Tíminn - 20.01.1990, Page 2
i 3 -i
2 Tíminn
Laugardagur 20. janúar 1990
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, gagnrýnir fjárhagsáætlun RVK:
Davíð hundsar tilmæli
boraarendurskoðanda
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokks,
hefur margt að athuga við málflutning Davíðs Oddssonar
vegna fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar. Telur hún að
hann hafi farið með rangt mál varðandi útgjöld til félagsmála,
auk þess sé ýmislegt athugavert við þær tölur sem borgarstjór-
inn hefur nefnt varðandi byggingu ráðhússins og hússins í
Öskjuhlíð, allt bendi til þess að mikið vanti á að borgarstjór-
inn geti talist talnaglöggur.
í samtali við Tímann benti Sigrún
á ákveðna þversögn í máli borgar-
stjórans á fréttamannafundi þegar
áætlunin var kynnt. Borgarstjóri hafi
einum stað haldið þvf fram að borgin
verði þrisvar sinnum meira fjár-
magni til félagsmála og umferðar-
mála á hvern íbúa en gerist í öðrum
sveitarfélögum. Á öðrum stað hafi
borgarstjórinn sagt að þessi upphæð
væri um það bil tvisvar sinnum hærri
en framlag nokkurs annars sveitar-
félags til þessara málaflokka. Sagði
Sigrún að báðar þessar fullyrðingar
væru alrangar. í skýrslu Sambands
sveitarfélaga fyrir árið 1988 komi
fram að framlög til almannatrygg-
inga og félagshjálpar á íbúa, væru
aðeins tæplega þriðjungi hærri hjá
Reykjavík. „Og þetta er nú dálítið
mikið annað en þrisvar eða tvisvar
sinnum meira. Þetta finnst mér
veigamikið atriði og sýnir að borg-
arstjórinn er nú ekki eins talnaglögg-
ur og hann telur sig vera.“
Sjálfshól
Sigrún sagði jafnframt að þetta
væri lengsta fjárhagsáætlun sem sést
hefur, 165 blaðsíður. „Hana hefði
mátt stytta verulega ef borgarstjór-
inn hefði sleppt áróðrinum gegn
ríkisstjórninni og sjálfshólinu. Þessi
umfjöllun er ekki málefnaleg að
neinu leyti.
„Sjálfshólið hefur til dæmis birst í
því þegar borgarstjórinn talar um
dagvistarmálin og umskipti í borg-
inni hvað þau varðar meðan hann
hefur verið borgarstjóri. Á einum
stað segir hann orðrétt: „Á þessum
tíma hafa verið tekin í notkun 20 ný
dagvistarheimili á sama tíma og
mörg hinna gömlu hafa verið endur-
bætt, stækkuð og starfsfólki gert
auðveldara að sinna störfum sínum.
Er nú svo komið að engin höfuðborg
á Norðurlöndunum, að Kaup-
mannahöfn undanskilinni, getur
boðið foreldrum fleiri dagvistar-
heimili og jafn skjótvirka þjónustu
og Reykjavíkurborg gerir og eru þó
Norðurlöndin lengst komin í þessum
efnum allra landa í veröldinni.
Reykjavíkurborg er því í forystu-
sveit hvað varðar úrræði fyrir fjöl-
skyldur hvað dagvistun snertir ef
litið er til alls hins vestræna heims.“
- Davíð Oddsson telur sig því vera í
forystusveit hins vestræna heims! Ég
held að borgarbúar taki ekki undir
þetta. Það hefur meðal annars kom-
ið í ljós að helsta ástæðan sem gefin
er upp af fólki sem flytur út á land
er sú að skortur sé á dagvistarplássi
í borginni."
Ekkert stenst
„Borgarstjórinn heldur því fram
að kostnaður við byggingu ráðhúss-
ins sé innan eðlilegra skekkjumarka.
