Tíminn - 19.10.1989, Síða 12
'12 Tíminn
Fimmtudagur 19. október 1989
rkvi\a\«i«i ■ «nr
DAGBÓK
lllilll
Aðalfundur FUF
í Reykjavík
Aðalfundur Félags ungra fram-
sóknarmanna í Reykjavík verð-
ur haldinn að Nóatúni 21,
fimmtudagskvöldið 19. október
kl. 20.15.
Dagskrá: Gissur Sigrún
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kjör fulltrúa í fulltrúaráð framsóknarfélaganna í Reykjavík.
3. Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, ræðir
stöðuna í borgarmálum.
4. Almennar umræður.
Fundarstjóri verður Gissur Pétursson, formaður Sambands ungra
framsóknarmanna.
Stjórnin
Jóhann Einvarðsson
Aðalfundur
Framsóknarfélags
Kópavogs
verður haldinn fimmtudaginn 19. október kl.
20.30 að Hamraborg 5, Kópavogi.
Fundarefni venjuleg aðalfundarstörf.
Jóhann Einvarðsson alþingismaður mætir á
fundinn.
Stjórnin.
Flnnur
Ingólfsson
Sigrún
Magnúsdóttir
Umferðarmál
Sunnudaginn 22. október n.k. gengst umferðarnefnd Fulltrúaráðs
framsóknarfélaganna í Reykjavik fyrir ráðstefnu um umferðarmál í
Reykjavík, einkum varðandi umferðaröryggi.
Ráðstefnustjóri verður Sigrún Magnúsdóttir.
Dagskrá:
13:00 Finnur Ingólfsson setur ráðstefnuna á Hótel Holiday Inn
(Teigarsal).
13:05 Skoðunarferð um Reykjavík til glöggvunar á umferðarmann-
virkjum.
14:30 Kaffihlé.
15:00 Erindi:
Framkvæmdir til að auka umferðaröryggi, Þórarinn Hjaltason,
yfirverkfræðingur umferðardeildar borgarverkfræðings.
Hugmyndir um aðgerðir til fækkunar á umferðarslysum, Jón
Baldur Þorbjörnsson bílaverkfræðingur.
16:00 Umræður.
17:00 Ráðstefnuslit.
Allir velkomnir.
Fulltrúaráðið.
Keflavík - Suðurnes
Aðalfundur Bjarkar, félags framsóknarkvenna
í Keflavík og nágrenni, verður haldinn mánu-
daginn 23. okt. n.k. í Iðnsveinahúsinu, Tjarn-
argötu 7, Keflavík, kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestur fundarins verður Sigrún Magnúsdóttir
borgarfulltrúi og mun hún ræða um stöðu
Framsóknarflokksins og sveitarstjórnarkosn-
ingarnar.
önnur mál.
Kaffiveitingar og allir velkomnir.
Stjórnin.
Sigrún Magnúsdóttir
Framsóknarfélag Snæfells-
og Hnappadalssýslu
heldur aðalfund að Lýsuhóli, föstudaginn 20. okt. kl. 20.30. Venjuleg
aðalfundarstörf, kjörnir fulltrúar á kjördæmisþing.
Alþingismennirnir Alexander Stefánsson og Guðni Ágústsson koma
á fundinn.
Kaffiveitingar, allt framsóknarfólk og stuðningsfólk velkomið.
Stjórnin
Vestlendingar
Kjördæmisþingið verður haldið í Hótel Borgarnesi 3. og 4. nóvember.
Haustfagnaður framsóknarmanna á Vesturlandi verður í Hótelinu
föstudagskvöldið 4. nóvember. Nánar auglýst síðar.
Stjórn kjördæmissambandsins
Helgarferð Útivistar:
Fjallaferð um veturnætur
-óvissuferð!
Brottför í helgarferð Útivistar er á
föstudagskvöldið 20. okt. kl. 20:00. Farið
í göngur á laugardeginum og fyrripart
sunnudags. Upplýsingar og farmiðar á
skriftofunni, Grófinni kl. 12:00-18:00.
Símar: 14606 og 23732.
Sýningin „Málmverk og aðföng" í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, Laug-
amestanga 70, er opin laugardaga og
sunnudaga kl. 14:00-17:00 og öll þriðju-
dagskvöld kl. 20:00-22:00.
Breyttur opnunartími
Frá og með 16. sept. til 14. maí verður
safnið opið þriðjudaga, fimmtudaga,
laugardaga og sunnudaga kl. 11:00-16:00.
Aðgangur er ókeypis.
