Tíminn - 10.02.1990, Qupperneq 15
Laugardagur 10. febrúar 1990
Tíminn 27
ÁSJÓ
A
SVIÐI
- Árni Tryggvason í helgarspjalli
Árni Tryggvason, leikari og
trillukarl með meiru, er fslending-
um að góðu kunnur. Hann á að
baki áratuga leikferil hjá Þjóð-
Ieikhúsinu og víðar, m.a. sem
gestaleikari hjá Leikfélagi Akur-
eyrar. Árni er enn í eldlínunni, þar
sem hann leikur aðalhlutverkið í
sýningunni „Heill sé þér, þorskur"
sem frumsýnd verður hjá Leikfé-
lagi Akureyrar í kvöld. En lífið hjá
Árna snýst ekki eingöngu um leik-
list. Á hverju vori þegar ströngu
leikári er lokið hverfur hann ásamt
eiginkonu sinni til Hríseyjar og
stundar trilluútgerð yfir sumartím-
ann. Til að forvitnast aðeins um
sýninguna og lífið og tilveruna
almennt var Árni fenginn í stutt
spjall.
Segðu mér svolítið frá sýning-
unni og þessum karli sem þú átt að
leika.
Þetta leikrit fjallar um sjómenn
og sjómennsku og pínulítið um
dauðann því þetta gerist í kirkju-
garði. Rauði þráðurinn er barátta
litla karlsins við þann stóra eins og
svo algengt er. En þetta er létt og
skemmtilegt verk. mikið sungið og
meira að segja slegið upp dansleik
í garðinum. Þarna þvælist saman
dautt og lifandi svo ég trúi ekki
öðru en fólk hafi gaman af þessu
og eigi skemmtilega kvöldstund
með okkur.
Karlinn, sem ég leik, er svolítið
sérkennilegur náungi, fyrrverandi
sjómaður sem hrökklaðist í land út
af meini í fæti. Hann er bitur út í
útgerðarmanninn sem hann var
hjá og kemur það fram í því að
hann vill vera stærri í dauðanum.
Þetta verk gerist í kirkjugarði og
þar er grafhýsi útgerðarmannsins.
Honum finnst hann eiga útgerðar-
manninum grátt að gjalda frá því
þeir voru saman fyrir þrjátíu árum.
Karlinn segir að hann hafi haldið
niðri laununum þeirra og jafnvel
stolið af þeim fiskinum. Minn mað-
ur vill nú ná sér niðri á útgerðar-
manninum með því að byggja sér
stærra grafhýsi en útgerðarmaður-
inn en auðvitað fær hann það ekki
því hann er ekki nógu stór. Þessi
útgerðarmaður hefur verið einn af
þessum gömlu sem áttu heilu þorp-
in og réðu bókstaflega hvað fólk
fékk. Þetta þekkjum við úr sög-
unni. Þessi beiskja ristir nú ekkert
voðalega djúpt. Hann er t.d. alltaf
tilbúinn að leika sér við krakka
sem koma þarna í garðinn og
virðist vera ósköp góður svona inn
við beinið, hrekklaus og góð sál.
Kannski hefur hann verið allt of
meinlaus við útgerðarmanninn á
sínum tíma. En hver réð við þessa
stóru karla? En þetta er ósköp
skemmtilegur karl og mér finnst
gaman að leika hann.
Nú hefur þú stundað sjóinn,
þekkirðu þennan karl og þetta líf
hans?
Margt af þessu er náttúrlega
kunnuglegt. Þegar hann er að
spjalla um sjóinn sem slíkan, fiski-
miðin og aflann. Hann segir t.d. að
fiskurinn hafi verið svo mikill, eins
og kekkþykkur grautur í kringum
bátinn, svo næstum hafi verið hægt
að grípa hann með höndunum. Eg
hef reyndar ekki séð jafnmikla
gengd og hann lýsir en ég hef séð
þorsk vaða. Við vorum staddir við
Gjögur í gífurlegum fiski og hann
var svo ofarlega að við sáum þegar
hann tók. Svo eins og hendi væri
veifað hætti hann að taka, það
urðu sporðaköst um allan sjó og
hann var farinn. Þetta er alveg
óskiljanlegt, en stórkostleg sjón.
Nú, sjórinn togar alltaf eins og
með karlinn í þessu verki. Hann
fer á sjóinn aftur því hann helst
ekki við í landi. En þá er hann líka
orðinn sáttur við allt.
Þú hefur leikið hér á Akureyri
áður?
Já, ég kom hér 1980 og lék í
Ámi Tryggvason, leikari og sjósóknari, ásamt konu sinni, Kristínu Nikulásdóttur.
„Beðið eftir Godot“. 1985-1986
lék ég í „Jólaævintýri" og „Silfur-
tunglinu". Ég er hér núna í Þorsk-
inum og verð í næsta verkefni líka.
Mér líkar vel að vera á Akureyri
núorðið.
Akureyri var aldrei neitt sérstök
í mínum huga. Ég held að ástæðan
sé sú að þegar ég var 10 ára
klemmdi ég mig á eina bílnum sem
til var í Hrísey og þurfti að vera hér
í sex vikur. Ég held að ég hafi
grenjað mig í svefn á hverju kvöldi
út af leiðindum. Það eimdi lengi
eftir af þessu en ég er farinn að
kunna ágætlega við mig núna.