Málið er að þrátt fyrir aukafjárveit-
ingu er niðurstaðan sú að farið er 60
milljónir fram yfir. Svo er talað um
að það verði gerðar enduráætlanir
og þá auðvitað spyr maður sig hvað
eigi að taka mikið mark á þessum
áætlunum. Skekkjumörk hljóta að
miðast við áætlun sérhvers árs en
ekki framkvæmdirnar í heild sinni. “
Sigrún benti einnig á að Davíð
Oddsson hefði verið formaður bygg-
inganefndar Borgarleikhússins og ár
eftir ár hefði kostnaðurinn farið
fram úr áætlun. Þessi aukakostnaður
hefði verið langt umfram eðlileg
skekkjumörk og hafi ekki farið fyrir
borgarráð til samþykktar. „Borgar-
endurskoðandi hefur lagt á það ríka
áherslu að þegar farið er fram úr
fjárveitingum að þá á eigi slík má að
fara fyrir borgarráð. Þessi tilmæli
hefur borgarstjórinn ekki virt.“
Sigrún sagði að ef kostnaður við
Ráðhúsið væri framreiknaður komi
í ljós að kostnaðurinn verður orðinn
1.7 milljarðar í lok þessa árs. Þá
verður einungis búið að glerja húsið
og ganga frá utanhúss. Borgarstjór-
inn hafi aftur á móti sagt að heildar-
kostnaðurinn yrði 1,6 milljarðar.
Sigrún sagði jafnframt að fram-
reiknað væri kostnaður við húsið í
Öskjuhlíð kominn í tæpan 1
milljarð. Þá hafi rúmur milljarður í
Borgarleikhúsið bara á þessu kjör-
tímabili.
Sigrún Magnúsdóttir.
„í þessar byggingar eru komnir
fjórir milljarðar og þetta er auðvitað
fyrir utan skylduverkefnin. Það er
eðlilegt að borgin byggi hús af þessu
tagi. En það er dálítið mikill munur
á því hvort menn fara varlega í
þessum málum eða hvort þeir rjúka
til og eyða fjórum milljörðum eins
og ekkert sé. Það er ekki rokið á
sama hátt til og byggt eða keypt
öldrunarhús.
Maður sér að ráðhúsið er orðið
þetta dýrt af því að það var anað út
í byggingu þess strax, og teikning-
arnar voru ekki einu sinni tilbúnar.
Það sýnir hvar áherslurnar liggja að
á sama tíma voru okkur sýndar
teikningar af öldrunarhúsinu við
Skúlagötu. Þar er ekki farið grafa
grunninn því það þurfti allan þennan
tíma til að Ijúka teikningunum.
Hundruð milljóna mega fjúka til
vissra verkefna en ef málin snúa að
þjónustu við borgarbúa þá afstaðan
allt önnur. Til dæmis er það hlægilegt
að í áætluninni er gert ráð fyrir 3
milljónum til æskulýðsmála."
Að lokum sagði Sigrún: „Megin-
línur fjárhagsáætlunarinnar eru
þessar: „í fyrsta lagi eru rekstrar-
gjöld borgarinnar eins að krónutölu.
I öðru lagi hækka tekjurnar um
11%. í þriðja lagi er fara 40% til
eignabreytinga, sem eru bygginga-
framkvæmdir og annað. Þetta þýðir
að gjöldunum er haldið niðri og það
kemur meðal annars niður á viðhaldi
húsa. Til dæmis eru skólabyggingar
bókstaflega að hrynja og í áætluninni
er veitt 40 milljónum til þeirra hluta
sem er einungis 10% af því sem talið
hefur verið brýnusta nauðsyn.
SÁ/SSH
Símsmiðir
snúa aftur
til starfa
76 símsmiðir sem höfðu sagt upp
störfuni koma aftur til starfa hjá
Pósti og síma á mánudaginn. Sím-
smiðirnir tóku þessa ákvörðun eftir
að þeir höfðu fundað með forráða-
mönnum stofnunarinnar í gær.
Sem kunnugt er sögðu símsmið-
irnir upp störfum eftir að hafa stofn-
að Félag símsmiða og gengið í
Rafiðnaðarsambandið. Hefur bar-
átta þeirra staðið um að fá ríkið til
að viðurkenna sem samningsaðila.
Hafa þeir verið í verkfalli frá því á
mánudaginn en ríkið hefur ekki
viðurkennt lögmæti þess.
Símsmiðir eru staðráðnir í því að
fá úrskurð um lögmæti verkfallsins.
