Tíminn - 17.02.1990, Síða 9
Laugardagur 17. febrúar 1990
HELGIN
9
I í TIMANS RÁS
ATLI
MAGNÚSSON: P
Hugsjónalausir tímar
Það er alveg áreiðanlegt að jafti
husjónalausra tíma og við nú lifiim
hafa ekki gerst dœmi sl. tvö hundr-
uð ár. Með frönsku byltinginni og
lengst af síðan var lítið lát á kenn-
ingasmiðum í heimspeki og ekki
síst hagfrœði, sem œtluðu sér að
lœkna mannkindina fyrir fullt og
allt af gömlum meinsemdum henn-
ar og urðu sér úti um misjafnlega
nett tól í þeim tilgangi, í versta falli
geldingajám og glóðartengur. Má
enda segja að mannkynssagan frá
1789 og fram til þessa sé örum sett
eftir kynnin af þessum lœknisdóm-
um og mörg em kaunin ógróin enn.
Það kemur auðvitað í hlut sagn-
frœðinganna að meta það í ljósi
reynslunnar hvað af þessu má virð-
ast hafa verið kvalrœðisins virði.
Menn virðast nokkuð sammála um
að franska byltingin hafi verið þarf-
legt framtak, þrátt fyrir sinn
„thermidor", enda kœttust Frakkar
yfir miimingu hennar í fyrra. Eins
þykja ftumkvöðlar jafhaðarhusjón-
arinnar hafa vel forþént sinn sess í
„debet“ dálki hinnar sögulegu bók-
foerslu, þar sem óumdeilanlega
fleyttu þeir kjömm almúgafólks
fram á við með baráttu sinni. Eftir-
tektarvert er samt að þeir hljóta þvf
jákvœðari umsögn sem þeir em
fjœr í tímanum, því eftir rússnesku
byltinguna hefur svo margt gmgg-
ugt slœðst í deiglu hreinna hugsóna
að úr henni er vandi að veiða eitt-
hvað grómlaust. Sérstaklega nú
hina síðustu tíma, þegar sífellt betur
kemur f ljós að ráðsmennskan hjá
ráðstjóminni hefur verið lítið skárri
en í sjálfum fasismanum, sem var jú
einn hressingarkúrinn í tilbót.
Viðbrögð unga fólksins (miðast
ekki allt við unga fólkið?!) nú til
dags virðast því vera þau að hœtta
alveg að velta fyrir sér hugsjónum.
Það þykist hvort sem er hafa séð að
flest þess háttar leiðir aðeins til
ringulreiðar og endema, sem best er
að skipta sér ekki af. Því lítur það
ekki lengur á myndir af miklum
leiðtogum, heldur fœr sér spegil og
horfir á sjálft sig. „Hugsjón“ þess er
það sjálft, fagurt útlit, góður lclœðn-
aður, vel lukkað ástafar í sem mestu
magni, bíll og farsími, helst í stöð-
ugu sambandi við Kaupþing. Partur
af myndinni er svo rétt valin náms-
braut, sem yfirgnœfandi líkur benda
til að endi í óþrjótandi vellystingum
fyrir miðjan aldur. Misalvarlegt
fbndur við einhverja listgrein má
vel vera með, komist það fyrir á
stundaskránni, því ungt fólk leggur
hart að sér nú á dögum - - en ekki
fyrir annan málstað en sig sjálft.
Vitanlega er ekki sami ljóminn
yfir þessu nýfundna goði „mér
sjálfum (sjálfri)“ og öllum árroðun-
um og sólaruppkomunum sem
menn þóttust sjá hér áður. Engin
skáld munu yrkja hyllingaróð um
forstjóra kauphallanna eða við-
skiptabandalaganna, sem fá hjörtun
til að slá hraðar. Nema þá að það
verði gerðar sjónvarpsseríur um þá
krœfustu þeirra að þeim gegnum.
En óhrekjanlegt er þeir hafa það
fram yfir margar hetjur hugsjón-
anna að hvorki reka þeir fanganý-
Iendur né draga um hálsinn á fólki
— ekki beinlínis a. m. k.I
Og tímar án hugsjóna fara í
hönd. Meira að segja nýfrjálsar
þjóðir gefa sér ekki mikið tóm til að
kyrja œttjarðarsöngva eða una yfir
frelsiskálum. Leiðin liggur óðara að
breiðum samningaborðum hinna
miklu markaðsbandalaga, sem ríkið
munu erfa og engin landamœri
þekkja.
Býlið á myndinni í „Gettu nú“
fýrír viku var Hlíðarendi.
Nú birtum við mynd af fal-
legum fossi, sem er að finna
í Þjórsá. En hvert er nafn
hans?
Et
E
m
L
H
BE
SE3
m
ms
B I
BBBBE BE
m:m bebbbbb h
E BEB BB BB
■□HBEIBB hb bq
SE BSBEIBI3
KROSSGÁTA