Tíminn - 20.12.1989, Page 7

Tíminn - 20.12.1989, Page 7
Miðvikudagur 20. desember 1989 Tíminn 7 BÓKMENNTIR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Fróöleg bók um BSRB og 28 ára formennsku Kristjáns Thorlacius: Stiklað stórum á löngum ferli Verkalýðsforystuferill Kristjáns Thorlacíusar er kominn út á bók sem ber nafn þessa fyrrverandi for- manns BSRB og undirtitilinn - Þeg- ar upp er staðið. Kristján Thorlacius var kjörinn formaður BSRB árið 1960 en einmitt þá var einnig Viðreisnarstjórnin að hefja sinn feril sem þó varð styttri en formennska Kristjáns í samtökum opinberra starfsmanna. Honum lauk ekki fyrr en haustið 1988. Það fer varla hjá því að tuttugu og átta ára formennska manns fyrir stórum samtökum launamanna marki spor í þjóðlífið og samtökin sjálf. Þau ummerki hljóta að vera meiri en svo að þeim verði gerð tæmandi skil í tæpra 190 blaðsíðna bókarkorni. Skrásetjari, sr. Baldur Kristjáns- son, tekur þann kostinn að stikla á stóru og skiptir textanum upp í tvennt. Annarsvegar ritar hann frá eigin brjósti eins konar fréttapistla eða -skýringar á aðdraganda þeirra atburða og atvika sem Kristján Thorlacius segir síðan frá og leggur sitt mat á atburði og menn sem við sögu komu. „Fréttaskýringar“ höf- undar eru prentaðar með skáletri til aðgreiningar frá frásögnum Krist- jáns sem afmarkaðar eru með þankastrikum og þessi þankastrik eru ekki spöruð. Þau afmarka sér- hverja málsgrein. Bókin hefst á stuttum inngangi þar sem ýmsir menn lýsa því hvernig maðurinn Kristján Thorlacius kem- ur þeim fyrir sjónir og ég hallast að því eftir að hafa lesið bókina, að Indriði G. Þorsteinsson hitti naglann á höfuðið en hann segir: „Kristján er einn af þessum mönn- um sem ekki finnst þjóðfélagið hafa leitað til hans sem sícyldi. Eg hef á tilfinningunni að hann hafi verið tilbúinn en ekki kallaður til þeirra starfa sem honum fannst hann eiga að gegna. Verkalýðshugsjónin er ekki gömul í honum. Hitt er annað mál að maður sem hefur sterkar pólitískar hneigðir þykist eiga ýms- um grátt að 'gjalda þegar hann fær ekki sitt fram....“ Það er ekki laust við að einmitt það síðasta sem Indriði nefnir hér að ofan komi fram strax í upphafskafl- anum þar sem Kristján greinir frá því að það hefði verið hans vilji að kona hefði orðið eftirmaður sinn. Á þinginu beið Kristján með það til síðustu stundar að kveða upp úr með að hann gæfi ekki kost á sér til formannskjörs. Þegar hann loks kvað upp úr með það lýsti hann yfir eindregnum stuðningi við framboð Guðrúnar Árnadóttur. Þegar úrslit urðu kunn var Kristján ekki að liggja á því að úrslitin, kjör Ög- mundar Jónassonar, voru honum ekki að skapi. í bókinni er margvíslegur fróð- leikur um störf og starfshætti BSRB og breytingar sem orðið hafa á samtökunum, baráttuaðferðum og fleiru og ljóst er að starf formanns hefur verið frámunalega erilsamt á köflum. Kristján greinir frá ýmsum mönnum sem við sögu hafa komið, bæði samherjum og andstæðingum, og ber mönnum mis vel söguna eins og gengur. Um einkahagi sína er hann afar fáorður, segir raunar ekkert sjálfur