Tíminn - 12.10.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 12. október 1989
Verðlaunasamkeppni
Ert þú lík þessari?
Sultugerðin Búbót efnir til verðlaunasam-
keppni. Leitað er að konu sem er lík
Mömmusultu mömmunni. Pátttakendur
eru beðnir að senda inn myndir af sér
(brjóstmyndir) í lit með rauðdoppóttan
skýluklút á höfðinu og grænt sjal fyrir 28.
október. Vinningshöfum gefst kostur á að
leika í auglýsingum fyrir Mömmusultur.
Verðlaunin eru glæsileg: Fyrstu verðlaun
eru 10.000 kr og nafnbótin Mömmusultu
mamma 1989. Verðlaun 2 til 20 eru ýmsar
sultugerðir frá sultugerðinni Búbót.
Myndir ásamt nafni og heimilisfangi
sendist: Sultugerðinni Búbót Skemmuvegi
24M Kópavogi.
Veitingahús SfS
við Álfabakka
- rekstur veitingasölu
1. nóvember næstkomandi mun íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjavíkur taka við rekstri veitinga-
húss við Álfabakka (Broadway). Auglýst er eftir
aðilum, sem vilja koma til álita sem leigutakar að
rekstri veitingasölu í húsinu.
ísfisksölur til Bretlands og Þýskalands fyrstu níu mánuðina:
Utflutningsverðmæti
rúmir 5,5 milljarðar
Á fyrstu níu mánuðum þessa árs voru flutt til Bretlands
21.687 tonn af þorski, sem er 5430 tonnum minna en flutt var
til Iandsins á fyrstu níu mánuðum síðasta árs. Þrátt fyrir þessa
minnkun í útflutningi á þorski, hafa heildarverðmæti aukist
lítillega. Samanlagt nam heildarútflutningur á ísfiski til
Bretlands og Þýskalands samtals 5,5 milljörðum króna á
fyrstu níu mánuðum þessa árs.
Fyrir þorskinn sem fluttur var út
til Bretlands á þessu ári fékkst
samtals 1 milljarður 867 milljónir
króna, en á síðasta ári fékkst 1
milljarður 819 milljónir króna. Þessi
aukning í krónum talið, þrátt fyrir
5430 tonna minni útflutning, skýrist
einkum af hækkun pundsins. Þá
hafa verðmæti hvers þorskkílós auk-
ist lítillega. Að meðaltali voru greidd
0.94 pund fyrir hvert kíló fyrstu níu
mánuði þessa árs, en á síðasta ári var
meðalverð á kíló 0.91 pund.
Um 1300 tonna meiri útflutningur
var á ýsu til Bretlands á fyrstu níu
mánuðum þessa árs, en var í fyrra.
Heildarútflutningurinn nú nam
12.556 tonnum og fékkst tæpur 1,2
milljarður fyrir aflann. Meðalverð í
pundum hefur haldist nær óbreytt.
Um 4300 tonn voru flutt út af kola á
þennan markað yfir sama tímabil,
sem er tæpum 700 kílóum minna en
í fyrra. Fyrir aflann fengust nú tæpar
353 milljónir króna. Meðalverð í
pundum er óbreytt milli ára.
Heildarútflutningur á Bretlands-
markað nam samtals 44.814 tonnum.
Meðalverð á kíló í pundum talið á
tímabilinu var 0.94 pund, en árið
áður á níu mánaða tímabili var
meðalverðið 0.91 pund. Heildar-
verðmæti selds afla á Bretlands-
markaði nam 3 milljörðum 865 millj-
ónum króna. Á sama tímabili í fyrra
var útflutningurinn 49.497 tonn og
heildarverðmæti þess á þávirði var 3
milljarðar 345 milljónir króna.
Til Þýskalands voru flutt út sam-
tals 24.802 tonn á fyrstu níu mánuð-
unum. Heildarverðmæti er rúmur
1,7 milljarður króna. Á sama tíma-
bili í fyrra voru flutt til Þýskalands
18.965 tonn og var heildarverðmætið
þá rúmur milljarður króna. Útflutn-
ingur á karfa jókst um tæp 4000 tonn
á tímabilinu milli áranna, úr 12.681
tonni 1988 í 16.293 tonn 1989 og
útflutningur á ufsa jókst um rúm
1200 tonn eða úr 2.643 tonnum í
3.858 tonn.
í september sl. voru flutt til Bret-
lands með skipúm og í gámum
samtals 4355 tonn, þar af voru 2485
tonn af þorski og 1075 tonn af ýsu.
Heildarverðmæti í krónum talið
voru rúmar 469 milljónir króna.
Meðalverð fyrir kílóið var um 1,1
pund, eða 106 til 108 krónur.
í Þýskalandi voru seld samtals
3371 tonn í september fyrir rúmar
239 milljónir króna. Meðalverð á
kíló í þýskum mörkum var 2,24
mörk, en í krónum talið rúm 71
króna. Af 3371 tonni voru samtals
1896 tonn af karfa og 1046 tonn af
ufsa. -ABÓ
Ljóðspeglar
Hjá Námsgagnastofnun er
komin út bókin Ljóðspeglar.
