Tíminn - 03.03.1990, Qupperneq 5
OCi’ 3i<;ir P -i-ir»«'-nr;rii |-i i
Laugardagur 3. mars 1990
nnitn’T a
Tíminn 5
Menntamálaráöherra vísar því á bug að hann hafi svikið gefin loforð varðandi námslán
og benti á að LÍN væri ekki einn í heiminum:
Námsmenn verða að átta sig
á efnahagslegum veruleika
„Það kanna að vera að sumum þyki gott að geta sagt um
mig: „Hann er alltaf að svíkja okkur.“ Menn er búnir að
skrifa mikið og ræða mikið um að ég sé alltaf að svíkja eða
þá a.m.k. alveg að fara að svíkja. Við skulu ekki vera að slá
því föstu í fréttatilkynningum að menntamálaráðherra gangi
um Ijúgandi og svíkjandi þegar ekkert er til í því,“ sagði
Svavar Gestsson menntamálaráðherra á fúndi um Lánasjóð
ílslenskra námsmanna sem námsmenn í Háskóla íslands
héldu.
Fram kom á fundinum að 45% af
ráðstöfunarfé lánasjóðsins er lánsfé
frá Ríkisábyrgðasjóði. Um 25% af
fé sjóðsins fer í að greiða niður eldri
lán. Það stefnir því í algjört óefni
með rekstur sjóðsins ef ríkið eykur
ekki enn framlag sitt til sjóðsins á
næstu árum. Á þessu ári var framlag
ríkisins aukið um 600 milljónir.
Námsmenn gagnrýndu ráðherr-
ann harðlega fyrir að hafa ekki
staðið við það samkomulag sem
hann gerði við þá um að bæta þeim
upp skerðingu á námslánum sem
gerð var á ráðherratíma Sverris
Hermannssonar og Ragnhildar
Helgadóttur.
Menntamálaráðherra sagði að
námsmenn yrðu að gera sér grein
fyrir þeim efnahagslega veruleika
sem þjóðin byggi við. Lánasjóður
íslenskra námsmanna væri ekki einn
í heiminum. Hann lagði fram tölur
og línurit sem sýna að kaupmáttur
námslána hefur hækkað frá árinu
1987 mun meira en kaupmáttur
launa. Munurinn er nærri 20%.
Hann benti einnig á að á síðasta ári
hefðu veitt lán til sjóðsins hækkað
um 52% og á þessu ári hækka þau
um 23%. Ráðherra sagði erfitt fyrir
sig að sækja aukið fjármagn til
Alþingis því þar væri sér bent á
þessar staðreyndir.
„Ég er sannfærður um að miðað
við pólitískt þanþol þjóðarinnar og
Aiþingis erum við raunverulega með
eins mikla fjármuni í lánasjóðnum
og kostur er miðað við núverandi
aðstæður. Þess vegna var gengið frá
samkomulagi 14. desember síðast-
liðinn þar sem segir að þriðji áfangi
hækkunar lána umfram verðlag ætti
að koma til framkvæmda svo fljótt
sem auðið er. í þessum orðum, svo
fljótt sem auðið er, taldi ég felast að
menn vildu taka tillit til aðstæðna og
skoða aðrar leiðir. Það erum við nú
að gera,“ sagði Svavar.
Framfærslugrunnur einstaklings
Frá fundi menntamálaráðherra mei) námsmönnum í Háskóla íslands.
Tímamynd Pjetur
er nú 49 821 kr en hámarkslán til
einstaklings er 46 836 kr. Námsmenn
bentu á þessa staðreynd og ennfrem-
ur þá staðreynd að í framfærslu-
grunni lánasjóðsins er gert ráð fyrir
að einstaklingurinn greiði um 7000
kr í húsnæði, sem allir eru sammála
um að sé alltof lág tala. Þá bentu
námsmenn á að í lögunum um
lánasjóðinn stæði að námslán ættu
að duga fyrir framfærslu.
