Tíminn - 26.01.1990, Blaðsíða 5

Tíminn - 26.01.1990, Blaðsíða 5
Föstudagur 26. janúar 1990 Tíminn 5 Ólafur Ragnar Grímsson segir að fjögurra milljarða hagnaður Landsvirkjunar komi sér á óvart: Væntum 250milljóna Fáum tvo milljarða? „Það er merkilegur árangur sem þetta frumvarp hefur þegar skilað við að vera lagt fram á Alþingi; að forstjóri Landsvirkjunar hefur nú í fyrsta sinn reitt fram þær tölur að sitji Landsvirkjun við sama borð og öll fyrirtæki verða að sitja við á íslandi, þá reynist það hafa fjögurra milljarða hagnað á s.l. ári,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra í gær. Halldór Jónatansson forstjóri Landsvirkjunar sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að tekjuskattur á orkufyrirtæki sem fyrirhugaður er samkvæmt stjórnarfrumvarpi á Al- þingi, muni þýða 46% hækkun á verði Landsvirkjunar til almennings- veitna. Samkvæmt frumvarpinu verði Landsvirkjun að greiða tvo milljarða í tekjuskatt miðað við tekjur síðasta árs. Verði frumvarpið að lögum muni verða að hækka orkuverð til almenn- ings, eigi að takast að uppfylla arðsemiskröfur laga um Landsvirkj- un. Ólafur Ragnar Grímsson sagði að á Halldóri Jónatanssyni mætti skilja að vegna þess að Landsvirkjun hafi til þessa búið við allt aðrar reglur og skattalög en önnur fyrirtæki í land- inu, hafi það getað falið hagnað upp á fjóra milljarða. Frumvarpið gerði ráð fyrir því að framkvæmd yrði sú almenna jafnréttisregla að sömu lög giltu um öll fyrirtæki og atvinnu- greinar. Ráðuneytið hefði nú óskað eftir gögnum frá Landsvirkjun um fjár- mál stofnunarinnar og gerð yrði úttekt á stöðu hennar í samræmi við lög og reglur sem giltu um almenn fyrirtæki í landinu. f tekjuáætlun vegna þessa frum- varps hefði ekki verið reiknað með nema 250 milljón kr. skattheimtu frá öllum orkufyrirtækjum landsins og að aldrei hefði staðið til að taka tvo milljarða í tekjuskatt frá Landsvirkj- un á einu ári. -En hefði ekki verið réttara að athuga stöðu Landsvirkjunar á fyrr- nefndan hátt áður en frumvarpið var samið og lagt fram og þekkja ekki fyrrverandi stjómarmenn hag henn- ar sæmilega? „t>að var alltaf verið að með- höndla þetta eftir sérstökum reglum. Það kom aldrei upp að menn bæðu um samskonar úttekt eins og Lands- virkjun væri hvert annað fyrirtæki eins og t.d. Eimskip, Flugleiðir eða Hagkaup," sagði Olafur Ragnar. -En eru orkufyrirtækin ekki hugs- uð sem þjónustufyrirtæki sem ekki hagnist í krafti einokunaraðstöðu umfram brýnustu þarfir og rekstur- inn raunar stilltur af við núllið? Ólafur Ragnar sagði að hámarks- hagnaður Landsvirkjunar væri ekki ákveðinn í lögum um stofnunina. Stjórnin gæti ákvarðað hver hann ætti að verða frá ári til árs. Svipað væri með rekstur rafveitna. T.d. hefði Sjálfstæðismeirihlutinn í Reykjavík ákveðið að hita- og raf- magnsveitur borgarinnar skiluðu 1,3 milljörðum króna á þrem árum í rekstrarhít borgarsjóðs. Fyrirtækin tvö væru því notuð sem skattlagningartæki. Ef það væri ekki gert þyrfti útsvarsprósentan í Reykjavík í ár að vera 7,3%. Orku- veitur borgarinnar væru því notuð sem skattlagningartæki til að geta sýnt lægri útsvarsprósentu á papp- ímum með því að taka hluta af rekstrartekjum borgarinnar með hærra orkuverði. Eiríkur Þorbjörnsson fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra rafveitna sagði í gær að orkuveiturn- ar litu mjög alvarlegum augum á skattlagningaráform fj ármálaráðu- neytisins og væri með frumvarpinu verið að fara inn á háskalega braut sem leiða myndi til hækkaðs orku- verðs. í annan stað myndi markaðsstaða veitnanna gagnvart innfluttri orku breytast og það hafa áhrif á sam- keppnisiðnaðinn meðal annars. Þá væri frumvarpið í sinni núver- andi mynd illframkvæmanlegt vegna þess að orkufyrirtækin væru öðruvísi uppbyggð en venjuleg fyrirtæki hvað varðar afskriftareglur og fleira í þá veru. „Reksturskostnaður orkufyrir- tækjanna er að verulegu leyti fjár- magnskostnaður vegna erlendra lána. Þaö þýðir