Tíminn - 21.11.1989, Side 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 —686300
RfKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Holnarhúsinu v/Tryggvogölu,
SAMVINNUBANKfNN
BYGGÐUM LANDSINS
PÓSTFAX
TÍMAIMS
687691
ASr0
ÞROSTIIR
685060
VANIR MENN
ríniiim
ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1989
Ný reglugerð í V-Þýskalandi bannar innflutning á æðardún vegna þess að
Þjóðverjar telja æðarfugl í útrýmingarhættu:
Stöðva innflutning
dúni í friðunarskyni
Fyrsta ágúst síðast liðinn tók gildi ný reglugerð í
V-Þýskalandi sem bannar innflutning á vörum eða hlutum
af dýrum sem eru í útrýmingarhættu. Þjóðverjar eru með
æðarfugl á lista yfir dýr í útrýmingarhættu. Því er það að
sú sérkennilega staða er kominn upp að æðardúnn frá
íslandi er orðin bannvara í Þýskalandi. íslendingar fréttu
fyrst af þessu fyrir nokkrum vikum síðan.
Strax og Búvörudeild SÍS frétti
af þessu máli voru gerðar ráðstaf-
anir til að koma upplýsingum til
réttra aðila í Þýskalandi. Sent hef-
ur verið bréf frá menntamálaráðu-
neyti, en friðun æðarfugls heyrir
undir það, þar sem gert er grein
fyrir því að fuglinn er ekki á neinn
hátt skaðaður þó að æðardúnn sé
tekinn frá honum. í bréfinu er bent
á að með því að nýta æðardúninn
sé verið að hlúa að honum. Einnig
er búið að senda út til Þýskalands
nýtt myndband sem Æðarræktar-
félagið lét gera í sumar um æðar-
fugl og dúntekju.
„Ég hef ekki trú á öðru en að
þetta verði skoðað upp á nýtt og
lagað. Það eru ekki nein rök fyrir
öðru. Ég hef engar sérstakar
áhyggjur af þessu í dag. En vissu-
lega verður þetta áhyggjuefni ef
markaðurinn verður lokaður um
lengri tíma,“ sagði Árni Jóhanns-
son framkvæmdastjóri Búvöru-
deildar SÍS.
Árni sagðist halda að hér væri á
ferðinni reglugerð sem ætti að
gilda í öllum aðildarlöndum Evr-
ópubandalagsins.
„Það sem stingur mig einna mest
í þessu niáli er að okkar utanríkis-
ráðuneyti er ekki meira með á
nótunum en svo að það var ekki
búið að láta okkur vita af þessari
breytingu. Mér finnst að ráðuneyt-
ið eigi að fylgjast með svona reglu-
gerðum og eigi að láta þá aðila sem
þetta varðar vita með fyrirvara. Ef
við hefðum vitað af þessu fyrr
hefðum við gripið til aðgerða fyrir
langalöngu," sagði Árni.
Þjóðverjar kaupa um helming af
öllum æðardún sem er seldur frá
íslandi og eru því langstærsti kaup-
andinn.
Árni sagði að eftirspurn eftir
dún væri mikil og hægt væri að
selja mun meira af honum ef
framleiðslan væri meiri. Hann
sagði það hugsanlegt að erfiðleikar
yrði að selja allan dúninn úr landi
ef Þýskalandsmarkaður opnaðist
ekki. Árni sagði hins vegar að það
væru til markaðir sem væru lítið
nýttir svo sem eins og Bandaríkja-
markaður. Japanir væru einnig að
auka kaup á dún.
Á síðasta ári voru flutt út um
3200 kíló af dún og þar af flutti
Búvörudeild SÍS um 1800 kíló. í
dag fæst um 35 þúsund krónur fyrir
kíló af hreinsuðum dún. Það þarf
dún úr um 60 hreiðrum í hvert
kíló. Æðarkollan skilar því um 500
krónum. Dúnn er fluttur út frá
íslandi fyrir um 100 milljónir á ári.
-EÓ
Árlegur kaupfélagastjórafundur Sambandsins var haldinn um síðustu helgi. Á fundinum var lagt fram níu mánaða
reikningsuppgjör Sambandsins. Þegar hefur verið gerð grein fyrir niðurstöðu þess á síðum Tímans.
