Tíminn - 20.10.1989, Side 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001
RftOSSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnarhúsinu v/Trvggvagötu.
a 28822
ITARHOITI 20 sIm,
Leigjum út sali fyrir
fundi og einkasamkvæmi
og aðra mannfagnaði
PÖSTFAX
TÍMANS
687691
9
Iíminn
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1989
Drög að reglugerö Jöfnunarsjóös sókna lagt fram á Kirkjuþingi:
OF MIK LU VARID TIL
BYGGING A OG VIDHALDS
Drög að reglugerð Jöfnunarsjóðs sókna voru lögð fram
á Kirkjuþingi í gær. í drögunum segir að hlutverk sjóðsins
sé m.a. að veita styrki til þeirra kirkna, sem sérstöðu hafa
umfram aðrar sóknarkirkjur og þar nefndar Dómkirkjan í
Reykjavík, Hóladómkirkja og Skálholtsdómkirkja, auk
Hallgrímskirkju i Reykjavík, Hallgrímskirkju í Saurbæ og
Minningarkapellu sr. Jóns Steingrímssonar. Helsta gagn-
rýnin sem komið hefur fram á þennan sjóð nú, er að of
stórum hluta sé varið í byggingu og viðhald kirkna, í stað
uppbyggingar innra starfs.
kirkjunni, sem er safnaðarupp-
bygging. Mikið hefur verið byggt
af kirkjum og safnaðarheimilum á
íslandi, en nú finnst okkur vera
kominn tími til að byggja upp
starfið, gera kirkjuna miklu virkari
í þjóðlífinu og mótun þess,“ sagði
sr. Gunnar.
Annar hluti þessa máls sagði
hann vera, að t.d. hefði mikið
fjármagn farið í endurbyggingu
Hóladómkirkju, sem vissulega
hefði verið nauðsynleg aðgerð.
Hóladómkirkja væri í vitund
flestra ekki síður menningarverð-
mæti og í umsjá þjóðminjavarðar
að hluta, sem og væri raunin með
margar íslenskar kirkjur og féllu
Sr. Gunnar Kristjánsson sóknar-
prestur á Reynivöllum í Kjós sagði
í samtali við Tímann að Jöfnunar-
sjóðurinn væri öflugasti sjóður
kirkjunnar sem falið væri að jafna
aðstöðu milli sókna, og styðja
minni og fátækari söfnuði. „Aðal-
gagnrýnin sem komið hefur fram á
þennan sjóð er að allt of stór hluti
af honum fer til kirkjubygginga og
viðhalds, og endurbygginga á
kirkjuhúsum. Um fjórði hluti
sjóðsins fer til örfárra kirkna og
þar tekur Hallgrímskirkja tíunda
hluta af fjármagninu, eða 10 millj-
ónir á þessu ári, sem allt fer í
viðgerðir. Þetta bitnar á því sem
við viljum leggja áherslu á núna í
þær því undir þjóðminjalög. Þegar
söfnuðir vilja lagfæra þær þá væru
þeir háðir þjóðminjalögum, en
fengju samt sem áður lítið fjár-
magn til að vinna það sem þjóð-
minjalög skipa þeim nánast fyrir.
Heldur kæmi fjármagnið að mest-
um hluta úr Jöfnunarsjóði.
Sr. Jón Einarsson á Saurbæ, sem
var framsögumaður um drögin að
reglugerðinni sagði, aðspurður
hvort ekki væri verið að mismuna
kirkjum með þessum drögum, að
sett hefði verið ákveðið þak á þá
úthlutun sem þær gætu fengið, svo
ekki færi óeðlilega mikið af heild-
artekjum sjóðsins til þeirra. í öðr-
um tölulið annarrar greinar kemur
fram að ná skuli sem mestum
jöfnuði varðandi aðstöðu og tekjur
kirkna og styrkja sóknir, þar sem
lögmætar tekjur skv. lögum um
sóknargjöld nægja ekki fyrir nauð-
synlegum útgjöldum að dómi sókn-
arnefndar, sóknarprests og að
fenginni umsögn héraðsnefndar.
Auk þess að veita styrki til
rekstrar, viðhalds og endurbóta
kirkna, þá er heimilt að veita
sóknum styrki til bygginga og
nauðsynlegs búnaðar. Heimilt er
Sr. Jón Einarsson sóknarprestur á
Saurbæ, Hvalfjarðarströnd.
Tímamynd Árnl Bjarna.
að veita 45 til 60% af ráðstöfunar-
tekjum sjóðsins til þessa liðar.
Sagði sr. Jón að með þessari grein
ætti kirkjum ekki að vera mismun-
að. Hann sagði að sjóðnum væri
Sr. Gunnar Kristjánsson sóknar-
prestur á Reynivöllum í Kjós.
Tfmamynd Árni Bjama.
ekki síður ætlað að efla innra starf
kirkjunnar og er sérstök grein sem
um það fjallar, í drögunum að
reglugerðinni. - ABÓ
Jarðhræringar
á Suðurlandi
Jarðskjálfti varð kiukkan 20.01 í
gærkvöldi og mældist hann 3,9 á
Richter. Upptök skjálftans eru tal-
in í um 110 km. fjarlægð austur frá
Reykjavík.
Að sögn Barða Þorkelssonar
jarðfræðings á Veðurstofu íslands,
höfðu þeir aðcins haft spurnir af
skjálftanum frá Hvolsvelli og á
sjálfri veðurstofnunni. Á Hvols-
velli hristust rúður og nötrað í
húsum. Ekki er fullvíst hvar uppt-
ök skjálftans voru, en ekki ólíklegt
að þau hafi verið í Vatnafjöllum,
suðaustan við Heklu.
