Tíminn - 20.12.1989, Blaðsíða 2

Tíminn - 20.12.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn Miðvikudagur 20. desember 1989 W Víðtæk endurskipulagning hjá Sölusamtökum lagmetis: GLIMA VID VERULEGA REKSTRARERFIÐLEIKA Sölusamtök lagmetisins eiga í verulegum rekstrarerfiðleik- um. Ein lausn á vandanum sem var íhuguð alvarlega af stjórn samtakanna var að leggja samtökin niður og stofna hlutafélag en frá þeirri hugmynd var horfið á föstudaginn og ákveðið var að reyna að bjarga málunum með endurskipulagningu og hagræðingu. Samtökin líta einnig til aðstoðar frá stjórnvöld- um sem þau telja að hafi verið lofað vegna áhrifa hvaladeil- unnar á lagmetisiðnaðinn. Að Sölusamtökum lagmetisins standa tíu lagmetisverksmiðjur sem samtals vinna 80-90% af því lagmeti sem flutt er út. Tekjustofn samtakanna er ákveðin prósenta sem framleiðendur greiða af útflutningi. Þess má geta að nýlega var söluprósentan hækkuð vegna erfiðleik- anna. 1 byrjun þessa mánaðar sagði Thcodór Halldórsson upp störfum sem fram- kvæmdastjóri samtakanna en starfar þar þó enn. Theodór sagði í samtali við Tímann að hann hefði talið eðlilegt að víkja frá vegna þeirrar endurskipulagn- in|gar sem er fyrirhuguð. Ekki hlutafélag í bráð Garðar Sverrisson sem áður var deild- arstjóri í tæknideild sölusamtakanna hef- ur tekið við stöðu framkvæmdastjóra. Garðar sagði í samtali við Tímann að hugmyndir um að leggja Sölusamtök lagmetis niður hefðu verið lagðar á hill- una í bili að minnsta kosti. Hugmyndin hefði komið fram sem möguleiki á nýju rekstarformi og liður í lausn á fjárhags- vanda fyrirtækisins. „Það er alveg rétt að Sölusamtökin skulda töluvert mikið, og fjárhagsleg staða þeirra er erfið. Hvala- málið og fleiri þættir hafa lagst á eitt um að gera stöðuna erfiðari." Naflaskoðun Garðar vildi ekki gefa upp hve skuld- irnar væru miklar á þessu stigi málsins þar sem það væri í athugun. Nokkur mál væru óuppgerð er vörðuðu gjaldþrot innan- lands og endanleg skuldastaða lægi því ekki fyrir. Garðar sagði að það mætti orða það svo að ákveðin naflaskoðun færi nú fram á fyrirtækinu og það væri Ijóst að reynt yrði að minnka allan kostnað hjá fyrirtækinu á næstu mánuðum. „Við erum að vinna að því að sjá hvað við erum með stóran bagga, ef svo má segja. Það verður reynt að leysa þessi fjárhagslegu vanda- mál, við höfum ekki hugsað okkur að hlaupast frá vandanum. Við erum að skoða stöðuna og starfsemina og hvað við getum gert til að minnka kostnaðinn." Skýringar á skuldum Hver er skýringin á þessum skuldum, varla er það bara Hvalamálið? „Það er taprekstur á söluskrifstofum erlendis, einnig taprekstur á tilraun til ferskfiskútflutnings og laxaútflutnings. Einnig hafa gjaldþrot hér heima fyrir haft áhrif þar á og fjármagnskostnaður vegna erlendra lána og þróun gengisins hefur haft veruleg áhrif. Hvalamálið hefur hinsvegar orsakað það að 30% samdráttur hefur orðið á Þýskalandsmarkaðinum og í heildina séð hefur orðið samdráttur. Vegna þessa höfum við orðið að setja aukinn kraft á aðra markaði sem hefur verið okkur dýrt.