Tíminn - 20.12.1989, Blaðsíða 16

Tíminn - 20.12.1989, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 —686300 RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Halnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 SAMVINNUBANKINN Í BYGGÐUM LANDSINS DAGARTIL JOLA Tíniimi MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989 Innflutningskvóti á saltfisk til Evrópubandalagsins ákveöinn: Stærri kvóti hærri tollur Sjávarútvegsráðherrar Evrópubandalagsríkjanna ákváðu í gær innflutningsheimildir á saltfiski fyrir tímabilið l.apríl 1990 til áramóta. Frá áramótum til 1. apríl, hins vegar er í gildi 25.000 tonna tollfrjáls kvóti. Innflutningskvótinn í EB að þessu sinni er 53.000 t af flöttum saltfiski með 7% tolli. í fyrra var þessi kvóti nokkru minni eða 49.000 t en með lægri tolli eða 6%. Þá verður heimilaður inn- flutningur til EB á 1.200 t af söltuð- um þorskflökum með 11% tolli en sambærilegar tölur fyrir árið í ár eru 500 t með 10% tolli. Loks var heimilaður innflutningur á 3.5001 af söltuðum ufsaflökum sem er 500 t minna en í ár en á með sama tolli og þá eða 10%. Þessar innflutningsheimildir gilda fyrir alla saltfiskframleiðendur utan EB og fá þeir innflutningsheimild í þeirri röð sem þeir geta flutt fiskinn inn í EB og er það sama fyrirkomu- lag og verið hefur. Ao sögn Magnúsar Gunnarsson- ar, framkvstj. SIF kemur það sér vel að þessi ákvörðun EB skuli liggja fyrir þetta snemma þar sem slíkt auðveldi skipulagningu framleiðsl- unnar, en áður hefur þetta ekki legið fyrir fyrr en í febrúar eða mars. Hann sagði að tiltölulega litlar birgð- ir væru til af saltfiski í landinu núna og því riði á að hefja af krafti saltnskframleiðslu nú um áramótin til þess að ná sem mestu af þessum 25.000 t tollfrjálsa kvóta. Magnús sagði að erfitt væri að meta hvaða áhrif þessir tollar hefðu Húsatryggingar Reykjavíkur: 20% hækkun hafnað af eftirlitinu Borgarráð Reykjavíkur sam- þykkti á fundi í síðustu viku að hækka iðgjöld hjá Húsatryggingum Reykjavíkur um rúmlega 20% um áramót, en þá fellir ríkið niður söluskatt af tryggingum. Trygginga- eftirlitið hefur sent borgarráði bréf og óskað eftir því að hætt verði við hækkunina. I gær féllst borgarráð á tilmæli Tryggingaeftirlitsins og því munu iðgjöldin ekki hækka umfram vísitölu. Borgarráð samþykkti að hækka iðgjöla af tryggingum á íbúðarhús- næði um 21,4% frá og með næstu áramótum. Ofan á þessa hækkun kemur vísitölubundin hækkun á brunabótamati. Þetta hefði þýtt að áhrif af niðurfellingu söluskatts um áramót hefði þurrkast út. Trygg- ingaeftirlitið sendi strax bréf til borg- arráðs þar sem óskað var eftir að horfið yrði frá þessari hækkun þar eð engin þörf væri á henni. Borgar- ráð hefur nú fallist á þessi tilmæli Tryggingaeftirlitsins. Hluti af iðgjöldum vegna húsa- trygginga í Reykjavík hefur farið í að greiða hluta af reksturskostnaði slökkviliðsins. Á síðustu árum hefur hlutur iðgjalda í rekstrarkostnaði slökkviliðsins stækkað mjög mikið. - EÓ Desemberuppboð í Kaupmannahöfn: VERÐFALL Verð á minkaskinnum féll nokkuð á desemberuppboði í Kaupmanna- höfn sem lauk á föstudag. Söluhlut- fallið var einnig lélegt nema á skinn- um af Scanblack högnum þar sem það var 95%. í frétt frá Sambandi loðdýradækt- enda eru niðurstöður sem fengust á uppboðinu túlkaðar þannig að þær endurspegli markaðsstöðuna og séu. í samræmi við það sem sérfræðingar hafi áðurspáð. Síðansegir: „Nokkur verðlækkun í dollurum og lágt sölu- hlutfall mun sennilega flýta fyrir samdrætti í framleiðslunni erlendis, þannig að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar komist á fyrr en ella.“ Næst verður uppboð í Kaup- mannahöfn í janúar og síðan í mars, maí og loks í september. á þau verð sem framleiðendur fengju, en sá fiskur sem nú er verið að vinna í og flytja út kemur inn í tollfrjálsa kvótann. Þau verð eru nokkur góð en hitt er ljóst, að mati Magnúsar, að tollurinn þýðir að óbreyttu hærra verð til neytenda í EB. Markaðurinn yrði síðan að skera úr um hvað yrði. „Það sem hins vegar ergrundvall- ar atriði í þessu, sem mér finnst menn ekki velta nægjanlega fyrir sér er að þessi þróun öll er afskaplega neikvæð fyrir Islendinga. í raun er það mjög undarlegt að EB skuli geta ákveðið að þegar Spánn og Portúgal ganga inn í bandalagið að taka upp þessa einhliða ákvörðun gagnvart einni afurð frá íslandi. Þessi ákvörð- un staðfestir þá þróun sem verið hefur á undanförnum árum, að toll- arnir hafa farið hækkandi,“ sagði Magnús. Hann benti þó á að vissu- lega væri það ánægjulegt í þessu að magnið hefði heldur aukist frá því sem var. - BG l cmmuma (S/náveÍA/a, úuo: / fia/c/oi /pamern/evt-ffeivav meá iói.'/erýaia/tu. t rÍAÍaAa-y ^am/c/yraaáineiáar meá imfövi. //jeriá ^ra/m ni<í /centa/jói o<jf /iœ<jfi/e<jfa tán/iit áúamt fýö/acjum (/rjý// í fa//e<ý« (ý/tói. Osta- og smjörsalan sf.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.