Tíminn - 06.02.1990, Page 3
Þriðjudagur 6. febrúar 1990
Tíminn 3
tíl íbúóarbyggjenda
Hvað er endurereitt?
v
*inn
rinna manna á byggingarstað var
undanþegin söluskatti en er nú virðisaukaskatts-
skyld. Ákveðið hefur verið að endurgreiða virðis-
aukaskatt af vinnu manna sem unnin er á bygging-
arstað íbúðarhúsnæðis, sbr. reglugerð nr. 641/1989.
Endurgreiðslan nær í fyrsta lagi til vinnu
manna við nýbyggingu íbúðarhúsnæðis. í öðru lagi
er vsk. af vinnu við endurbætur á íbúðarhúsnæði
endurgreiddur ef heildarkostnaður (þ.e. bæði efni og
vinna) er a.m.k. 7% af fasteignamati íbúðarhúsnæð-
is eins og það er í upphafi þess árs þegar endurbætur
eiga sér stað. Ef endurbætur ná yfir fleiri en eitt
almanaksár er miðað við 7% af meðalfasteignamats-
verði viðkomandi ára.
Endurgreiðslan nær ekki til virðisaukaskatts af
t.d. vinnu stjórnenda vinnuvéla eða af hvers konar
sérfræðiþjónustu. Endurgreiðslan nærekki heldurtil
t.d. byggingarorlofshúsa.
Ef vélar eru settar upp á byggingarstað til
aðvinnslu á vöru eða efni sem að jafnaði er unnið á
verkstæði eða í verksmiðju er virðisaukaskattur af
þeirri vinnu ekki endurgreiddur.
Hverjir fá endurgreiðslu?
þ
M 5II
eir sem byggja á eigin kostnað íbúðar-
húsnæði til sölu eða til eigin nota á eigin lóð eða leigu-
lóðfáendurgreiðslu.
Hvertáaðsækjaum
enduigreiðslu?
r
E.ndurgreiðslubeiðni ersend skattstjóra
í því umdæmi þar sem umsækjandi á lögheimili.
Endurgreiðsla fæst því aðeins að umsækjandi geti
lagt fram umbeðin gögn t.d. reikninga vegna keyptrar
vinnu.
Hvenær er hægt að sækja
um enduigreiðsJu?
u
rppgjörstímabil vegna nýbyggingar er
tveir mánuðir, jan. og feb., mars og apríl, o.s.frv.
Skýrsla skal berast skattstjóra fyrir 15. dag næsta
mánaðar eftir lok uppgjörstímabils og fer endur-
greiðsla þá fram innan 20 daga.
Uppgjörstímabil vegna endurbóta er aldrei
styttra en almanaksár. Skýrsla skal berast skattstjóra
15. janúar árið eftir að endurbætur voru gerðar.
■i-
✓ •• »
> 'A T’ / *
r' *
';. TT/ *'
'-vt; ■ >>
* *
' }<l [K [’
m
■ h-
91-624422
sf ' ; >■
RÍKISSKATTSTJÓRI