Tíminn - 06.02.1990, Page 4

Tíminn - 06.02.1990, Page 4
4 Tíminn Þriðjudagur 6. febrúar 1990 FRÉTTAYFIRLIT TÓKÝÓ — Norður-Kórea lýsti yfir stuðningi sínum við umbótastefnu Gorbatsjofs í Sovétríkjunum. Norður-Kóreu- menn hafa lítið látið með um- bótabrölt Sovétmanna og Austur-Evrópubúa hingað til, enda lítið sést af umbótum í Norður-Kóreu. HÖFÐABORG — Suður- afrísk stjórnvöld hafa skorað á Nelson Mandela og Afríska þjóðarráðið að hefja strax við- ræður við stjórnvöld. AUSTUR-BERLÍN Volkskammer, austur-þýska þingið, samþykkti að ný ríkis- stjórn taki við völdum í Austur- Þýskalandi. Átta stjórnarands- töðuflokkar og samtök taka nú sæti með kommúnistum og fjórflokkunum sem mynda nú- verandi ríkisstjórn. Kommún- istar eru því í minnihluta í bráðabirgðastjórninni sem sitja á fram yfir kosningar 18. mars. Þingmenn þurftu að yfirgefa þinghúsið í klukkustund vegna sprengjuhótunar. AUSTUR-BERLÍN Ríkisstjórn Austur-Þýskalands afnam ritskoðun og innleiddi frjálsa fjölmiðlun. JÓHANNESARBORG- Fimm manns voru drepnir í átökum um helgina. Einn var bundinn við tré og í honum kveikt. KABÚL — Najibullah forseti Afganistans sagðist vona að viðræður Sovétmanna og Bandaríkjamanna um næstu helgi yrðu til þess að raunhæf lausn fyndist á málefnum Afg- anistans. Vitað er að Banda- ríkjamenn eru reiðubúnir til að samþykkja Najibullah sem forseta þar til frjálsar kosningar hafa farið fram í Afganistan. SAN JOSE — Forsetafram- bjóðandi stjórnarandstöðunn- ar á Costa Rica bar sigur úr býtum i kosningum um helg- ina. Arias forseti var ekki í kjöri þar sem stjórnarskráin bannar slíkt. SEOUL — Háskólastúdent í Suður-Kóreu var dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir að hafa heim- sótt Norður-Kóreu í leyfisleysi. ÚTLÖND Mikhaíl Gorbatsjof vill flýta flokksþingi kommúnistaflokksins til aö styrkja lýðræðið og hasta umbótum: Fjöif lokkakerf i er de i f ■ / a / ■ rm m facto í Sovétríkjunum Mikhaíl Gorhatsjof forseti Sovétríkjanna sagði í gær að í raun og veru ríkti fjölflokkakerfi „de facto“ í Sovétríkjunum. Einungis þurfi að ganga lög- formlega frá því að afnema valdaeinokun kommúnista- flokksins og því þurfi að flýta flokksþinginu sem fyrirhugað var að halda í októbermánuði. Sagði Gorbatsjof að ekkert væri því til fyrirstöðu að stjórnmála- flokkar yrðu formlega myndað- ir. Stakk Gorbatsjof upp á á fundi miðstjórnar í gær að flokksþingið yrði haldið í lok júnímánaðar eða í byrjun júlímánaðar. Flokkstjórnin þarf að samþykkja afnám valdaein- okunarinnar sem bundin er í stjórn- arskrá Sovétríkjanna. Þessar yfirlýsingar gefur Gorbat- sjof deginum eftir að 200 þúsund Moskvubúar hópuðust utan við Kremlarmúra og kröfðust þess að valdaeinokun kommúnistaflokksins yrði afnumin. Reyndar komu full- trúar kolanámumanna á fund Gor- batsjofs síðastliðinn föstudag og sögðu kommúnistaflokkinn vera dragbít á umbótaþróunina. Kröfðust þeir þess að valdaeinokun flokksins yrði aínumin. - Við eigum við mörg vandamál að stríða og við verðum að leysa þau mjög bráðlega. Og ef þú, Mikhail Sergeijevitsh, vilt leysa þau, þá mun- um við styðja þig af heilindum, sagði einn leiðtogi kolanámumannanna við Gorbatsjof, ef marka má fréttir Prövdu. Við það tækifæri gaf Gorbatsjof í skyn að valdaeinokun kommúnista- flokksins væri brátt á enda runnin. - Kommúnistaflokkurinn leggur •’ekki áherslu á valdaeinokunina og er reiðubúinn til viðræðna við alla þá sem áhuga hafa á endurnýjun sósíal- ísks þjóðfélags, sagði Gorbatsjof við kolanámumennina. Flokksþing kommúnistaflokksins sem er æðsta vald flokksins verður að leggja blessun sína yfir þá ákvörð- un að flokkurinn láti af valdaeinok- un sinni. Gorbatsjof mun á fundi miðstjórnar í gær hafa lagt fram hugmyndir um breytingu á skipulagi kommúnistaflokksins. meðal annars vill hann afnema embætti aðalritara og kjósa í staðinn formann flokksins. Auk þess hefur Gorbatsjof gefið í skyn að fleiri og róttækari umbóta- sinnar þurfi að komast í æðstu valdastofnanir kommúnistaflokks- ins. Vegna þessa lagði Gorbatsjof áherslu á að flýta flokksþinginu. Mikhaíl Gorbatsjof forseti Sovét- ríkjanna segir að í raun sé fjölflokka- kerfi til staðar í Sovétríkjunum. Ekkert sé því til fyrirstöðu að valda- einokun kommúnistaflokksins verði afnumin og að formleg