Tíminn - 20.12.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 20. desember 1989
DAGBÓK
Kirkjukórasamband
Austurlands:
Snælandskórinn heldur tónleika í
Langholtskirkju miðvikudagskvöldið 20.
desember kl. 20:30.
Frá Félagi eldri borgara
Göngu-Hrólfar heimsækja Hana nú-
félaga í Kópavogi á Þorláksmessu. Sæta-
ferðir verða frá Hlemmtorgi kl. 09:30.
Drukkið verður kaffi á Digranesvegi 12.
Farin verður blysför um Hamraborg og
fleira gert sér til gamans.
Skrifstofa Félags eldri borgara verður
lokuð vegna jólaleyfis frá og með 22.
desember til 2. janúar.
Frá Kirkjugörðum Reykjavíkur
Starfsmenn Kirkjugarða Reykjavíkur
munu í ár eins og undanfarin ár aðstoða
fólk, sem kemur til að huga að leiðum
ástvina sinna fyrir jólin.
Á Þorláksmessu og aðfangadag verða
talstöðvabílar dreifðir um Fossvogsgarð
og munu í samvinnu við skrifstofuna
leiðbeina fólki eftir bestu getu. Skrifstof-
an í Fossvogsgarði er opin til Id. 16:00 á
Þorláksmessu og til kl. 15:00 á aðfanga-
dag.
í Gufunesgarði og Suðurgötugarði
verða einnig starfsmenn til aðstoðar.
Athygli er vakin á því að strætisvagn
15A gengur á hálftíma fresti í Grafarvogs-
hverfi og að kirkjugarðinum í Gufunesi.
Vinsamlegast athugið að það auðveldar
mjög alla aðstoð ef gestir vita leiðisnúm-
er, en þeim sem ekki vita það og eru ekki
öruggir að rata, viljum við benda á að
hafa samband sem fyrst við skrifstofu
kirkjugarðanna í síma 18166 og fá uppgef-
ið númer þess leiðis er vitja skal og hafa
það á takteinum þegar í garðinn er
komið. Það auðveldar mjög alla af-
greiðslu.
Tekinn verður upp einstefnu akstur að
og frá Fossvogskirkjugarði og mun lög-
reglan gefa leiðbeiningar og stjórna
umferð.
Hjálparstofnun kirkjunnar mun verða
með kertasölu í kirkjugörðunum báða
dagana.
KVENNAATHVARF
Húsaskjól er opið allan sólarhringinn
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa
verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið
fyrir nauðgun.
Síminn er 21205 - opinn allan sólar-
hringinn.
Fundarboð
Hluthafafundur Hraðfrystihúss Stokkseyrar hf.
verður haldinn í kaffistofu Hraðfrystihúss Stokks-
eyrar hf., miðvikudaginn 27.12. 1989 kl. 16.00.
DAGSKRÁ
1. Skýrt frá fjárhagslegri endurskipulagningu fé-
lagsins.
2. 9 mánaða uppgjör 1989 kynnt.
3. Breytingar á samþykktum félagsins.
4. Heimild til hlutafjáraukningar.
5. Önnur mál.
Tillögur til breytinga á samþykktum liggja frammi
á skrifstofu félagsins.
Stokkseyri 18.12.1989
Stjórnin
Til sölu, notað
Husqvarna ísskápur, grænn h. 185, b. 60, d. 60, verð kr. 10.000.-
Husqvarna uppþvottavél, græn h. 86, b. 60, d. 60, verð kr. 15.000.-
Eldavél hvít. Upo, h. 84, b. 50, d. 60, verð kr. 3.000.-
Fólksbílakerra breidd 107, I, 140, ca. 200 kg burðargeta, verð kr.
14.000.- Sími 36273.
Vélavörð
vantar á loðnubát. Upplýsingar hjá skipstjóra í
síma 92-68128.
SAFNASÝNING í HAFNARB0RG
Laugardaginn 9. desember var opnuð í
Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar, sýning á fjölmörgum söfn-
um í eigu einstaklinga. Hér er um fjöl-
breytta og forvitnilega sýningu að ræða
sem sett er upp í samvinnu Hafnarborgar
og Byggðasafns Hafnarfjarðar.
Opnunartími: kl. 14:00-19:00 alla daga
nema þriðjudaga. Lokað er 23.-26. des.
og 31. des.-l. jan‘90.
Sýningin stendur til 15. janúar 1990.
Jólasýning í Nýhófn
Nýlega var opnuð jólasýning í listasaln-
um Nýhöfn, Hafnarstræti 18.
Á þessari sýningu, sem er sölusýning,
eru verk eftir fjölda listamanna.
Opnunardaginn verður boðið upp á
veitingar og sungin jólalög.
