Tíminn - 22.11.1989, Side 5

Tíminn - 22.11.1989, Side 5
Miðvikudagur 22. nóvember 1989 Tíminn 5 Olíuslysiö á Bolafjalli. 22 þúsund fítrar af gasolíu í sjóinn. Eftir var aö taka út tanka og leiöslur. Engin þörf var fyrir olíuna aö sinni: ENGINN KANNAST VID AD HAFA PANTAD OLÍU Olíumengunarslys gerast nú óhæfilega tíð hérlendis. Fyrir nokkru streymdi gasolía í sjó á Tálknafirði. Þá eyðilögðust fyrir nokkru vatnsból Njarðvíkinga vegna olíu sem lak úr tanki um bilaða leiðslu á Miðnesheiði, um tíu þúsund lítrar, eða um eitt tankbflhlass af bensíni streymdi úr tönkum nýrrar bensínstöðvar í Reykjavík og í holræsi og jarðveg í grennd- inni. f gær kom síðan í ljós að um 22 þúsund lítrar af gasolíu höfðu lekið úr olíugeymum við nýju radarstöð- ina á Bolafjalli og runnið um frá- rennslisleiðslu sem liggur fram yfir bjargbrúnina. Eftir því sem næst verður komist rann olían úr óþéttu röri inni í vélahúsi og fór þaðan í niðurfall. Þar var olíulás sem var vatnslaus og því rann olían út í frárennslisrör og út í sjó. Tankurinn sem úr rann er til að geyma í gasolíu sem knýja á dísilraf- stöð sem fara á í gang ef rafmagnið fer af. Hins vegar er radarstöðin ekki tilbúin og ekki var búið að prófa eða taka út ob'utankinn og olíukerfið við varaaflstöðina á fjall- inu og því ótímabært að setja ob'u á tankinn. „Við vissum ekkert um þessa olíutanka uppi á Bolafjalli enda hafði okkur ekki verið tilkynnt um þá þrátt fyrir að samkvæmt lögum og reglum um olíubirgðastöðvar þá eig- um við að fylgjast með slíku þar sem hætta er á að olía geti borist í sjó, maður er að velta fyrir sér hvort þessi stöð sé utan við öll lög og rétt. Ég minni á að Siglingamálastofnun var með í ráðum frá upphafi í sambandi við olíubirgðastöð hersins í Helguvík. Hér mættiætla að gegndi sama máli,“ sagði Gunnar Ágústs- son mengunarsérfræðingur hjá Sigl- ingamálastofnun. Gunnar sagði að þrátt fyrir allt þá hefði verið heppilegt að um gasolíu var að ræða á Bolafjalli því að hún gufaði upp á tiltölulega skömmum tíma. samt sem áður væru ýmis eiturefni í olíunni sem eftir yrðu í sjónum og valdið gætu skaða á fisklirfum og öðrum lífverum. Friðþór Eydal blaðafulltrúi varn- arliðsins sagði í gær að verið væri að kanna hvað hefði farið úrskeiðis og hann kvaðst ekki vita hver hefði tekið sig til og pantað olíu og látið á geymana á fjallinu. Mögulegt væri að það hefði verið gert á vegum Ratsjárstofnunar því að eftir því sem honum skildist þá væri staðurinn að einhverju leyti undir umsjón Tveir nefndarmanna og félagsmálaráðherra á blaðamannafundi í gær. F.v. Ingi R. Helgason, Jóhanna Sigurðardóttir, og Magnús H. Magnússon. Tímamynd: Árni Bjarna Svört skýrsla um brunamál á islandi Heildartjón samfélagsins vegna eldsvoða á tímabilinu 1984-1988 má áætla 7.832 milljónir króna eða að jafnaði 1.566 milljónir á ári sem jafngildir 6.446 krónur á hvem íbúa landsins á ári hverju. Þessar upplýs- ingar koma fram í nýrri skýrslu um stöðu brunamála á íslandi. í skýrsl- unni er dregin upp mjög dökk mynd af ástandi í brunamálum lands- manna. Skýrslan var gerð í kjölfar Réttar- hálsbrunans í janúar síðast liðnum. Hún er samin af nefnd sem í sátu Magnús H. Magnússon fyrrverandi