stofnun stjórnmálaflokka sé tímaspursmál. Ólgan eykst í Kasmír: Indverjar skjóta Pakistana Indverskir landamæraverðir skutu Pakistana til bana og særðu þrettán þegar hópur pakistanskra mótmæl- enda ruddist yfir varnarlínu Indverja í Kasmírhéraði. Pakistaninn réðst yfir vopnahléslínu Indverja og Pak- istana sem skiptir Kamsír í tvo hluta, reif niður indverska fánann og réðst að indverskum landamæra- vörðum. Indverjarnir hófu þá skothríð með fyrrgreindum af- leiðingum. Pakistanarnir voru að mótmæla hörku Indverja við að bæla niður íslamska uppreisnarmenn í Kasmír, en þeir krefjast aðskilnaðar frá Ind- landi. Var allt athafnalíf í Pakistan lamað í gær vegna mótmælaverk- falla, en almenningur krefst þess að Indverjar láti af yfirráðum sínum í Kasmír. Átök hafa mjög aukist í Kasmír undanfarnar vikur, en héraðið er eina héraðið undir indverskri stjórn þar sem meirihluti íbúa eru múslím- ar, eins og Pakistanar. Beinum viðræðum ísraela og Palestínumanna er fram áttu að fara í Egyptalandi á næstunni nú stefnt í voða: ISRAELAR DREPNIR VIÐ KAIRO Tíu ísraelar og tveir egypskir öryggisverðir voru drepnir í árás ókunnra grímumanna á langferðabíl nærri Kaíró á sunnudaginn. Arásarmennirnir köstuðu handsprengjum og skutu úr vélbyssum á farþegana. Sextán ísraelar særðust alvarlega. Árás þessi stefnir í voða beinum friðarviðræðum ísraela og Palestínu- manna sem áttu að hefjast í Kaíró bráðlega. Herma fréttir að utanríkis- ráðherrar ísrael, Egyptalands og Bandaríkjanna hafi ætlað að hittast í Evrópu um næstu helgi til að ganga frá lokaundirbúningi fyrstu friðar- viðræðufundanna. Ekki er ljóst hvort af þcim fundi verður eftir það sem undan er gengið. Greinilegt er að öfgahópur sem setur sig á móti friðarviðræðunum hefur ákveðið að láta til skarar skríða og fremja hryðjuverk sem yrði til þess að Shantir forsætisráð- herra ísrael yrði að skipta um skoð- un og láta undan þrýstingi harðlínu- manna í Likudbandalaginu sem ekki vilja sjá friðarsamninga við Pales- tínumenn. Yitzhak Shamir forsætisráðherra ísrael skýrði frá því í fyrrakvöld, að hann hefði sagt Hosni Mubarak forseta Egyptalands að engir friðar- samningar gætu séð dagsins ljós í Miðausturlöndum fyrr en hryðju- verkum þar væri útrýmt. Mubarak hafði hringt í Shamir, vottað honum samúð sína og sagst vona að áfram- hald gæti orðið á þeirri friðarþróun sem náðst hefur undanfarnar vikur. Shamir sagði að atburðirnir í Eg- yptalandi gætu orðið til þess að miðstjórnarfundur Likudbandalags- ins sem halda átti á miðvikudag yrði frestað, en fundurinn átti að skera úr um hvort Likudbandalagið væri fylgjandi beinum viðræðum við Pal- estínumenn. Einn harðasti andstæðingur við- ræðna við Palestínumenn, Ariel Sharon viðskiptaráðherra ísrael sagði strax að árásin á langferðabif- reiðina sannaði að ekki sé hægt að ræða við Palestínumenn um nokk- urn hlut. Sharon sem hefur að undanfömu gagnrýnt Shamir mjög harðlega vegna linkindar við Pales- tfnumenn sagðist ekki efast um að hryðjuverkamennirnir væru Pales- tínumenn ogjafnvel á snærum PLO. Þrátt fyrir þá skoðun Sharons berast böndin helst að öfgafullum egypskum múslímum sem berjast gegn stjórn Hosni Mubaraks. Eftir ódæðið á sunnudag hafði maður samband við fréttastofur og sagði að áður óþekkt samtök, Samtök til varnar kúgaðra fanga í egypskum fangelsum, hafi staðið fyrir árásinni. Reyndar hefur Heilagt stríð, öfga- fullur hópur Palestínumanna einnig sagst hafa gert árásina. Þrír menn voru handteknir í Egyptalandi í gær vegna árásarinnar, en ekki er vitað hverjir þeir eru né hvort þar séu ódæðismennirnir á ferðinni. Árásin á ísraelana hefur verið fordæmd víða um heim. Hosni Mu- barak forseti Egyptalands fordæmdi hana strax, enda kemur hún mjög illa við hann og ríkisstjórn hans. Þá hafa helstu leiðtogar Palestínu- manna fordæmt árásina harðlega .og í hélt framkvæmdanenfnd Frelsis- samtaka Palestínu, PLO fund vegna málsins í gærkveldi. PLO var um það bil að leggja blessun stna yfir fyrirhugaðar friðarviðræður ísraela og Palestínumanna í Kaíró. Hins vegar kættust íranar mjög yfir árásinni og sagði hana styrkja mjög stöðu öfgafullra múslíma á hernumdu svæðunum í Palestínu. Ég heíti DODDI Eg er meyja SJÁUMSTIDANSHÖLLINNI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.