Sýningin er opin virka daga kl. 10:00-
18:00 á laugardögum kl. 14:00 að lokunar-
tíma verslana og á Þorláksmessu kl.
10:00-23:00. Sýningin stendur fram yfir
áramót.
Gunnar R. Bjarnason sýnir
í Bókasafni Kópavogs
Nú stendur yfir sýning á 13 myndum
Gunnars R. Bjarnasonar í Bókasafni
Kópavogs. Myndirnar eru allar málaðar
með olíupastellitum á pappír.
Gunnar lærði leiktjaldamálun og vann
árum saman sem slíkur við Þjóðleikhúsið
en hefur nú tekið við starfi yfirleikmynda-
teiknara Þjóðleikhússins. Hann á að baki
gerð mikils fjölda ieikmynda fyrir Þjóð-
leikhúsið og önnur leikhús. Hann hefur
einnig verið hönnuður fjölda vörusýn-
inga, svo sem iðnsýninga, búvöru- og
landbúnaðarsýninga og margs konar sér-
sýninga.
Gunnar hefur haldið þrjár einkasýning-
ar á myndverkum í Ásmundarsal, Nor-
ræna húsinu og í sl. september í Hafnar-
borg í Hafnarfirði. Hann hefur einnig
tekið þátt í samsýningum myndlistarm-
anna og leikmyndateiknara í Reykjavík
og Kaupmannahöfn.
Gunnar hefur hlotið margs konar
viðurkenningar fyrir list sína, m.a. verð-
laun úr Menningarsjóði Þjóðleikhússins,
styrk frá Alþjóðasamtökum leikhúsfólks
(ITI) til námsdvalar erlendis, starfslaun
listamanna og viðurkenningar fyrir hönn-
un sýningarbása.
Sýningin verður opin á sama tíma og
Bókasafnið til áramóta. Mánudaga til
föstudaga kl. 10:00-21:00 og laugardaga
kl. 11:00-14:00.
Sýning Gríms Marinós
í B0RGUM
Nýlega var opnuð sýning á verkum
Gríms Marinós Steindórssonar í Safnað-
arheimili Kársnessóknar, Borgum, vestan
Kópavogskirkju. Sýningin er opin virka
daga kl. 17:00-19:00 og um helgar kl.
15:00-19:00 og stendur til 29. desember.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Grímur Marinó er fæddur í Vest-
mannaeyjum 1933. Hann stundaði mynd-
listarnám hjá Kjartani Guðjónssyni og
Ásmundi Sveinssyni 1950-’52. Einnig
hefur hann notið tilsagnar hjá Iistmálur-
unum Pétri Friðrik og Veturliða. Tvívegis
hefur hann farið í námsferðir til Banda-
ríkjanna.
Grímur lauk námi í járniðnaðargrein-
um 1978 og hefur einkum fengist við slík
störf, en auk þess gegnt vitavarðastörfum
við Galtarvita og Hornbjarg og gætir veru
hans á þessum stöðum víða í verkum
hans. Grímur Marínó hefur haldið marg-
ar sýningar og tekið þátt í samsýningum.
Á sýningunni í Borgum eru klippi-
myndir og verk úr málmum og steinum.
Jólasýning í Gallerí Borg
1 Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, hefur
nú verið sett upp sýning á verkum „gömlu
meistaranna".
Á sýningunni eru m.a. 6 Kjarvalsverk,
þrjár oliu- og þrjár vatnslitamyndir eftir
Ásgrím Jónsson, tvær olíumyndir eftir
Jón Stefánsson, stór olíumynd frá 1948
eftir Svavar Guðnason, uppstilling frá
1941 eftir Þorvald Skúlason, stór olíumál-
verk eftir Sverri Haraldsson og Ragnheiði
Ream, stórt Siglufjarðar-málverk eftir
Jón Þorleifsson (Síldarárin), einniggaml-
ar olíumyndir eftir Jóhann Briem og Jón
Engilberts.
Oll verkin á sýningunni eru til sölu.
f Gallerí Borg, Austurstræti 10
(Penninn) er nú blandað upphengi.
Grafík-myndir eftir um það bil 50 höf-
unda, litlar vatnslita og pastel- myndir og
stærri olíuverk eftir marga af kunnustu
listamönnum þjóðarinnar.
Opnunartími Gallerí Borgar í desem-
ber er miðaður við opnunartíma verslana.
Laugardaginn 16. og á Þorláksmessu
verður gestum Gallerí Borgar í Pósthús-
stræti boðið upp á jólaglögg og piparkök-
ur.
Myndlistarsýning í MJÓDD
Halla Haraldsdóttir, myndlistarkona
frá Keflavík, heldur sýningu á verkum
sínum í verslun Hjartar Nielsen, Mjódd-
inni, í desember og janúar.
