Tíminn - 10.02.1990, Síða 8

Tíminn - 10.02.1990, Síða 8
8 Tíminn MINNING Hjonaminning: Sigurbjörg Þórðardóttir Fædd 14. maí 1907 Dáin 19. janúar 1990 Steindór Ragnar Benediktsson Fæddur 1. mars 1898 Dáinn 28. janúar 1971 Kvatt hefur jarðlífið roskin kona eftir langt sjúkdómsstríð. Þcgar rifj- uð eru upp æviatriði hennar og lífsstarf er við hæfi að minnast mannsins sem hún deildi kjörum með í yfir fjóra áratugi. Líf sam- hentra hjóna rennur oft saman, það er eðlilegt og þannig á það raunar að vera. Bæði voru þau upprunnin í sveit og þar ólu þau aldur sinn að meginhluta, þar fæddust börn þeirra og ólust upp. Þau skiluðu þjóðinni mannvænlegum börnum, yrktu jörð- ina og reistu býli þar sem áður var aðeins beitarjörð. Ef þetta er ekki sjálf gæfan, þá veit ég ei hvar hana er að finna. Auðvitað er lífið ekki óslitin röð happa og sigra, einnig ósigrar. Skáldið frá Kirkjubóli í Bjarnadal, Guðmundur Ingi, orðar það snilldariega á þessa leið: Afrek í ósigrum lífsins er aldrei tilgangslaust. Hjónin sem hér er minnst áttu sér þann draum að gera landið byggi- legra en það var, er þau hófu lífsstarfið saman á morgni ævinnar. Þeim tókst það. Hvað er það sem samhent hjón geta ckki? Enginn mannlegur félagsskapur er sigur- stranglegri en sá er maður og kona standa að af heilum hug, ást og eindrægni. Sigurbjörg og Steindór gengu í hjónaband hinn 2. júní 1929. Hún var fædd í Víðidal 14. maí árið 1907. Voru foreldrar hennar hjónin Þórð- ur Hannesson (d. 1946), bóndi í Galtanesi, og Dýrunn Jónsdóttir (d. 1943). Þau bjuggu saman í Galtanesi í 37 ár. Auk dótturinnar Sigurbjarg- ar, sem hér er minnst, eignuðust þau soninn Hannes sem tók við búi í Galtanesi að föður sínum látnum. Hann varð skammlífur, lést aðeins 52 ára, hinn 17. apríl 1967. Kona hans var Jósefína Björnsdóttir, fædd 1924, nú búsett í Kópavogi. Eignuð- ust þau tvo syni og eina dóttur sem komust til aldurs. Steindór Ragnar Benediktsson var fæddur 1. mars 1898 að Torfu- stöðum í Miðfirði. Voru foreldrar hans hjónin Ragnheiður Guðmunds- dóttir og Benedikt Jóhannsson sem þar bjuggu allan sinn búskap og áttu sex börn. Auk Steindórs voru börnin þessi: 1. Jón, bjó lengi á Hvamms- tanga, einhleypur. 2. Ingibjörg, bjó á Ytri-Völlum í Kirkjuhvamms- hreppi. 3. Björn, bjó á Torfustöð- um. 4. Jóhann, bjó á Hvammstanga, hann dó aðeins fimmtugur. 5. Guð- rún, hún var yngst af þeim systkin- um. Steindór og Sigurbjörg hófu bú- skap í Galtanesi, föðurleifð hennar, eftir að þau giftu sig, sem fyrr er frá greint í þessari samantekt. En þau áttu sér þann draum að vera sjálf- stæðar manneskjur. Þau fengu til eignar hluta úr landi Galtaness og nefndu Brautarland. Þar varð að byggja allt frá grunni. Landið varð einnig að.rækta. Þetta var mikið verkefni ungum hjónum og tímarnir voru allt annað en hagstæðir. Hin magnaða fjárhagskreppa sem hófst 1929 lék marga grátt, ekki síst bænd- ur þessa lands. Þá var mæðiveikin ekkert lamb að leika sér við. Á henni fengu þau að kenna svo að um munaði. En allt hélst þó í horfinu, því bæði voru dugleg, hagsýn og reglusöm. Steindór var að vísu lengst af fremur heilsutæpur en var þó mjög duglegur verkmaður. í Braut- arlandi bjuggu þau öll sín bestu starfsár. Árið 1963 fékk Steindór hjartaáfall. Var þá ekki um annað að gera en hætta búskap. Fluttust þau þá til Reykjavíkur og festu þar kaup á góðri íbúð í Ljóshcimum 22. Steindór rétti við hvað heilsu snerti er suður var komið og tók upp störf. Vann hann til dauðadags að kalla