“ Nystudentar hata sett upp nuturnar. A utiu mynainni ma sja nvar njoruis Björg Gunnarsdóttir tckur viö verðlaunum úr hendi Kristínar Arnalds skólameistara. Tímamyndir: Ámi Bjarna Jólastúdentar í gær fóru fram skólaslit í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti. Hvítir stúdentskollar eru orðnir árvissir fyrirboðar jólanna og að þessu sinni útskrifuðust 58 stúdentsefni prófi nú. Bestum árangri á stúdentsprófi í FB að þessu sinni náði Hjördís Björg Gunnarsson, en hún lauk 150 einingum á 3 1/2 ári og hlaut ein- kunnina A í 133 einingum. Henni voru færð bókarverðlaun fyrir góðan námsárangur í hinum ýmsu greinum, m.a. íslensku, sem er sérlega góð frammistaða hjá henni þar sem hún hefur að mestu búið erlendis þar til hún hóf nám í Fjölbraut. í ræðu Kristínar Arnalds skóla- meistara kom fram 1.430 nemendur hafa stundað nám í dagskóla í ár og að alls hafi 128 nemendur fengið lokaprófsskírteini á hinum ýmsu námsbrautum. Stefán Benediktsson aðstoðarskólamemistari gerði grein fyrir kvöldskólastarfinu og kom fram að þar stunduðu 963 nemendur nám. Af þeim fengu 35 lokaprófsskírteini. Skólaslitin fóru fram í Fella- og Hólakirkju og lék Guðný Magnús- dóttir organisti kirkjunnar á orgel, Kristín R. Sigurðardóttir nýstúdent söng einsöng, ýmsir fulltrúar nem- enda fluttu ávörp og kór FB söng undir stjórn Friðriks S. Kristinsson- ar. Aðspuröur sagði Garðar að í heild væri mjög erfíð staða hjá lagmetisiðnaðinum og síðasta ár hefði verið einstaklega erfitt. „Það er í rauninni ekki möguleiki að sækja peninga til fyrirtækjanna til að rétta af stöðuna." Aðstoð stjómvalda? - Munuð þið þá leita til stjórnvalda eftir aðstoð? „Eins og ég sagði áðan þá erum við að skoða hvað við getum gert. Við höfum fengið ákveðin loforð frá stjórnvöldum að þau komi okkur til aðstoðar hvað varðar að minnsta kosti erfiðleika vegna Hvalamálsins. Hvað við munum gera skýrist væntanlega á næstu vikum. Það verður að halda þessum iðnaði gangandi og við teljum okkur hafa möguleika á að vinna okkur út úr þessum vanda, hugsan- lega með aðstoð.“ Samkvæmt heimildum Tímans munu helstu áhrifaþættirnir í slæmri skulda- stöðu fyrirtækisins vera söluskrifstofur sem settar voru upp í Bandaríkjunum og Hamborg en þær skiluðu ekki því sem til var ætlast og kostuðu samtökin stórfé. Einnig mun uppsetning tæknideildar sam- takanna hafa kostað á bilinu 10-15 millj- ónir króna. Þessar ráðstafanir fóru fram á sama tíma og sölutregða varð á mörkuð- unum. Bjórt framtíð? Rafn A. Sigurðsson stjórnarformaður Sölusamtaka lagmetis sagði í samtali við Tímann að hann sæi ekki að staða fyrirtækisins væri „blaðamatur." Hann sagði jafnframt að það væri ekkert leynd- armál að menn væru að athuga möguleika á að endurskipuleggja reksturinn til að þjóna betur aðildarverksmiðjunum og kaupendum. Rafn vildi ekki gefa upp hverjar skuld- irnar væru. Aðspurður um hvort rekstar- erfiðleikarnir væru verulegir sagði hann að samtökin og iðnaðurinn væru í vand- ræðum þar mikil söluminnkun hefði orðið á árinu út af ýmsum ástæðum. „Þegar tekjuhliðin hrynur þá gefur eitthvað eftir og við erum að vinna okkur út úr þessu. “ Rafn sagði að það væri ekki á dag- skránni að leggja samtökin niður og hann væri bjartsýnn á framtíðina. „Útlitið er gott, við erum til dæmis búnir að gera mjög góðan sölusamning í Bandaríkjun- um sem þýðir tvöföldun á viðskiptum okkar þar og aðilar í Þýskalandi eru byrjaðir að ræða við okkur aftur þannig að útlitið er mjög gott þrátt fyrir tíma- bundin vandamál." SSH Vöruskipti hagstæð um 6,8 milljarða Fyrstu tíu mánuöi ársins voru fluttar út vörur fyrir 64,6 milljarðar króna, en inn fyrir 57,8 milljarðar króna fob. Vöruskiptajöfnuðurinn á þessum tíma var því hagstæður um 6,8 milljarðar króna, en á sama tíma í fyrra var hann hagstæður um 0,1 milljarðar króna á sama gengi. í október voru fluttar út vörur ■fyrir tæpar 6.680 milljarðar króna og inn fyrir tæpar 6.750 milljarðar króna fob. Vöruskiptajöfnuðurinn í október var því óhagstæður um 70 milljónir króna, en í október í fyrra var hann hagstæður um 45 milljónir króna á sama gengi. Fyrstu