Tíminn - 19.10.1989, Page 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 19. október 1989
Verðlaumsamkeppni
Ert þú lík þessari?
Sultugerðin Búbót efnir til verðlaunasam-
keppni. Leitað er að konu sem er lík
Mömmusultu mömmunni. Pátttakendur
eru beðnir að senda inn myndir af sér
(brjóstmyndir) í lit með rauðdoppóttan
skýluklút á höfðinu og grænt sjal fyrir 28.
október. Vinningshöfum gefst kostur á að
leika í auglýsingum fyrir Mömmusultur.
Verðlaunin eru glæsileg: Fyrstu verðlaun
eru 10.000 kr og nafnbótin Mömmusultu
mamma 1989. Verðlaun 2 til 20 eru ýmsar
sultugerðir frá sultugerðinni Búbót.
Myndir ásamt nafni og heimilisfangi
sendist: Sultugerðinni Búbót Skemmuvegi
24M Kópavogi.
Jeppahjólbarðar
Hágæðahjólbarðar HANKOOK frá Kóreu.
9,5-30-15 kr. 5.950,-
10.5- 31-15 kr. 6.950,-
12.5- 33-15 kr. 8.800,-
Gerið kjarakaup
Örugg og hröð þjónusta
BARÐINN
Skútuvogi 2, Reykjavík
Símar 91-30501 og 84844
Styrkir til bifreiðakaupa
Tryggingastofnun ríkisins veitir hreyfihömluðum
styrki til bifreiðakaupa.
Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömluðum skal
vera ótvíræð.
Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1990 fást
hjá afgreiðsludeild Tryggingastofnunar ríkisins,
Laugavegi 114, og hjá umboðsmönnum hennar
um land allt. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.
Tryggingastofnun ríkisins
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
Guðmundu Haratdsdóttur
Sandhólum
Kjartan Ólafsson
Óla Friðmey Kjartansdóttir Gunnar Sverrisson
Ingvar Einar Kjartansson Sigurður Óli Gunnarsson
Gísli Fr. Kjartansson Ingunn Heiga Gunnarsdóttir
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samhug og
vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu
Sigfúsínu Halldóru Benediktsdóttur
frá Hesteyri
KristinnGíslason Margrét Jakobsdóttir
HjálmarGíslason Margrét Guðmundsdóttir
SigurrósGísladóttir Guðmundur Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn
frá 1980, sem fjármálaráðherra segir:
Dæmi um „ga ga“
efnahagsstjórn
Á fundi fjármálaráðherra, Ólafs Ragnars Grímssonar, um
fjárlagafrumvarpið tilkynnti hann að skýrsla um þróun
ríkisfjármálanna á þessum áratug sé væntanleg á næstunni. í
frumvarpinu koma m.a. fram tölur sem sýna hvernig útgjöld
ríkissjóðs hafa frá upphafi þessa áratugar aukist langt umfram
vöxt landsframleiðslu og sömuleiðis töluvert meira en
tekjurnar frá 1982. Sagði fjármálaráðherra þetta skýrt dæmi
um „ga ga“ efnahagsstjórn.
Utgjöldin aukist um 50%
en framleiðslan um 26%
Verg landsframleiðsla óx um 26%
að raungildi á árunum 1980-1988.
Útgjöld ríkisins jukust nær tvisvar
sinnum hraðar eða um 50% á sama
tímabili, en tekjurnar hins vegar
„aðeins“ um 33%. Ríkisútgjöldin
hafa því vaxið um nær 16% meira en
tekjurnar og um 19% meira en
landsframleiðsla. Og ekki batnar
ástandið á þessu ári, þar sem áætlað
er að landsframleiðsla minnki um
1-2% en ríkisútgjöldin aukist hins
vegar enn um 2% að raungildi - og
hafa þar með vaxið meira en tvöfalt
(52%) á við landsframleiðsluna (24-
25%).
Vextir hækkað 163%
að raungildi
Hækkun útgjalda langt umfram
tekjur hefur aukið skuldasöfnun
ríkissjóðs - sem því hefur orðið
illilega fyrir barðinu á vaxtahækkun-
um (eins og aðrir skuldarar). Vaxta-
greiðslur ríkissjóðs hafa aukist um
163% að raungildi á framangreindu
tímabili. Árið 1988 rann 10. hver
króna sem ríkissjóður aflaði beint í
vaxtagreiðslur.