um þá. Þó má af því sem hann segir um sjálfan sig og sína hagi og auðvitað um félagsmálastörf sín ráða, að hann sé all margbrotinn og snúi mörgum andlitum að umheim- inum eftir því sem henta þykir. Þeim sem manninum lýsa í inngangi bókar ber þó saman um að Kristján sé afar umgengnisgóður og skemmtilegur maður í viðkynningu, heiðarlegur prinsippmaður, mikill og góður fjöl- skyldufaðir og ekki er að efa að það sé allt saman rétt, hvernig gæti maðurinn annars hafa siglt jafn lengi úfinn sjó formennsku stórra laun- þegasamtaka án þess að hafa sterkan bakhjarl í eigin persónugerð og fjölskyldu? Bókin er mjög fróðleg því að í henni segir frá tilurð samtakanna, vexti og viðgangi. Baráttan fyrir verkfallsréttinum er rakin og skýrt er frá sjónarhóli Kristjáns frá verk- föllunum 1977 og 1984. Búast má við að bókin verði þegar fram líða stundir heppilegt uppsláttarrit fyrir þá sem fjalla um sögu BSRB og þá sem eiga eftir að standa í fremstu víglínu Iaunabaráttunnar. Stefán Ásgrímsson Inga Huld Hákonardóttir Ég og lífið Útg. Vaka-Helgafell 1989 153 bls. Velkist ekki í vafa, bók þessi fjallar um persónu Guðrúnar Ás- mundsdóttur leikkonu, ekki pers- ónuleika eins og ævisögur aftur á móti gera. Hin geðþekka, bjartleita kona með dillandi undirhljóma í röddinni, sem svo margir þekkja af góðu á leiksviði og við önnur tæki- færi, lítur í sjónhending yfir liðna ævi sína og færir minningamar í lífsstíl hinnar fullþroskuðu konu, fullkomlega einráð um hverju hún stillir upp á sviðinu, hvað þar gerist, hvenær tjaldið fellur. Útlit bókarinn- ar er í samræmi við þessa viðleitni, gífuryrðin á baksíðu, sem einfald- lega merkja að bókin innihaldi allt og sé fullkomin, gljámyndin á káp- unni, band og pappír minna til samans á gæludýr (púðelhund?), fyrirkomulag textans á síðunum, 153 ef allt er talið, er hið sama og þrautunnins bókmenntatexta. Velk- ist ekki í vafa, svo er alls ekki, bók þessi á, þrátt fyrir það sem nú hefur verið sagt, hvergi fremur heima en í flokki með ástarsögum Ib Cavling og Barböru Cartland. Hún inniheld- ur óskamynd, dagdraumaheim, hún er stíluð upp á þá þörf hinna mörgu aðdáenda leikkonunnar að eiga hana að í þessum skilningi. Og með ágætum árangri. Guðrún, einráð um hvað í bókina fer, tæpir í fáeinum línum á þátta- skilum ævi sinnar og hinum hrjúfari skeiðum lífsferilsins en gerist því langorðari sem lognværðin er meiri. Merkileg hljóta flækingsár hennar að hafa verið fram til níu ára aldurs, hún missti móður sína þriggja ára og flæktist um milli fósturforeldra uns faðir hennar hafði tök á að taka hana og bróður hennar til sín að nýju eftir áfallið. Af því segir fátt. Enn færra þó af þeirri miklu tilfinningareynslu að hafa tekið barn í fóstur sjálf og verða svo að láta það frá sér vegna sambúðarörðugleika við barnið. Trú, einhvers konar, breiðir líknar- hjúp yfir Guðrúnu þegar í þvílíka harðbakka slær og til þess notalega sambands Guðrúnar og Guðs er varið löngu máli, nema í engu getið hvernig til slíkra stórmæla stofnað- ist. Þessi einkenni eru auðvitað ekki til þess fallin að kasta