Tíminn - 19.10.1989, Qupperneq 18
18 Tíminn
Fimmtudagur 19. október 1989
llllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Fréttatilkynning frá Jóni Hjaltalín Magnússyni formanni HSI:
íslandsmótið í blaki:
Stúdentar sigruðu
meistara KA-manna
Stórleikur helgarinnar á íslands-
mótinu í blaki var viðureign Stúd-
enta og íslandsmeistara KA-manna
í Hagaskóla á sunnudag. í mjög
sveiflukenndum leik urðu úrslit þau
að meistararnir urðu að sætta sig við
2- 3 tap, en Stúdentar geta vel við
unað, enda í efsta sæti 1. deildar.
Úrslit í hrinunum voru 9-15, 3-15,
15-13,15-4 og 15-11. Stúdentar voru
komnir í 9-5 í fyrstu hrinu en fengu
ekki stig í langan tíma, því þeir
töpuðu hrinunni 9-15. í næstu hrinu
héldu KA-menn uppteknum hætti
og komust í 11-0, þannig að Stúdent-
ar fengu á sig 21 stig í röð. í þriðju
hrinu voru KA-menn komnir í 11-5
þegar ÍS tóku sig saman í andlitinu
og unnu hrinuna 15-13. í fjórðu
hrinu var hrein einstefna að hálfu ÍS.
í fimmtu og sfðustu hrinunni var
jafnt framan af 2-2, en KA-menn
tóku síðan frumkvæðið og voru yfir
8-4 þegar skipt var um leikvöll.
Stúdentar tóku þá aftur við sér og
tryggðu sér 15-11 sigur og þar með
3- 2 sigur í leiknum.
Bestir hjá KA voru þeir Haukur
Valtýsson og Stefán Magnússon og
hjá ÍS voru bestu menn Sigurður
Þráinsson og Arngrímur Þorbjöms-
son
ÍS vann KA 3-2 í miklum baráttu-
leik í 1. deild kvenna. Hrinutölur
voru 13-15, 15-12, 12-15, 15-4 og
15-11. Ursula Unimann og Ingibjörg
Arnarsdóttir áttu bestan leik hjá ÍS,
en hjá KA voru þær Særún Jóhanns-
dóttir og Karítas Jónsdóttir bestar.
í kvennadeildinni mættust á laug-
ardag HK og KA í Digranesi. Leikn-
um lauk með 0-3 sigri KA, en úrslit
í hrinunum vom 11-15, 6-15 og
14-16. leikurinn var hrein einstefna,
ef frá er skilin þriðja hrinan, en í
henni var HK-stúlkur komnar í 13-
10 en misstu forystuna niður og
töpuðu hrinunni.
Úrslit fóru á sömu lund þegar
karla lið félaganna áttust við. Þar
voru hrinutölur 7-15, 12-15 og 5-15.
Leikurinn var hrein einstefna allan
tímann og HK-menn áttu aldrei
möguleika gegn jöfnu liði KA.
Reykjavíkurliðin Þróttur og Vík-
ingur áttust við í Hagaskóla á laugar-
dag. Víkingur vann öruggan 3-0
sigur, en úrslit í hrinum voru 4-15,
6-15 og 3-15. Víkingsstúlkurnar áttu
góðan leik og þurftu ekki mikið fyrir
sigrinum að hafa.
í 1. deild karla vann Þróttur R. 3-1
sigur á HSK, 15-8, 6-15, 15-12 og
15-3. 1
Staðan í 1. deild karla:
ÍS .................2 2
Þróttur R...........2 2
KA .................2 1
HK ................ 1 0
HSK ............... 1 0
Þróttur N.......... 2 0 2 1-6
Fram .............. 0 0 0 0-0
Staðan í 1. deild kvenna:
Víkingur........... 2 2 0 6-1
ÍS ................ 2 2 0 6-2
KA .................2 1 1 5-3
Þróttur R...........2 1 1 3-4
Þróttur N.......... 2 0 2 1-6
HK ................ 2 0 2 1-6
UBK ............... 0 0 0 0-0
KA-menn urðu að sætta sig við
sitt þriðja tap í 1. deildinni í
handknattleik í gærkvöld er þeir
biði lægri hlut fyrir Valsmönnum á
Hlíðarenda 27-23.
