Tíminn - 21.12.1989, Blaðsíða 2

Tíminn - 21.12.1989, Blaðsíða 2
* ' ruvi i • i i i * 2 Tíminn ’t'lVl'V fl t IVV< v«.-. « 1 •» 11 ■»-»•» m-. « « « «.» «».».«.«.«.».«. >- ». •■«.«. TO*W ... ..... ......... -----------------------------------------------------------------------------------------------------------Fimmtúdagur 21. desember 1989 Lánskjaravísitalan úrskurðuð lögleg Bæjarþing Reykjavíkur kvað í gær upp dóm þar sem staðfest er að breyting sú sem gerð var á lánskjaravísitölunni með reglugerð þann 23. janúar 1989 hafí verið réttmæt. Hér er um að ræða prófmál sem Árna Árnason framkvæmdastjóri höfðaði gegn Samvinnusjóði íslands hf. og til réttargæslu Jóni Sigurðssyni viðskiptaráðherra og Seðlabanka íslands. Ástæða þessarar málssóknar er breyting á lánskjaravísitölunni, sem varð með reglugerð útgefinni 23. janúar 1989. Málsóknin byggist á því að hinn 23. febrúar 1989 hafi Árni ritað Samvinnusjóði íslands hf. og krafið hann um mismun þann, sem myndaðist við það að Sam- vinnusjóðurinn lagði nýjan vísitölu- grundvöll til grundvallar útreikning- um skuldar sjóðsins við Árna í stað fyrri vísitölugrundvallar og Árni taldi sig eiga að fá greitt samkvæmt. Til upprifjunar skal þess getið ákveðið var með reglugerð að grund- völlur lánskjaravísitölu sem hafði verið samsettur af vísitölu fram- færslukostnaðar að 2/3 hlutum og vísitölu byggingarkostnaðar að 1/3 hluta, skyldi þannig breytt að frá 23. janúar yrði grundvöllur lánskjara- vísitölu samsettur að 1/3 hluta vísi- tölu framfærslukostnaðar, að 1/3 hluta af vísitölu byggingarkostnaðar og að 1/3 hluta af launavísitölu. Tekið var fram í reglugerðinni að Iánskjaravísitalan samkvæmt reglu- gerðinni komi að öllu leyti í stað lánskjaravísitölu samkvæmt fyrri grundvelli. Við þessa breytingu lækkaði láns- kjaravísitalan fyrir febrúar 1989 úr 2330 stigum í 2317 stig. í málaástæðum og lagarökum stefnanda, Árna, kerriur fram að stefnandi telji ekki heimilt sam- kvæmt lögum að tekin sé upp bein viðmiðun við launabreytingar, enda geti laun þróast á allt annan veg en almennt verðlag. Því sé hin nýja lánskjaravísitala ógild sem viðmiðun í útreikningi á skuld stefnda, Sam- vinnusjóðsins. Þá hafi auglýsing Seðlabankans og við setningu reglu- gerðarinnar ekki verið fullnægt laga- skilyrðum, að það sé skilyrði verð- tryggingar samkvæmt lögum að í grundvelli verðtryggingar sé miðað við opinbera skráða vísitölu eða vísitölur eins og þær séu reiknaðar út á hverjum tíma, og að launavísi- tala sú sem Hagstofa Fslands reiknar út samkvæmt lögum uppfylli ekki þessi skilyrði. Þá telur stefnandi að viðskiptaráðuneytið bresti laga- heimild til að taka sér fyrir hendur að breyta grundvelli vísitölunnar og að auglýsing Seðlabankans sem gefin hafi verið út standist því ekki heldur. Þá gerir stefnandi þá kröfu ef talið yrði að lögin heimiluðu beina við- miðun við við launabreytingar að hann eigi rétt á því að vísitölugrund- völlur sem í gildi var þegar stofnað var til skuldbindingarinnar sé notað- ur við útreikning skuldarinnar. Bæjarþing féllst ekki á þessar málaástæður stefnanda og segir í niðurlagsorðum dómsins að stefn- andi, Árni, verði að sæta þeirri breytingu sem varð á grundvelli