Tíminn - 10.01.1990, Síða 3
, ^ MiöyjKudagur 10. janúar 1990
Tímlnn-' 3
Ofsaveöur gekk yfir Grindavík, Sandgeröi og Vestmannaeyjar:
Tugmilljónatjón í
náttúruhamförum
Kvíabryggja er öll í bylgjum eftir fárviðrið í fyrrinótt. Tímamynd Pjctur.
Ljóst er að tugmilljóna
tjón hefur orðið í því fárviðri
sem gekk yfir landið sunnan-
vert síðasta sólarhring og er
mesta mildi að enginn skyldi
slasast. Tímanum er kunnugt
um þrjá menn sem féllu í
sjóinn, tveir í höfninni í
Sandgerði og einn í Grinda-
vík, en þeim var bjargað eða
náðu Iandi af eigin rammleik.
Sigöidu- og Hrauneyjafoss-
virkjanir duttu út klukkan
hálf ellefu í gærmorgun,
vegna seltu og ísingar, en
díselrafstöðvar voru keyrðar
þar sem þær voru fyrir hendi.
Raforka til Áburðarverk-
smiðju ríkisins, ísal í
Straumsvík og Járnblend-
isverksmiðjunnar á Grundar-
tanga, var af skornum
skammti og voru verksmiðj-
urnar að hluta til rafmagns-
lausar eða með lágmarks
rafmagn. Síðdegis í gær var
viðgerðum lokið í virkjunum
og var þá orku þeirra hleypt
inn á veitukerfið.
Tveim mönnum
bjargað úr höfninni
Á Suðurnesjum varð Sandgerði
einna verst úti í fárviðrinu, en það
var um miðnætti sem verulega fór að
hvessa af suðvestri og fór varla að
lygna fyrr en undir hádegi í gær.
Stórtjón varð í bruna á staðnum,
þegar kviknaði í járngrindarhúsi,
þar sem tvær fisverkanir eru til húsa,
auk þriggja beitingaskúra.
Sjór gekk langt upp á land í
Sandgerði og var þari og spýtnabrak
á víð og dreif niður við höfnina.
Undir morguninn fór rafmagnið af
bænum í um 20 mínútur. Sigurður
Bjarnason hafnarstjóri sagði í sam-
tali við Tímann að ekki hafi orðið,
svo hann vissi neinir skaðar á bátum
sem voru í höfn, en tæplega lOtonna
plastbátur sem var upp á landi fór af
stað í veðurofsanum og skemmdist.
„Við tókum á það ráð í gærdag að
hringja til allra báteigenda í höfninni
og aðvara þá. Þeir voru jafnframt
beðnir um að vera um borð í bátun-
um á meðan versta veðrið gekk
yfir,“ sagði Sigurður. Hafnarmann-
virki sluppu tiltölulega vel í briminu,
en malbik og steypa á bryggjunni
skemmdist eitthvað. Þó sagði Sig-
urður að sér sýndist sem eitthvað
hafi skolast úr brimvarnargarði
sunnan við höfnina.
Tveir skipverjar á Arney fóru í
sjóinn í höfninni um nóttina þegar
þeir voru að binda bátinn, en hann
hafði losnað. Kom þá mikil skefla
yfir bryggjuna og skellti þeim út-
byrðis. Þeim var bjargað um borð í
nærstadda báta, þá Guðfinn og Þor-
stein. „Það var slembilukka að ekki
fór verr,“ sagði Sigurður.
Bryggjan eins og
harmonikkubelgur
í Grindavík gekk einnig mikið á í
veðurofsanum í fyrrinótt og er ein
bryggjan, Kvíabryggja líklega ónýt.
Sverrir Auðbergsson vigtarmaður á
hafnarvigtinni í Grindvík sagði í
samtali við Tímann að um klukkan
tvö hafi veðurofsinn verið búinn að
ná hámarki og stóð svo fram undir
morgun. „Kvíabryggja er að öllum
líkindum ónýt. Hún hangir enn, en
er slitin frá landveggnum að mestu
leyti og öll gengin upp, nánast eins
og harmonikkubelgur," sagði
Sverrir.
Skörð mynduðust í varnargarða á
stöku stað. í gær var þegar hafist
handa við að ýta upp að þeim, svo
að eitthvert gagn mætti hafa af þeim.
Þá urðu einnig nokkrar skemmdir á
Eyjabakkanum. Sem kunnugt er
brotnaði bryggja sem kallast Svíra-
garður í Grindavíkurhöfn í haust.
Starfsmenn Vita og hafnarmálaskrif-
stofu komu til Grindavíkur í gær til
að skoða og meta skemmdir á hafn-
armannvirkjum.
Sjór hreif með sér mann sem var
á gangi á bryggjunni í Grindavík og
lenti hann í höfninni. Maðurinn náði
taki á drumbi og komst síðan upp á
fleka, sem rak með hann að garði
hinum megin. Hann komst af eigin
rammleik á land og gekk áleiðis
heim, eða þar til vart varð við ferðir
hans.
