Tíminn - 20.01.1990, Page 10
18 Tíminn
Laugardagur 20. janúar 1990
DAGBÓK
Guðsþjónustur
í Reykjavíkurprófastsdæmi
Árbæjarprestakall. Barnasamkoma kl.
11 árdegis. Guðsþjónusta kl. 14. Organ-
leikari Jón Mýrdal. Fyrirbænastund mið-
vikudag kl. 16.30. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
Áskirkja. Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir messu.
Munið kirkjubílinn. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
Breiðholtskirkja. Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Daníel
Jónasson. Kaffisala kirkjukórsins að
guðsþjónustu lokinni. Bænaguðsþjónusta
þriðjudag kl. 18.30. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja. Barnaguðsþjónusta kl.
11, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, sr. Pálmi
Matthíasson. Guðsþjónusta kl. 14. Org-
anisti Þorvaldur Björnsson. Sr. Pálmi
Matthíasson.
Digranesprestakall. Barnasamkoma í
safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl.
11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl.
14. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
Dómkirkjan. Laugardag 20. jan.: Barna-
samkoma kl. 10.30. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson. Sunnudag 21. jan.: Messa
kl. 11. Sr. Hjalti Guðmundsson. Sam-
kirkjuleg guðsþjónusta kl. 14. Hafliði
Kristinsson, forstöðumaður Hvítasunnu-
safnaðarins, prédikar. Ritningarlestur
annast: Ingibjörg Jónsdóttir frá Hjálp-
ræðishernum, Jóna Bjarnadóttir frá Að-
ventkirkjunni og sr. Jakob Rolland frá
Kaþólsku kirkjunni. Dómkirkjuprestam-
ir þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur.
Organleikari Marteinn Hunger Friðriks-
son.
Elliheimilið Grund. Messa kl. 14. Sr.
Árelíus Níelsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Félag fyrrverandi sóknarpresta.
Fella- og Hólakirkja. Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Umsjón Ragnheiður Sverrisdóttir.
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Organisti
Guðný M. Magnúsdóttir. Miðvikudag kl.
20: Guðsþjónusta með léttum söng sem
Þorvaldur Halldórsson stjórnar. Sóknar-
prestar.
GrafarvogsprestakaU. Messuheimilið
Félagsmiðstöðinni Fjörgyn við Folda-
skóla. Barnamessa kl. 11. Sunnudags-
póstur - söngvar. Aðstoðarfólk Guðrún,
Valgerður og Hjörtur. Skólabíll fer frá
Hamrahverfi kl. 10.45. Almenn guðs-
þjónusta kl. 14. Fermingarbörn og for-
eldrar þeirra hvött til þátttöku. Kirkjukór
Grafarvogssóknar syngur. Organisti Sig-
ríður Jónsdóttir. Sr. Vigfús ÞórÁrnason.
Grensáskirkja. Barnasamkoma kl. 11.
Eldri börnin uppi í kirkjunni, yngri
börnin niðri. Messa með altarisgöngu kl.
14. Organisti Árni Arinbjarnarson.
Helgistund með öldruðum miðvikudag
kl. 11. Biblíulestur og bænastund laugar-
dag kl. 10. Prestarnir.
HaUgrímskirkja. Laugardag: Samvera
fermingarbarna kl. 10. Sunnudag: Messa
og barnasamkoma kl. 11. Sr. Karl Sigur-
björnsson. Kvöldmessa kl. 17. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson. Þeir sem vilja bílfar
hringi í Hallgrímskirkju í síma 10745 eða
621475. Þriðjudag 23. jan.: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10:30. Beðið fyrir
sjúkum. Miðvikudag 24. jan.: Opið hús
fyrir aldraða kl. 14.30.
LandspítaUnn. Messa kl. 10. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson.
Háteigskirkja. Morgunmessa kl. 10. Sr.
Arngrímur Jónsson. Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Kirkjubíllinn fer um Hlíðarnar
fyrir og eftir barnaguðsþjónustuna.
Messa kl. 14. Sr. Tómas Sveinsson.
Kvöldbænir og fyrirbænir eru í kirkjunni
á miðvikudögum kl. 18. Prestarnir.
HjaUaprestakall. Messusalur Hjallasókn-
ar í Digranesskóla. Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Kristján Einar Þorvarðar-
son.
