman, þegar hún yrði stór. Loni segir, að sér hafi brugðið við spurninguna og farið að hugsa málið. Hún komst að þeirri niðurstöðu, að hún hefði óeðlilega stór brjóst og þau væru orðin til mikilla óþæginda fyrir sig. Hún ráðgaðist við lýtalækni, sem sagðist geta hjálpað henni til að minnka brjóstin þannig að vöxtur hennar yrði eðlilegur. - Það var alltof mikil „yfirbygging" á mér, sagði Loni. Loni sagði lækninn hafa staðið við fyrirheitið og hún hefði, í þessi 17 ár síðan þetta gerðist, aldrei séð eftir því að fara í aðgerðina. Loni Anderson brosir sínu blíðasta.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.