Strætisvagnar sem stansa við Þjóð-
minjasafnið: 5, 6, 7, 13, 14, 16, 100.
Listasafn Einars Jónssonar
Listasafn Einars Jónssonar er opið alla
laugardaga og sunnudaga kl. 13:30-16:00.
Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga
kl. 11:00-17:00.
Arkitektamir Bergljót S. Einarsdóttir
og Óiöf Guðný Valdimarsdóttir.
Ný arkitektastofa í GRÓFINNI
Opnuð hefur verið ný arkitektastofa í
Hlaðvarpanum að Vesturgötu 3. Eigend-
ur stofunnar eru Bergljót S. Einarsdóttir
arkitekt FAf og Ólöf Guðný Valdimars-
dóttir arkitekt FAÍ.
Báðar hafa lokið prófi í byggingarlist.
Bergljót frá Norges Tekniske Högskole
(NTH) í Þrándheimi í Noregi 1982. 1
lokaverkefni sínu vann hún sérstaklega
með áhrif bygginga á vinda, vindstrengi,
hvirfla, skjólmyndun o.fl. Hún lauk námi
í kennslufræði frá sama skóla 1983.
Ólöf lauk námi frá Arkitektaskólanum
í Árósum, Danmörku, 1983, þar sem hún
vann með tónlistarhús/skóla sem loka-
verkefni. Einnig nam hún eitt ár við deild
sem sérhæfði sig í endurbyggingu gamalla
húsa.
Bergljót starfaði að námi loknu við
NTH. Eftir heimkomuna hefur hún unnið
ýmis arkitektastörf, s.s. við húsateikning-
ar, skipulagsvinnu, kennslu o.fl. Auk
þess sem hún hefur unnið hjá Borgar-
skipulagi Reykjavíkur.
OlöFhefur unnið alhliða arkitektastörf
á stofum, s.s. við húsateikningar, innrétt-
ingar, breytingar, hönnun hluta o.fl.
Undanfarin tvö ár hefur hún að mestu
starfað við eigin rekstur.
Þær hafa báðar tekið þátt í fjölda
samkeppna og unnið til nokkurra viður-
kenninga tengdar þeim. Bergljót og Ólöf
verða með alhliða arkitektaþjónustu.
Fréttabréf
óryrkjabandalags íslands
Þetta Fréttabréf er 3. tbl. 2. árg., en
ritstjóri og ábyrgðarmaður er Helgi
Seljan. Fremst í blaðinu er „Að mynda
eina skilvirka og sambenta sveit“ eftir
Eggert Jóhannesson framkvæmdastjóra.
Þá er grein Ásgerðar Ingimarsdóttur,
sem hún kallar: Að klappa á steininn, og
er um húsnæðismál fólks með geðræn
vandamál. Ritstjóri skrifar: Af austfirsk-
um vettvangi. Þá er sagt frá afmælishátíð
Sjálfsbjargar. Birt er skýrsla frá Ólafi
Ólafssyni landlækni um aðbúnað og lífs-
hætti sjúklinga.
Margar greinar um sérmál fatlaðs fólks
á íslandi eru í Fréttabréfinu, svo sem
grein Kolbeins Gíslasonar bæklunar-
skósmiðs: Hlutverk bæklunarskósmíði í
heilbrigðisþjónustunni. Sagt er frá félags-
starfi og ráðstefnu um stuðningsþjónustu.
„1 brennidepli" nefnist grein ritstjóra um
húsnæðismálin - „vandamál vandamál-
anna“. Margt fleira er í ritinu, svo sem
sögur af léttara taginu og margar frásagn-
í aftari röð f.v.: Jóhanna Boga, Hafdís
Ólafsdóttir, Svala Sigurleifsdóttir, fyrir
framan Sigrid Valtingojer og Þórður Haii
Ný GRAFÍKMAPPA kemur út
Félagið Islensk Grafík er að gefa út
sjöttu grafíkmöppu með verkum félags-
manna. Félagið er nú orðið 20 ára og
hefur gefið út möppur á tveggja til þriggja
ára fresti (í 50 tölus. eint.).
Listamenn sem eiga verk í þessari nýju
möppu eru: Jóhanna Boga, Sigrid Vaít-
ingojer, Þórður Hall, Hafdís Ólafsdóttir,
Svala Sigurleifs og Baltazar, sem nú er
erlendis.
Myndirnar verða til sýnis á veggjum
bókasafns Norræna hússins dagana 5.
-16. okt. kl. 13:00-19:00 alla daga nema
sunnud. kl. 14:00-17:00.