ráðherra, Ingi R. Helgason forstjóri Brunabótafélags íslands og Hákon Ólafsson forstöðumaður Rannsókn- arstofnunar byggingariðnaðarins. Nefndin telur að þrátt fyrir allgóða Iöggjöf um brunavarnir og bruna- mál, séu víða veiiur í skipulagi brunamála og sérstaklega eldvarna- eftirlits. Athugasemdum og kröfum um úrbætur er lítt fylgt eftir og ófullnægjandi upplýsingar eru til staðar um brunatjón. í skýrslunni er bent á að í mörgum tilfellum sé ekki farið eftir skýlaus- um fyrirmælum laga og reglugerða. íkveikja var í 42% tilfella orsök bruna í 10 stærstu brunum á íslandi á árunum 1981-1988, 29% rafmagn, 17% gáleysi, 7% sjálfsíkveikja og aðrar ástæður í 5% tilfella. í skýrslunni segir að brunatjón hafi farið stórvaxandi á íslandi á síðustu árum og keyri alveg um þverbak á yfirstandandi ári og tveim- ur síðustu árum. Mesta tjónið hafi orðið í stórum atvinnufyrirtækjum. Tjón á heimilum sé aftur á móti minna og munar mest um að hita- veitur hafa að mestu útrýmt opnum eldstæðum. -EÓ Aöstoðarutanríkisráðherra V-Þýskalands í opinberri heimsókn hér á landi: Hældi Jóni Baldvin í hástert Aðstoðarutanríkisráðherra V- Þýskalands dr. Irmgard Adam- Schwaetzer sagðist á blaðamanna- fundi í gær vilja leggja sérstaka áherslu á að sambandsstjórnin styddi ísland í þeirri sérstöðu sem landið hefði hvað fiskveiðar og vinnslu varðar. Hún sagði að ef samstarf EB og EFTA ætti að takast þá yrði að taka til greina sérstöðu smærri rt'kja, eins og Islands. Dr. Irmgard hefur verið hér á landi í opinberri heimsókn sl. tvo daga og átti hún viðræður við fjöl- marga stjórnmálamenn og aðila í viðskiptalífi. Hún sagðist hafa átt ítarlegar viðræður við utanríkisráðherra og hans starfsmenn um hvers væri að vænta á sameiginlegum leiðtoga- fundi EFTA og EB ríkjanna sem hefst 19. desember nk. Hrósaði hún Jóni Baldvin Hannibalssyni utanrík- isráðherra og formanns ráðherra- nefndar EFTA ríkjanna fyrir góðan undirbúning að þeim viðræðum sem átt hafa sér stað og mun eiga sér stað í næsta mánuði. Þá sagðist hún hafa verið mjög ánægð með að hafa hitt frú Vigdísi Finnbogadóttur forseta að máli. -ABÓ stofnunarinnar. Þorsteinn Ingólfsson forstöðu- maður vamarmálaskrifstofu utan- ríkisráðuneytisins sagði að sér kæmi á óvart að olía hefði verið pöntuð að ratsjárstöðinni þar sem engin starf- semi færi enn þar fram og væri ekki fyrirhuguð í vetur. „Við höfum litið svo á að þetta olíukerfi væri ekki fullfrágengið fyrr en búið er að taka það út af okkar sérfræðingum. Því tel ég að hér sé um mistök að ræða hjá starfsmönnum varnarliðsins," sagði Þorsteinn. Hann sagði að nú hefði verið gengið tryggilega frá því að svona geti ekki gerst aftur, hvorki að olía Ieki, né að einhver gæti tekið rekstrarlegar ákvarðanir upp á sitt eindæmi eins og virtist hafa verið gert. Þorsteinn sagðist ekki hafa nafnið á manninum sem pantaði olíuna og gæti ekki sagt um hvort hann væri íslenskur eða erlendur. Jón Böðvarsson forstjóri Ratsjár- stofnunar sagði að stofnunin tæki ekki við ratsjárstöðinni fyrr en eftir mitt næsta ár og þar væri enn engin starfsemi eða rekstur á vegum Rat- sjárstofnunar. Hvorki stofnunin né nokkur á hennar vegum hefði pantað olíuna og bæri hún því