Tíminn - 19.01.1990, Blaðsíða 10

Tíminn - 19.01.1990, Blaðsíða 10
10 Tíminn Föstudagur 19. janúar 1990 Auglýsing um óskilahross Eftirtalin hross sem eru í vörslu hestamannafé- lagsins Fáks og ekki er vitað um eigendur að, verða seld á opinberu uppboði fyrir áföllnum kostnaði að liðnum 14 dögum, verði réttir eigendur ekki búnir að vitja þeirra fyrir þann tíma og greiða af þeim áfallinn kostnað. 1. Brúnn hestur, aldur ca. 9 v. mark - fjöður aftan vinstra. 2. Rauðstjörnóttur hestur, aldur ca. 10 v. mark - stíft hægra. 3. Brúnn hestur, aldur ca. 10-11 v. ómarkaður. Uppboðið verður auglýst síðar. Nánari upplýsingar um hrossin verða veittar á skrifstofu Fáks í síma 672166 á milli kl. 14.00-18.00 virka daga. Hestamannafélagið Fákur. rtvnngg i Mnr Jólahappdrætti Framsóknarflokksins Eftirtalin vinningsnúmer komu upp í jólahappdrætti Framsóknar- flokksins: Fyrsti vinningur kom á miöa nr. 7428, 2. vinn. nr. 4104, 3 vinn. nr. 2145, 4. vinn. nr. 5677, 5. vinn. nr. 3774, 6. vinn. nr. 1304, 7. vinn. nr. 6227. Vinninga skal vitja á skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóatúni 21, Fteykjavík, innan árs frá útdráttardegi. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða í síma 91-24480. Framsóknarflokkurinn. Framsóknarfólk Norðurlandi vestra Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár- króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757. Kópavogur - Opið hús Opið hús alla miðvikudaga að Hamraborg 5, kl. 17-19. Alltaf heitt á könnunni. Framsóknarfélögin. Kópavogur - Þorrablót REYKJAVIK Létt spjall á laugardegi Laugardaginn 20. janúar kynnir Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi, fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 1990 á léttspjallsfundi í Nóatúni 21 kl. 10.30. Fulltrúaráðið Hið landsfræga þorrablót framsóknarfélaganna í Kópavogi verður haldið í Félagsheimili Kópavogs laugardaginn 20. janúar og hefst kl. 20.00. Hátíðarræða: Jóhann Einvarðsson alþing- ismaður. Bæjarlistamaður Kópavogs, Sigurður Braga- son skemmtir með söng. Matinn frá Sveinbirni i Veislustöðinni þekkja allir og Lúdósextett og Stefán sjá um fjörið fram undir morgun. Miðapantanir: Einar í síma 43420 og 41590, Guðrún í síma 641512 og hjá formönnum Jóhann Einvarðsson félaganna. Tryggið ykkur miða tímanlega á þessa glæsi- legu skemmtun. Nefndin. DAGBÓK Þjóðleikhúsið um helgina: ÓVITAR, barnaleikrit eftir Guðrúnu Helgadóttur er sýnt í síðasta sinn sunnud. 21. jan. kl. 14:00. HEIMILI VERNHÓRÐU ALBA, leikverk eftir Federico Garcia Lorca, er sýnt á stóra sviðinu á laugardagskvöld kl. 20:00. Prjársýningarerueftir. Guðbergur Bergsson þýddi leikritið, en leikstjóri er María Kristjánsdóttir. Hjálmar H. Ragn- arsson samdi tónlist við verkið. Leikmynd hannaði Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir, búninga Sigríður Guðjónsdóttir og lýs- ingu Ásmundur Karlsson. Á þriðja tug kvenleikara taka þátt í Útivist um helgina: Leirá-ölver - Á slóðir Bauka-Jóns Sunnud. 21. jan. efnir Útivist til skoðunar- og gönguferða um Leirár- og Melasveit í Borgarfjarðarsýslu. Farið verður sjóleiðina upp á Akranes með Akraborginni og lagt af stað kl. 12:30 frá Grófarbryggju. Frá Akranesi verður ekið um Leirársveit að Leirá, kirkjan skoðuð og fjallað um örnefni og sagnir sem minna á Jón Vigfússon, sýslumann og Hóla- biskup. Síðan verður gengið frá Leirár- laug eftir Katlavegi, gamalli þjóðleið yfir í Ölver. Fróður heimamaður verður með í för og vísar veginn. Komið verður til baka með Akraborginni til Reykjavíkur kl. 18:00. Verð kr. 1200. Hafnaitorg: „Det Grónne Mörke“ Sýning á verkum fimm norskra málara 1 Hafnarborg, menningar- og listastofn- un Hafnarfjarðar, Strandgötu 34, verður kl. 14:00 á morgun, laugard. 