Akureyri er fallegur staður og
kyrrðin hérna og lognið er alveg
dásamlegt. Konunni minni hefur
hins vegar alltaf líkað vel hérna og
gæti vel hugsað sér að setjast hér
að. Hún fylgir mér alltaf í svona
útilegur og ég tek helst ekki að mér
svona verkefni nema hún komi
með.
Ertu hættur hjá Þjóðleikhúsinu?
Já, ég er hættur þar sem fastráð-
inn leikari. Ég er búinn að vera þar
í 30 ár, en í heildina held ég að
þetta sé 45. leikárið mitt. Ég er
ekki hættur að leika en vil gjarnan
hafa eitthvert val. Fastráðnir
leikarar hafa ekkert val. Ef þeim
er sagt að leika hund þá verða þeir
að leika hund þótt þeir hafi ekkert
gaman af því. Við höfum fram að
þessu verið við róðra yfir sumar-
tímann. Þessi trilla var keypt sem
nokkurs konar elliheimili og ætlun-
in var að þegar færi að hægjast um
hjá mér yrðum við í Hrísey helm-
inginn af árinu og fyrir sunnan hinn
helminginn. Við viljum gjarnan
vera þarna á sumrin og veiða
meðan við getum og erum við góða
heilsu. Ef við fáum þá leyfi hjá því
opinbera, því nú ætla þeir að fara
að herða eitthvað að sportveiði-
mönnum og leyfa okkur ekki að
veiða nema bara í soðið. Vanir
sjómenn eiga náttúrlega erfitt með
að sætta sig við það. Að kaupa leyfi
fyrir nokkur þúsund krónur og fá
svo bara að veiða í soðið. Mér
finnst það út í hött. Ég er ekki að
segja að við ættum að fá að veiða
alveg ótakmarkað en það er ekki
hægt að stoppa mann alveg. Þetta
er ekkert magn sem maður veiðir
og það er margt fullorðið fólk sem
hefur lagt út í trillukaup til að hafa
eitthvað við að vera en svo á bara
að stoppa það af. Þetta er rugl
þegar vitað er að nýtanlegum fiski
er kastað fyrir borð af togurunum
og stærri bátunum. Þetta er viður-
kennt bæði af skipstjórum og
f f| yfí:-
öðrum. Svo það eru ekki trillukarl-
arnir sem eru að tortíma stofnun-
um, því við sleppum aftur smáfiski,
svo fremi sem hann er fær um að
bjarga sér.
En maður vonar að úr rætist.
Það að geta komist norður í kyrrð-
ina á vorin og farið á skak hefur
bjargað miklu fyrir mig. Þetta er
svo mikil afslöppun því maður er
vægast sagt útbrunninn eftir leikár-
ið. Ég efast um að fólk sem sér
fullbúna leiksýningu geri sér grein
fyrir hversu mikill darraðardans
hefur átt sér stað á meðan verið er
að móta hana. Nú Hrísey er að
miklu leyti mínar æskuslóðir og við
stöndum okkur að því hjónin að
segja heim ef við erum að lala um
Hrísey. HIÁ - Akureyri
Jörð óskast til kaups
Leitum að jörð á vestanverðu landinu með eða án
fullvirðisréttar, góðu íbúðarhúsi en útihús mega
vera léleg eða jafnvel engin. Hlunnindi til útivistar
æskileg. Örar greiðslur fyrir góða eign. Hafið
samband í síma 91-54995.
r - Grímuböll
30 gerðir af grímubúningum. T.d. Batman,
Superman, Zorro, Ninja, Sjoræningja, Hróa,
Trúða, Hjúkrunar, Strápils, Fanga, Indíána,
Kúreka, Kokka, Sveppa, Músa.
Hattar: Kúlu, Töfra, Pípu, Bast, Mexikana,
Indíána. Einnig: Fjaðrir, bogar, byssur, sverð,
gieraugu, andlitslitir o.fl. o.fl.
Pantið tímanlega fyrir öskudaginn.
Póstsendum.
Leikfangahúsið, Skólavörðustíg 8.
S. 14806.
MÁLMHÚS
Ert þú að hugsa um að
byggja t.d. iðnaðarhúsnæði,
verkstæði,
áhaldahús, gripahús,
bílskúr eða eitthvað annað?
Þá eigum við efnið fyrir þig.
Uppistöður, þakbitar og lang-
bönd eru valsaðir stálbitar og
allt boltað saman á byggingar-
stað. Engin suðuvinna, ekkert
timbur. Allt efni í málmgrind
galvaniserað.
Upplýsingai gefa:
MÁLMIÐJAN HF.
SALAN HF.
Sími 91-680640
w—m^^mmmmm*
Búgjngar og höfuðföt
í yfir 20 gerðum
ásamt miklu
úrvali af
byssum og
bogum.
Einnig
grínvörur
í úrvali
Sendum í póstkröfu um land allt.
VERSLUNIN UNDRALAND
Glæsibæ, Reykjavík
Sími: 91681640