Bókin er ætluð nemendum í 7.-9.
bekk grunnskóla og er framhald
þeirrar ljóðaútgáfu
Námsgagnastofnunar sem leit
dagsins ljós með útgáfu
Ljóðspora á sl. ári. Útgáfunni
verður væntanlega lokið með
þriðju og síðustu bókinni
Ljóðsprotum (handa 1.-3. bekk)
seint á næsta ári.
1 Ljóðspeglum eru á þriðja
hundrað ljóð eftir 132 ljóðskáld frá
þessari öld og þeirri síðustu. Að
uppbyggingu er bókin svipuð
Ljóðsporum. Bókinni er skipt í átta
kafla og hverjum kafla í mismarga
þætti. Við röðun ljóða innan hvers
þáttar eru það einkum efni,
bragfræði eða myndmál sem ráða
því hvemig ljóðin raðast saman.
Hver þáttur hefs. á verkefni eða
tillögum og viðfangsefnum.
Aftast í bókinni er kafli um
bragfræði auk kafla með
orðskýringum. ítarlegar höfunda-
og ljóðaskrár eru einnig aftast í
bókinni.
Bókina prýðir fjöldi ljósmynda.
Hún er alls 208 bls., filmuunnin í
Repró, prentuð í
Umbúðamiðstöðinni hf. og bundin
í Félagsbókbandinu — Bókfelli hf.
Umsóknum skal skilað eigi síðar en 20. október
n.k. á sérstökum eyðublöðum sem liggja frammi á
skrifstofu ÍTR, Fríkirkjuvegi 11.
ÍÞRÓTTA-OG
TÓMSTUNDARÁÐ
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
eindagi launaskatts fyrir mánuðina júlí og ágúst er
16. október n.k. Sé launaskattur greiddur eftir
eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því
sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Jeppahjólbarðar
Hágæðahjólbarðar HANKOOK frá Kóreu.
9,5-30-15 kr. 5.950,-
10.5- 31-15 kr. 6.950,-
12.5- 33-15 kr. 8.800,-
Gerið kjarakaup
Örugg og hröð þjónusta
BARÐINN
Skútuvogi 2, Reykjavík
Símar 91-30501 og 84844
Forseti íslands frú Vigdís Finnbogadóttir
Forsetinn á
faraldsfæti
Rólegheit
við Kötlu
Engar jarðhræringar hafa orðið
við Kötlu síðastliðna viku en í byrjun
mánaðarins mældust nokkrir jarð-
skjálftar þar. Þeir stærstu mældust
um 4 stig. Að sögn Einars Einarsson-
ar bónda á Skammadalshóli í
Mýrdal, en þar er jarðskjálftamælir
staðsettur, er nokkuð algengt að
jarðskjálftar verði við Kötlu síðla
sumars eða á haustin. Einar sagði að
menn þar um slóðir létu þetta ekki
trufla sig enda finndu menn ekki
þessa skjálfta. Þeir kæmu aðeins
fram á jarðskjálftamælum. -EÓ
Samtök
heima-
vinnandi
Næstkomandi laugardag verða
stofnuð Landsamtök heimavinn-
andi. Markmið samtakanna er að ná
fram leiðréttingu í lífeyrissjóðsmál-
um, skattamálum, tryggingamálum
og á öðrum þeim sviðum þar sem
heimavinnandi fólk hefur ekki notið
réttar á við annað vinnandi fólk.
í tilkynningu frá undirbúnings-
hópnum segir: „Hefja þarf störf á
heimilum til vegs og virðingar, t.d.
með því að meta heimilisstörfin í
þjóðhagsreikningum á sama hátt og
önnur störf í þjóðfélaginu, en slíkt
ætti að koma öllum heimilum í
landinu til góða.“
Á fundinum verður leitað svara
við ýmsum spurningum varðandi
hagsmuni heimavinnandi fólks.
Meðal annars varðandi skatta-, dag-
vistunar og lífeyrissjóðsmál.
Stofnfundurinn verður haldinn á
Holiday Inn og hefst kl. 13:30 og er
öllum opinn. SSH
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, fór í gær áleiðis til
Genfar, þar sem hún mun verða
formaður dómnefndar í samkeppni
Evrópubandalags útvarps- og sjón-
varpsstöðva um besta handritið að
sjónvarpsleikriti í ár. Þá mun forseti
afhenda verðlaun keppninnar 16.
október nk.
Frá Genf fer frú Vigdís til Lau-
sanne í Sviss og flytur'þar erindi á
ráðstefnu um áhrif ferðamála á
menningu þjóða.
Þá hefur forseti þegið boð forseta
Sviss um að koma í opinbera vinnu-
heimsókn til Bern 17. þ.m. Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra, verður þar í fylgd forseta og
mun hann eiga viðræður við utanrík-
is- og utanríkisviðskiptaráðherra
Sviss.
í fylgd með forseta íslands verður
Komelíus Sigmundsson forsetarit-
ari.