Tíminn - 12.10.1989, Qupperneq 3

Tíminn - 12.10.1989, Qupperneq 3
Fimmtudagur 12. október 1989 Tíminn 3 Fjölbrautarskólinn á Sauðárkróki hefur starfað í áratug: BYGGING BÓKNÁMS- HÚSS HEFST 1990 Fyrir skömmu var þess minnst við hátíðlega athöfn á Sauðárkróki að tíu ár eru liðin frá því Fjölbrauta- skólinn á Sauðárkróki tók til starfa. Athöfnin fór fram í íþróttahúsinu að viðstöddu fjölmenni. Jón Hjartarson skólameistari rakti sögu skólans þetta tíu ára tímabil og jafnframt aðdraganda að stofnun skólans. Hann var settur í fyrsta skipti 22. sept. 1979. Þá voru nem- endur fremur fáir. Síðan hefur skól- inn vaxið jafnt og þétt, aðsókn hefur verið mikil, um 300 nemendur á hverri önn hin síðari ár. Skólinn hefur ávallt búið við frem- ur þröngan húsakost. Nú sést hins- vegar að hillir undir breytingar til bóta á því sviði því nú er ákveðið að hefja byggingu Bóknámshúss fyrir skólann á næsta ári. Rætist þar með langþráður draumur aðstandenda Fjölbrautaskólans því Bóknámshús- ið er lengi búið að vera til á teikni- borðinu en fjárveitingar hefur skort til að byrjað væri á framkvæmdum. í ræðu sem Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra flutti á afmælishát- íðinni sagði hann að upphæð sú sem ætluð væri á fjárlögum næsta árs til Bóknámshússins væri þannig að eng- inn þyrfti að skammast sín fyrir hana og var augljóst á svipbrigðum hátíð- argesta að þessi ummæli ráðherrans féllu í góðan jarðveg. Að lokinni ræðu skólameistara fluttu ávörp Stefán Ólafur Jónsson fulltrúi menntamálaráðherra. Þorbjöm Ámason formaður skólanefndar, Ragnar Arnalds alþingismaður, Hjálmar Jónsson sóknarprestur, Ólafur R. Grímsson ráðherra, Jón Ásbergsson fyrrverandi formaður skólanefndar, Kristján Möller bæjarfulltrúi á Siglufirði, Aðalheið- ur Arnórsdóttir forseti bæjarstjómar HVÍTUR STAFUR er aðal hjálpartæki blindra og sjónskertra í umferðinni ¥ BLINDRAFÉLAGIÐ ||^ERÐAR l/lyndatökur frá kr. 6.500,- út októbermánuð, öllum tökum fylgja tvær prufustækkarnir 20x25 cm. ____ Ljósmyndastofa Kópavogs sími 4 30 20 Sauðárkróks, Valgeir Kárason kennari og Stefán Guðmundsson alþingismaður. f tilefni af afmælinu bárust skólan- um nokkrar gjafir og fjöldi árnaðar- óska. Við athöfnina vom útskrifaðir fjórir stúdentar, en vegna verkfalla síðastliðið vor varð að fresta útskrift þeirra þá. Að lokinni athöfninni í íþróttahúsinu var öllum gestum boð- ið að þiggja veitingar í mötuneyti Fjölbrautaskólans. ÖÞ. Jón Hjartarson skolameistari í ræðustól. ysk® Hvemig er frádráttarheimildin í viróisaukaskattí? , 's*. ' ■ • Endurgreiðsla ef innskattur er hærri en útskattur nnskattur á ákveðnu uppgjörstímabili kann að verða hærri en útskattur sama tímabils. Þetta getur t.d. gerst vegna fjárfestingar (bygging eða viðhald fasteignar fyrir reksturinn eða kaup á dýrum tækjum) ^F'eða ef fyrirtækið safnar birgðum. Einnig ef fyrirtæki selur undanþegna vöru eða þjónustu (t.d. útflutningur). í þessum tilvikum endurgreiðir ríkissjóður t^-mismun innskatts og útskatts. Skilyrði frádráttar Innskattur dregst frá útskattí 'irðisaukaskattur sem fyrirtæki greiðir af vöru og þjónustu sem það kaupirtil nota í rekstrinum er nefndur innskattur. Virðisaukaskattur sem fyrirtæki innheimtir af sölu sinni er hins vegar nefndur útskattur. Við uppgjörtil ríkissjóðs dregur fyrirtækið þann innskatt sem það greiðir á hverju uppgjörstímabili frá útskattinum sem það hefur innheimt á sama tímabili, þ.e. fyrirtækið greiðir aðeins mismuninn á útskatti og innskatti. Innskattur af flestum aðföngum er frádráttarbær kilyrði fyrir frádrætti eru: • Að fyrirtækið stundi skattskylda starfsemi. • Að keypt vara eða þjónusta sé til nota í rekstrinum. • Að innskatturinn sé bókfærður á grundvelli löglegs fylgiskjals (reiknings eða tollskýrslu). Endurgreiðsla er heimil þótt varan sé óseld f nnskattinn má draga frá á því uppgjörstímabili sem vara eða þjónusta er keypt. Ekki skiptir máli hvort aðföngin eru staðgreidd eða keypt með greiðslufresti. Innskatt af vöru sem keypt er til endursölu eða úrvinnslu má draga frá þótt hún sé óseld í lok uppgjörstímabils. Uppgjörstímabilin eru mislöng rádráttarheimildin nærtil innskatts af svo til öllum aðföngum fyrirtækja sem varða skattskylda sölu þeirra. Það er ekki aðeins innskattur af endursölu- vörum og hráefnum sem kemurtil frádráttar, heldur einnig innskattur af fjárfestingu og rekstrarvörum sem notaðar eru fyrir reksturinn. í nokkrum tilvikum erfrádráttarheimildin takmörkuð. Innskattur af hlunnindagreiðslum, risnu og gjöfum er ekki frádráttarbær. Sama gildir almennt um innskatt vegna fólksbifreiða. ilmennt uppgjörstímabil er tveir mánuðir, en ef útskattur er að jafnaði lægri en innskattur, þannig að fyrirtækið eigi yfirleitt rétt á endurgreiðslu, getur fyrirtæki fengið heimild skattstjóra fyrir skemmra uppgjörstímabili. Uppgjörstímabil bænda ersex mánuðir. Upplýsingasími RSK vegna virðisaukaskatts er 91-624422 RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.