Tíminn - 12.10.1989, Blaðsíða 8

Tíminn - 12.10.1989, Blaðsíða 8
8 Tíminn Fimmtudagur 12. október 1989 Listahátíö í Reykjavík Verðlaunasamkeppni á sviði lista - meðal ungs fólks Listahátíð í Reykjavík efnir til verðlaunasam- keppni á sviði lista - meðal ungs fólks. Mega þátttakendur kjósa sér listform: hvort sem væri á sviði ritaðs máls, myndmáls, á sviði danslistar, leikhúss eða tónlistar (hljóðlistar), sviði formlistar eða umhverfislistar - má vera á enn öðru sviði, jafnvel fleiri en eitt form saman. Keppnin tekur til frumsköpunar í list fyrst og fremst. Þátttakendur séu 19 ára eða yngri (miðað við skiladag). Skilafrestur er til 1. mars 1990. Verki sé skilað á skrifstofu Listahátíðar, Gimli v/Lækjar- götu, 101 Reykjavík - svo fullbúnu sem kostur er, ellegar ítarlegri lýsingu á hugmynd þess. Listahátíð lýsir sérstökum áhuga á verkum unnum út frá grunnhugmyndinni „íslendingur og haf“ en verk út frá öðrum hugmyndum hafa þó fullan rétt í keppninni. Verðlaunafé verður alls 400 þúsund kr. og hefur dómnefnd sjálfdæmi um deilingu þess. Dómnefnd setur sér vinnureglur sjálf. Verðlaun verða afhent við opnun Listahátíðar 1990. Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands er heið- ursformaður dómnefndar. Dómnefnd er skipuð í samráði við stjórn Bandalags íslenskra lista- manna og er formaður dómnefndar Brynja Bene- diktsdóttir, leikstjóri (forseti B.Í.L.). Dómnefnd skal heimilt að kalla sértil fulltingis listfróða menn. Áformuð er kynning valinna verka úr samkeppn- inni á Listahátíð og/eða síðar svo sem tök verða á. Listsamkeppni þessi er kostuð af íslandsbanka hf. 5. október 1989 Listahátíð í Reykjavík. RANWSÖKNARÁÐ RÍKISINS Deildarsérfræðingur Rannsóknaráð ríkisins óskar að ráða starfsmann með háskólapróf í hagfræði, viðskiptafræði eða öðrum greinum vísinda. Reynsla af rannsóknum eða öðru sjálfstæðu starfi að verkefnum og góð tölvukunnátta nauðsynleg. Starfssviðið varðar athuganir, sem lúta að mótun vísinda- og tæknistefnu á íslandi, m.a. mannafla og fjármagni til rannsókna, sérhæfðum starfskröft- um og þróunarforsendum nýrra tækni- og fram- leiðslugreina, svo og umsjón með ársfundum og árskýrslum Rannsóknaráðs í samvinnu við Vís- indaráð. Umsóknarfrestur er til 23. október, 1989. Upplýsingar veittar í síma 21320. + Útför eiginkonu minnar Sigríðar Önnu Sigurjónsdóttur Engjavegi 45 Selfossi sem lést 5. október verður gerð frá Krosskirkju í Austur-Landeyjum laugardaginn 14. okt. kl. 2 e.h. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Axel Jónsson. Hugleiðingar og spurningar útaf ráðstefnu um heil- brigðis og tryggingamál Það hefur víst ekki farið framhjá neinum, sem fylgist með fjölmiðlum, að Framsóknarflokkurinn héit um síðustu helgi ráðstefnu um heilbrigð- is og tryggingarmál. Á mælendalista ráðsteftrunnar voru auk ráðherra forsætis og heilbrigðismála, flestir aðalembættismenn heilbrigðisþjón- ustunnar og ýmsir aðilar aðrir, sem látið hafa heilbrigðismál til sín taka. Undirritaður átti þess ekki kost að sækja ráðstefnuna, en hefur hlustað á fréttir af henni í sjónvarpi og útvarpi. Ekki hefur þar farið miklurn sögum af því hvað forystumenn þjóðarinnar höfðu þar til mála að leggja, en aðeins verið nefnt eitt nafn, þ.e.a.s. nafn aðstöðarmanns heilbrigðisráðherra Finns Ingólfs- sonar. Að sögn fyrmefndra fjölmiðla, fjallaði mál hans ekki um það, hvernig bæta megi íslenska heil- brigðisþjónustu, heldur um það, hvernig hægt sé að spara í þjónust- unni. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að tannlæknaþjónusta er dýr á Islandi, bitnar sá dýrleiki að sjálf- sögðu á ríkissjóði, sem greiðir hluta af þessari þjónustu fyrir börn og gamalmenni. Aðstoðarmaður ráð- herra hefur lausnina í hendi sér, en hún er, að flytja inn atvinnulausa tannlækna frá hinum Norðurlöndun- um, sem bíði bara eftir því að koma hingað til að undirbjóða collega sína. Fjölmiðlar létu þess ekki getið hvort íslensk heilbrigðisyfirvöld hefðu þegar tryggt sér þessa þjón- ustu, eða hver viðbrögð íslenskra tannlækna yrðu við slíkri innrás á þeirra markaðssvæði. Sé svo ekki, fyndist mér ástæða til að bjóða einhverja aðlaðandi varapatent- lausn, t.d. niðurgreiddar Búlgaríu- ferðir. En það eru ekki bara tannlæknar, sem em að koma marghrjáðum ríkis- sjóði á vonarvöl. Kostnaður við sérfræðiþjnustu lækna hefur þre- faldast á síðustu 5 ámm. Fjölmiðlam- ir tíunda ekki neinar ástæður fyrir þessari aukningu kostnaðar, en væntanlega hefur aðstoðarmaður ráðherra gert það í erindi sínu. Hinsvegar skortir ekki góð ráð til að lækka þennan kostnað, jafnvel um milljónahundruð. Aðalráðið er að loka spítalasérfræðinga inni á spít- ölunum og selja svo utanspítalaþjón- ustuna lægstbjóðandi. Einhverjar hliðarráðstafanir eiga að fylgja með í Brussel er verið að leggja síðustu hönd á aðra álitsgerð Efnahags- bandalags Evrópu um bankamál. f álitsgerðinni mun lagt til, að stjórn- arnefnd EBE verði heimilað að leggja hömlur á starfsemi útlendra banka, eða banna með öllu, ef heimalönd þeirra hefta starfsemi banka með lögheimili í aðildarlönd- um bandalagsins. Hefur Samband banka í EBE tekið saman lista yfir 26 lönd, sem beita slíkum höftum af einu eða öðru tagi. Hefur forseti Sambandsins, Umberto Burani, sagt, að listanum fylgdi yfirlit yfir höftin, að því er Financial Times hermdi 17. ágúst 1989 (en taldi ekki upp þessi 26 lönd). í yfirlitinu segir um Japan: „Að formi til njóta út- lendir bankar í Japan sömu stöðu og innlendir á mörgum sviðum. Hins vegar hafa þeir aðeins takmarkaðan aðgang að japönskum markaði af í kaupunum, svo sem að vekja upp tilvísanadrauginn og láta sjúklinga kvitta að loknu læknisverki, til að tryggja að þeir krefjist ekki gjalds fyrir óunnin verk. Fjölmiðlarnir létu þess ekki getið, hvar og hverjir eiga að sinna þeirri þjónustu, sem sérfræðingar sjúkra- húsanna hafa sinnt til þessa en væntanlega hefur aðstoðarmaður ráðherra haft á því lausnir sem öðru. Þetta er orðinn nokkuð langur formáli að stuttum spurningum, sem komu upp í huga fjölmiðlaneytand- ans við að hlusta á fregnir af ráð- stefnunni. Þær eru á þessa leið: Var framlag Eða plötusnúður. Hann talar og talar og talar. Sprelligosar