Tíminn - 21.11.1989, Page 1
Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í sjö tugi ára
ÞRIÐJUDAGUR 21.
-U KR. 90,-
Halldór Ásgrímsson þungorður í gær vegna seinagangs í síldarsölu:
Mun grunnur Sovét-
viðskipta bresta?
í utandagskrárumræðu á Alþingi í
gær voru ráðherrar óvenju þungorðir
vegna þess seinagangs sem orðinn
er í frágangi á síldarsölusamningum
við Sovétmenn, en hefð er fyrir því
að menn séu mjög orðvarir þegar
slíkir samningar eru í burðarliðnum.
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra benti á að þeirrar tregðu
sem gætt hefði í síldarsamningsmál-
um hefði einnig orðið vart gagnvart
freðfisksölu og sölu á lagmeti. Taldi
hann að ef ekki rættist úr mjög
fljótlega væri grundvelli viðskipt-
anna við Sovétmenn stefnt í voða.
Jón Baldvin Hannibalsson benti á að
íslensk stjórnvöld hefðu gert allt
sem í þeirra valdi stæði til að koma
þessum síldarsamningum í kring.
• Blaðsíða 5
Þjóðverjar telja að við séum að
útrýma æðarfugli með dúntekju.
Þeir verða að eiga um þá
kenningu við fuglinn sjálfan:
Ekki er að sjá að æðarfuglinn sé í útrýmingarhættu hér á landi ef marka má þessa mynd
sem tekin var á ytri höfninni í Reykjavík. Timamynd oó
Neita að kaupa dún til
að vemda æðarfuglinn
Atferlissaga æðarfugls send á myndbandi í þýsk kansellí • Baksíða