Kaupendur fyrri mappa hafa forkaups-
rétt að þessari möppu. Nýti einhverjir
ekki rétt sinn eru lausar möppur til sölu
og eru upplýsingar veittar á skrifstofu
SIM í síma 11346 í Ásmundarsal við
Freyjugötu.
Frá Félagi eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í
dag, fimmtud. 19. okt. Kl. 14:00 er frjáls
spilamennska, kl. 19;30 er félagsvist -
heilt kort og kl. 21:00 dansað.
Athngið: Danskennslan hefst laugar-
daginn 21. október í Nýja dansskólanum
í Ánnúla. Upplýsingar á skrifstofu félags-
ins.
Göngu-Hrólfur hittist næsta laugardag
kl. 11:00 að Nóatúni 17.
Fundur Safnaðar-
félags Áskirkju
Fyrsti fundur Safnaðarfélags Áskirkju
í nýja safnaðarheimilinu verður fimmtu-
daginn 19. október kl. 20:30. Myndasýn-
ing frá ferðalaginu í sumar. Kaffiveiting-
ar. Allir velkomnir.
Einn af hinum glxsilegu handprjónuðu
kjólum eftir Astrid EUingsen
Astrid og Bjami
sýna í Hafnarborg
Nú stendur yfir sýning í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnarfjarð-
ar, á málverkum Bjama Jónssonar og
handprjónuðum dömukjólum og skírnar-
kjólum eftir Astrid Ellingsen.
Astrid var um árabil hönnuður fy'rir
Álafoss, auk þess sem prjónauppskriftir
eftir hana hafa komið í innlendum og
erlendum blöðum og tímaritum. Hún
sýnir nú sígilda handprjónaða kjóla.
Einnig era nú sýndir skírnarkjólar úr
bómullargarni. Þeir kjólar eru hugsaðir
sem „fjölskyldukjólar", vegna þess að
þeir era svo vandaðir að þeir endast
marga ættliði.
Bjami sýnir nú fjölbreyttar myndir,
olíumálverk, vatnslitamyndir, acryl-
myndir og nokkrar teikningar. Mörg
viðfangsefnin eru sem áður sótt í þjóð-
hætti okkar til sjós og lands. Bjarni hefur
haldið fjölda sýninga hér á landi og tekið
þátt í samsýningum erlendis, auk þess
teiknað í bækur, blöð og tímarit, og má
t.d. nefna stórverkið íslenskir sjávarhætt-
ir, orðabók Menningarsjóðs, námsbækur
o.fl.
Sýningin er opin kl. 14:00-19:00 alla
daga nema þriðjudaga til 22. október.
Sunnudaginn 22. okt. verður tískusýning
og mun þá stúlkur sýna prjónakjólana kl.
15:00-16:00.
Myndlistarsýning
á Landspítalanum
Heigi Jónsson sýnir vatnslitamyndir á
göngum spítalans frá 14. október til 11.
nóvember nk.
Helgi er fæddur 1923 og byrjaði
snemma að fást við myndlist. Naut hann
um skeið tilsagnar Kristins Péturssonar,
var í Myndlistaskóla Félags íslenskra
frístundamálara (síðar Myndlistaskóla
Reykjavíkur) á fyrstu áram skólans og
hefir á síðari áram verið þar nemandi í
ýmsum greinum.
Sunnudagsferð Útivistar
22. október
Gönguferð á svæðinu Kleifarvatn -
Trölladyngja: Köldunámur - Lambafells-
gjá. Brottför kl. 13:00 frá Umferðamið-
stöð - bensínsölu.
Ath.: Góður skófatnaður er nauðsyn-
legur í allar Útivistarferðir!
Frá Húnvetningafélaginu
í Reykjavík
Félagsvistverðurálaugard. 21. okt. kl.
14:00 í Húnabúð, Skeifunni 17.
Munið vetrarfagnaðinn í Félagsheimili
Seltjarnamess laugardagskvöldið 21. okt.
kl. 21:30. Allir velkomnir.
íslenskar jarðfræðirannsóknir
- saga, ástand og horfur
Vísindafélag Islendinga gengst fyrir
ráðstefnu um íslenskar jarðfræðirann-
sóknir í Norræna húsinu laugardaginn 21.
október. Ráðstefnan hefst kl. 09:00 og
stendur fram eftir degi. Þar verða flutt 14
erindi, og að þeim loknum yfirlit yfir
framlag ráðstefnunnar, en síðan verða
frjálsar umræður. Ráðstefnan er öllum
opin.
Kl. 16:30 verða frjálsar umræður.
