Tíminn - 21.12.1989, Blaðsíða 20

Tíminn - 21.12.1989, Blaðsíða 20
680001 RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hotnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 PÓSTFAX TÍMANS 687691 DAGAR TIL JOLA Tíminn FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1989 Þinghaldi mun Ijúka á morgun Borgarstjórinn í Reykjavík og fulltrúar Samtaka sveitar- félaga féllust í gær á málamiðlunartillögu Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra, varðandi málefni Borg- arspítalans og kostnaðarhlutdeild ríkis og sveitarfélaga vegna tannlækninga. Nú er því Ijóst að takast mun að Ijúka nauösynlegustu þingmálum fyrir jói og Alþingi kemur aftur saman 22. janúar eins og gert er ráð fyrir í starfsáætlun. Þó er óleyst deila forseta sameinaðs þings og þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Steingrímur sagðist í samtali við Tímann í gær vera ánægður með að samkomulag hefði náðst og þingmenn gætu lokið störfum á föstudag eins og áætlað var. Mála- miðlun forsætisráðherra fólst í því að ríkissjóður mun á næsta ári greiða allan kostnað af rekstri Borgarspítalans og mun frumvarp um breytingu á heilbrigðisþjónustu liggja í salti þar til þing kemur aftur saman á nýju ári. Steingrímursegir þó að grundvallar afstaða ríkisins um að saman skuli fara rekstrarleg og fjárhagsleg ábyrgð sé óbreytt, en tími gefist nú til viðræðna á milli ríkisins og Reykjavíkurborgar um framtíðarskipan málefna spítalans. Jafnframt verður gengið til við- • ræðna um ýmsar sjúkrastofnanir sem ríkið mun yfirtaka á næsta ári, vegna kostnaðar sem borgin hefur til þeirra. Sveitarfélögin munu samkvæmt samningnum greiða um þriðjung af kostnaði við tannlaíkhingar og tannréttingar, en ríkið tvo þriðju. Það samsvarar því að þau greiði um 250 milljónir á næsta ári, af þeim tæplega 700 milljónum sem gert er ráð fyrir að renni til þessa mála frá hinu opinbera á næsta ári. Áður höfðu verið uppi áform um að sveitarfélögin greiddu helming á móti ríkinu, eða 346 milljónir króna. Til mótvægis við þetta mun ríkið hækka framlag sitt á næsta ári, vegna uppgjörs þess við sveit- arfélögin úr 290 milljónum í 300 milljónir króna. Þar að auki mun ríkissjóður leggja fram 40 milljónir aukalega í jöfnunarsjóð sveitarfé- laga, sem renna munu til aðstoðar sveitarfélögum er eiga í fjárhags- örðugleikum. Stjórnarandstaðan á þingi er sátt við þessa afgreiðslu mála, en áður hafði verið samið um að nokkrum af frumvörpum ríkisstjórnarinnar yrði frestað fram yfir jólahlé, s.s. frumvarpi um umhverfisráðuneyti, frumvarpi um bifreiðagjald og frumvarpi um skatt á hagnað orku- fyrirtækja. Sömuleiðis mun stjórn- arandstaðan fá eitthvað af sínum málum samþykkt nú á þeim tveim- ur dögum sem eftir lifa af haust- þingi. Enn er þó eitt mál óleyst á þingi og það er deila forseta sameinaðs þings og þingflokks Sjálfstæðis- Borgarstjórinn í Reykjavík og sveitarstjórnarmenn féllust á málamiðlun Steingríms í gær. flokksins. Sjálfstæðismenn hafa krafist þess að Guðrún Helgadóttir forseti, biðjist afsökunar á ummæl- um er hún lét falla í þeirra garð á þingi og í fjölmiðlum á mánudags- kvöld. Ekki lítur út fyrir að neitt samkomulag sé í sjónmáli milli forsetans og sjálfstæðismanna, en