KA-menn höfðu yfirhöndina
framan af, komust mest 4 mörk
yfir 9-5, en Valsmenn réttu úr
kútnum fyrir hlé. Forystan var þá
norðanmanna allan hálfleikinn, en
í lékhléinu var staðan 12-13 fyrir
KA:
Þegar í upphafi síðari hálfleiks
komust Valsmenn yfir og megnið
af hálfleiknum voru heimamenn
2-3 mörk yfir. Á síðustu mínútun-
um sigldu Valsmenn siðan framur
og unnu eins og áður segir 4 marka
sigur 27-23.
KA-menn gerðu sig seka um
örlagarík mistök undir lok leiksins
sem kostuðu þá sigurinn að þessu
sinni. Leikurinn var hraður og
skemmtilegur og úrslit réðust ekki
fyrr en á lokmínútunum.
Mörkin Valur: Brynjar 12, Júl-
íus 5, Jakob 4, Valdimar 4, Jón 2
og Finnur 1. KA: Erlingur 7,
Friðjón 5, Guðmundur 3, Jóhann-
es 3, Sigurpáll 3, Karl 1 og Pétur 1.
Dómarar voru þeir Kjartan
Steinback og Einar Sveinsson og
dæmdu þeir ágætlega. JB/BL
Misskilningur að höllin
kosti 1 milljarð króna
- Fjölnota vörusýningarhús í Laugardal sem mundi nýtast fyrir alþjóðlegar vörusýningar
og íþróttamót kostar um 470 milljónir króna
Nú er rúmt ár síðan þing Alþjóða
handknattleikssambandsins, haldið
í Seoul, fól fslandi að halda 14.
A-heimsmeistarakeppnina í hand-
knattleik árið 1995. Forsenda fyrir
þessari ákvörðun þingsins í Seoul
var að fyrir lá yfirlýsing frá rflds-
stjórn íslands þess efnis að fyrirhug-
að væri að byggja fjölnota vörusýn-
inga-, ráðstefnu- og íþróttahús fyrir
um 7.000 áhorfendur, sem yrði til-
búið í tæka tíð fyrir sjálfa keppnina.
Sérstök undirbúningsnefnd hefur
starfað á vegum HSÍ að skipulagn-
ingu keppninnar árið 1995 og er
ráðgert m.a. að hefja opinbera sam-
keppni um merki heimsmeistara-
keppninnar núna í nóvember næst-
komandi. Því markmiði er að nýta
þessa keppni hér á íslandi sem best
til landkynningar fram yfir sjálfa
keppnina, um þjóð okkar og land,
menningu og atvinnulíf, útflutnings-
vörur og ferðaþjónustu.
Nokkrar umræður hafa verið í
fjölmiðlum um byggingu fyrirhug-
aðrar fjölnota vörusýningarhallar,
sem háttvirtur menntamálaráðherra
staðfesti við heimkomu landsliðsins
frá heimsmeistarakeppninni í Frakk-
landi í vor, að hann mundi beita sér
fyrir að yrði byggð og staðfesti
loforð fyrri ríkisstjórna Steingríms
Hermannssonar og Þorsteins Páls-
sonar um stuðning við að halda
keppnina á íslandi og eflingu ferða-
þjónustunnar. Einhvern misskiln-
ings virðist gæta í þessari umfjöllun
um fyrirhugaða byggingu þessarar
'fjölnota vörusýningarhallar, þegar
talað er um „einhverja handbolta-
höll fyrir þessa heimsmeistarakeppni
sem muni kosta um 1 milljarð króna.
Stjórn HSÍ vill því upplýsa um, að
í ársbyrjun 1988 var gerð lausleg
kostnaðaráætlun um byggingu á hag-
kvæmu 8.000 fm fjölnota sýningar-
húsi sem tæki um 7.000 manns í sæti.
Kostnaðaráætlun þessi var miðuð
við „staðlaðan byggingarkostnað
menntamálaráðuneytisins um bygg-
ingu skólaíþróttahúsa", sem þá var
um 40.000 kr. á fermetra eða um 320
milljónir fyrir 8.000 fm hús. Fram-
reiknað til dagsins í dag, þá er þessi
byggingarkostnaður um 460 milljón-
ir króna.