hjá Ríkisútvarpinu. Sigurbjörg vann á Kleppsspítala meðan heilsan entist. En lífið var ekki eingöngu starf og strit hjá þeim hjónum. Þau höfðu bæði yndi af fögrum tónum. Hann lék á harmóníum, sem raunar var aidrei nefnt annað en orgel í sveitum þessa lands. Hann var kirkjuorgan- isti í Víðidalstungu allan sinn búskap í Víðidal. Hann kenndi og nokkrum að leika á hljóðfæri, meðal annarra Hannesi mági sínum í Galtanesi, er síðar tók við starfi hans sem kirkju- organisti. Heima í Brautarholti voru kórar æfðir iðulega, þar var þá mikið sungið eins og að líkum lætur. Það fyrsta sem þau hjón keyptu, er flutt var að Brautarlandi, var harmóníum er kostaði 700 krónur, stórfé árið 1936. Mörgum fannst það mögnuð óráðsía, en bóndinn í Galtanesi gat sagt eins og skáldið góða frá Fagra- nesi: „Hjartað heimtar meira en húsnæði og brauð.“ Þegar upp er gert ævistarf hjóna fer ekki hjá því að nefnt sé það sem þau lögðu dýrast fram: börnin þeirra. Við lifum að nokkru áfram í börnum okkar. Hér skal að lokum getið barna Sigurbjargar og Stein- dórs er upp komust: 1. Þórunn. Fædd 14. apríl 1932, gift Tryggva Kristjánssyni. Þau búa á Akureyri, eiga þrjá syni og eina dóttur. 2. Benedikt. Fæddur 18. júlí 1939, búsettur í Garðabæ, kvæntur Þór- eyju Eyjólfsdóttur, eiga tvær dætur og einn son. 3. Ingólfur Arnar. Fæddur9. ágúst 1942, kvæntur Ingu Þyri Kjartans- dóttur, þau eru búsett í Kópavogi og eiga eina dóttur. Með fyrri konu sinni, Ólöfu Haraldsdóttur, eignað- ist hann son sem nú er tæplega tvítugur. Þau skildu. 4. Dýrunn Ragnheiður. Fædd 4. Laugardagur 10. febrúar 1990 ágúst 1945, búsett í Reykjavík, gift Sverri Haraldssyni, þau eiga tvær dætur. 5. Hér hefur barna þeirra Sigur- bjargar og Steindórs, er upp komust, verið getið. Fyrsta barn sitt, er fæddist 9. maí 1930 og hlaut í skírninni nafnið Þórunn Ragnhildur, misstu þau hjón tæplega ársgamalt. Olli það þeim að vonum miklum harmi. En sem betur fór eignuðust þau börn síðar sem reyndust þeim vel, ekki síst henni sem síðustu árin var vistkona í Hátúni, farin að heilsu og kröftum. Dauðinn var henni mikil líkn, eins og komið var heilsu hennar. Hún andaðist á Landspítal- anum aðfaranótt föstudagsins 19. janúar sl., tæplega 83 ára að aldri. Hún var lögð til hinstu hvíldar við hlið manns síns í Fossvogskirkju- garði. Hér hefur verið reynt að bregða nokkru Ijósi á ævi hjóna sem skiluðu góðu dagsverki vegna þess hversu samhent þau voru. Þau máttu vart af hvort öðru sjá. Líf þeirra var oft erfitt, en örðugleikarnir þjöppuðu þeim saman. Barnabörn þeirra eru orðin 11 að tölu og barnabarnabörn- in 3. „Lífið heldur áfram Austur- stræti,“ yrkir Tómas Guðmundsson, og hann bætir við: „Og önnur kyn- slóð tekur við af hinni ...“ Þessi sannleikur endurtekur sig sífellt. Mest er um vert að skila framtíðinni einhverju. Það má telja að Sigur- björg og Steindór hafi gert. Líf þeirra bar ríkulegan ávöxt. Blessuð sé minning þeirra og líf. A.B.S. Kveðja frá mágkonu Þegar Sigurbjörg frá Galtanesi er öll langar mig til að kveðja hana með nokkrum orðum. Er ég ung að árum giftist Hannesi bróður hennar og stóð fyrir búi ásamt honum á föðurleifð hans, Galtanesi, urðu Sigurbjörg og Steindór, maður hennar, næstu ná- grannar okkar. En þau voru meira en það. Þau voru hollvinir og hjálp- endur. Fyrir mig sem óreynda, unga konu var mikils virði að geta leitað til Sigurbjargar um ráðgjöf í dagleg- um störfum húsmóðurinnar. Til þess var hún ætíð reiðubúin. Oft kom ég að Brautarlandi og