aðspurður um málið sagðist Stein- grímur Hermannsson forsætisráð- herra telja farsælast að deiluaðilar létu málið niður falla. -ÁG Borgarstjórinn og forsvarsmenn sveitarfélaga féllust á málamiðlun Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra og þar með er vinnufriður á Alþingi: ii 1 .. w\ II j 'É '' | | | j Borgarspítali: Tímamynd: Ámi Bjama Mótmæli starfsmanna Starfsmenn Borgarspítalans héldu fjölmennan fund í gær þar sem breytingum á heilbrigðislögum sem fela í sér aukin völd ríkisins í stjórn spítalans var mótmælt. Fundurinn samþykkti samhljóða ályktun þar sem lýst er eindreginni andstöðu við þau miðstýringar- áform sem starfsmennirnir telja að felist í frumvarpinu. Þar segir einn- ig að engin fjárhagsleg rök séu fyrir því að ríkið taki yfir spítalann og starfsmennirnir standi einhuga að baki borgarstjórn í þessu máli. Þá er í ályktuninni einnig vakin athygli á þeirri óvissu sem ríki um kaup og kjör starfsmanna verði þeir gerðir að ríkisstarfsmönnum. SSH Jón Gröndal, bæjarfulltrúi í Grindavík, yfirheyrður vegna ummæla um HG í Tímanum: Útiloka ekki frekari afskipti lögreglunnar Rannsóknarlögregla í Keflavík tók skýrslu af Jóni Gröndal, bæjar- fulltrúa í Grindavík, nýverið, m.a. vegna ummæla hans í Tímanum vegna gjaldþrots Hraðfrystihúss Grindavíkur. Þar setti bæjarfulltrú- inn fram spurningar varðandi gjald- þrotið og sagði skítalykt af málinu. Skýrslan sem tekin var af Jóni Gröndal hefur verið send skiptaráð- anda, Þorsteini Péturssyni. Ekki hef- ur verið farið fram á frekari afskipti lögreglu af málefnum Hraðfrysti- hússins, en Þorsteinn sagði í samtali við Tímann í gær að hann vildi ekki útiloka að óskað yrði eftir frekari rannsókn hjá lögreglu. Ákvörðun um slíkt bíður fram yfir áramót, en að sögn skiptaráðanda er málið mjög yfirgripsmikið, m.a. vegna þess hve illa uppfært bókhald fyrirtækisins reyndist. Þá sagði Þorsteinn að fram- hald málsins myndi ráðast af fram- burði fyrrum stjórnarmanna og ann- arra þeirra sem kallaðir yrðu fyrir. Vilhjálmur Þórhallsson er bústjóri HG og sagði Þorsteinn þá sjá fram á mikla vinnu. Loks var skiptaráðandi spurður út í ummæli Jóns Gröndals, hvort skítalykt væri af málinu. Þor- steinn vildi ekki svara þeirri spurn- ingu en vísað á bæjarfulltrúann í þeim efnum. -ES Þingflokkur Sjálfstæðismanna enn móðgaður yfir yfirlýsingum Guðrúnar Helgadóttur: Heimta afsökunarbeiðni Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa krafið Guðrúnu Helgadóttur, forseta sameinaðs Alþingis, um afsökunarbeiðni, vegna ummæla er hún lét falla í þeirra garð í fjölmiðlum í gær. Þessu hefur Guðrún neitað alfarið. Næsti fund- ur í sameinuðu þingi verður í dag og samkvæmt heimildum Tímans mun Guðrún ekki biðjast afsökun- ar á fundinum. Það sem sjálfstæðismenn eru óhressir með er sú yfirlýsing forset- ans að Davíð Oddsson, borgar- stjóri í Reykjavík og varaformaður flokksins, stjórnaði þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Sér í lagi fer fyrir brjóstið á sjálfstæðismönnum að Guðrún vitnaði í þessu sam- bandi til orða er fóru á milli hennar og þingmanna á lokuðum fundi forseta þingsins og formanna þing- flokka s.l. mánudag. -ÁG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.