Tíminn - 26.01.1990, Blaðsíða 2
1 IM
2 Tíminn
Föstudagur 26. janúar 1990
Ríkissjóður þungur baggi á
húsbyggjendum/húseigendum:
Virðisauki hækkar
byggingavísitölu
Vísitala byggingarkostnaðar
hækkaði um 3,3% í janúar. Þar af
eru 2% eru talin af völdum hins
nýja virðisaukaskatts - þrátt fyrir
að við útreikninginn hafi verið
dregin frá áætluð endurgreiðsla
skattsins vegna vinnu á bygging-
arstað. Án slíkra endurgreiðslna
hefði byggingarkostnaður hækkað
um nær 12% að mati Hagstofunn-
ar. Þá hækkun verða hins vegar
allir þeir að axla framvegis sem
vilja að halda húsnæði sínu sóma-
samlega við, svo fremi það viðhald
kosti ekki yfir 7% af verði íbúðar-
innar/hússins á einu almanaksári
(t.d. meira en 420.000 í viðhald á
6 millj.kr.íbúð á sama ári).
Af einstökum hækkunum nefnir
Hagstofan 9,7% hækkun á verði
steypu, sem hækkar vísitöluna um
1% og 9,3% hækkun á innihurða.
Þá varð 14,2% hækkun á hönnun-
arkostnaði, sem fyrst og fremst er
rakin til virðisaukaskattsins.
Þetta er annað árið í röð sem
byrjar með 3,3% hækkun á bygg-
ingarvísitölu, að meirihluta til
vegna aukinnar skattheimtu ríkis-
sjóðs. Um áramótin 1988/89 var
það 9% hækkun vörugjalds sem
átti stærstan hlut í 12% verðhækk-
un á steypu og 14-16% verðhækk-
un á mörgum helstu byggingarefn-
um öðrum. Mun ekki fjarri lagi að
þessi viðbótarskattheimta hafi
hækkað nýbyggingarkostnað um
4-5% (t.d. um 240-300 þús.kr. á 6
millj.kr.íbúð) og almennan við-
haldskostnað um 15% á rúmu ári.
Síðustu 12 mánuði hefur bygg-
ingarvísitalan hækkað um 27,3%,
sem er töluvert umfram hækkun
lánskjaravísitölu á sama tíma.
-HEI
KA?C,
1
ÍBp BANKi
( VÖRUHUS IjQ|
Kaupfélag Árnesinga.
Athugasemd við grein Tímans 24. jan. 1990:
UMINNKAUPAFERDIR SEL-
FYSSINGA TIL REYKJAVÍKUR
Velkomin í
íþróttahöltína
fio"A\a
o« sPa
Vélsleðasýning
Vélsleðamarkaður
á Akureyri
Sýning á vélsleðum, útbúnaði og
útilífsvörum í íþróttahöllinni á Akureyri
27. og 28. janúar n.k. kl. 13-18
laugardag og kl. 11-16 sunnudag
Sjáið allar ’90 árgerðirnar Úrval af notuðum sleðum
af: Arctic Cat, Polaris, Ski-doo og hjólum til sýnis og sölu á
og Yamaha.
Komið og ræðið við
umboðsmenn og sölumenn.
Fáið verðlista.
útisvæði.
Komið með gamla sleðann á
útimarkaðinn strax á föstudag
og reynið að skipta í nýrri eða
selja.
Aftanísleðar, vélsleðakerrur,
kuldafatnaður, kuldaskór.
Hjálmar og alls konar
aukabúnaður til sýnis og sölu.
Bflasímar, Iórantæki,
varahlutir, olíur, áttavitar.
Verkleg kennsla í notkun LORAN staðsetningartækja kl. 15 á laugardag. Skátargefa
leiðbeiningar og heilræði um ferðalög.
Á útisvæði: markaður fyrir notaða sleða, kerrur og aðra hluti tengda íþróttinni.
Samæfing björgunarsveita og Landhelgisgæsluþyrlunnar (ef veður leyfir).
Árshátíð L.Í.V. verður
haldin í Sjallanum kl. 19.30 á
laugardagskvöld.
Borðhald - Skemmtiatriði - Dans
Félagar í L.Í.V. og allt áhugafólk um útilíf er hvatt til að fjölmenna.
ATH! Afsláttur til L.Í.V. félaga á hótelum á Akureyri.
Hringið og látið skrá ykkur á árshátíðina í símum: 96-21509, 96-22233, 96-24913.
L.Í.V.
