Tíminn - 21.12.1989, Side 4

Tíminn - 21.12.1989, Side 4
4 Tíminn Fimmtudagur 21. desember 1989 FRÉTTAYFIRLIT WASHINGTON - James Baker utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði að George Bush forseti hefði ákveoið að gera innrásina í Panama eftir að honum bárust fréttir af áformum Noriegas um að ráðast á Bandaríkjamenn í Panama. Forsetinn hafði ákveðið síðastliðinn sunnudag að gera innrás eftir að Pan- amaþing sagði Bandaríkja- mönnum strío á hendur, en ákveðið að láta til skarar skríða áður en ráðist yrði á Banda- ríkjamenn. PRAG - Tékkneski komm- únistaflokkurinn hóf neyðar- ráðstefnu til að reyna að koma flokknum á réttan kjöl svo hann eigi möguleika í frjálsum kosn- ingum sem fram fara eftir sex mánuði. Svo virðist vera að Karel Urbanek formaöur flokksins sé að missa stöðu sína sem slíkur. LONDON - Bretar munu gefa allt að 50 þúsund íbúum Hong Kong fullan breskan ríkisborgararétt þeaar Kínverj- ar taka við yfirstjorn nýlend- unnar. VILNA - Kommúnistaflokk- urinn í Litháen hefur ákveðið að segja skilið við sovéska kommunistaflokkinn og starfa sjálfstætt. Þetta varákveðið með miklum meirihluta at- kvæða. Þetta er fyrsti opinberi klofningurinn í sovéska komm- únistaflokknum frá því í bylt- ingunni 1917. RAMALLAH - Israelskur réttur dæmdi þrjá Palestínu- menn sem komið höfðu fyrir sprengju er varð konu, þremur börnum hennar og hermanni að bana, í ævilangt fangelsi. Dauðadóms hafði verið krafist yfir þremenningunum. SUEZ - Risaolíuflutninga- skip sem strandaði í Súez- skurðinum og stöðvaði alla umferð um hann náðist á flot og gat umferð um skurðinn því hafist á ný. IIIIIIHIIII ÚTLÖND ailllllllllM ........................... Bandarískir hermenn í Panama. Bandaríkjamenn gerðu innrás í Panama í fyrrínótt og hröktu Noriega hershöfðingja frá völdum. Hann komst undan og er í felum. BANDARÍKIN GERA INNRÁSí PANAMA Bandarískt herlið réðst inn í Panama í gærmorgun og gerði atlögu að höfuðstöðvum Manuels Noriega hershöfðingja sem taka átti höndum. Noriega smaug úr höndum Bandaríkja- manna og er í felum einhvers staðar í Panama. Rúmlega fimmtíu manns höfðu fallið á átökunum seinni partinn í gær og var enn barist. Hafa panamískir hermenn hliðhollir Noriega tekið rúmleg sextíu gísla. Svæðið í kringum höf- uðstöðvar Noriegas í Ijósum logum eftir árás Bandaríkja- manna. - Ég tók þessa ákvörðun eftir að hafa komið að þeirri niðurstöðu að allar leiðir til friðsamlegrar lausnar væru lokaðar og að líf hinna Banda- ríkjamanna væri í hættu, sagði George Bush Bandaríkjaforseti í sérstakri yfirlýsingu í kjölfar innrás- arinnar. í Panama eru um 35 þúsund Bandaríkjamenn, þar af um 12 þús- und hermenn sem þar eru til að verja Panamaskurðsins sem er Banda- ríkjamönnum mjög mikilvægur. Spenna hefur farið sívaxandi í Panama að undanförnu, en Banda- ríkjamenn hafa reynt að koma Nor- iega frá völdum undanfarin tvö ár frá því upp komst að hann tengdist eiturlyfjasmygli til Bandaríkjanna. Þing Panama lýsti yfir stríðsástandi á laugardaginn og gerði Noriega opinberlega æðsta mann landsins. í kjölfar þess var bandarískur her- maður skotinn til bana af panamísk- um hermanni við farartálma í miðbæ Panamaborgar og annar særður. Ný ríkisstjórn var mynduð í Panama rétt áður en innrásin var gerð. Guillermo Endara leiðtogi stjórnarandstöðunnar sem sigraði í forsetakosningunum í Panama í maímánuði sór embættiseið sinn í gær og myndaði ríkisstjórn stjórnar- andstæðinga. Líta Bandaríkjamenn á Endara réttkjörinn forseta, en Noriega og fylgismenn hans lýstu úrslit kosninganna í sumar ómerk og hafa stjórnað Panama í skjóli her- valds Noriegas. Helsta útvarpsstöð Panama var enn í höndum stuðningsmanna Nor- iegas, en Bandaríkjamenn segjast hafa náð öllum lykilstöðum í Panama á sitt vald. Liðsstyrkur Bandaríkjamanna við Panamaskurðinn er mikill. Níuþús- und og fimmhundruð hermenn