Halla er fædd og uppalin á Siglufirði.
Hún var við nám í Myndlistar- og hand-
íðaskóla íslands í tvo vetur og seinna í
kennaradeild skólans í einn vetur. Aðal-
kennari hennar þar var Erró. Síðan hélt
hún til Danmerkur og stundaði nám hjá
dönskum listmálara, Sören Esbjerg í tvo
vetur.
Frá árinu 1978 hefur Halla verið í
tengslum við gler- og listiðnaðarverkstæði
D.H. Oidtmann í Þýskalandi, fyrst við
nám og seinna við störf hjá fyrirtækinu.
Hún hefur haldið fjölda einka- og samsýn-
inga heima og erlendis og hlotið margvís-
legar viðurkenningar fyrir list sína.
Myndir Höllu á þessari sýningu eru
vatnslitamyndir unnar með blandaðri
tækni, auk glerlistaverka. Öll verkin eru
unnin á þessu ári. Sýningin, sem er
sölusýning, er opin á verslunartíma, alla
virka daga kl. 10:00-18:30 og kl. 10:00-
16:00 á laugardögum.
Listkynning á Akureyri
Menningarsamtök Norðlendínga og
Alþýðubankinn hf kynna að þessu sinni
listakonuna Ruth Hansen. Hún er fædd á
Akureyri 1944.
Á árunum 1974-’81 sótti Ruth nám-
skeið í Myndlistarskólanum á Akureyri.
Ruth er ein þeirra sem staðið hafa að
Myndhópnum og hefur tekið þátt í sam-
sýningum hópsins allt frá 1979.
Ruth hefur haldið 2 einkasýningar í
Gamla Lundi á Akureyri 1985 og á
Selfossi sama ár. Þá hefur hún tekið þátt
í fjölda samsýninga víðar á Norðurlandi.
Á listkynningunni eru 9 málverk unnin
með ol:u á striga og eru 2 verkanna frá
1985 en önnur frá árinu 1989.
Kynningin er í útibúi Alþýðubankans
hf á Akureyri, Skipagötu 13 og er pin á
afgreiðslutíma. Henni lýkur 2. febrúar
1990.
Tékkneskir unglingar óska
eftir bréfavinum á íslandi
í sambandi viö ferö íslenska landsliðs-
ins til Tékkóslóvakíu nýlega komu tékkn-
r uvM\t\vi%J a Mnr
l
Jólahappdrætti Framsóknarflokksins
Dregiö verður 23. desember n.k.
Velunnarar flokksins eru hvattir til aö greiða heimsenda gí róseðla fyrir
þann tíma.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða í síma
91-24480.
Framsóknarflokkurinn.
Suðurland
Skrifstofa kjördæmissambands framsóknarfélaganna, Eyrarvegi 15,
Selfossi er opin mánudaga og fimmtudaga kl. 15-17, sími 98-22547.
Lítið inn, kaffi á könnunni.
Stjórn KSFS.
Framsóknarfólk Norðurlandi vestra
Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár-
króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga
og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757.
Kópavogur - Opið hús
Framsóknarfélögin í Kópavogi hafa opið hús á miðvikudögum kl.
17.30 til 19.00.
Framsóknarmenn Siglufirði
og Fljótum
Munið hádegisverðarfund að Hótel Höfn föstudaginn 22. des.
Stjórnin.
Jólaalmanak S.U.F. 1989
Gerið skil og leggið baráttunni lið.
Allar frekari upplýsingar í síma 91-24480
skrifstofunni, Nóatúni 21, Reykjavík.
Velunnarar, látið ekki happ úr hendi sleppa.
1. des. 1. vinningur nr. 5505. 11.des. 21
2. vinningur nr. 579
2. des. 3. vinningur nr. 4348
4. vinningur nr. 2638
3. des. 5. vinningur nr. 2656
6. vinningur nr. 2536
4. des. 7. vinningur nr. 4947
8. vinningur nr. 1740
5. des. 9. vinningur nr. 1341
10. vinningur nr. 4997
6. des. 11. vinningur nr. 4635
12. vinningur nr. 5839
7. des. 13. vinningur nr. 1937
14. vinningur nr. 3035
8. des. 15. vinningur nr. 1996
16. vinningur nr. 3860
9. des. 17. vinningur nr. 1840
18. vinningur nr. 4217
10.des. 19. vinningur nr. 3935
20. vinningur nr. 5514
eða 91-21379 og á
22
12. des. 23
24
13. des. 25
26
14. des. 27
28
15. des. 29
30
16. des. 31.
32
17. des. 33
34
18. des 35.