Hækkun stærstu liða ríkisútgjald-
anna að raungildi og hins vegar
breyting á hlutfalli þeirra í heildarút-
gjöldum frá 1980 til 1988 er þannig:
Raunhækkun: Útg.hlutf.:
Heilbrigðis/ 1980-88 ’80 '88
velferðarmálól % Atvinnumál/ úr 54 í 58%
n.greiðslur Stjórnsýsla/ 10% Úr27í20%
utanríkism. 50% óbreytt 10%
Vextir 163% úr5,519,5
verði nokkuð úr þjónustu þeirri sem
fram er boðin af hálfu ríkisins".
Vitnað er til þess að reynslan af
tilraunum til lækkunar ríkisútgjalda
á undanförnum árum sé ekki góð
„og bendir til þess að í þjóðfélaginu
og í opinberu stjórnsýslukerfi séu
aðstæður þannig að þær hindri ár-
angursríkar aðhaldsaðgerðir.
Tala um aðhald, en heimta
meiri eyðslu!
„Stjórnkerfi ríkisins, allt frá Al-
þingi og til einstakra stofnana, er
útgjaldahvetjandi, fjölmargir þjóð-
félagsaðilar sem í orði hvetja til
aðhalds, krefjast útgjalda á borði,
og vinnubrögð við fjármálastjóm og
fjárlagagerð er of útgjaldamótandi“.
Byggja og byggja,
en „gleyma“
rekstrarkostnaðinum
Þá er bent á að stærsti hluti
ríkisútgjaldanna sé til kominn með
lögum sem Alþingi setur, og oftar en
ekki án þess að horft sé til þess
útgjaldaauka sem af lagasetningunni
leiðir. Þá hafi Alþingi í vaxandi mæli
búið til ákveðna markaða tekju-
stofna sem ætlaðir eru til fram-
kvæmda (vegasjóð, framkvæmda-
sjóði fatlaðra og aldraðra, lottótekj-
ur og fleira). Þessar tekjur fari svo
að mestu leyti til að byggja húsnæði
yfir ýmisskonar starfsemi án þess að
nokkrar ráðstafanir hafi hins vegar
verið gerðar til þess að sjá fyrir fé til
að reka allar þessar stofnanir.
Fjárlögin byggð
á óskalistum
Enn er bent á að mestur tími
fjárveitinganefndar fari í viðtöl og
athuganir á erindum sem snúast um
aukin ríkisútgjöld.
„Fjárlagagerðin er frá upphafi út-
gjaldamótandi. Ráðuneyti og stofn-
anir eru nánast beðin um óskir um
aukin útgjöld og oftast án þess að
spurt sé um markmið, valkosti og
hagkvæmni".
Virðist þetta ekki heldur ófögur
lýsing á því hvernig þeir „höfðingj-
ar“ sem „skattpíndir" þegnamir
hafa; kosið og/eða ráðið í sína
þjónustu til að stjóma sameiginleg-
um málefnum sínum á sem hag-
kvæmastan hátt? - HEI
Vill þjóðin eyða,
en ekki borga?
Þá segir að sýna megi fram á það
með rökum, að útgjöldin í ríkisbú-
skapnum séu komin allnokkru hærra
heldur vilji sé fyrir að afla tekna á
móti. „Ljóst má vera að ríkisútgjöld-
um verður ekki náð niður, svo að
nokkm nemi, án þess að dregið
BÆJARSTJÓRN SIGLUFJARÐAR veitti fyrir skömmu viðurkenningar
fyrir snyrtilegar lóðir í bænum. Sigurður Hlöðversson form. bæjarráðs
afhenti viðurkenningarnar í kaffisamsæti sem haldið var í Ráðhúsi bæjaríns
af þessu tilefni. Eftirtaldir aðilar fengu viðurkenningu. Ásdís Gunnlaugsdótt-
ir og Sigurjón Jóhannsson Laugavegi 15. Þórunn Guðmundsdóttir og Einar
M. Albertsson Hólavegi 15. Anna Jóhannsdóttir og Jóhann Sv. Jónsson
Laugavegi 15. Júlía Hannesdóttir og Helgi Antonsson Hvanneyrarbraut 49.
Sambýlið við Lindargötu 2 og Bensínstöðin við Tjarnargötu, sem sést hér á
meðfylgjandi mynd. Tímamynd öþ
„Útgjaldahliðin virðist að mestu ónæm fyrir
efnahags- og tekjuþróun og vex jöfnum höndum
hvort sem til þess eru efni eða ekki“, segir m.a.í
kafla um afkomu ríkissjóðs í fjárlagafrumvarpi.