ekki á neinn hátt ábyrgð á óhappinu. -sá Sættir ríkisstjórnar og Háskólans: HÁSKÓUNN MUNBORGA TÓLVUR 0G HÚSBÚNAD í gær undirrituðu menntamála- ráðherra og háskólarektor sam- komulag um ráðstöfun tekna af Happdrætti Háskóla íslands. Með samkomulaginu tekur Háskólinn að sér stofnkostnað vegna tölvu- búnaðar í Þjóðarbókhlöðu svo og kostnað vegna tölvunets um há- skólasvæðið til nýtingar tölvubún- aðar bókhlöðunnar. Ráðgert er að 53 milljónir af happdrættistekjun- um fari til þessa verkefnis og er gert ráð fyrir að verulegur hluti þess kostnaðar falli til á næsta ári. Auk þess tekur Háskólinn að sér að greiða hluta húsbúnaðar í lestr- arrýmum Þjóðarbókhlöðu. Með undirritun samkomulagsins lauk harðri deilu yfirstjórnar Há- skólans við stjómvöld sem hófst í kjölfar þess að fjárlög fyrir næsta ár voru lögð fram. í fjárlögunum var gert ráð fyrir að 87 milljónum af sjálfsaflafé skólans yrði varið til ýmissa verkefna sem áður heyrðu undir ríkissjóð. Ráðgert var að 60 milljónir af happdrættistekjunum rynnu til byggingar Þjóðarbók- hlöðu, 15 milljónir til bóka- og tímaritakaupa og 12 milljónir til Raunvísindastofnunar og Til- raunastofunnar að Keldum. Þessu mótmæltu yfirvöld Háskólans harðlega og sögðu að með þessu væri traðkað á sjálfsforræði Há- skólans. Samkomulagið sem var undirrit- að í gær samanstendur af fjórum meginatriðum. í fyrsta lagi er þar kveðið á um að Háskólaráð geri áætlun um ráðstöfun tekna af Happdrætti Háskóla íslands til nokkurra ára í senn og ákveði hvernig fénu skuli varið á hverju ári að höfðu samráði við menntamálaráðuneytið. í öðru lagi tekur Háskólinn þátt í kostnaði húsbúnaðar og þjón- ustutækja í Þjóðarbókhlöðu svo sem nánar verður skilgreint í sam- komulagi milli Háskólans og menntamálaráðuneytis. - Sem fyrr segir hefur verið ákveðið að Há- skólinn greiði 53 milljónir vegna tölvubúnaðar. Einnig tekur Há- skólinn að sér að greiða af happ- drættisfé hluta húsbúnaðar í lestr- arrýmum Þjóðarbókhlöðunnar samkvæmt nánari skilgreiningu er samið verður um þegar ýtarlegri kostnaðaráætlun um þann þátt liggur fyrir. I þriðja lagi er í samkomulaginu kveðið á um að Raunvísindastofn- un Háskólans eigi jafnan rétt til styrkja úr sjóðum Háskólans og aðrar rannsóknastofnanir sem eru undir nafni Háskólans á fjárlögum. í fjórða lagi er gert ráð fyrir að Tilraunastöð Háskólans að Keld- um og Háskóli íslands geri með sér samning um nánari samvinnu, að- stöðu til kennslu og rannsókna, og rétt Tilraunastöðvarinnar til styrkja úr sjóðum Háskólans. Sigmundur Guðbjamason há- skólarektor sagðist fagna þessu samkomulagi og mikilvægt væri að með því væri forræði Háskólans yfír tekjum happdrættisins tryggt. Ákvæði um langtímaáætlanir og samráð við yfirvöld væru ekki ný af nálinni þó þau hefðu ekki verið orðuð með þessum hætti áður í sérstöku samkomulagi. Þá hafi einnig lengi verið rætt um að Háskólinn taki þátt í lokaáfanga Þjóðarbókhlöðunnar. Þess má að lokum geta að í fjárlögum er gert ráð fyrir að tekjur Háskólans af Happdrættinu verði 190.2 milljónir króna þannig að rúmur fjórðungur að happ- drættistekjum næsta árs rennur til Þjóðarbókhlöðu. SSH

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.