Tíminn - 07.12.1989, Síða 17

Tíminn - 07.12.1989, Síða 17
Fimmtudagur 7. desember 1989 Tíminn 17 rbvrvix^ð i Mnr Páll Pétursson Einar Bollason Kópavogur Fundur verður haldinn að Hamraborg 5, fimmtudaginn 7. desember kl. 20.30. Páll Pétursson alþingismaður flytur erindi um ísland, EFTA og samninga við Evrópubandalagið. Fundarstjóri verður Einar Bollason. Allir velkomnir. Framsóknarfélögin í Kópavogi. Framsóknarvist - Rangæingar Sunnudaginn 10. des. kl. 21.00 verður næst síðasta umferð í þriggjakvöldakeppninni spiluð á Hvolnum. Kvöldverðlaun. Heildarverðlaun eru helgarferð til Akureyrar fyrir tvo, að verðmæti kr. 25.000,- Framsóknarfélag Rangæinga. Suðurland Skrifstofa kjördæmissambands framsóknarfélaganna, Eyrarvegi 15, Selfossi er opin mánudaga og fimmtudaga kl. 15-17, sími 98-22547. Lítið inn, kaffi á könnunni. Stjórn KSFS. Jóla - Framsóknarvist Framsóknarvist verður spiluð sunnudaginn 10. desember kl. 14.00 í Danshöllinni (Þórscafé). í tilefni jólamánaðarins verða veitt glæsileg verðlaun karla og kvenna (Jólamatarkörfur). Nánar auglýst síðar. Framsóknarfélag Reykjavíkur. Framsóknarmenn Siglufirði og Fljótum Munið matarfundinn í hádeginu föstudaginn 8. des. á Hótel Höfn. Stjórnin. Jólahappdrætti Framsóknarflokksins Dregið verður 23. desember n.k. Velunnarar flokksins eru hvattir til að greiða heimsenda g íróseðla fyrir þann tíma. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða í síma 91-24480. Framsóknarflokkurinn. Jólaalmanak S.U.F. 1989 Útdráttur hefst 1. desember. Gerið skil og leggið baráttunni lið. Allar frekari upplýsingar í síma 91-24480 eða 91-21379 og á skrifstofunni, Nóatúni 21, Reykjavík. Velunnarar, látið ekki happ úr hendi sleppa. Samband ungra framsóknarmanna. Framsóknarfólk Norðurlandi vestra Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár- króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757. Árnesingar - nærsveitir Spilum félagvist í samkomuhúsinu í Borgarnesi, föstudaginn 8. desember kl. 20.30. Síðasta kvöldið í 3ja kvölda keppni. Mætum vel og stundvíslega. Framsóknarfélag Borgarness. Keflavík Aðalfundur fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Keflavík verður hald- inn á Glóðinni laugardaginn 9. desember kl. 16.00. Stjórnin. Reykjanes Skrifstofa kjördæmissambandsins, Hamraborg 5, Kópavogi, s. 43222, er opin mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga, kl. 17-19. K.F.R. Kópavogur - Opið hús Framsóknarfélögin í Kópavogi hafa opið hús á miðvikudögum kl. 17.30 til 19.00. SPEGILL í gamanmyndinni „Tveimur andlitum ofaukið“ (Two Faces Too Many) leikur kvennagullið Mark Harmon og Madeline Stowe er í aðalkvenhlutverki í myndinni. Þetta er ein af nýju grínmyndunum Enn eru gerðar kvikmyndir um heim- komna bandaríska Víetnam-hermenn - og vandamál þeirra Það lítur út fyrir að þeir í Hollywood ætli ekki að leyfa al- menningi í Bandaríkjunum að gleyma hörmungum Víetnam- stríðsins, enn er verið að gera kvikmyndir um heimkomna her- menn sem hafa beðið tjón á líkama og sál. Kvennagullið Tom Cruise (úr Top Gun) leikur þarna erfiðasta hlutverk sem hann hefur nokkru sinni tekist á við, - eftir því sem hann segir sjálfur. Það er í mynd- inni Fæddur 4. júlí (Bom on the Fourth of July). Myndin er gerð eftir sannri sögu um ungan mann, Ron Kovic, sem er máttlaus og bundinn hjólastól allt sitt líf eftir að hafa særst í stríðinu í Víetnam. Þá er það „Moonlighting“-hetj- an Bmce Willis, sem leikur upp- gjafahermann sem kemur heim til fjölskyldu sinnar í Kentucky, en getur ekki komist aftur í samband við fyrra líf sitt og raunveru-leik- ann. Sú mynd er nefnd „In Coun- try“. Svo er myndin „Velkominn heim“ (Welcome Home), en þar leikur Kris Kristofferson hermann úr bandaríska flughernum, sem hefur verið týndur- og álitinn dáinn - í 17 ár. Hann kemur svo óvænt heim aftur og kemst þá að því að eiginkona hans er gift öðrum manni. Þessar myndir eru allar um svip- að efni, þ.e. heimkomna hermenn og vandamál þeirra, en það er bæði spennumyndir og gamanmyndir sem nú í haust hafa komið í fyrsta sinn á hvíta tjaldið. Við birtum nokkrar myndir úr hinum nýju kvikmyndum: John Travolta og Kirstie AJIey leika í myndinni „Hver er að tala?“ (Who‘s Talking?, en það er óvenjuleg gamanmynd, þar sem ófætt barn í móðurkviði lætur til sín heyra! En enn ótrúlegra er þó, - að það er töffarinn Bruce Willis sem leikur rödd ófædda bamsins Bruce Willis og Emily Lloyd í myndinni „In Country“ Frank Stallone - bróðir hins fræga Sylvester Stallone - sést hér með byssuna á lofti. Hann leikur í nýrri spennumynd gerðri eftir sögu Ag- ötu Christie „Ten Little Indians“ (kölluð á íslensku „Tíu littlir neg- rastrákar")

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.