36.
19. des. 37
38
20. des. 39
40
. vinnmgur nr
. vinningur nr
, vinningur nr,
vinningur nr.
vinningur nr,
vinningur nr.
vinningur nr.
vinningur nr.
vinningur nr.
vinningur nr,
vinningur nr.
vinningur nr,
. vinningur nr
vinningur nr.
vinningur nr.
vinningur nr.
. vinningur nr
. vinningur nr.
. vinningur nr
. vinningur nr
546
1164
5442
3569
5943
4362
1617
3647
648
4822
1136
3488
3806
1981
5960
1595
568
5842
1107
. 1353
Samband ungra framsóknarmanna.
eskir íþróttafréttamenn að tali við Jón
Hjaltalín Magnússon, formann HSÍ, og
sögðust hafa mikinn áhuga á að tékknesk-
ir unglingar eignuðust bréfavini á íslandi.
Tékknesku unglingarnir skrifa bæði á
ensku og þýsku.
Handknattleikssamband íslands vill
styðja þetta málefni og biður alla ung-
linga, sem hafa áhuga á að eignast
pennavini í Tékkóslóvakíu að skrifa til
HSÍ og gefa upp nafn sitt, heimilisfang,
aldur og helstu áhugamál. HSf mun síðan
koma nöfnum þeirra á framfæri við
samtök íþróttafréttamanna í Tékkó-
slóvakíu.
Sendið kort til CRAIG!
Craig Shergold er 7 ára drengur í The
Royal Marsden Hospital í London. Craig
er mikið veikur. Hann er með æxli í heila
og annað við mænu, og á að sögn stutt
eftir ólifað.
Hann hefur fengið mörg kort frá fólki
til að óska honum góðs, og nú langar
Craig til að komast í heimsmetabók
Guinness sem sá einstaklingur sem hefur
fengið flest kort með góðum óskum
(„Get Well Cards“) af öllum sjúklingum
í heimi. Nú hefur Tímanum borist
beiðni frá London um að hvetja fólk til
að senda kort til Craig og hér á eftir fer
utanáskriftin á kortið:
CRAIG SHERGOLD
56 SELBY ROAD
CARSHALTON
SURREY
SM 5 1 LD
ENGLAND
111 BÆKUR llllllllllllllllllll
Póll S. Pólsson og lleiri
Laxá á Ásum
Þeir frændur Gísli Pálsson og
ívar Pálsson hafa gefið út bókina
Laxá á Ásum og heitir útgáfufélag
þeirra Ruddi eftir steini nokkrum
nálægt ósi Laxár. Aðalhöfundur
bókarinnar er Páll S. Pálsson
hæstaréttarlögmaður sem skrifaði
handritið skömmu fyrir andlát
sitt.
Bókin er um samnefnda á sem
talin er ein af bestu laxveiðiám í
heimi. Páll S. þekkti ána manna
best, þar sem hann ólst upp í
Sauðanesi á bökkum hennar og
stundaði síðan laxveiði þar í 25 ár.
Höfundur leiðir lesandann um
veiðistaði og umhverfi Laxár í
litríku máli, þannig að landið og
sagan verða eitt í frásögninni.
Reynsla höfundar af laxveiði í ánni
kemur hér veiðimönnum til góða,
auk þess sem áhugafólk um
umhverfi og sögu svæðisins
fræðist við lesturinn. Jón Torfason
frá Torfalæk bætir við þátt Páls S.
um sögu Laxár, þar sem Páll segir
frá Mána hinum kristna, en Jón
reifar sögu árinnar fyrr á öldum:
Deilur á 14. og 16. öld, nýtingu
árinnar á 18. öld og allt til 20. aldar
þar sem Páll S. tekur aftur við
lýsingunni.
Dr. Tumi Tómasson ritar um
rannsóknir sínar á Mfríki Laxár en
hann hefur stundað þær
rannsóknir um árabil ásamt
öðrum starfsmönnum
Veiðimálastofnunar. Hann kemur
víða við og afhjúpar ýmsa
leyndardóma árinnar.
Leitast er við að fræða lesanda
bókarinnar um Laxá á Ásum á
sem fjölbreytilegastan hátt. Bókin
er í senn frásagnarit,
leiðbeiningarit og visindarit.
Þessa 140 síðan bók prýða 45
litmyndir, m.a. tvær stórar
loftmyndir af ánni og nágrenni til
Blönduóss, auk eldri svart/hvítra
mynda og landakorta. Laxá á
Ásum er prentuð í Kassagerð
Reykjavíkur hf. Setning og umbrot
var í höndum Prentþjónustunnar
hf. og Bókagerðin sá um bókband.
ívar Pálsson aerði kánu.