Til þess að hægt verði að fá úrskurð
félagsdóms verður annar hvor aðil-
inn að leggja fram kæru eða þá vera
sammála um að vísa til málinu til
dómsins. Hefur ríkið hafnað þessum
möguleika. Lögfræðingur Rafiðnað-
arsambandsins athugar nú mögu-
leika símsmiða í stöðunni. SSH
Eins og sést á myndinni getur hver sem vill átt grciðan aðgang inn á
Reykjavíkurflugvöll. Timamynd: Arni Bjarna
Miðar hægt að girða
Samkvæmt alþjóðasamþykktum
eiga flugvellir að vera girtir mann-
heldum girðingum en Reykjavík-
urflugvöllur uppfyllir ekki þetta
skilyrði. í dager helmingur svæðis-
ins afgirtur og með sama áfram-
haldi verður verkinu lokið eftir
fjögur og hálft ár.
Pétur Einarsson flugmálastjóri
sagði í samtali við Tímann að
samtals þyrfti að girða 9 kílómetra
og það verk væri nú hálfnað. Verið
væri að endurnýja gömlu girðing-
una og koma fyrir tveggja metra
mannheldri girðingu umhverfis
völlinn, en verkinu miðaði hægt
vegna takmarkaðs fjármagns.
Kostnaður við að girða hvern
kílómetra er um ein milljón króna
og hefur það verið ársframlag til
verksins undanfarin ár. Þannig að
með sama áframhaldi verður verk-
inu lokið eftir fjögur og hálft ár.
Eigendur einkaflugvéla hafa
áhyggjur af því að óviðkomandi
geti valsað um flugvallarsvæðið og
unnið spellvirki á vélunum. Að-
spurður sagði Pétur Einarsson að
kvartanir vegna slíks ágangs hafi
ekki borist nýlega. SSH
Davíð hættir
Davíð Björnsson deildarstjóri
Landsbréfa hefur ákveðið að segja
af sér sem varamaður í bankaráði
Seðlabanka íslands. Ástæðan er sú
að Davíð vill koma í veg fyrir að
störf hans veki tortryggni.
Ákvörðun Davíðs kemur í kjölfar
umræðna um hugsanlegt vanhæfi
fulltrúa Kvennalistans til að sitja í
bankaráði Landsbankans.
Davíð er fulltrúi Alþýðuflokks í
bankaráðinu og Guðrún Helgadóttir
forseti sameinaðs þings mun fara
fram á það við Alþýðuflokkinn að
tilnefndur verði nýr fulltrúi og kosið
verði á ný.
Bílar fuku í gær
Gríðarlegt hvassveður var á Kjal-
amesi í gær og fuku tveir bílar út af
veginum. Engin slys urðu á fólki.
I gærmorgun fauk flutningabíll út
af veginum í Brynjudal og valt.
Síðdegis fauk bíll út af veginum við
Móa. Má telja mikið mildi að ekki
urðu slys á fólki.
Lögreglan vísaði fólki frá sem
ætlaði að keyra fyrir Hvalfjörðinn.
Veðrið var gengið niður í gærkvöldi.
Tekur 8 mánuði
að svara bréfi
Tómas Gunnarsson hæstaréttar-
lögmaður birti opið bréf til dóms-
málaráðherra í Tímanum í vikunni.
Þar vekur Tómas m.a. athygli á því
Ég heítí DODDI
Frumsýning á laugardag
Eg er meyja
SJÁUMSTIDANSHÖLLINNI
að kæra vegna meints fjárdráttar
starfsmanns Orkubús Vestfjarða
hafi ekki enn hlotið lögmæta með-
ferð hjá embátti Ríkissaksóknara.
Ríkissaksóknara barst kæra vegna
meints fjárdráttar starfsmanns
Orkubús Vestfjarða í apríl 1989.
Málið var síðan sent iðnaðarráðu-
neytinu til umsagnar í byrjun maí-
mánaðar og beðið um skilgreiningu
á því hvort ákærði teldist opinber
starfsmaður. Ráðuneytið hefur enn
ekki svarað bréfinu en lögfræðingur
ráðuneytisins mun vera að skoða
málið. Von er á svari á næstu vikum.
Ákærði hefur þegar greitt til baka
það fé sem hann dró sér.
-EÓ