Tíminn - 26.01.1990, Blaðsíða 13

Tíminn - 26.01.1990, Blaðsíða 13
Föstudagur 26. janúar 1990 Tíminn 13 rkvrrvi\^ i Mnr Þorrablót framsóknarfélaganna í Reykjavík Hið árlega þorrablót framsóknarfélaganna í Reykjavík verður haldið laugardaginn 27. janúar n.k. í Norðurljósasal Danshallarinnar (Þórs- cafe) og hefst kl. 19.30. Heiðursgestir verða frú Edda Guðmundsdóttir og Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra, sem jafnframt flytur ræðu kvöldsins. Aðgöngumiða- og borðapantanir eru í síma 24480 (Þórunn). Verð aðgöngumiða kr. 2.500,-. (Greiðslukortaþjónusta) Framsóknarfélag Reykjavíkur. Framsóknarkonur Við hvetjum ykkur eindregið til þess að taka sæti á framboðslistum Framsóknarflokksins í sveitarstjórnarkosningunum í vorog hafa með því áhrif á starf og stefnu ykkar sveitarfélags. Stjórn LFK. Staðan tekin Stjórn SUF og stjórnir FUF félaganna efna til skrafs og ráðagerða- funda á næstu vikum sem hér segir: Fyrstu fundir: Hafnarfjörður, þriðjud. 30. janúar kl. 20 Keflavík, þriðjud. 6. febrúar kl. 20 Selfoss, fimmtud. 15. febrúar, kl. 20. Allir velkomnir. Stjórnin Akureyrarferð FUF féiaga Akureyrarferð FUF félaga verður farin helgina 9. til 11. febrúar. FUF á Akureyri mun taka á móti FUF félögum að sunnan til skrafs, skemmtunar og ráðagerða. Allir FUF félagar velkomnir. Haldið verður frá skrifstofum Framsóknarflokksins Nóatúni 21 síðla dags föstudaginn 9. febrúar og komið til Reykjavíkur að nýju sunnudagskvöldið 11. febrúar. FUF félagar á Vesturlandi og í Norðurlandskjördæmi vestra eru hvattir til að slást í hópinn. Farog gisting í svefnpokaplássi mun kostatvötil þrjú þúsund krónur. Nánari upplýsingar og skráning: Þórunn á skrifstofu Framsóknarflokksins s. 24480 á daginn. Guðmundur Birgir i síma 77044 á kvöldin. FUF félagar á höfuðborgarsvæðinu. Selfoss og nágrenni Spiluð verður félagsvist að Eyrarvegi 15, Selfossi þriðjudagskvöldin 16., 23. og 30. janúar, kl. 20.30. Kvöldverðlaun, 1. og 2. verðlaun fyrir öll þrjú kvöldin. Allir velkomnir Framsóknarfélag Selfoss Selfoss Framsóknarfélag Selfoss heldur félagsfund mánudagskvöldið 29. janúar kl. 20.30 að Eyrarvegi 15. Fundarefni: Framboðsmál. Mætum öll stundvíslega. Framsóknarfélag Selfoss. illllllllllllllllllilllllllll SPEGILL lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Melissa Gilbert er óánægð í hjónabandinu - Melissa, eða „Lára litla úr Húsinu á Sléttunni“, flýr með barn sitt um nótt undan eiginmanninum Rob Lowe og Melissa (á bak við hann) ekki löngu áður en hún gekk í hjónaband með Bo Brinkman, - en þá hafði Rob flengst á milli skemmtistaðanna með prinsessunni frá Mónakó (t.h.) og píu eins og Fawn Hall (t.v.), en nú velta vinir þeirra því fyrir sér hvort möguleiki sé fyrir því, að þau Rob Lowe og Melissa nái kannski aftur saman Melissa Gilbert var ekki gömul þegar hún varð fræg sem Lára í sjónvarpsþáttunum vinsælu „Hús- ið á Sléttunni". Þegar þeim þáttum lauk var hún orðin stór stúlka. Þá var ástin komin til sögunnar hjá Láru. En um líkt leyti og það var, þá var Melissa mjög upptekin af æskuvini sínum, leikaranum Rob Lowe. Þar blómstraði unglingaást- in og þau voru saman öllum stund- um sem þau gátu við komið. Vinnu þeirra var þannig háttað að það gat verið erfitt fyrir þau að finna stund þegar þau ættu bæði frí í einu og gætu verið saman. Allir töldu víst að Melissa og Rob yrðu par og þau voru oftast nefnd í sama orðinu. En þau voru svo ung að engin alvara var með í spilinu. Þau voru bæði ákveðin í að koma sér áfram á framabrautinni, og Rob fannst það ómögulegt að hugsa til að binda sig við eina stúlku, - þó hún væri góð vinkona hans. Það varð til þess að slitnaði upp úr sambandinu um tíma. Melissa giftist Um þetta leyti var mikið kvenna- stúss á Rob Lowe. Hann var mynd- aður með einni í dag og annarri á morgun, og kærusturnar hans voru margar heimsþekktar konur, svo sem Stefanía Mónakóprinsessa, Fawn Hall, einkaritarinn frægi frá Washington leikkonurnar Demi Moore og Jennifer Grey o.fl. Lítið heyrðist þá af Melissu, en allt í einu fréttist, að hún ætlaði fljótlega að giftast Bo Brinkman, sem var bæði handritahöfundur og leikari. Þau gengu í hjónaband fyrir tæpum tveimur árum og Mel- issa fæddi son, sem er nú um 8 mánaða. Sagt er að Rob Lowe hafi fengið hálfgert taugaáfall við fréttina um giftingu Melissu og Brinkmans. Það hafði oft slitnað upp úr vin- skapnum hjá Rob og Melissu, - en hann getað fengið hana til að fyrirgefa sér öll víxlsporin, en nú var ekki um það að ræða lengur, Melissa var gift öðrum manni. Það fór ekki neinum sögum af sambúð Melissu og manns hennar, en Brinkman var þó sagður vín- hneigður í meira lagi. Þau voru stödd í Hong Kong, þar sem Melissa lék í myndinni „Nætur í Kína“. Þau bjuggu á hóteli og barnið var með jteim. Þá var það nótt eina að Brink- man var drukkinn og réðst á konu sína og hótaði henni og barninu öllu illu. Hann var afbrýðisamur og ofsafenginn, svo hún greip barn- ið og lagði á flótta ásamt barnfóstr- unni, sem var með þeim á hótelinu. Brinkman hvarf af hótelinu, en öryggisverðir fundu hann eftir fjóra daga og sendu hann heim til Ameríku. Hann var lagður inn á stofnun fyrir eiturlyfj a- og drykkju- sjúklinga, og þaðan hringdi hann svo nokkru seinna til konu sinnar og „bað um gott veður“, en kunn- ugir halda að Melissa leggi ekki upp í frekari sambúð með honum. „Það er sorgleg staðreynd, að hjónabandi okkar er lokið,“ sagði 'Melissa við samstarfsfólkið. Hún bætti því við, að hún ætlaði að einbeita sér að því að hugsa um hvað barninu og henni sjálfri væri fyrir bestu. Funm ara gömul mynd af þeim Rob Lowe og Melissu Gilbert. Þau náðu alltaf saman aftur eftir hliðarspor Robs í kvennamálunum. Bo Brínkman og Melissa höfðu aðeins verið 22 mánuði í hjónabandi þegar ósköpin dundu yfir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.