Engar jarðhræringar hafa verið
á þessu svæði að undanförnu og
sagði Barði að frekar lítil virkni
hefði verið á landinu öllu. Að-
spurður hvort þetta væri undanfari
einhvers nteira, sagði Barði að
engin sérstök ástæða væri til að
ætla það, „þetta gæti verið einstak-
ur atburður og það gætu líka fylgt
einhverjir eftirskjálftar," sagði
Barði. - ABÓ
Opnunarhátíð í dag
Opnunarhátíð Borgarleikhússins
fer fram um helgina með pompi og
prakt og skiptist hún á þrjá daga. I
kvöld verður formleg vígsluathöfn.
Á morgun verða sérstakar hátíðar-
sýningar á litla sviðinu á Ljósi heims-
ins. Leikgerð Kjartans Ragnarsson-
ar, eftir skáldsögu Halldórs Laxness.
Á sunnudaginn verður skoðunar-
ferðum um húsið fyrir boðsgesti.
Um kvöldið verður sýnt í fyrsta
skipti á stóra sviðinu, Höll sumar-
landsins, leikgerð Kjartans Ragnars-
i sonar einnig eftir skáldsögu Halldórs
Laxness. Hátíðinni lýkur svo með
flugeldasýningu að lokinni leiksýn-
ingunni. SSH,
Undirbúningur í fullum gangi í gær.
Tímamynd: Árni Bjarna
Tveir af þremur yfirskoöunarmönnum ríkisreiknings gefa út yfirlýsingu:
Pólitísk endurskoðun?
Geir H. Haarde þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins telur sig ekki hafa
brotið trúnað með því að koma til
fjölmiðla gögnum um frá yfirskoðun
ríkisreikninga, en Geir er einn af
yfirskoðunarmönnum. Hann sakar
jafnframt samstarfsmenn sína um að
hafa látið undan pólitískum þrýst-
ingi, en þeir hafa lýst því yfir að þeir
harmi að gögn skuli hafa „lekið" úr
fórum yfirskoðunarmanna.
Tveir af þremur yfirskoðunar-
mönnum ríkisreiknings, Lárus Finn-
bogason og Sveinn G. Hálfdánar-
son, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar
sem af gefnu tilefni er tekið fram að
þeir telji að þeim beri að starfa óháð
pólitískum skoðunum að yfir-
skoðuninni og leggja hlutlaust mat á
það er þeir komist að í því starfi.
Þetta orðalag vekur athygli í ljósi
þess að Geir H. Haarde lét Ríkis-
sjónvarpinu í té upplýsingar úr
skýrslu yfirskoðunarmanna, íkjölfar
utandagskrárumræðna á Alþingi að
beiðni sjálfstæðismanna, þar sem
gefin var í skyn fjárhagsleg óráðsía
innan Stjórnarráðsins.
þeir segja að öll gögn sem þeir fá í
hendur og upplýsingar sem þeim
berast í skoðunarstörfum sínum séu
trúnaðarmál þar til að þeim hafi
verið komið á framfæri við Alþingi,
fráhvarf frá þeirri stefnu sé trúnaðar-
brestur. Segir í yfirlýsingunni
orðrétt: „Við hörmum að gögn úr
fórum yfirskoðunarmanna skulu
hafa borist einum fjölmiðli áður en
formleg skýrsla okkar og Ríkisend-
Geir H. Haarde telur sig hafa haft
fulla heimild til að birta einstök
atriði skýrslu yfirskoðunarmanna
áður en að hún var í heild sinni lögð
fram á Alþingi.
urskoðunar var lögð fram á Alþingi.
Jafnframt lýsum við því yfir að þau
eru ekki frá okkur kornin."
Lárus Finnbogason sagði í samtali
við Tímann í gærkveldi að hann og
Sveinn G. Hálfdánarson teldu að
þar sem að þeir væru kjörnir af
Alþingi væri eðlilegast að skýrslan
væri lögð fyrir þingið og fengi þar
umfjöllun, áður en farið væri að
fjalla um hana í fjölmiðlum. „Okkar
vinna felst í því að hafa eftirlit með
framkvæmdavaldinu, Alþingi felur
okkur það verkefni“, sagði Lárus.
Það væri þeirra skoðun að ekki væri
eðlilegt að alþingismenn fengju upp-
lýsingar úr skýrslunni í fjölmiðlum,
en ekki henni sjálfri þegar hún væri
lögð fyrir. „Okkur þykir líka illt að
liggja undir því að við séum að koma
á framfæri einhverjum upplýsingum
úr þessari skýrslu." Lárus vísaði
þeirri fullyrðingu Geirs H. Haarde
að hann og Sveinn hefðu lagt fram
yfirlýsingu sína vegna pólitísks
þrýstings alfarið á bug.
I 43. grein Stjórnarskrárinnar þar
sem fjallað er um yfirskoðunarmenn
ríkisins segir að: „Yfirskoðunar-
menn þessir eiga að gagnskoða ár-
lega reikninga um tekjur og gjöld
landsins og gæta þess, hvort tekjur
landsins hafi verið þar allar taldar og
hvort nokkuð hafi verið af hendi
greitt án heimildar. Þeir geta, hver
um sig, tveir eða allir krafist að fá
allar þær skýrslur og skjöl, sem þeim
þykir þurfa. Síðan skal safna þessum
reikningum fyrir hvert fjárhags-
tímabil í einn reikning og leggja fyrir
Alþingi frumvarp til langa um sam-
þykkt á honum og athugasemdir
yfirskoðunarmanna."
Ekki náðist í Geir H. Haarde í
gær, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Þá var einnig reynt að ná í Guðrúnu
Helgadóttur forseta sameinaðs Al-
þingis, en án árangurs. - ÁG