Þórir Páll Guðjónsson kaupfélagsstjóri Kaupfélags Borgfirðinga í Borgarnesi segir að menn séu heldur
bjartsýnni á framtíðina en fyrir ári. Staða Sambandsins og flestra kaupfélaganna hefur batnað. Þórir sagði þó
að ekki mætti slaka á aðhaldsaðgerðum því að vandinn væri enn mikill. Á myndinni er Þórir Páll í ræðustól.
Til vinstri situr Guðjón B. Ólafsson forstjóri SÍS. límamvnd pjctur
Titringur, dynkir og drunur skelfdu fólk við
suðurströndina um helgina:
Ekki jarðskjálfti,
bara orrustuvélar
„Þetta voru ekki jarðskjálftar
heldur orrustuþotur, sennilega
hljóðfráar F15 þotur sem voru að
sprengja hljóðmúrinn sunnan við
landið um helgina. Ef veðurskilyrði
eru hagstæð, eða óhagstæð eftir því
hvernig á málin er litið, þá virðist
hvellurinn ná ansi langt inn á
landið," sagði Ragnar Stefánsson
jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu
íslands.
Ragnar sagði að talsvert hefði
verið hringt á Veðurstofuna vegna
dynkjanna eða sprenginganna og
hefðu menn í Grindavík og austur
með suðurströndinni og reyndar allt
upp að Iðu í Biskupstungum orðið
þeirra varir og talið vera jarð-
skjálfta. Hann sagði að dynkirnir
eða sprengingarnar sem urðu þegar
hljóðmúrinn rofnaði, hefði komið
fram á jarðskjálftamælum, þó ekki
sem jarðskjálftar heldur sem titring-
ur. -sá
Iðnaðarbankinn eignast
öll hlutabréf í Glitni
Lánskjaravísitala:
Með kaupum á 65% hlutafjár í
eignaleigufyrirtækinu Glitni hf. af
A/S Nevi í Noregi og Sleipner í
Bretlandi hefur Iðnaðarbankinn öll
hlutabréfin í Glitni hf.
Glitnir var fyrsta eignaleigufyrir-
tækið sem stofnað var hér á landi (í
árslok 1985). í frétt frá fyrirtækinu
segir að afkoma Glitnis hafi verið
góð frá upphafi.
Hækkar um rúmlega 1 %
Lánskjaravísitala 2722 gildir fyrir
desember, sem er 1,08% hækkun frá
vísitölu 2693 í nóvember, samkvæmt
útreikningum Seðlabankans. Bæði
framfærslu- og byggingarkostnaður
hækkuðu um 1,5% milli október og
nóvember, en launavísitalan (laun-
in) hins vegar aðeins um 0,2%.
Vísitala byggingarkostnaðar
hækkaði sem áður segir um 1,5% í
þessum mánuði (í 157,9 stig og eldri
grundvöllur í 505 stig). Um helming-
ur þessarar hækkunar er vegna
launahækkana; annars vegar fjölg-
unar á mælieiningaum i húsasmíði
og hins vegar hækkunar á útseldri
vinnu verkamanna. Aföðrum hækk-
unum er sérstaklega getið um tæp-
lega 4% verðhækkun á raflagnaefni.
Byggingarvísitalan hefur hækkað
um 7,2% síðustu þrjá mánuðina, en
26,4% frá því í nóvember í fyrra.
-HEI
3 innbrot um helgina:
Stöðvaðir með þýfi
Brotist var inn í þrjár íbúðir í
Reykjavík um helgina og þaðan
stoiið myndavélum, skartgripum,
fatnaði og fleiru. Lögreglan í
Reykjavík stöðvaði tvo menn á
sunnudagsmorgun og við athugun
í bíl þeirra kom í ljós að þar voru
hlutir komnir sem talið var að
athuga þyrfti frekar. Við yfir-
heyrslur kom í ljós að þar var um
að ræða þýfi úr þessum þrem
innbrotum sem kærð höfðu verið.
Til viðbótar kom í ljós að þeir
höfðu brotist inn í bát á Suðumesj-
um.
-ABÓ