við bæði þá tæpa tvo áratugi sem þau voru nágrannar okkar, Sigurbjörg og Steindór. Heimili þeirra var glaðvært. Hús- bóndinn lék á orgel og hafði yndi af tónlist. Sem unglingur í vist hjá séra Jóhanni Kr. Briem á Melstað nam hann orgelleik. Einnig hafði hann stundað nám í þessari listgrein í Reykjavík. Sigurbjörg eignaðist góðan eig- inmann, henni samboðinn. Enginn fær umflúið ellina og þá hrörnun sem henni fylgir og nú er Sigurbjörg frá Galtanesi horfin frá okkur. Hinn efnislegi líkami hennar hefur verið lagður til hinstu hvíldar í skaut fósturjarðarinnar, við hlið elskaðs eiginmanns. Ég geymi einungis ljúfar minning- ar um Sigurbjörgu mágkonu mína og bið ég henni blessunar um tíma og eilífð. Jósefina Björnsdóttir frá Galtanesi Bújörð vantar Leitum að jörð með eða án fullvirðisréttar fyrir ákveðinn kaupanda, æskileg staðsetning Suður- eða Vesturland. Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson á skrifstofu okkar. Fasteignamiðstöðin Skipholti 50B, sími 622030 og 14120. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Sigmar Jónasson Hamraborg 26, Kópavogi lést að kvöldi 8. febrúar í Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Jakobína Þorvaldsdóttir Þorvaldur Sigmarsson Elín Richard Hólmfríður Sigmarsdóttir Eðvald Geirsson barnabörn t Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför Karítasar Guðmundsdóttur Bjarmastíg 2, Akureyri Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Dvalarheimilinu Hlíð fyrir elsku- semi og góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Fjölskyldan llllllllllllllllllllllllllll LESENDUR SKRIFA lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^ Lítið bréf til Bubba Morthens Rétt eins og aðrir nefni ég þig Bubba og komdu sæll! Til hægri og vinstri velti ég mér í rúminu í nótt. Gat ekki sofið. Teygði mig eftir lesefni. Kom að grein í helgarblaði sem ég einhverra hluta vegna hafði ekki lesið. Kannski var það vegna þess að ég er orðinn sextugur. Þetta var ágætt spjall við þig í batnandi blaði. Glaðvakandi eftir lesturinn er fyrsta hugsunin: Loksins er kominn ungur fjöl- miðlamaður sem veit hvar hjartað slær. Þorir að skella hurðum á þennan eldri lýð sem allt of lengi hefir legið vælandi í hverju horni. Sér að hjúin eru orðin allt of mörg sem telja sig hafa efni á að úthúða lífsbjörginni. Er það vegna erfða eða uppeldis að svo er komið? Við frumbyggjar þessa lands vilj- um ekki komast niður á það stig sem kollegar okkar og vinir á Nýja-Sjá- - landi voru keyrðir á nokkrum árum. Okkur er nú sagt að kindakjöt fáist þar ódýrt. Við getum séð fyrir okkur fyrsta íslenska bóndann með nautshom á höfði og atgeir í hendi, hoppandi um óslegin tún til augnayndis fyrir „höfðingja" útlendra bandalaga. í sjávarþorpinu gæti Thor aftur farið að veiða marhnút af brotinni bryggjunni. Gluggalaus húsin í brekkunni stara niður til hans eins og gráhvít hauskúpan af þögla sauðnum í mó- anum fyrir ofan. Fögur sjón það! Þakka þér fyrir. Góðan dag og gangi þér vel á þinni braut. Jón Kristinsson bóndi, Lambey Fundarefni: 1. Frá Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Félagsfundur verður haldinn í Goðheimum, Sig- túni 3, miðvikudaginn 14. febrúar n.k. kl. 20.00. Kynnt ný reglugerð um stofnunar- þjónustu aldraðra og vistunarmat. Fimm ára áætlun félagsmálaráð- herra um úrlausn í húsnæðismál- um aldraðra. Kynntar tillögur að lagabreyting- um. Önnur mál. 3. 4. Allir velkomnir.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.