að gífurlegar sveiflur eru í afkomu þeirra og misvægi milli gengisskráningar og innlends verð- lags gefur oft einskonar ímyndaðan hagnað eða pappírshagnað sem á að fara að skattleggja," sagði Eiríkur. Ólafur Ragnar vildi ekki tjá sig um það hvort ætlunin væri að skatt- leggja gervihagnað sem yrði til á pappírnum vegna misræmis gengis- skráningar og innlends verðlags. Umbeðin gögn frá Landsvirkjun yrðu nú athuguð. Stefnan í frum- varpinu væri að koma á jafnrétti í skattamálum. Eiríkur Þorbjörnsson benti á að frumvarpið stangaðist á við lög, beint eða óbeint, um Landsvirkjun sem segja að samningar um orkusölu til stóriðju mætti ekki hækka orku- verð til almenningsveitna. Ólafur Ragnar Grímsson: „Það gerir það nú ekki. Þetta frumvarp sem ríkisstjórnin hefur lagt fram felur það í sér að orkufyr- irtækin eigi að lúta sömu bókhalds- og skattareglum eins og öll önnur fyrirtæki á íslandi.“ Fjármálaráðherra sagðist ekki telja að frumvarpið stangaðist á við lög um Landsvirkjun og orkuveitur. Athyglisvert væri að forstjóri Lands- virkjunar hefði upplýst nú að ef sömu bókhaldsreglum og beitt er á öll önnur fyrirtæki væri beitt á Landsvirkjun, reyndist hún vera með fjögurra milljarða gróða á einu ári. Ráðherra sagðist hafa setið í stjórn Landsvirkjunar um nokkurra ára skeið en ekki hefði forstjórinn venð að reiða þessar upplýsingar fram þá. „Ég held að almenningi, einkum úti um land sem hefur verið að borga síhækkandi orkuverð undanfarin ár þyki það ærin tíðindi að ef Lands- virkjun er meðhöndluð eins og önn- ur fyrirtæki á íslandi bókhaldslega og skattalega þá reynist það vera með fjögurra milljarða hagnað,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra. -sá Tákn heimsmeistaramótsins í hand- knattleik 1995 sem haldið verður hér á landi. MERKI HM ’95 í gær var tilkynnt um úrslit í samkeppni HSÍ um myndrænt tákn fyrir heimsmeistaramótið í hand- knattleik sem haldið verður hér á landi 1995. Verðlaunin, 300 þúsund krónur, hlaut Garðar Pétursson auglýsingateiknari. Auk þess fengu tvær aðrar tillögur sérstaka viður- kenningu, 50 þúsund krónur. Alls bárust 124 tillögur til keppn- innar. Keppendur höfðu frjálsar hendur um efnisval, en þó var farið fram á að táknið tengdist á einhvern hátt handknattleik. í niðurstöðum dómnefndarinnar segir að merki Garðars Péturssonar sé einfalt myndrænt tákn og flétti skemmtilega saman ártalið 1995, handknattleiksmann í sókn og kraft leiksins. SSH Leiðrétting í afmælisgrein í gær misritaðist nafn Sveinbjargar Sigríðar Ás- mundsdóttur. Tíminn biðst vel- virðingar á þessum mistökum. (slensku bókmenntaverðlaunin: Stefán Hörður Grímsson hlaut bókmenntaverðlaun Stefán Hörður Grímsson Ijóð- skáld hlaut í gær íslensku bók- menntaverðlaunin og voru þau veitt í fyrsta sinn. Verðlaunin hlaut hann fyrir bók sína „Yfirheiðan morgun“. Forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, afhenti Stefáni Herði verð- launin við hátíðlega athöfn á Kjar- valsstöðum. Verðlaunaféð er ein milljón króna. í byrjun desember valdi dómnefnd, með þátttöku almenn- ings, tíu athyglisverðustu bækur árs- ins 1989, fimm manna dómnefnd valdi síðan verðlaunabókina. Tilgangur verðlaunanna er að styrkja stöðu frumsaminna íslenskra bóka, efla bókaútgáfu, auka umfjöll- un um bókmenntir í fjölmiðlum og hvetja almenna lesendur til um- ræðna um bókmenntir. í dómnefndinni sem endanlega valdi bók ársins 1989 sátu: Gylfi Þ. Gíslason, formaður nefndarinnar, Pétur Gunnarsson, Snorri Jónsson, Einar Bjarnason og Ástráður Ey- steinsson. Við athöfnina afhenti mennta- málaráðherra fimmtán ungmennum verðlaun í samkeppni sem haldin var meðal grunnskólabarna í tilefni Málræktarátaksins sem nýlega lauk. Höfðu börnin ýmist sent inn ljóð, sögur eða ritgerðir. SSH Forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, afhenti Stefáni Herði Gríms- syni Íslensku bókmenntaverðlaunin. Tímamynd Pjetur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.