voru sendir til Panama í fyrrinótt og bættust við þá tólfþúsund sem fyrir voru. Aftur á móti hefur Noriega yfir um það bil fimmþúsund manna liði að ráða. Sovétríkin hafa fordæmt innrás Bandaríkjamanna í Panama og hvatt þá til að draga herlið sitt til baka. Þá hefur ríkisstjórn Níkaragva farið fram á það við Öryggisráð Samein- uðu þjóðanna að neyðarfundur verði haldinn vegna innrásarinnar. Ljóst er að óbreyttir borgarar hafa fallið í átökunum. George Bush Bandaríkjaforseti skýrði frá því í ávarpi sínu að „saklausir borgarar“ hafi fallið. Samkvæmt fréttum af bardögunum, sem reyndar eru ekki mjög nákvæmar, þá gerðu Banda- ríkjamenn stórskotaliðsárás á höf- uðstöðvar Noriegas, en einnig á svæði þar í kring. Herma óstaðfestar fréttir að margir óbreyttir borgarar hafi fallið eða særst í þeim árásum. Þýskaland: Njósnurum sleppt Austur-Þjóðverjar hyggjast veita tuttugu og fjórum vestur-þýskum njósnurum frelsi fyrir jólin í skiptum fyrir fjóra austur-þýska njósnara sem sitja í fangelsi í Vestur-Þýska- landi. Frá þessu var gengið á fundi Helmuts Kohls kanslara Vestur- Þýskalands og Hans Modrow for- sætisráðherra Austur-Þýskalands í Dresden í Austur-Þýskalandi í fyrra- dag. Richard von Weizsaecker forseti Vestur-Þýskalands hefur þegar náð- að tvo- njósnara, þau Margret Hoecke og Elke Ealk sem tengdust víðtæku njósnamáli innan vestur- þýska stjórnarráðsins. 50 þúsund Rúmenar mótmæla morðunum Morðin í Timisoara enn hryllilegri en fyrstu fréttir gáfu í skyn Fimmtíu þúsund manns söfnuðust saman í bænum Timisoara í gær og mótmæltu morðum öryggislögreglu Ceausescus á andófsmönnum þar um helgina, en allt virðist benda til þess að tæplega fjögurþúsund manns hafi verið drepnir. Mannfjöldinn hrópaði slagorð gegn harðlínustjórn kommúnista og kröfðust lýðræðis. Hermenn rúmensku stjórnarinnar stóðu aðgerðarlausir hjá að þessu sinni. Ceausescu forseti kom í gær úr þriggja daga heimsókn sinni til íran og kom hann fram í sjónvarpsviðtali skömmu eftir komuna heim. Þar sakaði hann erlenda heimsvalda- sinna um að hafa kynt undir mót- mælaaðgerðirnar í Timisoara með það að markmiði að valda upplausn í Rúmeníu og brjóta niður þjóð- skipulagið þar. Hin opinbera fréttastofa Austur- Þýskalands skýrði frá því í fréttatíma sínum að tæplega fjögurþúsund manns hefðu verið drepnir af örygg- islögreglunni um helgina og að flestir hefðu verið grafnir í fjöldagröfum. Þá fuilyrti fréttastofan að her og lögregla hafi barið andóf af mikilli hörku í tíu borgum og bæjum í Rúmeníu. Þá mun algert hernaðarástand ríkja í Rúmeníu nú og virðist Ceaus- escu ekki ætla að sýna nokkra miskunn. Öryggislögreglan myrti jafnt konur, börn og gamalmenni í Timisoara um helgina og voru and- ófsmenn eltir uppi hvar sem var í landinu. Margir þeirra voru skotnir á staðnum þegar þeir náðust og sömu urðu örlög hermanna sem neituðu að drepa landa sína. w Ungverjaland: Olga vegna fjárlaga Mikios Nemeth forsætisráðherra Ungverjalands hefur sagt sig úr stjórnarnefnd Sósíalistaflokksins eftir að honum mistókst að fá fylgi við hluta fjárlaga. Nemeth vildi hækka leigu á húsnæði um allt að 75% og að skattleggja íbúðalán. Það gat stjórnarnefnd flokksins ekki sætt sig við svo Nemeth sagði sig úr henni. Hann mun þó áfram verða meðlimur Sósíalistaflokksins sem stofnaður var úr rústum kommúnistaflokksins. Atriði er snertu húsnæðislán hafa verið helsta umræðuefnið í ungverska þinginu að undanförnu og hafa tillögur Nemeths mætt þar mikilli andstöðu. Tillögur Nemeths eru forsenda þess að Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn láni Ungverjum einn milljarð Bandaríkjadala. Hefur Nemeth hótað að segja af sér embætti forsætisráðherra ef frumvarp hans verður ekki samþykkt. Það gerir ráð fyrir því að fjárlagahallinn minnki úr 49 milljarða flórinta í 10 milljarða flórinta.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.