Kársnesprestakall. Guðsþjónusta í Kópa-
vogskirkju kl. 11. Kór Kársnesskólans
syngur. Stjórnandi Þórunn Björnsdóttir.
Sr. Ámi Pálsson.
Langholtskirkja. Kirkja Guðbrands
biskups. Óskastund barnanna kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Þórhallur Heim-
isson.
Laugarneskirkja. Guðsþjónusta kl. 11.
Barnastarf á sama tíma. Fermingarbörn
aðstoða. Foreldrar og forráðamenn ferm-
ingarbarna hvattir til að koma. Kaffisopi
t safnaðarhcimilinu að guðsþjónustunni
lokinni. Helgistund þriðjudagskvöld kl.
22. Kyrrðarstund í hádeginu fimmtudag.
Orgelleikur, fyrirbænir, altarisganga.
Sóknarprestur.
Neskirkja. Laugardag 20. jan.: Samvem-
stund aldraðra kl. 15 í safnaðarheimili
kirkjunnar. Sunnudag 21. jan.: Barna-
samkoma kl. 11. Umsjón Sigríður Óla-
dóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson. Munið kirkju-
bílinn. Orgelleikur og kórstjóm Reynir
Jónasson. Miðvikudag: Fyrirbænamessa
kl. 18.20. Sr. Guðmundur Óskar Ólafs-
son.
Seljakirkja. Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Messa kl. 14. Organisti Kjartan Sigur-
jónsson. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja. Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Gyða Halldórsdótt-
ir. Prestur sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir. Barnastarf á sama tíma. Umsjón
Adda Steina, Sigríður og Hannes.
Óháði söfnuðurinn. Barnamessa kl. 11.
Hreyfisöngvar, sögur, föndur, léttar veit-
ingar. Hver á afmæli? Biblíusögur og
bænir. Safnaðarprestur.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Barnasamkoma
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir. Einar
Eyjólfsson.
Eyrarbakkakirkja. Barnaguðsþjónusta
kl. 10.30. Sóknarprestur.
Stokkseyrarkirkja. Messa kl. 14. Sóknar-
prestur.
Fríkirkjan í Reykjavík
Bamaguðsþjónusta kl. 11:00. Guðs-
þjónusta kl. 14:00. Orgelleikari Pavel
Smid.
Cecil Haraldsson
Félagsvist
Húnvetningafélagsins
Húnvetningafélagið í Reykjavík er
með félagsvist laugardaginn 20. janúarog
hefst hún kl. 14:00 í Húnabúð, Skeifunni
17. Verðlaun ogveitingar. Allirvelkomn-
ir.
Kvóldvaka félagsins
„Ljóð og saga“
Kvöldvökufélagið Ljóð og saga heldur
kvöldvöku, sem hefst á félags-vist laugar-
daginn20. janúarkl. 20:30 í Skeifunni 17.
Þorrablót
„burtfluttra Saurbæinga"
Þorrablót burtfluttra Saurbæinga verð-
ur haldið í Breiðfirðingabúð laugardagin
20. janúar kl. 20:00.
Frá Félagi eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, á
morgun, sunnudaginn 21. janúar.
Kl. 14:00 frjálst spil og tafl. Kl. 20:00 er
dansað.
Árshátíð
Snæfellingafélagsins
Félag Snæfellinga og Hnappdæla í
Reykjavík heldur árshátíð sína laugar-
daginn 10. febrúar n.k. í Goðheimum,
Sigtúni 3.
w W
rz ft .vr\i\wvi ■ Mnr
Kópavogur - Þorrablót
Hið landsfræga þorrablót framsóknarfélaganna í Kópavogi verður
haldið í Félagsheimili Kópavogs laugardaginn 20. janúar og hefst kl.
20.00.
Hátíðarræða: Jóhann Einvarðsson alþing-
ismaður.
Bæjarlistamaður Kópavogs, Sigurður Braga-
son skemmtir með söng.
Matinn frá Sveinbirni í Veislustöðinni þekkja
allir og Lúdósextett og Stefán sjá um fjörið
fram undir morgun.
Miðapantanir: Einar í síma 43420 og 41590,
Guðrún í síma 641512 og hjá formönnum
félaganna.
Tryggið ykkur miða tímanlega á þessa glæsi-
legu skemmtun.
Nefndin.
