Tíminn - 20.12.1989, Page 1

Tíminn - 20.12.1989, Page 1
 - V Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í sjö tugi ára MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989 - 251. TBL. 73. ÁRG. - VERÐ í LAUSASÖLU KR. 90,- Sölusamtök lagmetis kljást við mikla rekstrarerfiðleika, en stjórnar- formaðurinn lýsir yfir að samtökin muni vinna sig út úr þeim: Eru Sölusamtök lag metis á hel jarþröm? Stjórn Sölusamtaka lagmetis, sem er í eigu 10 lagmetisframleiðenda, ákvað á föstudaginn að leggja til hliðar hugmyndir um að leggja fyrirtækið niður í núverandi mynd og stofna þess í stað hlutafélag um svipaðan eða sama rekstur. Þess í stað er hugmyndin að leita eftir aðstoð stjórn- valda og endurskipuleggja reksturinn. Vegna þessarar endurskipulagningar sagði framkvæmdastjóri fyrirtækisins upp störfum og hefur nýr maður verið ráðinn í hans stað. Að mati stjórnarformannsins á fyrirtækið góða möguleika á að vinna sig út úr erfiðleikunum. Tímanum er kunnugt um að verulegur dráttur hefur verið á greiðslum til einstakra framleiðenda sem hefur enn aukið á vand- ann í erfiðum rekstri lagmetisframleið- enda. • Blaðsíða 2 Varaformaður sjálfstæðisflokksins flytur höfuðstöðvar andstæðinga ríkisstjómarinnar í Austurstræti 16: Davíð dregur Reykjavík inn í stjórnarandstöðu Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sem jafnframt er borgarstjori í Reykjavík, hefur með óvenjulegum hætti blandað sér inn í framgang mála á Alþingi vegna lagasetningar um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Flokkssystkini hans á Alþingi hafna samningum um afgreiðslu mála þar á næstu dögum m.a. vegna kröfu hans um að útiloka ríkið um óákveðin tíma frá þátttöku í stjórn Borgarspítalans. Forseti Alþingis gerði í gær þessi óvenjulegu tengsl að umtalsefni, en þingmenn Sjálfstæðisflokks brugð- ust ókvæða við og kröfðust afsökunar á slíkum ummælum. Engu að síður er Ijóst að undir forystu varaformanns Sjálfstæðisflokksins hefur Reykjavík- urborg verið dregin í aðalhlutverk stjórnarandstöð- unnar á Alþingi. • Blaðsíða 5 ■Mi m gg|jg iMP llllllll ■ ■ -)

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.