Svavar Gestsson benti á að í
lögunum stæði jafnframt að ráðherra
gæti með reglugerð fellt niður hækk-
anir á lán sem rekja má til verðlags-
breytinga, en það gerðu Sverrir
Hermannsson og Ragnhildur Helga-
dóttir á sínum tíma. Svavar sagði að
námsmenn ættu að reyna fá þessu
ákvæði laganna breytt þannig að
þeir ættu ekki sífellt yfir höfði sér
skerðingu lána.
Sveinn Andri Sveinsson, fram-
bjóðandi Sjálfstæðismanna í borg-
arstjórnarkosningunum í Reykja-
vík, koni upp í ræðustól og gagn-
rýndi ráðherrann fyrir að draga
flokkspólitík inn í þetta mál. Mál-
flutningur frambjóðandans fékk
slæmar undirtektir og sá ráðherra
ekki ástæðu til að svara honum.
- EÓ
Baðstrandaferðir
í gæðaflokki
Innifalið í verði er: Flug, KEF-LUX-VAR fram og til baka, KEF-
CPH-SOF-VAR-LUX-KEF eða KEF-LUX-VAR-SOF-CPH-
KEF, þarsem um slík flugeraðræða. Gistingáhótelum miðað við
2ja manna herbergi, en 4 á Villa Jug, með baði/sturtu, w.c.hálft
fæði (matarmiða) leiðsögn ogaksturfráflugvelli í Vamaogáhótel
við komu og öfugt við brottför. Flugvallarskattur og annað ótalið
hér er ekki innifalið í verði. Verð eru miðuð við gengi US$ og
flugverð per 30 nóvember 1989 og breytast fram til þess tíma er
ferðinerað fullugreidd.miðað viðgengi íslenskrarkrónugagnvart
US$ eða búlgörskum leva gagnvart USS og breytingu flugverða á
sama tímabili.Barnaafsláttur er: Börn undir 2ja ára aldri greiða
einungis 10% af flugverði en fáekki matarmiða. Bömáaldrinum
2ja-12 ára fá 50% afslátt af fullorðinsverði miðað við svokallað
aukarúm. en 25 % afsláttur er veittur af gistingu miðað við
„normar rúm. en 50% í flugi sem jafngildir um 40% afslætti frá
fullorðinsverði.
^Grand Hótel Varna _ 19/05-26/05 02/06 09/06 16/06-11/08 18/08 25/08 01/09-25/09 ^
2 vikur laugardaga 59.900- 59.900- 63.600- 70.900- 70.900- 67.200- 63.500-
3 vikur laugardaga 75.200- 82.600- 82.600- 89.900- 82.600- 82.500- 78.700-
Dobrudja 07/04 28/04 22/05-29/05 05/06 12/06 19/06-14/08 21/08 28/08-25/09
2 vikur þriójudaga Engin ferð 49.500- 50.600- 54.200- 58.400- 56.900- 54.200-
3 vikur þriðjudaga 63.500- 60.100- 63.300- 66.800- 7 1.000- 66.800- 64.100-
Slavianka 22/05-29/05 05/06-12/06 19/06-07/08 .... | 14/08 21/08-28/08 04/09-25/09
3 vikur þriðjudaga 55.800- 6 1.100- 66.200- 64.700- 60.500- 58.700-
Kaliakra !
2 vikur þriðjudaga 52.300- 57.600- 62.700- 61.200- 57.000- 55.200-
3 vikur þriðjudaga 55.800- 61.100- ! 66.200- 64.700- 60.500- 58.700-
Bratislava
2 vikur þriðjudaga 42.000- 45.900- 50.900- 50.900- 49.800- 46.100-
3 vikur þriðjudaga 49.800- 54.700- 59.800- 58.300- 54.100- 52.300-
Villa Jug
2 vikur þriöjudaga 46.000- 46.000- 49.600- 49.600- 49.600- 49.600-
\J3 vikur þriðjudaga 54.300- 54.300- 57.900- 57.900- 57.900- 57.900- J
1990
Tekið er á móti pöntunum í ferða-
skrifstofu okkar sem opin er alla
virka daga frá 8-17 og laugardaga
frá 9-12. f.h.
Ferðaskrifstoi
KJARTANS
HELGASOh
Gnoðarvogi 44, efri hæð
(gengið inn frá Skeiðarvogi),
sími 91 68 62 55.