Mér þykir full ástæða til þess
að gera athugasemd við þessa
ofangreindu frétt Tímans, sem
var að hluta til á forsíðu blaðsins
og gat naumast farið fram hjá
lesendum þess. Af greininni
mátti helst draga þá ályktun að
á Selfossi eða í Árnessýslu væru
takmarkaðir möguleikar til
verslunar á heimaslóð og fólk
hrektist til Reykjavíkur til þess
að ná í sínar nauðþurftir. Á
forsíðu mátti lesa þá niðurstöðu
að „einungis Selfyssingar kæmu
gagngert til að versla í Reykja-
vík.“
Hér er ekki meiningin að setja
spurningamerki við fólk eða fyrir-
tæki á Suðurlandi en þeim fremur
beint að blaðinu og vísindamönnum
þess. Málefnið er ekki ómerkilegt og
því bendir það til einhverra erfið-
leika í útvegun fréttaefnis að fjalla
um þetta efni með slíkum hætti. Þar
sem íbúatala skiptir þúsundum eins
og á Selfossi, næst enginn raunhæfur
samanburður við önnur sveitarfélög
með 28 manna úrtaki. Ég sá enga
ástæðu til þess að halda að fólk færi
frekar eða tíðar frá Selfossi til
Reykjavíkur í verslunarerindum
heldur en frá öðrum þéttbýlisstöðum
í nágrenni höfuðstaðarins. Á Sel-
fossi er einn vinsælasti stórmarkaður
landsins, Vöruhús K.Á. og má segja
að heiður Vöruhússins sé í veði
þegar slíkur fréttaflutningur veður
uppi. Ekki veit éghvað forráðamenn
SBS (Sérleyfisbifreiðar Selfoss)
segja við þeirri auglýsingu að sam-
kvæmt niðurstöðum könnunarinnar
þá noti bílana enginn maður. Bílarn-
ir fara þó ekki aðeins daglega,
heldur nokkrar ferðir á dag.
Að sjálfsögðu þekkir undirritaður
ekki sölutölur frá öðrum fyrirtækj-
um austan fjalla en Kaupfélagi Ár-
nesinga. Söluaukning Vöruhúss
K.Á. árið 1989 var í takt við verð-
lagsþróun. Þar sem margnefnd
könnun átti að túlka viðhorf fólks í
jólaversluninni, vil ég láta koma hér
fram söluaukningu í nokkrum aðal
jólavöruflokkunum í Vöruhúsi K.Á.
þ.e. samanburður á sölu í des. 1989
og des. 1988. Þessir flokkar eru
Sigurður Kristjánsson.
vefnaðarvara, fatnaður 23%, bús-
áhöld, gjafavörur 28% og leikföng,
sportvörur 26%. Þess er líka að geta
að des. 1988 var mjög góður sölu-
mánuður, jólaauglýsingar hvöttu
fólk til þess að versla í heimabyggð
og við áttum von á því í blíðunni
fyrir síðustu jól að fólk færi eitthvað
meira í burtu til þess að gera jólainn-
kaup og samanburður við árið á
undan yrði óhagstæðari.
Nú vil ég snúa dæminu algjörlega
við. Hversu mikið versla Reykvík-
ingar árlega út á landsbyggðinni?
Hér í Árnessýslu höfum við ferða-
manninn á sumrin en sér í lagi
höfum við ágæta og árlega gesti,
fjölskylduna í sumarbústaðnum.
Sölubókhald Vöruhúss K.Á. fræðir
okkur eitthvað um þetta og saman-
burður sölunnar í jan. og febrúar
annars vegar og júlí og ágúst hins
vegar síðustu árin, rokkar frá því að
vera 50-65%. Þá eru að sjálfsögðu
júlí og ágúst söluhærri og þess vegna
er okkar þjónustuþáttur við Reyk-
víkinea að mínu mati mun stærri
heldur en sú verslun sem Árnesingar
kunna að gera í borg Davíðs. Nábýl-
ið við höfuðborgina er því mikið
fremur kærkomið frá sjónarmiði
verslunarmanna á Selfossi heldur en
hið gagnstæða.
Sigurður Kristjánsson
kaupfélagsstjóri
Þing Lútherska heimssambandsins í Brasilíu:
Friður og umhverfisvernd
Biskup Islands, herra Ólafur
Skúlason er formaður íslenskrar
sendinefndar sem sækja mun 8.
heimsþing Lútherska heimssam-
bandsins í Brasilíu dagana29. janúar
til 9. febrúar. Heimsþingið munu
sækja um eitt þúsund manns, þ.e.
fulltrúar 105 aðildarríkja Lútherska
heimssambandsins. Megin viðfangs-
efni þingsins fjallar um frið, réttlæti
og umhverfisvernd.
Aðrir fulltrúar íslensku kirkjunn-
ar verða þau séra Dalla Þórðardótt-
ir, sem verður einn af umræðustjór-
um þingsins, séra Bernharður
Guðmundsson fræðslustjóri kirkj-
unnar, sem annast mun utanríkismál
af hálfu Biskupsstofu. Auk þeirra
verða þau Ebba Sigurðardóttir bisk-
upsfrú og séra Þorbjörn Hlynur
Árnason stjórnarmaður Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar og nýráðinn
aðstoðarmaður biskups, gestir
þingsins. Þá verður Gunnbjörg Óla-
dóttir guðfræðinemi í hópi æskufólks
á þinginu. -ABÓ