20. janúar opnuð sýning á verkum fimm norskrar málara. Listamennirnir eru: Anne Katr- ine Dolven, Erik Annar Evensen, Olav Christopher Jenssen, Jon Arne Mogstad og Björn Sigurd Tufta. Til sýningarinnar er stofnað af hálfu Norrænu listamiðstöðvarinnar í Sveaborg í Finnlandi og hefur hún verið sett upp í Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku og nú síðast í Noregi. Verk eftirþessalistamenn hafa ekki verið sýnd hér á landi áður, utan sýningar á verkum Björn Sigurd Tufta í Norræna húsinu árið 1987. Formáli í sýningarskrá er skrifaður af Maaretta Taukkuri, sýningarstjóra Nor- rænu Listamiðstöðvarinnar í Sveaborg. Sýningin í Hafnarborg stendur til 4. febr. n.k. Opnunartími erkl. 14:00-19:00 alla daga nema þriðjudaga. Sýningar á Kjarvalsstöðum Nú standa yfir á Kjarvalsstöðum þrjár sýningar: í austursal er sýningin „Kjarval og landið“, verk í eigu Reykjavíkurborgar. í vestursal sýnir Margrét Jónsdóttir olíumálverk. Sýningin stendur til 21. janúar. 1 vesturforsal sýna Helgi Þorgils Friðjónsson og Hallgrímur Helgason Portrett. Sýningin stendur til 21. janúar. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl. 11:00-18:00 og er veitingabúðin opin á sama tíma. MÁLVERKAUPPBOÐ 1. febrúar Gallerí Borg heldur málverkauppboð fimmtudaginn 1. febrúar. Málverkaupp- boðið fer fram að Hótel Sögu og hefst kl. 20:30. Tekið verður á móti verkum á uppboðið fimmtudaginn 25., föstud. 26. og mánudaginn 29. jan. í Gallerf Borg, Pósthússtræti 9. Kvóldvaka félagsins „Ljóð og saga“ Kvöldvökufélagið Ljóð og saga heldur kvöldvöku, sem hefst á félags-vist laugar- daginn20. janúarkl. 20:30 í Skeifunni 17. Sunnudagsferð F.Í. 21. jan.: Árstíðaferð í Heiðmörk Ferðafétag íslands fer í vetrarferð í Heiðmörk sunnud. 21. jan. kl. 13:00. Létt og skemmtileg ganga. M.a. farið að Hólmsborg og skógarreit Ferðafélagsins. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni aust- anmegin. Farmiðar við bíl (600 kr.) Frétt er fyrir börn með fullorðnum. Signý Sæmundsdóttir sópran Anton Steingruber tenór Peter Guth hljómsveitarstjóri Jón Stefánsson, stjórnandi Kórs Lang- holtskirkju Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar: ÁSHN ER HIMNESK! Árlegir Vínartónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar (slands eru haldnir um þessar mundir. í kvöld, föstudagskvöldið 19. janúar kl. 20:30 verða tónleikar í Háskólabíói og einnig laugard. 20. jan. kl. 16:30. Auk hljómsveitarinnar taka einsöngv- ararnir Signý Sæmundsdóttir sópransöng- kona og Anton Steingruber tenór, þátt í flutningnum ásamt kór Langholtskirkju. Kórstjóri er Jón Stefánsson, en hljóm- sveitarstjóri Peter Guth, sem hefur stjórnað á Vínartónleikum hér undanfar- in ár. Hann hefur valið tónleikunum yfirskriftina „Ástin er himnesk“. Flutt verða aríur og þættir úr óperettunum Leðurblökunnil Sígaunabaróninum og Nótt í Feneyjum eftir Jóhann Strauss, Guidittu, Paganini og Evu eftir Franz Lehár, Valsadraumnum eftir Oscar Strauss og Greifynjunni Marizu eftir Kálmán. Miðasala á tónleikana í Reykjavík fer fram í Gimli við Lækjargötu á skrifstofu- tíma og við innganginn við upphaf tón- leika. Þorrablótsf erð í Þórsmórk 2.4. febrúar Þorrablót að þjóðlegum sið og kvöld- vaka á laugardagskvöld. Skipulagðar gönguferðir. Fararstjórar: Kristján M. Baldursson. Siðamaður: Ámi Bjömsson. Gist er í Skagfjörðsskála í Langadal. Pantið tímanlega. symngunni. Kristbjörg Kjeld leikur titil- hlutverkið, ekkjuna Vernhörðu Alba. LfTIÐ FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI, eftir breska leikritahöfundinn Alan Ayck- bourn, er sýnt á föstudags- og sunnudags- kvöld kl. 20:00. Árni Ibsen staðfærði og þýddi leikinn, Andrés Sigurvinsson leik- stýrir, Hilmar Örn Hilmarsson samdi tónlist