T
Jóhann Einvarðsson
lllJ
REYKJAVIK
WkL
Létt spjall á laugardegi
Laugardaginn 20. janúar kynnir Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi,
fjárhagsáætlun Reýkjavíkurborgar fyrir árið 1990 á léttspjallsfundi í
Nóatúni 21 kl. 10.30.
Fulltrúaráðið
m
Jólahappdrætti
Framsóknarflokksins
Eftirtalin vinningsnúmer komu upp í jólahappdrætti Framsóknar-
flokksins:
Fyrsfi vinningur kom á miða nr. 7428, 2. vinn. nr. 4104, 3 vinn. nr.
2145, 4. vinn. nr. 5677, 5. vinn. nr. 3774, 6. vinn. nr. 1304, 7. vinn.
nr. 6227.
Vinninga skal vitja á skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóatúni 21,
Reykjavík, innan árs frá útdráttardegi.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða í síma
91-24480.
Framsóknarflokkurinn.
Akranes - Opinn fundur
Fundur um skipulagsmál í Framsóknarhúsinu við Sunnubraut,
miðvikudaginn 24. janúar kl. 20.30.
Rætt verður um deiliskipulag Akratorgssvæðis.
Frummælandi: Ingólfur Hrólfsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í
skipulagsnefnd.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélögin Akranesi
Kópavogur - Opið hús
Opið hús alla miðvikudaga að Hamraborg 5, kl. 17-19.
Alltaf heitt á könnunni.
Framsóknarfélögin.
Karlakórinn STEFNIR 50 ára
Um þessar mundir eru liðin 50 ár frá
því að Karlakórinn Stefnir var stofnaður.
Af því tilefni verður opið hús í Hlégarði
í Mosfellsbæ sunnudaginn 21. janúar kl.
15:00-18:00. Þar verður boðið upp á
kafflveitingar og Stefnir og Sigrún Hjálm-
týsdóttir óperusöngkona munu syngja
nokkur lög. Allir eru velkomnir, einkum
styrktarfélagar kórsins og gamlir söngfé-
lagar.
Stöngstjóri Stefnis er Lárus Svéinsson
og Guðrún Guðmundsdóttir cr undirleik-
ari
Fræðslufundur
Fuglavemdarfélagsins:
„Fuglar hafs og nætur"
Fuglavemdarfélag fslands heldur
fræðslufund mánudaginn 22. janúar kl.
20:30 í stofu 101 í Odda, húsi hugvísinda-
deildar Háskólans. Þá munu þeir Erpur
Snær Hansen og Jóhann Óli Hilmarsson
svifta hulunni af hinum leyndardómsfullu
fuglum hafs og nætur, sæsvölum og
skrofu, er þeir hafa athugað undanfarin
ár.
Fyrirlesarar munu ræða um útbreiðslu,
kjörlcndi og ferðir fuglanna, segja frá
sérkennilegum lífsháttum þeirra og leika
hljóð þeirra af segulbandi, jafnframt því
að sýna litskyggnur úr ferðutn sínum á
varpstöðvarnar.
Kammertónleikar
á Kjarvalsstöðum
Sunnud. 21. jan. kl. 20:30 verðahaldnir
kammertónleikar á Kjarvalsstöðum.
Flytjendur á þessum tónleikum eru:
Snorri S. Birgisson, Óskar Ingólfsson,
Þórhallur Birgisson, Kathleen Bearden,
Helga ÞórarinsdóttirogNora Komblueh.
Á efnisskránni eru tvö verk eftir Jo-
hannes Brahms: Píanókvintett op. 34 í
f-moll og klarinettukvintett op. 115 í
h-moll.
Nýhafnarklúbburinn
starfar á ný
Nýhafnarklúbburinn tekur aftur til
starfa 5. febrúar nk. Þetta er annað árið
sem liann starfar, en starfsemi klúbbsins
byggist á fyrirlestrum um myndlist og
verða fjórir fyrirlestrar á vorönn og fjórir
á haustönn. 23. júlí verður svo Jóns-
messuhátíð eins og sl. ár.
Ætlunin er að fara í listskoöunarfcrð til
Madrid í fylgd sérfróðra manna um
miðjan marsmánuð. Sú ferð er á vegum
ferðaskrifstofunnar Lands og Sögu í
Bankastræri, sem veitir allar upplýsingar.