HSÍ hefur nýlega verið kynnt
kostnaðaráætlun virts íslensks verk-
takafyrirtækis í byggingu 8.000 fm
fjölnota sýningarhúss sem tæki um
7.000 áhorfendur í sæti. Kostnaðar-
áætlunin hljóðar uppá 470 milljónir
króna. Þess skal getið að af þessum
470 milljón króna byggingarkostnaði
eru um 90 milljónir króna greiðslur
á söluskatti og tollum í ríkisskjóð,
fyrir utan launsskatt þeirra sem að
byggingunni starfa.
Þessi byggingarkostnaður er einnig
í samræmi við byggingu 2.500 fm
íþróttahúss í Kaplakrika í Hafnar-
firði, sem tekur um 2.500 áhorfendur
í sæti. Byggingarkostnaður þessa
húss er um 150 milljónir króna, eða
um 60.000 krónur á fermetra. Miðað
við þessar tölur, þá mundi 8.000
fermetra fjölnota hús kosta um 480
milljónir.
Þá eru þessar kostnaðaráætlanir í
fullu samræmi við byggingarkostnað
á mótsvarandi fjölnota sýningarhús-
um í Finnlandi og Noregi.
Undirbúningsnefnd HSÍ hefur
verið í sambandi við aðila á sviði
ferðaþjónustu og áætlar að þetta
nýja fjölnota sýningarhús, sem nota
má til alþjóðlegra vörusýninga, ráð-
stefna, popptónleika og íþróttamóta
muni draga hingað til lands minnst 5
þúsund erlenda ferðamenn á ári.
Áætlaðar gjaldeyristekjur af þeim
eru um 400 milljónir króna á ári. Á
tíu árum er því gert ráð fyrir um 4
milljarða króna gjaldeyristekjum af
því að reisa þetta fjölnota sýningar-
hús. Þess skal getið að áætlaðar
gjaldeyristekjur af heimsmeistara-
keppninni í handknattleik á íslandi
árið 1995 eru um 300 milljónir
króna.
Áætlaður líftími fjölnota sýning-
arhúsa er um 100 ár með hefð-
bundnu viðhaldi. Því má leika sér að
að áætla gjaldeyristekjur af þessu
húsi á þeim tíma.
Stúdínur unnu 3-2 sigur á KA í blakinu um helgina og sömu úrslit urðu hjá körlum sömu liða.
KA-menn misstu
niður forskotið
og Valsmenn unnu
íslandsmótið í handknattleik
1. deild-VÍS keppnin:
Happagyðja KR
lét sig vanta
FH-ingar áttu sannkallaðan stór-
leik í gærkvöld er þeir fengu KR-
inga í heimsókn í fjörðinn. Hvert
glæsimarkið rak annað þar til þau
voru orðin 29 talsins. KR-ingum
tókst aðeins að koma knettinum 21
sinnum í mark Hafnfirðinga.
KR-ingar komust yfir 1-2, en eftir
það höfðu FH-ingar jafnað frum-
kvæðið. FH komst í 5-2 og 8-3 en þá
fóru KR-ingar að veita meiri mót-
spyrnu. Staðan breyttist í 9-6 og
þegar leikmenn gengu til búnings-
herbergja í leikhléinu var staðan
14-10 heimaliðinu í vil.
Síðari hálfleikur var eign heima-
manna frá upphafi til enda. Jafn óg
þétt byggðu FH-ingar upp góða
forystu í síðari hálfleik þar til munur-
inn var orðinn 10 mörk 25-15. Á
lokamínútunum fengu varamennim-
ir að spreyta sig og KR-ingar náðu
að klóra örlítið í bakkann. Eins og
áður sagði lauk leiknum með 29-21
sigri FH-inga.
Happagyðj a KR-inga var illa fj arri
góðu gamni í gær, sennilega hefur
hún ekki á átt fyrir farinu í Hafnar-
fjarðarstrætó. Góði leikkafiinn hjá
KR-ingum kom ekki í þessum leik,
FH-ingar voru einbeittir og slökuðu
hvergi á þótt þeir hefðu góða for-
ystu. Oft á tíðum lék þeir mjög vel
og áhorfendur sem fylltu íþróttahús-
ið fóru glaðir til síns heima.