Sjór gekk nokkuð á land, einkan-
lega austantil í höfninni. Þarvarnýtt
timbur sem ætlað var til smíði nýrrar
bryggju og var það dreift um svæðið
eins og hráviði. Eitthvað mun hafa
verið um að þakplötur losnuðu, en
þó ekki mikið. Þak fór af fjárhúsi og
hlið. Um 20 bátar voru í höfninni í
gær, enginn þeirra skemmdist, en
skemmdir urðu á bátum sem stóðu á
landi. Menn voru á stjái í kring um
bátana og um borð í þeim, til að vera
viðbúnir ef þeir losnuðu frá. Þá var
í gærdag unnið að því að ná upp
rörum sem notuð eru til að dæla
loðnu úr skipum, en þau fuku til og
höfnuðu sum í sjónum, á flestum
þeirra urðu skemmdir.
Engar skemmdir í Höfnum
„Það bjargaðist allt hér, þrátt fyrir
ofsaveður eins og víðast hvar, en
engar skemmdir urðu, sem betur
fer,“ sagði Þórarinn St. Sigurðsson
sveitarstjóri í Höfnum. Hann sagði
að smávegis fok hefði verið á rusli,
sem ekki væri orð á gerandi. Engir
bátar voru í höfninni.
Þakplötur fuku
og rúður brotnuðu
Um hádegisbil í gær var aðeins
farið að lygna í Vestmannaeyjum,
samkvæmt upplýsingum sem fengust
hjá lögreglu. Fárviðrið hafði þá
staðið allt frá því kvöldið áður, en
var sýnu verst skömmu fyrir mið-
nætti. Þakplötur og klæðningar voru
á víð og dreif um bæinn og rúður
brotnuðu. Þá skemmdust þrír bílar
við það að lausar plötur og annað
drasl fauk á þá, gámur tókst á loft og
fauk á krana sem skemmdist. Hjálp-
arsveitin var starfandi með lögregl-
unni alla nóttina við að eltast við
þakplötur. Þá var gífurlegt hafrót
um kvöldið og nóttina og einnig í
gærdag. Gengið var vel frá öllum
bátum og héldu þeir flestir landi,
meðan það mesta gekk yfir.
Hrauneyjarfoss og
Sigalda duttu út
Tvær virkjanir Landsvirkjunar,
Sigalda og Hrauneyjarfoss duttu út
klukkan hálf ellefu í gærmorgun.
Ástæðan var selta og ísing. Vinnu-
flokkar á stöðunum unnu við það í
gær að hreinsa tengivirkin að sögn
Birgis Guðmannssonar álagsstjóra í
stjórnstöð Landsvirkjunar. Raforka
til stóriðju var skert vegna þessa, og
díselaflstöðvar keyrðar. Raforka var
skert til Álversins, Járnblendiverk-
smiðjunnar og Áburðarverksmiðj-
unnar. Síðdegis hafði tekist að koma
virkjunum í gagnið aftur.
Hjá Rafmagnsveitum ríkisins á
Suðurlandi fengust þær upplýsingar
að rafmagn hafi farið af í Álftaveri í
V-Skaftafellsýslu, vegna seltu og
voru vinnuflokkar sendir til að gera
við. Þá urðu víða bilanir og
straumlaust hér og þar bæði í Árnes-
og Rangaárvallasýslum. -ABÓ
Suðurland:
Tvö hross drápust
eftir hrakningar
Tvö folöld frá bænum Berja-
nesi austan viö Holtsós drápust
eftir miklar hrakningar í fyrri-
nótt. Björgunarsveitir náöu aö
bjarga tíu hrossum við mjög
erfiðar aðstæður.
Vigfús Andrésson bóndi sagðist
hafa grun um að þrjú hross til
viðbótar hefðu drepist er flæddi að
hrossahópnum en hann hafði ekki
haft tök á að athuga það nánar í gær.
Vigfús sagði að ailt benti til þess að
ósinn hefði ekki stíflast heldur hefði
svo ofboðslega mikill sjór runnið
yfir fjöruna að allt svæðið allt upp að
4 metra línu yfir sjávarmáli fylltist.
„Sjávargangurinn var það mikill að
það er óhemja af dauðum karfa út
um allar mýrar, 2-3 kílómetra frá
landi,“ sagði Vigfús.
Hrossin hröktust undan veðrinu
og króuðust af við skurð. Mesta
flóðið kom að þeim í morgunflóðinu
og er Vigfús leit eftir þeim við
birtingu náði sjórinn vel upp á síður
á hrossunum. Vigfús náði í sveit
Slysavarnafélagsins og Flugbjörgun-
arsveitarinnar í nágrenninu. Sóttur
var gúmmíbátur til Víkur og náðu
menn að reka hrossin af stað. Þurftu
þau að fara um kílómetra leið í
vatni, komust tíu í hús en aflífa
þurfti tvö folöld. Vigfús bað Tímann
um að koma á framfæri þakklæti til
þeirra sem stóðu að björguninni.
Á Stóru-Borg eru tún þakin þykku
sandlagi en sjórinn fór nálægt fjósinu
sem er 250 metra frá fjörunni. Sig-
urður Björgvinsson bóndi sagðist
telja að um einn og hálfur hektari
ræktaðs lands væri þakinn 5 sentí-
metra þykku sandlagi. í óveðrinu
fauk þak af gamalli hlöðu og sagði
Sigurður að um 150 hestar af heyi
lægju þar undir skemmdum en hann
vonaðist til þess að geta bjargað
einhverju þegar veður leyfði.
Sigurður hefur búið á Stóru-Borg
alla sína ævi. Aðspurður sagði hann
að fellibylurinn Flóra hefði valdið
svipuðum sjávargangi fyrir um tíu
árum en öðru eins roki myndi hann
ekki eftir. SSH