Tíminn - 12.10.1989, Blaðsíða 2

Tíminn - 12.10.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn Fimmtudagur 12. október 1989 í gæslu til 6. desember Sakadómur úrskurðaði, í gær, tvo menn í gæsluvarðhald fram til 6. desember. Krafa um gæslu- varðhald var sett fram af RLR í fyrradag og í gær tók dómari afstöðu til hennar. Mennirnir, sem báðir eru sí- brotamenn, voru staðnir að verki á innbrotsstað í K.Á. á Selfossi á mánudagsmorgun. Grunsemdir eru uppi um að tvímenningarnir séu viðriðnir innbrot í útibú K.Á. í Þorlákshöfn, sem Tíminn hefur greint frá. Þar var stolið úr pen- ingaskáp, peningum, ávísunum og greiðslukortanótum að and- virði 1,4 milljónir króna, sam- kvæmt heimildum Tímans. Mennimir tveir hafa litlu svar- að við yfirheyrslur, en svo virðist sem lögregla hafi getað sýnt fram á tengsl milli verknaðanna tveggja og þvt' hafi gæsluvarð- haldsúrskurðurinn verið svo lang- ur sem raun ber vitni. Range Rover bifreið sem mennirnir vom á, og stolið hafði verið frá bílaleigu í Reykjavík, gegnir mikilvægu hlutverki í málsrannsókninni. Þjófavarnarkerfi fór í gang þegar þeir réðust til inngöngu í K.Á. á Selfossi og varð það til þess að lögregla varð vör við hina óboðnu gesti. - ES Styrkir frá Nató Atlantshafsbandalagið mun að venju veita nokkra fræðimanna- styrki til rannsókna í aðildarríkj- um bandalagsins á háskólaárinu 1990-1991. Markmið styrkveit- inganna er að stuðla að rannsókn- um og aukinni þekkingu á mál- efnum er snerta bandalagið og er stefnt að útgáfu á niðurstöðum rannsóknanna. Alþjóðadeild utanríkisráðu- neytisins veitir upplýsingar um fræðimannastyrkina og lætur í té umsóknareyðublöð. Styrkimir nema nú um 277 þúsund íslenskum krónum og er ætlast til að unnið verði að rann- sóknum á tímabilinu frá maí 1990 til ársloka 1991. Einnig ergreidd- ur nauðsynlegur ferðakostnaður, en gert er ráð fyrir að rannsóknir geti farið fram í fleiri en einu ríki Atlantshafsbandalagsins. Styrkimir skulu að jafnaði veittir háskólamenntuðu fólki. Umsóknir um fræðimannastyrk- ina skulu berast til alþjóðadeildar utanríkisráðuneytisins eigi síðar en 15. desember 1989. Námskeið um kvíða Um miðjan október hefjast í Reykjavík námskeið sem nefnast „Betri iíðan - Námskeið um mannleg samskipti." Á nám- skeiðunum verður lögð áhersla á úrlausnir vandamála sem fylgja spennu og kvíða. Þátttakendum er kennt að meta andlegt og líkamlegt ástand sitt, þ.e. kvíða- og spennuviðbrögð og bent á tengslin á milli líkamlegrar og andlegrar líðanar. Kvíðavið- brögð koma m.a. fram í líkam- legri vanlíðan eins og höfuðverk, vöðvabólgu, svita- og skjálfta- köstum. Álitið er að um 75% af öllum líkamlegum umkvörtunum megi á einn eða annan hátt tengja streitu viðbrögðum. Á námskeiðunum eru kenndar æfðar hefðbundnar sálfræðilegar aðgerðir til að fyrirbyggja og/eða takast á við þessi viðbrögð og einkenni. Stjórnandi námskeið- anna, Oddi Erlingsson sál- fræðingur hefur um árabil leitt slík námskeið og fengist við með- ferð þessara vandamála. Nánari upplýsingar eru veittar öll kvöld eftir kl. 20:00 í síma 39109. Þjóðhagsáætlun fyrir árið 1990 lögð fram: Samdráttarskeiði lokið á næsta ári ? Efnahagshorfur fyrir árið 1990 benda til áframhaldandi samdráttar í þjóðarbúskapn- um og verður það því þriðja árið í röð sem samdráttur verður. Hins vegar gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir því að samdráttarskeiðið taki enda á árinu og þá fari hag- kerfið smám saman að rétta úr kútnum. Hagvöxtur ár- anna 1991 til 1994 yrði þá, samkvæmt útreikningum samt einungis 1 til 2% á ári, en vöxtur þjóðartekna eilítið meiri. Alþjóðastofnanir spá almennt