Tíminn - 12.10.1989, Qupperneq 20

Tíminn - 12.10.1989, Qupperneq 20
AUGLÝSINGASÍMl VR: 680001 — 686300 RÍKISSÍöP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hofnorhúsinu v/Tryggvogötu. S 28822 SAMVINNUBANKINN 1 í BYGGÐUM LANDSINS Leigjum út sali fyrir fundi og einkasamkvæmi og aðra mannfagnaði PÓSTFAX TÍMANS 687691 9 I íminn FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1989 Stefán Valgeirsson, aldursforseti Alþingis: Var handhafi forsetavalds í sex stundir Stefán Valgeirsson þingmaður Samtaka um jafnrétti og félagshyggju, var einn handhafi forsetavalds, sem forseti sameinaðs Alþingis, í rúmlega sex klukkutíma í gær. Þessi staða kom upp vegna þess að bæði Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands og Steingrímur Hermannsson fóru til útlanda í gærmorgun. Núverandi handhafi er Guðrún Helgadóttir forseti sameinaðs þings en hún var endurkjörin í það embætti af þinginu í gær. Venja er að sá handhafi er tekur forseti hafi ekki verið kosinn. Það við forsetavaldi fylgi forseta úr hlaði, og beiðni barst frá forsætis- ráðuneytinu til Guðrúnar Helga- dóttur, þess efnis að hún fylgdi Vigdísi Finnbogadóttur til Kefla- víkur og tæki þar með við emb- ættisskyldum forsetans. Guðrún neitaði erindi ráðuneytisins og vitnaði til 10. greinar þingskapar- laga, þar sem tekið er fram að aldursforseti Alþingis hafi sömu skyldur og réttindi til að bera og forseti sameinaðs þings, á meðan varð því úr að Stefán fór. Að sögn Guðrúnar minnist hún þess ekki að aldursforseti Alþingis hafi gegnt þessu hlutverki áður. Stefán sem er á sjötugasta og fyrsta aldursári, er forseti samein- aðs þings á meðan Alþingi er ekki starfandi, en sú staða fellur í hlut elsta starfandi Alþingismanns. Al- þingi var sett á þriðjudag, en í gær voru kosnir starfsmenn þingsins og hlutað niður sætum. Stefán Val- geirsson var þess vegna forseti sameinaðs Alþingis þar til klukkan tvö eftir hádegi í gær. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra er fyrsti handhafi forsetavalds í for- föllum Vigdísar Finnbogadóttur forseta íslands. Steingrímur fór utan snemma í gærmorgun til að sitja ráðstefnu forystumanna frjáls- lyndra flokka, sem haldin er í París. Vigdís hélt einnig utan laust fyrir klukkan átta í gærmorgun áleiðis til Genfar þar sem hún verður formaður dómnefndar í samkeppni Evrópubandalags út- varps- og sjónvarpsstöðva um besta handrit að sjónvarpsleikriti í ár. Annar handhafi forsetavalds í fjarveru Vigdísar Finnbogadóttur er forseti sameinaðs þings, sem í þessu tilfelli var Stefán Valgeirs- son. Stefán hélt embættinu í sex klukkustundir, þ.e. frá því að hafa fylgt Vigdísi til Keflavíkur fyrir Stefán Valgeirsson. klukkan átta í gærmorgun og þar til klukkan rúmlega tvö í gærdag, er Guðrún Helgadóttir þingmaður var endurkjörin forseti sameinaðs þings. Þess má svo geta að þær breytingar urðu á embættismanna- skipan Alþingis að Árni Gunnars- son þingmaður Norðurlandskjör- dæmis vestra var kjörinn þingfor- seti neðri deildar, í stað Kjartans Jóhannssonar. GeirH. Haardevar kjörinn fyrsti varaforseti. -ÁG Hans Ragnar Þorsteinsson byggingameistari bendir á þann stað þar sem þýfið fannst, undir stígnum Timamynd Ámi Bjarna. Fann þýfi undir stíg Bílútvarp, geislaspilari fyrir bíl og fjórir hátalarar, tveir stórir og tveir litlir, fundust við vinnuskúr á ný- byggingarsvæði við Akurgerði 27 til 29 upi hádegisbil í gær. Talið er að hér sé um þýfi að ræða. Verðmæti þessara tækja er á annað hundrað þúsund krónur. Það var Hans Ragnar Þorsteins- son byggingameistari sem fann hljómtækin undir gangstíg, er liggur milli vinnuskúrs og nýbyggingarinn- ar. Þegar hann var að ganga að vinnuskúrnum laust fyrir hádegi, sá hann grilla í einn hátalaranna og þegar betur var að gáð komu hin tækin eitt af öðru í ljós. Rannsóknar- lögreglan fór á staðinn og tók tækin í sína vörslu. -ABÓ 30.000 laxar komu á stöng á tímabilinu Samkvæmt bráðabirgðatölum Veiðimálastofnunar veiddust um 30.ÖÖ0 laxar á stöng og um 12.000 laxar í net á laxveiðitímabilinu sem lauk 20. septembcr sl. Alls endur- heimtust uni 50.000 laxar úr hafbeit og er því heildarfjöldi laxa sem kom á land á íslandi á þessu ári um 92.000 stykki. Laxveiði á stöng var um 19% minni en meðalveiði áranna 1974 til 1988 og um 39% minni en hún var árið 1988. Stangveiðin nú cr svipuð og hún var 1980 og 1983. Frávik frá meðalveiði var mismikið eftir landshlutum. Á Suðvestur- landi var veiðin 15% yfir meðaltuli fyrrnefndra ára, á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi eystra var stangveiðin 20% undir meðaltali og 36% á Norðurlandi vestra. Veiðin á Austurlandi að Vopnafirði meðtöldum var í með- allagi, en á Suðurlandi var hún um 10% undir meðaltali. Aflahatsta áin í sumar var Laxá í Kjós og Bugða með 2126 iaxa, í öðru sæti eru Elliðaár með 1763 laxá og í þriðja sæti er Laxá í Aðaldal með 1630 laxa. Netaveiðin á árinu var um 12.00 laxar eins og áður sagði, sem er um 30% minni en meðalveiði áranna 1974 til 1988. Flestirlaxarveiddust á Suðurlandi, eða 6200, 5500 á Vesturlandi og mun minna í öðrum landshlutum. Þess ber að geta að netaveiði á laxi er mest stunduð í Ölfusá-Hvítá, Hvítá í Borgarfirði og Þjórsá. Endurheimtuhlutfall á hafbeit- arlaxi var almennt með lægra móti í ár. -ABÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.