Fjöldi þátttakenda í klúbbnum er tak-
markaður og ganga meðlimir síðasta árs
fyrir, en þeir sem hefðu áhuga á að bætast
í hópinn geta látið skrá sig í listasalnum
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, sími 12230,
fyrir 1. febrúar.
O.A. SAMTÖKIN á íslandi
(Overeaters Anonymous):
Samtðk fólks sem á við
átvandamál að stríða.
O.A. samtökin starfa í formi funda,
þar sem fólk hittist og deilir reynslu sinni,
styrk og vonum til að losna undan áþján
ofáts.
Um áramótin fluttust allir O.A. fundir,
sem haldnir hafa verið í Þverholti 20, á
nýjar slóðir.
Mánudagsdeild flytur í Árbæjarkirkju.
Þar verða fundir kl. 21:00 öll mánudags-
kvöld. Miðvikudagsdeild flytur á Bar-
ónsstíg 20, þar verða fundir kl. 21:00 á
miðv.d.kvöldum.
Byrjendafundir flytjast cinnig á Bar-
ónsstíg 20og verða nú á miðvikudags-
kvöldum kl. 20:30.
Sporadeild. sem haldið hefur fundi á
laugardagsmorgnum kl. 11:00 flyst sömu-
leiðis á Barónsstíg 20 og verður áfram á
sama tíma.
Aðrar deildir eru óbreyttar sem hér
segir:
I safnaðarheimili kaþólskra, Hávallag.
16. alla laugard. kl. 15:00. í bókasafni
Mýrarhúsasköla Seltjarnarnesi alla
föstud. kl. 21:00. i safnaðarheimili
Hrepphólakirkju alla miðvikudaga kl.
21:00. Á skrifstofu verkalýðsfélagsins á
Hólmavík, alla þriðjudaga kl. 21:00. í
Glerárkirkju, Akureyri, alla mánud. kl.
20:30. i Snælandi við Árgötu 12, Húsavík.
alla mánudaga kl. 20:00. í félagsheimilinu
Melsgili, Sauðárkróki. alla fimmtud. kl.
21:30.
Þessir fundir eru öllum opnir sem
löngun hafa til að hætta ofáti.
Sunnudagsferð F.Í. 21. jan.:
Árstíðaferð í Heiðmörk
Ferðafélag Íslands fer í vetrarferð í
Heiðmörk sunnud. 21. jan. kl. 13:00.
Létt og skemmtileg ganga. M.a. farið að
Hólmsborg og skógarreit Ferðafélagsins.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni aust-
anmegin. Farmiðar við bíl (600 kr.) Frétt
er fyrir börn með fullorðnum.
Þorrablótsferð í Þórsmörk
2.-4. febrúar
Þorrablót að þjóðlegum sið og kvöld-
vaka á laugardagskvöld. Skipulagðar
gönguferðir. Fararstjórar: Kristján M.
Baldursson. Siðamaður: Árni Björnsson.
Gist er í Skagfjörðsskála í Langadal.
Pantið tímanlega.
BÆKUR
Ný teikni-
myndasaga
um Samma
Iðunn hefur gefið út nýja
teiknimyndasögu um Samma og
Kobba vin hans, og nefnist hún
Fröken Krútt fer á kreik.
Hin dularfulla fröken Krútt
hefur lagt undir sig alla
sprúttsöluna í borginni með
skipulögðum samtökum og
bellibrögðum. Lögreglan leitar á
náðir Samma og Kobba til að hafa
hendur í hári hennar. En þá fyrst
gerist máhð verulega flókið.
Allt um
drauma
Prenthúsið hefur tekið til útgáfu
á íslensku bókaflokkinn Lífsspeki
Edgars Cayce sem gefinn hefur
verið út erlendis í stórum
upplögum. Dámiðillinn Edgar
Cayce er löngu orðinn kunnur hér
á landi fyrir hæfileika sína og
ómetanlega hjálp sem hann hefur
veitt þúsundum manna. Edgar
Cayce-stofnunin í Bandaríkjunum
gefur út þennan flokk bóka sem
saindar eru á grundvelli þeirrar
þekkingar sem Cayce lagði til.
Bækurnar eru ætlaðar almenningi
til upplýsingar og til leiðsagnar
við að uppgötva og stjórna
dulrænum hæfileikum sem búa í
öllum mönnum. Ritstjóri
bókaflokksins er Charles Thomas
Cayce.