tíu mánuði þessa árs var verðmæti vöruútflutnings 5% meira á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Sjávarafurðir voru um 72% alls útflutnings og voru um 5% meiri en á sama tíma í fyrr. Útflutningur á áli var 20% meiri og útflutningur kísil- járns var 26% meiri en á sama tíma á síðastliðnu ári. Útflutningur ann- arrar vöru (að frátöldum skipum og flugvélum) var 5% meiri í janúar- október en á sama tíma í fyrra, reiknað á föstu gengi. Verðmæti vöruinnflutnings fob fyrstu tíu mánuðina var 6% minna en á sama tíma í fyrra. Verðmæti innflutnings til stóriðju var 27% meira en í fyrra og verðmæti olíu- innflutnings um 24% meira en á sama tíma í fyrra, reiknað á föstu gengi. Þessir innflutningsliðir ásamt innflutningi skipa og flugvéla eru jafnan breytilegir frá einu tímabili til annars, en séu þeir frátaldir reyndist annar innflutningur hafa orðið 14% minni en í fyrra. -EÓ Selfoss: Það var þröngt setinn Svarfaðar- dalurinn á árlegum jólatónleikum í Selfosskirkju síðastliðið sunnudags- kvöld. Þar komu fram tvær lúðra- sveitir og sex kórar og vitnar þetta um mikla grósku í tónlistarlífi á staðnum, en alls komu fram á þriðja hundrað manns. Þessir jólatónleikar sem haldnir hafa verið árlega í nær tvo áratugi eru að verða fastur liður í jólaundir- búningi á Selfossi og hafa yfir sér ákveðinn hátíðarblæ. Alls söfnuðust í aðgangseyri 165 þúsund krónur og hefur þeim pen- ingum nú verið varið til að kaupa píanó í dvalarheimili aldraðra á Selfossi, Ljósheima. Hafsteinn Þor- valdsson framkvæmdastjóri sjúkra- hússins veitti gjöfinni móttöku og sagði hana einn ljósgeislann í upp- byggingarsögu dvalarheimilisins. Elli- og hjúkrunarheimilið Ljós- heimar sem tók til starfa fyrir nokkr- um árum hefur að allverulegu leyti verið byggt fyrir söfnunar- og sam- skotafé Sunnlendinga og hafa hér- aðsbúar með því sýnt samtakamátt sinn í verki. 300 manns tróðu upp Frá Sigurði Boga Sævarssyni á Selfossi Viðræður milli eigenda að 75% eignarhluta ísl. aðalverktaka og ríkisins um framtíð félagsins á lokastigi: Ríkið kaupi hlut Regins og Sameinaðra Samkomulag hefur verið gert við stjómir Sameinaðra verktaka og Regins h.f. að stefnt verði að því að ríkið eignist meirihluta í íslenskum aðalverktökum, að því er segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðu- neytinu. Islenskir aðalverktakar hafa lengi haft, og hafa enn einkarétt á öllum framkvæmdum fyrir bandaríska her- inn á Keflavíkurflugvelli samkvæmt stjórnvaldsákvörðun sem byggir á varnarsamningi íslands og BNA. Þessi einkaréttur fslenskra aðal- verktaka og önnur sérstaða sem félagið hefur, svo sem tollfrelsi á öllum aðföngum til starfsemi sinnar er með þeim hætti að eðlilegt er talið að ríkið eigi meirihluta í félaginu. Ríkið á nú 25% í íslenskum aðal- verktökum, Reginn h.f. á 25% og Sameinaðir verktakar eiga 50%. Fyrr á árinu gerði utanríkisráð- herra samkomulag við stjórnir Sam- einaðra verktaka og Regins h.f. um aukin áhrif ríkisins á stjórn Isl. aðalverktaka umfram eignarhlut þess. í samkomulaginu fólst m.a. annars það að ríkið skipar nú tvo stjórnarmenn fyrirtækisins og er annar þeirra stjórnarformaður. Stjórnir Sameinaðra verktaka og Regins hafa lýst því yfir að þær séu reiðubúnar til þess að ganga til samninga um endurskipulagningu ísl. aðalverktaka sem meðal annars feli það í sér að þau selji ríkinu af sínum eignarhlut þannig að ríkið eignist meirihluta. Stefnt er að því að samningum um þetta efni verði lokið fyrir aðalfund ísl. aðalverktaka á næsta ári. -sá

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.