Tíminn - 10.02.1990, Side 8
8 Tíminn
MINNING
Hjonaminning:
Sigurbjörg Þórðardóttir
Fædd 14. maí 1907
Dáin 19. janúar 1990
Steindór Ragnar Benediktsson
Fæddur 1. mars 1898
Dáinn 28. janúar 1971
Kvatt hefur jarðlífið roskin kona
eftir langt sjúkdómsstríð. Þcgar rifj-
uð eru upp æviatriði hennar og
lífsstarf er við hæfi að minnast
mannsins sem hún deildi kjörum
með í yfir fjóra áratugi. Líf sam-
hentra hjóna rennur oft saman, það
er eðlilegt og þannig á það raunar að
vera. Bæði voru þau upprunnin í
sveit og þar ólu þau aldur sinn að
meginhluta, þar fæddust börn þeirra
og ólust upp. Þau skiluðu þjóðinni
mannvænlegum börnum, yrktu jörð-
ina og reistu býli þar sem áður var
aðeins beitarjörð. Ef þetta er ekki
sjálf gæfan, þá veit ég ei hvar hana
er að finna. Auðvitað er lífið ekki
óslitin röð happa og sigra, einnig
ósigrar. Skáldið frá Kirkjubóli í
Bjarnadal, Guðmundur Ingi, orðar
það snilldariega á þessa leið:
Afrek í ósigrum lífsins
er aldrei tilgangslaust.
Hjónin sem hér er minnst áttu sér
þann draum að gera landið byggi-
legra en það var, er þau hófu
lífsstarfið saman á morgni ævinnar.
Þeim tókst það. Hvað er það sem
samhent hjón geta ckki? Enginn
mannlegur félagsskapur er sigur-
stranglegri en sá er maður og kona
standa að af heilum hug, ást og
eindrægni.
Sigurbjörg og Steindór gengu í
hjónaband hinn 2. júní 1929. Hún
var fædd í Víðidal 14. maí árið 1907.
Voru foreldrar hennar hjónin Þórð-
ur Hannesson (d. 1946), bóndi í
Galtanesi, og Dýrunn Jónsdóttir (d.
1943). Þau bjuggu saman í Galtanesi
í 37 ár. Auk dótturinnar Sigurbjarg-
ar, sem hér er minnst, eignuðust þau
soninn Hannes sem tók við búi í
Galtanesi að föður sínum látnum.
Hann varð skammlífur, lést aðeins
52 ára, hinn 17. apríl 1967. Kona
hans var Jósefína Björnsdóttir, fædd
1924, nú búsett í Kópavogi. Eignuð-
ust þau tvo syni og eina dóttur sem
komust til aldurs.
Steindór Ragnar Benediktsson
var fæddur 1. mars 1898 að Torfu-
stöðum í Miðfirði. Voru foreldrar
hans hjónin Ragnheiður Guðmunds-
dóttir og Benedikt Jóhannsson sem
þar bjuggu allan sinn búskap og áttu
sex börn. Auk Steindórs voru börnin
þessi: 1. Jón, bjó lengi á Hvamms-
tanga, einhleypur. 2. Ingibjörg, bjó
á Ytri-Völlum í Kirkjuhvamms-
hreppi. 3. Björn, bjó á Torfustöð-
um. 4. Jóhann, bjó á Hvammstanga,
hann dó aðeins fimmtugur. 5. Guð-
rún, hún var yngst af þeim systkin-
um.
Steindór og Sigurbjörg hófu bú-
skap í Galtanesi, föðurleifð hennar,
eftir að þau giftu sig, sem fyrr er frá
greint í þessari samantekt. En þau
áttu sér þann draum að vera sjálf-
stæðar manneskjur. Þau fengu til
eignar hluta úr landi Galtaness og
nefndu Brautarland. Þar varð að
byggja allt frá grunni. Landið varð
einnig að.rækta. Þetta var mikið
verkefni ungum hjónum og tímarnir
voru allt annað en hagstæðir. Hin
magnaða fjárhagskreppa sem hófst
1929 lék marga grátt, ekki síst bænd-
ur þessa lands. Þá var mæðiveikin
ekkert lamb að leika sér við. Á
henni fengu þau að kenna svo að um
munaði. En allt hélst þó í horfinu,
því bæði voru dugleg, hagsýn og
reglusöm. Steindór var að vísu lengst
af fremur heilsutæpur en var þó
mjög duglegur verkmaður. í Braut-
arlandi bjuggu þau öll sín bestu
starfsár. Árið 1963 fékk Steindór
hjartaáfall. Var þá ekki um annað
að gera en hætta búskap. Fluttust
þau þá til Reykjavíkur og festu þar
kaup á góðri íbúð í Ljóshcimum 22.