og áhrifshljóð, Karl Aspelund hannaði leikmynd, Rósberg R. Snædal búninga og Páll Ragnarsson lýsingu. Fjórtán leikarar koma fram í sýning- unni, Arnar Jónsson fer með aðalhlut- verkið, Borgar Jónsson framkvæmda- stjóra, en Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leikur Lillu. eieinkonu hans Stríð og friður og Hvítur hrafn í MÍR f bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, verða sýndar tvær kvikmyndir um næstu helgi. Á laugardag, 20. janúar, verður stór- myndin „Stríð og friður", mynd S. Bondartsjúks, byggð á skáldsögu Tolstojs, sýnd í heild sinni. Hefst sýningin kl. 10 árdegis og lýkur, með matar- og kaffihléum um kvöldmatarleyti. Aðgangur að þessari sýningu aðeins gegn framvísun aðgöngumiða. Hin kvikmyndin, „Hvítur hrafn“ verð- ur sýnd sunnudaginn 21. janúar á venju- legum sýningartíma MÍR kl. 16:00. Báðar myndirnar eru talsettar á ensku. Aðgangur að sunnudagssýningum MÍR er ókeypis og öllum heimill meðan hús- rúm leyfir. Þorrablót „burtfluttra Saurbæinga“ Þorrablót burtfluttra Saurbæinga verð- ur haldið í Breiðfírðingabúð laugardagin 20. janúar kl. 20:00. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg Laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun 2o. janúar. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10:00. „Á vetrarmorgnum eru veður válynd og færðin misjöfn. Göngufólk þarf að huga að þessu og búa sig eftir veðrinu og sérstaklega að nota skaflajárn í hálku og búa sig vel til fótanna. Þetta tryggir aukna ánægju í bæjarröltinu, en veður hafa aldrei truflað göngufólk og skemmtileg- ustu göngurnar eru oft í verstu veðrunum. Setjum vekjaraklukkuna. Mætum upp úr hálf tíu í molakaífiö." segir forsvarsmað- ur Frístundahópsins Hana nú í Kópavogi í bréfi til blaðsins. Leikfélag Reykjavíkur: BORGARLEIKHÚSID Töfrasprotinn - barna- og fjölskyldu- sýningin á stóra sviði Borgarleikhússins nýtur mikilla vinsælda og er uppselt á báðar sýningarnar um helgina, laugard. og sunnud. kl. 14:00. Höll sumarlandsins er á stóra sviðinu og er 30. sýning um næstu helgi, og sú 45. á Ljósi heimsins á litla sviðinu. Sýningar á báðum þessum leikritum verða kl. 20:00 á föstudag, laugardag og sunnudag. Síðustu æfingar á „Kjöti“ Ólafs Hauks Símonarsonar standa nú yfir, en frumsýn- ing er fyrirhuguð föstudaginn 26. janúar. Verkið gerist í Vesturbænum í Reykjavík árið 1963 - bakatil í virðulegri kjötverslun og ber margt á góma hjá verslunarstjóran- um og starfsmönnum hans. Nomena húsið: Málþing um dægurmenningu Laugard. 20. jan. kl. 14:00 hefst í fundarsal Norræna hússins málþing um dægurmcnningu. Það er Ríkisútvarpið sem stendur að málþinginu í samvinnu við Norræna húsið. Dagskráin er eftirfarandi: 1. Hvað er dægurmenning? Bo Reimer, dósent við Gautaborgarháskóla, flytur erindi. 2. Umræður undir stjórn Lars-Ake Engblom, forstjóra Norræna hússins. 3. Að skemmta sér til ólífis. Sigurður A. Magnússon rithöfundur talar um kenn- ingar Neil Postman o.fl. 4. Menningarleg nýsköpun ■ íslensku rokki. Gestur Guðmundsson félags- fræðingur flytur erindi. 5. Dægurmenning og fjölmiðlar. Stefán Jón Hafstein, dagskrárstjóri Rásar 2, flytur erindi. 6. Umræður með þátttöku frummælenda og þinggesta. Stjómandi Þorgeir Ólafs- son. Málþingið er öllum opið. Sýningar í Norræna húsinu: f anddyri: sýning Bruno Ehrs á ljós- myndum af höggmyndum. Sýningarsalur: Sýning Péturs Halldórs- sonar á málverkum. Opin daglega kl. 14:00-19:00 til 28. janú- ar. Selfoss og nágrenni Spiluð verður félagsvist að Eyrarvegi 15, Selfossi þriðjudagskvöldin 16., 23. og 30. janúar, kl. 20.30. Kvöldverðlaun, 1. og 2. verðlaun fyrir öll þrjú kvöldin. Allir velkomnir Framsóknarfélag Selfoss

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.