Tíminn - 09.01.1990, Side 15
Þriðjudagur 9. janúar 1990
'' Tíminri 15
Iþróttir ;iiMillHHHIlll'l'H1' ,.;iJillllllllHIH'r!': ■.i:Milllllllllllllll!llIj :il|illlllllllllllll|l|i|ll'l!'i■ .:iiiliiiilJilillllllllil'm1 .IfIÍIIIÍIIIIIIIIIIiI'I'I"' ■ ilillllllllllllllllimT!' ililllllllllllllll!ll1: ;ijilllllllllllllllllllllÞI! ' ';iililllllll
Kristján Arason skorar eitt marka sinna gegn Tékkum í Laugardalshöllinni um helgina
Tímamynd Pjetur.
Handknattleikur -
Ísland-Tékkóslóvakía:
Tólf mörk
Júlíusar
í tapleiknum
Eftir stórsigur íslendinga á Tékk-
um á föstudagskvöld áttu margir von
á að ekki gengi eins vel í næsta leik.
Það gekk eftir, íslenska liðið náði
aldrei tökum á leiknum og Tékkar
fóru með sigur af hólmi 20-22.
Tékkar höfðu jafnan frumkvæðið
í leiknum, léku af yfirvegun og
ákveðni. í leikhléinu var staðan
10-11 gestunum í vil. Bilið breikkaði
í síðari hálfleik en undir lokin náði
fslendingar að minnka muninn í 1
mark 18-19. Tékkar létu þó ekki
sigurinn sér úr greipum ganga og
lokatölur voru 20-22.
Markahæstir Tékka voru Dara og
Sovadina með 6 mörk hvor.
Mörk íslands: Júlíus Jónasson 12/
8, Kristján Arason 2, Héðinn Gils-
son 2, Bjarki Sigurðsson 2, Alfreð
Gíslason 1 og Sigurður Gunnarsson
1 BL
Handknattleikur -
Kvennalandsliðið:
Jafntefli
og sigur
Ísland og Finnland mættust tví-
vegis í kvennaflokki í handknattleik
um helgina.
í fyrri leiknum tefldi ísland fram
A-liði sínu og sigraði 17-14. Þær
Inga Lára Þórisdóttir og Ragnheiður
Stephensen voru markahæstar með
4 mörk hvor.
B-landsliðinu var teflt fram í síðari
leiknum sem lauk með 14-14 jafn-
tefli, eftir að finnska liðið hafði haft
undirtökin lengst af. Halla Helga-
dóttir var markahæst í íslenska lið-
inu með 5 mörk. BL
í kvöld!
4 körfuleikir
í kvöld eru á dagskrá fjórir leikir
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik og
hefjast þeir allir kl. 20.00.
í Seljaskóla leika ÍR og Grinda-
vík, Valur og Keflavík mætast að
Hlíðarenda, Tindastóll og Haukar
leika á Sauðárkróki og Njarðvík og
KR í Njarðvík.
Leik Þórs og Njarðvíkinga sem
vera átti á sunnudag var frestað, en
reynt verður að setja leikinn á í
vikunni. BL
Handknattleikur - Island-Tékkóslóvakía:
Allt of köflótt
Guðmundur Hrafnkelsson mark-
vörður var hetja íslenska landsliðið
sem sigraði Tékka 21-18 í síðasta
leik liðanna ■ þessari heimsókn á
sunnudagskvöldið. Guðmundur
kom 6 sinnum inná til þess að freista
þess að verja vítaköst, 4 sinnum
varði hann, einu sinni skutu Tékkar
í þverslá og aðeins einu sinni tókst
þeim að koma knettinum í markið
framhjá Guðmundi.
Leikurinn á sunnudagskvöld var
jafn framan af allt þar til staðan var
4-4 að íslendingar tóku frumkvæðið.
Guðmundur gaf tóninn með því að
verja 3 vítaköst í hálfleiknum og
góður leikkafli í lok hálfleiksins þar
sem íslendingar gerðu 5 mörk í röð,
gaf þeim 12-6 stöðu í leikhléinu.
{ síðari hálfleik náðu íslendingar
tvívegis 7 marka forystu 14-7 og
17-10, en þá urðu kaflaskipti í leikn-
um og Tékkar náðu að minnka
muninn í 2 mörk 18-16. Þá gerði
íslendingar 3 mörk í röð 21-16, en
Tékkar skoruðu tvö síðustu mörkin
og löguðu stöðuna í 21-18.
Leikur íslenska liðsins var allt of
köflóttur að þessu sinni, eins og
reyndar oft áður. Liðið fékk á sig
mörg mörk úr hraðaupphlaupum
eftir að hafa misst boltann og eins
áttu Tékkar greiða leið innúr vinstra
horninu. Sem fyrr vantar stöðug-
leika í liðið, nokkuð sem er áhyggju-
efni fyrir Bogdan, en nú eru aðeins
7 vikur áður en heimsmeistara-
keppnin í Tékkóslóvakíu hefst.
Júlíus Jónasson hefur vaxið mjög
sem leikmaður og stóð hann sig vel
í leiknum ásamt Kristjáni Arasyni.
Þætti Guðmundar í markinu er áður
lýst. Einar Þorvarðarson varði einn-
ig vel og er áðum að nálgast sitt
gamla góða form.
Dara og Sovadina voru atkvæða-
mestur Tékka með 4 mörk hvor.
Mörk íslenska liðsins: Júlíus Jón-
asson 7/4, Kristján Arason 6/2, Al-
freð Gíslason 3, Sigurður Gunnars-
son 2, Bjarki Sigurðsson 2 og Geir
Sveinsson 1. BL
PÓSTFAX TÍMANS
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 1 2.351.342
2.4SIO 1 408.866
3. 4af 5 85 8.297
4. 3af5 3.452 476
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002