Steindór rétti við hvað heilsu snerti
er suður var komið og tók upp störf.
Vann hann til dauðadags að kalla
hjá Ríkisútvarpinu. Sigurbjörg vann
á Kleppsspítala meðan heilsan
entist.
En lífið var ekki eingöngu starf og
strit hjá þeim hjónum. Þau höfðu
bæði yndi af fögrum tónum. Hann
lék á harmóníum, sem raunar var
aidrei nefnt annað en orgel í sveitum
þessa lands. Hann var kirkjuorgan-
isti í Víðidalstungu allan sinn búskap
í Víðidal. Hann kenndi og nokkrum
að leika á hljóðfæri, meðal annarra
Hannesi mági sínum í Galtanesi, er
síðar tók við starfi hans sem kirkju-
organisti. Heima í Brautarholti voru
kórar æfðir iðulega, þar var þá mikið
sungið eins og að líkum lætur. Það
fyrsta sem þau hjón keyptu, er flutt
var að Brautarlandi, var harmóníum
er kostaði 700 krónur, stórfé árið
1936. Mörgum fannst það mögnuð
óráðsía, en bóndinn í Galtanesi gat
sagt eins og skáldið góða frá Fagra-
nesi: „Hjartað heimtar meira en
húsnæði og brauð.“
Þegar upp er gert ævistarf hjóna
fer ekki hjá því að nefnt sé það sem
þau lögðu dýrast fram: börnin
þeirra. Við lifum að nokkru áfram í
börnum okkar. Hér skal að lokum
getið barna Sigurbjargar og Stein-
dórs er upp komust:
1. Þórunn. Fædd 14. apríl 1932,
gift Tryggva Kristjánssyni. Þau búa
á Akureyri, eiga þrjá syni og eina
dóttur.
2. Benedikt. Fæddur 18. júlí 1939,
búsettur í Garðabæ, kvæntur Þór-
eyju Eyjólfsdóttur, eiga tvær dætur
og einn son.
3. Ingólfur Arnar. Fæddur9. ágúst
1942, kvæntur Ingu Þyri Kjartans-
dóttur, þau eru búsett í Kópavogi og
eiga eina dóttur. Með fyrri konu
sinni, Ólöfu Haraldsdóttur, eignað-
ist hann son sem nú er tæplega
tvítugur. Þau skildu.
4. Dýrunn Ragnheiður. Fædd 4.
Laugardagur 10. febrúar 1990
ágúst 1945, búsett í Reykjavík, gift
Sverri Haraldssyni, þau eiga tvær
dætur.
5. Hér hefur barna þeirra Sigur-
bjargar og Steindórs, er upp komust,
verið getið. Fyrsta barn sitt, er
fæddist 9. maí 1930 og hlaut í
skírninni nafnið Þórunn Ragnhildur,
misstu þau hjón tæplega ársgamalt.
Olli það þeim að vonum miklum
harmi.
En sem betur fór eignuðust þau
börn síðar sem reyndust þeim vel,
ekki síst henni sem síðustu árin var
vistkona í Hátúni, farin að heilsu og
kröftum. Dauðinn var henni mikil
líkn, eins og komið var heilsu
hennar. Hún andaðist á Landspítal-
anum aðfaranótt föstudagsins 19.
janúar sl., tæplega 83 ára að aldri.
Hún var lögð til hinstu hvíldar við
hlið manns síns í Fossvogskirkju-
garði.
Hér hefur verið reynt að bregða
nokkru Ijósi á ævi hjóna sem skiluðu
góðu dagsverki vegna þess hversu
samhent þau voru. Þau máttu vart af
hvort öðru sjá. Líf þeirra var oft
erfitt, en örðugleikarnir þjöppuðu
þeim saman. Barnabörn þeirra eru
orðin 11 að tölu og barnabarnabörn-
in 3. „Lífið heldur áfram Austur-
stræti,“ yrkir Tómas Guðmundsson,
og hann bætir við: „Og önnur kyn-
slóð tekur við af hinni ...“ Þessi
sannleikur endurtekur sig sífellt.
Mest er um vert að skila framtíðinni
einhverju. Það má telja að Sigur-
björg og Steindór hafi gert. Líf
þeirra bar ríkulegan ávöxt. Blessuð
sé minning þeirra og líf.
A.B.S.
Kveðja frá mágkonu
Þegar Sigurbjörg frá Galtanesi er
öll langar mig til að kveðja hana með
nokkrum orðum.
Er ég ung að árum giftist Hannesi
bróður hennar og stóð fyrir búi
ásamt honum á föðurleifð hans,
Galtanesi, urðu Sigurbjörg og
Steindór, maður hennar, næstu ná-
grannar okkar. En þau voru meira
en það. Þau voru hollvinir og hjálp-
endur. Fyrir mig sem óreynda, unga
konu var mikils virði að geta leitað
til Sigurbjargar um ráðgjöf í dagleg-
um störfum húsmóðurinnar. Til þess
var hún ætíð reiðubúin.