meiri hagvexti í heiminum á næstu árum, eða um 3% hagvexti að meðal- tali. Þetta kemur fram í þjóð- hagsspá fyrir árið 1990, sem forsætisráðherra lagði fram á Alþingi í gær. Þjóðarútgjöldin, samanlögð neysla og fjárfesting, vaxa hægar en landsframleiðslan á tímabilinu 1991 til 1994 og raungengi á mælikvarða verðlags fer lækkandi og verður um 5% lægra heldur en 1989. Þetta þýðir betra jafnvægi í viðskiptum við útlönd en verið hefur. Spáð er að erlendar skuldir, sem hlutfall af landsframleiðslu komist í 51% árið 1990, en lækki eftir það í um 35% í árslok 1994. í þjóðhagsáætlun kemur fram að miðað við þær niðurstöður sem m.a. er greint frá hér að ofan gefi ekki ástæðu til þess að lífskjör muni batna fyrr en að nokkrum árum liðnum. Verði af áformum um að auka álframleiðslu geta þeir útreikningar sem lagðir eru til grundvallar breyst nokkíið. Meðal annars yrði hagvöxt- ur meiri en í grunndæminu, en raungengi hærra og viðskiptajöfnuð- ur óhagstæður meðan á framkvæmd- um stæði. Erlendar skuldir yrðu svipaðar og f dæminu sem lagt er til grundvallar. Samdráttur þjóðartekna ársins dráttarskeiðið frá stríðslokum varð á árunum 1949 til 1952, er landsfram- leiðsla minnkaði í fjögur ár samfellt. Þá varð heildarsamdrátturinn 6,5%, en spár um landsframleiðslu áranna 1988 til 1990 sýna að heildarsam- drátturinn verði um 5%. Þó skilyrði þjóðarbúsins hafi verið erfið að undanfömu hefur tekist að halda fyllilega í horfinu varðandi verðbólgu og viðskiptahalla. Verð- bólga frá upphafi til Ioka árs stefnir nú í 25%, en það er nánast sama verðbólga og var í fyrra. Hins vegar eru horfur á að halli í viðskiptum við útlönd verði minni en í fyrra. Hallinn á þessu ári er áætlaður 3% af landsframleiðslu, en var í fyrra 3,7% árið 1988. Erfið skilyrði þjóðarbúsins setja svip sinn á markmið og stefnu ríkis- stjómarinnar í efnahagsmálum á komandi ári. Brýnustu verkefnin beinast að því að bæta stöðu atvinnu- lífsins og treysta þar með atvinnuör- yggi og ná samtímis niður verðbólgu. Ríkisstjórnin hyggst ná þessum markmiðum með samræmdri stjórn ríkisfjármála, peningamála, gengis- mála og með því að stuðla að skipulagsbreytingum sem tryggja sem mestar framfarir og hagræðingu í atvinnulífinu. Markmið ríkisstjómarinnar í efnahagsmálum á árinu 1990 er þessi: - að bæta afkomu atvinnuveganna og stuðla á þann hátt að því að atvinnuástand haldist viðunandi. - að stuðla að endurskipulagningu, nýsköpun og aukinni hagkvæmni f atvinnulífinu og leggja þar með gmnn að hagvexti og góðum lífskjör- um á næstu ámm. - að ná nýjum áfanga í baráttunni við verðbólgu og koma henni svo fljótt sem kostur er niður á svipað stig og í helstu viðskiptalöndum okkar. - að koma í veg fyrir að viðskipta- halli aukist. - að stuðla að réttlátri tekjuskiptingu og verja lífskjör hinna tekjulægstu, meðal annars með því að lækka framfærslukostnað. - að beita sér fyrir jafnvægi í byggða- þróun. - ABÓ Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra lagði fram á Alþingi í gær þjóðhagsáætlun fyrir næsta ár. 1990 stafar einkum af því að nauð- synlegt er talið að draga verði úr fiskafla, einkum þorskafla til að treysta fiskistofna. Reiknað er með að viðskiptakjör í heild verði nánast óbreytt á milli áranna 1989 til 1990. Miðað við forsendur þessarar áætl- unar verður landsframleiðsla og þjóðarframleiðsla um það bil 1% minni 1990 en á þessu ári og við- skiptahalli verður óbreyttur frá þessu ári. Þjóðhagsreikningar ná allt aftur til ársins 1945. í 10 af þessum 46 árum hefur landsframleiðsla dregist saman, en lengsta samfellda sam-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.