lánskjaravísitölunnar. Stefndi, Sam- vinnusjóður Islands, var sýknaður af öllum kröfum. Málskostnaður var látinn niður falla. Dóminn kváðu upp Sigríður Ól- afsdóttir borgardómari, Eggert Ósk- arsson borgardómari og Allan Vagn Magnússon borgardómari. -ABÓ 18mánaða fangelsi 27 ára gamall maður var í gær dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir meiriháttar líkamsmeiðingu sem síðan leiddi til dauða annars manns. Atburðurinn átti sér stað á Flateyri 28. september 1986. Tildrögin voru þau að maður- inn, sem nú hefur verið dæmdur ætlaði að ræða við annan mann sem bjó á hæðinni fyrir ofan. Því lauk með að sá fyrrnefndi gekk í skrokk á hinum síðarnefnda, þannig að sá síðamefndi er á efri hæðinni bjó andaðist rúmum sól- arhring síðar, en komið var að honum látnum. Maðurinn var ákærður fyrir grófa líkamsárás. Að teknu tilliti til málsbóta var var hann dæmdur í 18 mánaða fangelsi. Málsbætur hans voru óvanalegir erfiðleikar sem hann og hans fjölskylda höfðu þurft að sæta vegna sam- býlismannsins, svo og sló sambýl- ismaðurinn hinn dæmda með flösku í höfuðið þegar hann hugð- ist hafa tal af honum. Þá var þetta fyrsta brot hins ákærða. Dóminn kvað upp Sigurður Hallur Stefánsson setudómari hjá bæjarfógetaembættinu í Hafnar- firði. -ABÓ Endurskoðuð þjóðhagsspásegiraðsamdrætti í þjóðabúskapnum linni á næsta ári: Hagvöxtur glæðist á ný í lok næsta árs Samkvæmt endurskoðaðri þjóð- ahagsspá kemur fram að til lengri tíma litið bendi allt til þess að samdráttarskeiðið í þjóöarbúskapn- um, sem hófst 1988, muni standa fram á næsta ár, en eftir það muni hagvöxtur glæðast á ný og verða 1 til 2% á ári á tímabilinu 1991 til 1994. Samkvæmt áætlunum og forsend- um Þjóðhagsstofnunar er gert ráð fyrir að landsframleiðsla og þjóðar- tekjur verði rúmlega 1% minni 1990 en á þessu ári. Gert er ráð fyrir að þjóðarútgjöld muni dragast heldur meira saman en þjóðartekjur, eða um 1 Vi% og stafar það einkum af samdrætti í einkaneyslu. í þessu felst að viðskiptahalli minnkar á milli áranna 1989 og 1990 og verður 2,2% af landsframleiðslu, saman- borið við 2,4% á þessu ári og 3,7% árið 1988. Ástæða þess að reiknað er með áframhaldandi samdrætti þjóðarbú- skaparins hér á landi, stafar einkum af nauðsyn þess að draga enn frekar úr fiskafla en gert hefur verið, eink- um þorskafla. Samdrátturinn 1990 verður þó minni en á þessu ári. Vegna minni afla er fyrirsjáanlegt að framleiðsla sjávarafurða muni minnka á næsta ári og er gert ráð fyrir að framleiðslan dragist saman um 3%. Ekki er tekin með í reikn- ingin sú óvissa sem ríkir vegna tregrar loðnuveiði á haustinu og ekki er reiknað með að loðnustofn- inn hafi orðið fyrir verulegum skakkaföllum. Önnur útflutnings- framleiðsla stendur ýmist í stað eða fer vaxandi, sem vegur að hluta upp minni sjávarafurðaframleiðslu. Ut- flutningsframleiðslan í heild minnk- ar því um 1% milli áranna. Um launaþróun segir að vegna áforma um hækkun beinna skatta er gert ráð fyrir að ráðstöfunartekjur hækki um 10%. Vegna heldur meiri verðhækkana á síðustu mánuðum en gert var ráð fyrir er nú áætlað að framfærsluvísitalan verði 16Vi% hærri á næsta ári en þessu. Sam- kvæmt þessum forsendum rýrnar kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 5Vi% frá 1989 til 1990. Búist er við að atvinnuleysi fari vaxandi og um 3000 manns verði atvinnulausir að jafnaði, eða tæp 2,5% af vinnuframboði. Mestuverði atvinnuleysið í janúar eða 4 til 5%, yfir sumarmánuðina er gert ráð fyrir 1 til 2% atvinnuleysi og nái lágmarki í september, en fari síðan vaxandi út árið, þannig að í Iok næsta árs svari atvinnuleysi til um 3% af vinnufram- boði. - ABÓ Að undanförnu hefur verið kalt á landinu eins og flestir landsmenn hafa vafalaust orðið varir við. Frost í Reykjavík hefur að jafnaði verið á bilinu 8-12 gráður. Innar í landinu hefur frosið orðið mun meira, t.d. var 20 gráðu frost á Hveravöllum klukka þrjú í gær og í gærmorgun mældist 24 gráðu frost í Möðrudal. í Vestmannaeyjum var hins vegar aðeins þriggja stiga frost klukkan þrjú í gær. Horfur eru á að veðrið verði svipað næstu daga. Hugsanlegt er að eitthvað snjói vestanlands í dag eða nótt, en mestar líkur eru þó á rauðum jólum sunnanlands og vestan. Norðlendingar hafa þegar fengið jólasnjóinn eins og kunnugt er. Þessi mynd var tekin við Sundahöfn í Reykjavík í gær og eins og sjá má hefur sjór frosið næst ströndinni. -EÓ/Tímamynd Ámi Bjarna Loðnu landað úr Fífli GK á Siglufirði fyrir skömmu. Mynd ö.þ. Síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði: Loðnuafli varla svipur hjá sjón Aðeins höfðu borist 17 þúsund tonn af loðnu til Síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði það sem af er þessari vertíð. Á sama tíma í fyrra höfðu komið 50 þús. tonn til verk- smiðjunnar á Siglufirði. Þórhallur Jónasson framkvæmdastjóri SR á Siglufirði sagði í samtali við blaðið að þessi aflabrestur hefði valdið miklum vonbrigðum. Ekki hefði náðst samfelld bræðsla nema í mesta lagi 4-5 sólarhringa í einu þar sem aldrei hefði komið nein hrota í veiðarnar. Þórhallur sagði að loðnu- vertíðin hefði verið að færast aftar á haustið undanfarin ár hinsvegar hefði fyrri hlutinn aldrei brugðist eins hrapalega og nú Því væri svo komið að menn lifðu aðeins í þeirri von að síðari hluti vertíðarinnar yrði góður. Þetta loðnuleysi hefur komið illa við atvinnulífið á Siglufirði sem hefur verið með daufara móti undan- farnar vikur. Helstu ástæður þess eru þær að rækjuvinnsla liggur alger- lega niðri meðan óvissa ríkir um framtíð Siglóverksmiðjunnar en ein- nig hefur verið mun minni vinna hjá S R en á sama tíma undanfarin ár. -Ö.Þ. Fernt flutt á siúkrahús Fernt var flutt á sjúkrahús eftir að eldur kom upp í íbúð við Suðurhóla 30, um klukkan fimm í gærmorgun. Kona og barn voru flutt á Landspít- alann með brunasár, en tveir aðrir úr íbúinni voru fluttir á slysadeild með reykeitrun. Þegar slökkviliðið kom á staðinn skömmu eftir fimm, voru íbúar búnir að forða sér úr íbúðinni. Talsverður eldur logaði í einu svefnherbergj- anna, en mikill reykur var í íbúinni. Fljótt gekk að ráða niðurlögum eldsins, en íbúðin er mikið skemmd sökum elds og reyks. Talið er að kviknað hafi í út frá kertaskreytingu. Enginn reykskynjari var í íbúð- inni, en telja má víst að betur hefði farið en raun bar vitni, ef slíkt tæki hefði verið til staðar. -ABÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.