rýrð á persónu Guðrúnar, vinnubrögðin eru gljá- tímaritsins og henni heimilt að tæpa á því sem ekki samræmist þeirri viðleitni að gera hana sem aðgengi- legasta aðdáendum. Hins vegar stæðu stálin á „ævisöguritaranum“ ef yfirleitt nokkur nennti að vera að jagast út í þessa bók. Öllu nær en gera það er ástæða til að draga aðfinnsluefnin saman í eitt og spyrja: Getur bók verið útlitið eitt? Og þá jafnvel þótt ekkert standi á síðun- um? Er þá ekki nær að tala um prentgrip? Bók þeirra Ingu Huldar og Guð- rúnar er hinn ágætasti prentgripur. Guðrún er jafnágæt eftir sem áður, þátt fyrir þá kaupmennsku sem þessi gripur ber vott um, hlutur Ingu Huldar Hákonardóttur er öllu lak- ari. Það er afleitt og í ósamræmi við verkefnið að þjóna svo duttlungum sínum sem hún gerir við skrifin, t.d. gefur þessi stundarflótti hennar frá veruleikanum í áhrifataumi leikkon- unnar ekkert tilefni til að fjalla um hundaskít og eigið þvaglát; blaður um segulbandstæki er jafnó- skemmtileg lesning, það væri ósk- andi að Ingu Huld takist að hætta að reykja en er þessi ásetningur hennar bókarefni? Ög svo fáránlega hall- ærisleg lýsing sem Guðrúnar á fram- hjáhaldi manns síns og viðbrögðum sínum við því hlýtur að skrifast á reikning skrásetjara; þessi vitleysa er ekki á bók setjandi. Bók þessi er í vissum skilningi hvílandi, samvistir við jafnágæta konu og Guðrúnu Ásmundsdóttur hljóta að vera það. En skemmtun sú sem af bókinni verður höfð er alger- lega bundin aukapersónum hennar, hinni stórskemmtilegu „Jóu minni“ og „Göggu Lund“. Kaflinn um séra Auði Eir er fróðlegur. Kaflinn um leikrit Guðrúnar um Kaj Munk er óþarfur. Þar hefði í staðinn mátt fjalla obbolítið um hvernig Guðrún upplifir að vera leikari - svo ég láti nú óskina ráða. Og önnur raunhæfari ósk: Hér með er lýst eftir útgefanda sem eitthvað vill á sig leggja til að ævisaga Engel (Göggu) Lund verði skrásett, þeirrar merkiskonu. - Þar eru líka peningar. María Anna Þorsteinsdóttir Undursamleg forvitni Gísli, Eiríkur og Helgi Jóhanna Kristjónsdóttir Dulmál dódófuglsins Útg. Vaka-Helgafell 1989 Mörg undanfarin ár hefur mér þótt Jóhanna Kristjónsdóttir skrifa besta ferðapistla frá öðrum löndum í Morgunblaðið. Nú eru ferðalög og ferðasögur mér nokkur ástríða, svo bækur eins og Dulmál dódófuglsins eru kærkomið lesmál. Þar skrifar Jóhanna oft meira um það sem snertir hana persónulega en yfirleitt í blaðagreinum. Öll frásögnin ber með sér að hún er hugrökk og ákveðin við lausn verkefna sem henni eru falin, mætir meðbræðrum sínum í öllum löndum með opnum huga og vinsemd, nýtur fegurðar mannlífs og umhverfis í allri sinni fjölbreytni, en lætur einsemd og tómleika vissra stunda ekki buga sig. Hún segir í inngangskafla að það sé undursamleg forvitni sem reki sig áfram og aukist við hvert ferðalag. Að ferðast sem blaðamaður gefur líka önnur tækifæri til að kynnast mönnum og málefnum en skemmti- ferðir gera. Forvitni blaðamanns þykir sjálfsögð og flokkast ekki und- ir óviðeigandi hnýsni. í bókinni eru kaflar frá tíu löndum, flestum harla framandleg- um. Líklegt þykir