Fundarstjórar verða: Árný Erla Svein-
björnsdóttir og Unnsteinn Stefánsson.
Mynd mánaðarins í Listasafni fslands:
SVANIR eftir Jón Stefánsson
Mynd októbermánaðar í Listasafni ís-
lands er olíumálverkið Svanir eftir Jón
Stefánsson, en það er sýnt á umfangsmik-
illi yfirlitssýningu málarans, sem stendur
í safninu fram til 5. nóvember.
Myndin er máluð árið 1935 og var sama
ár brúðargjöf íslenska ríkisins til Ingiríðar
prinsessu og Friðriks krónprins Dana.
Ingiríður drottning hefur góðfúslega
lánað myndina á sýninguna. Málverkið er
stórt í sniðum 131x202 sm. Það hangir nú
í sal 1 í safninu.
Leiðsögnin „Mynd mánaðarins" fer
fram í fylgd sérfræðings á fimmtudögum
kl. 13:30. Aðgangur að sýningunni er
ókeypis og leiðsögnin öllum opin.
Listasafti Islands er opið alla daga,
nema mánudaga, kl. 11:00-17:00. Veit-
ingastofa er opin á sama tíma.
Minningarkort Styrktarsjóðs
barnadeildar Landakotsspítala
Styrktarsjóður bamadeildar Landa-
kotsspítala hefur látið hanna minninga-
kort fyrir sjóðinn. Sigríður Björnsdóttir
myndlistarmaður og kennari teiknaði
fjögur mismunandi kort. Eftirtaldir staðir
selja minningakortin:
Apótek Seltjamamess, Vesturbæjar-
apótek, Hafnarfjarðarapótek, Garðsapó-
tek, Holtsapótek, Mosfellsapótek, Ár-
bæjarapótek, Lyfjabúð Breiðholts,
Reykj avíkurapótek, Háaleitisapótek,
Kópavogsapótek, Lyfjabúðin Iðunn.
Blómaverslanimar; Burkni, Borgarblóm,
Melanóra Seltjamamesi og Blómavali
Kringlunni. Einnig era þau seld á skrif-
stofu og bamadeild Landakotsspítala.
Sinfónían í kvöld:
Fiðlukonsert eftir
Alban Berg o.fl.
1 kvöld, fimmtud. 19. okt., kl. 20:30
verða þriðju áskriftartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar Islands í Háskólabíói. Á
efnisskrá era þrjú verk: Sagnaþulurinn
eftir Jean Sibelius, Fiðlukonsert eftir
Alban Berg og Sinfónía nr. 3 eftir Johann-
es Brahms.
Einleikari í Fiðlukonserti Alban Bergs
er Hannele Segerstam, en eiginmaður
hennar, hljómsveitarstjórinn og tónskáld-
ið Leif Segerstam, stjórnar hljómsveit-
inni. Leif Segerstam stjórnaði Sinfóníu-
hljómsveit íslands í desember 1982.
Minningarkort Áskirkju
Eftirtaldir aðilar hafa minningarkort
Safnaðarfélags Áskirkju til sölu:
Þuríður Ágústsdóttir, Austurbrún 37,
sími 681742
Ragna Jónsdóttir, Kambsvegi 17, sími
82775
Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27
Helena Halldórsdóttir, Norðurbrún 1,
Guðrún Jónsdóttir, Kleifarvegi 5, sími
681984,
Holtsapótek, Langholtsvegi 84,
Verslunin Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27,
Verslunin Rangá, Skipasundi 56.
Þá gefst þeim, sem ekki eiga heiman-
gengt, kostur á að hringja í Áskirkju,
sími 84035 milli kl. 17:00 og 19:00 og
Á döfinni:
Safnasýning Byggðasafnsins
og Hafnarborgar
Næsta vetur ráðgerir Byggðasafn Hafn-
arfjarðar sýningahald í samvinnu við
Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar. Þar á að sýna muni sem
hinir ýmsu einstaklingar hafa safnað, svo
sem spilum , merkjum, mynt, servíettum,
skeiðum o.s.frv.
Ábendingar um fleiri slíka væru vel
þegnar og fólk beðið að hafa samband við
Pétrúnu Pétursdóttur, forstöðumann
Hafnarborgar, eða Magnús Jónsson,
minjavörð Byggðasafnsins. Einnig má
koma upplýsingum til Byggðasafnsnefnd-
ar, en hana skipa: Guðmundur Sveinsson
(s. 51261), Fríða Ragnarsdóttir (s. 51771)
°g Hrafnhildur Kristbjamardóttir
(s.52329).