Ný sögubók á léttu móli eftir Andrés Indriðason með myndum eftir Gylfa Gíslason Sagan Sprelligosar fjallar um hvemig Ólafi Helga liður eftir að hafa skotið úr túttubyssu á Tomma besta vin sinn, hve erfitt er að einbeita sér að þvi sem fram fer í skólanum á meðan Tommi er á sjúkrahúsi, hvemig Ólafur Helgi ákveður að reyna að bæta fyrir brot sitt og margt fleira. Sagan Sprelligosar er skrifuð á lóttu og ljósu máli og einkum ætluð bömum á aldrinum 11 til 13 ára sem erfitt eiga með að lesa langan samfelldan texta. Línur em stuttar, gott bil á milli þeirra og letur greinilegt. Líflegar myndir Gylfa Gíslasonar prýða nánast hverja opnu bókarinnar. ýmsum ástæðum." Nokkrar þeirra em tilgreindar: Ákvörðun stjóm- valda á hæð vaxta, sem einkum er til góðs stórum bönkum með mörg útibú; takmarkanir á lántökum banka á milli; útlendir bankar eiga ekki kost á endurfjármögnun í seðla- bankanum. Bandaríkin eru líka sögð meina útlendum bönkum starfsleyfis í sum- um ríkjum (fylkjum) sínum og yfir- leitt setja starfsemi þeirra skorður. í>á eru Kanada og Ástralía sögð þrengja að útlendum bönkum sem og Svíþjóð og Noregur. - í Asíu em mörg lönd sögð meina útlendum bönkum starfsleyfis eða setja þeim þröngt starfssvið, svo sem Kína, Singapore, Suður-Kórea, Taiwan, Indland, Indónesía, Malaysía, Pak- istan og Thailand. Fáfnir forystumanna heilbrigðismála svo léttvægt á ráðstefnunni að ekki taki að geta þess, eða var framlag aðstoð- armanns ráðherra svo gagnmerkt að • annað efni féll í skuggann? Hreyfði enginn ráðstefnugesta andmælum við erindi aðstoðarmanns ráðherra, eða voru þau andmæli, ef einhver voru, svo ómerkileg að ekki taki að geta þeirra? Að lokum þetta. Ber að skoða erindi aðstoðarmanns ráð- herra sem stefnuyfirlýsingu ráðstefn- unnar og þar með stefnu Framsókn- arflokksins í þeim þáttum heilbrigð- ismála, sem þar var rætt um? Bessastaðahreppi 10. okt. ’89 Arni Bjömsson llllllllllll Bókin kemur einnig út á hljómbandi sem ætlað er til lestrarþjálfunar. Nemandinn getur fylgst með í bókinni um leið og hann hlustar á bandið. Bókin er 136 blaðsíður í brotinu A5. Að verða fullorðinn Námsgagnastofnun vekur athygli á námsefninu Að verða fullorðinn sem ætlað er nemendum sem af ýmsum ástæðum geta ekki notað almennt námsefni, t.d. vegna takmarkaðs málskilnings, lestrarerfiðleika o.fl. Nemendabók ber upp námsefnið en henni fylgja hljóðbók (nemendabók) og kennarabók með glærum. Nemendabókin er skrifuð á einföldu og skýru máli og í henni er fjölbreytt myndefni til stuðnings textanum. Hún skiptist í niu meginkafla þar sem fjallað er m.a. um líkamlegar breytingar, hegðun, framkomu, tilfinningar, áhugamál, tómstundir, ábyrgð, kynlíf o.fl. Höfundur nemendabókar eru sérkennararnir Fjölnir Ásbjörnsson og Sylvía Guðmundsdóttir sem ásamt Auði Hrólfsdóttur sérkennara tóku einnig saman kennarabókina. Búi Kristjánsson teiknaði myndir. Nemendabókin er 78 blaðsíður i brotinu A4. BÆKUR llllllllllllllllllllllll VIÐSKIPTALÍFID IIIIIIIIIIIIIIIIM Ný álitsgerð EBE um bankamál

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.