Oft kom ég að Brautarlandi og við
bæði þá tæpa tvo áratugi sem þau
voru nágrannar okkar, Sigurbjörg
og Steindór.
Heimili þeirra var glaðvært. Hús-
bóndinn lék á orgel og hafði yndi af
tónlist. Sem unglingur í vist hjá séra
Jóhanni Kr. Briem á Melstað nam
hann orgelleik. Einnig hafði hann
stundað nám í þessari listgrein í
Reykjavík.
Sigurbjörg eignaðist góðan eig-
inmann, henni samboðinn.
Enginn fær umflúið ellina og þá
hrörnun sem henni fylgir og nú er
Sigurbjörg frá Galtanesi horfin frá
okkur. Hinn efnislegi líkami hennar
hefur verið lagður til hinstu hvíldar
í skaut fósturjarðarinnar, við hlið
elskaðs eiginmanns.
Ég geymi einungis ljúfar minning-
ar um Sigurbjörgu mágkonu mína
og bið ég henni blessunar um tíma
og eilífð.
Jósefina Björnsdóttir
frá Galtanesi
Bújörð vantar
Leitum að jörð með eða án fullvirðisréttar fyrir
ákveðinn kaupanda, æskileg staðsetning Suður-
eða Vesturland. Nánari upplýsingar gefur Magnús
Leópoldsson á skrifstofu okkar.
Fasteignamiðstöðin
Skipholti 50B,
sími 622030 og 14120.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Sigmar Jónasson
Hamraborg 26, Kópavogi
lést að kvöldi 8. febrúar í Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð.
Jakobína Þorvaldsdóttir
Þorvaldur Sigmarsson Elín Richard
Hólmfríður Sigmarsdóttir Eðvald Geirsson
barnabörn
t
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
Karítasar Guðmundsdóttur
Bjarmastíg 2, Akureyri
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Dvalarheimilinu Hlíð fyrir elsku-
semi og góða umönnun. Guð blessi ykkur öll.
Fjölskyldan
llllllllllllllllllllllllllll LESENDUR SKRIFA lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^
Lítið bréf til
Bubba Morthens
Rétt eins og aðrir nefni ég þig
Bubba og komdu sæll!
Til hægri og vinstri velti ég mér í
rúminu í nótt. Gat ekki sofið. Teygði
mig eftir lesefni. Kom að grein í
helgarblaði sem ég einhverra hluta
vegna hafði ekki lesið.
Kannski var það vegna þess að ég
er orðinn sextugur.
Þetta var ágætt spjall við þig í
batnandi blaði.
Glaðvakandi eftir lesturinn er
fyrsta hugsunin:
Loksins er kominn ungur fjöl-
miðlamaður sem veit hvar hjartað
slær.
Þorir að skella hurðum á þennan
eldri lýð sem allt of lengi hefir legið
vælandi í hverju horni. Sér að hjúin
eru orðin allt of mörg sem telja sig
hafa efni á að úthúða lífsbjörginni.
Er það vegna erfða eða uppeldis
að svo er komið?
Við frumbyggjar þessa lands vilj-
um ekki komast niður á það stig sem
kollegar okkar og vinir á Nýja-Sjá- -
landi voru keyrðir á nokkrum árum.
Okkur er nú sagt að kindakjöt fáist
þar ódýrt.
Við getum séð fyrir okkur fyrsta
íslenska bóndann með nautshom á
höfði og atgeir í hendi, hoppandi um
óslegin tún til augnayndis fyrir
„höfðingja" útlendra bandalaga.
í sjávarþorpinu gæti Thor aftur
farið að veiða marhnút af brotinni
bryggjunni.
Gluggalaus húsin í brekkunni
stara niður til hans eins og gráhvít
hauskúpan af þögla sauðnum í mó-
anum fyrir ofan.
Fögur sjón það!
Þakka þér fyrir. Góðan dag og
gangi þér vel á þinni braut.
Jón Kristinsson
bóndi, Lambey
Fundarefni: 1.
Frá Félagi eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni
Félagsfundur verður haldinn í Goðheimum, Sig-
túni 3, miðvikudaginn 14. febrúar n.k. kl. 20.00.
Kynnt ný reglugerð um stofnunar-
þjónustu aldraðra og vistunarmat.
Fimm ára áætlun félagsmálaráð-
herra um úrlausn í húsnæðismál-
um aldraðra.
Kynntar tillögur að lagabreyting-
um.
Önnur mál.
3.
4.
Allir velkomnir.