mér að fáir Islend- ingar hafi skoðað górillur í skógum Jóhanna Kristjánsdóttir Rúanda, né gert svo víðreist í lönd- um araba sem Jóhanna. Svo virðist sem hún hafi gert sér sérstakt kerfi til að ná sambandi við fyrirfólk, sem er hvað erfiðast viðfangs fyrir blaða- menn, og er komin inn á gafl hjá ótrúlegasta fólki áður en varðliðið uggir að sér. Upp er brugðið augnabliksmynd- um sem áreiðanlega munu fylgja lesandanum lengi. Hún situr þreytt og döpur á bakka Kivuvatns þegar lítið og óhreint telpukríli leggur lófa á vanga hennar, situr þegjandi og heldur í hönd hennar og kyssir hana jafnhljóð á vangann að skilnaði. í írak er Jóhanna þegar styrjöld- inni við írani er lokið, en lögregla er iðin við eftirlit með henni og öðru aðkomufólki en hún lætur það ekki á sig fá. Hún er á ferð á eyjunni Máritíus, í Túnis, Portúgal, Ma- deira, Japan, Malawi, Kuwait og ísrael, auk Rúanda og Irak. Allir eru þættimir læsilegir og fræðandi um margt, en ekki síst um sögukon- una sem með hiklausri hlýju gengur til móts við fólk í öllum heimshom- um og uppsker lífsmyndir og hughrif, sem líka auðga okkur sem heima sitjum. Dódófuglinn á Márit- íus er aldauða en í sögn þarlendra sveif sá síðasti til lofts á rósrauðu skýi. Svona ferðabók er nokkurs konar rósrautt ský sem ber lesand- ann víða um heim. Bakkabræður Unnlð upp úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar Brian Pilkington myndskreytti Fáránleg heimskupör Bakka- bræðra hafa lengi verið mönnum skemmtiefni og orðtök úr sögunum af þeim fengið fastan sess í daglegu máli. Þjóðsagan er hér prentuð lítt breytt, en myndirnar em bráð- skemmtilegar. Kannski fetta þjóð- háttafræðingar út í að blöndukútur- inn sem karl faðir þeirra kallar á er leirbrúsi en ekki af ætt þeirra gömlu Púkablfstran og flelrl sögur af Sæmundi fróða Njörður P. Njarðvík endurseglr. Útg. Iðunn. Sagnasjóður íslenskra barna Gunnar Karlsson myndskreytir Þjóðsögurnar um Sæmund fróða eru færðar í nokkuð annan frásagn- arstíl en í Þjóðsögum Jóns Árnason- ar, en í engu er efninu breytt. Fyrir yngstu lesenduma eru sumar sögurn- ar kannski nokkuð hrollvekjandi, en svo er um æði mörg gömul ævintýri gyrtu trékúta sem við eldra fólk höfum alltaf séð fyrir okkur. Við Svarfdælingar höfum löngum verið kallaðir sveitungar Bakka- bræðra og hljótum því að telja Reynisdranga illa staðsetta við þá sjávarsíðu sem þeir bræður sækja helst frá. Kannski bendir þessi smámunasemi til skyldleika við þá góðu bræður sem alltaf er j afngaman að hitta, ekki síst í svona fallegri útgáfu. Sigríður Thorlacius og þjóðsögur og kynslóðir þó komist heilar á geði frá lestri þeirra. Brátt verður það líka kímnin og ráðsnilld Sæmundar sem grípur hugann. Krakkar, sem lesa svona bók, kunna að laðast að þjóðsögunum og finna þá nær ótæmandi dægradvöl og auð- ugt tungutak sem festist ósjálfrátt í minni og gæti orðið fullt eins áhrifa- mikið og sérstakt málræktarátak. Ein mynd fylgir hverri sögu. Frá- gangur bókarinnar er ágætur. Sigríður Thorlacius SÆMUNDUR FRÓDI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.