Tíminn - 10.03.1990, Side 4
4 Tíminn
OGC'Uaugardáguf 1Q; mars^ 1’990
UTLOND
Kim ll-sung hinn ástkæri leiðtogi Norður-Kóreu
afhendir syninum Kim Jong-il völdin á 78 ára afmælinu 15. apríl:
Hinn mikli leiðtogi
sest á helgan stein
Kim Il-sung hinn „stórkostlegi og ástkæri Ieiðtogi“ Norður-
Kóreu mun afhenda syni sínum Kim Jong-il völdin á 78 ára
afmæli sínu IS.apríl og setjast á helgan stein eftir stórkostlegt
ævistarf. „Hinn mikli leiðtogi“ Kim Il-sung mun þó ekki láta
alveg af valdataumunum því hann mun áfram veita syninum
góð ráð og verða „Deng Xiaoping Norður-Kóreu“, eins og
japanska fréttastofan Kyodi orðaði það í gær er hún birti frétt
af þessum fyrirhuguðum tímamótum.
„Hinn stórkostlegi leiðtogi Kim II Sung forseti og hinn ástkæri Ieiðtogi, félagi
Kim Jong II kanna hina nýju Rungna brú“. Þannig var textinn við þessa
mynd af þeim feðgum sem birtist í Korea today, áróðursriti Norður-Kóreu-
stjórnar. Myndin er í hefðbundnum áróðursstíl þeirra feðga, sonurinn bendir
föðurnum á hið stórkostlega verk og faðirinn lítur með velþóknun á þá áttina.
Að sjálfsögðu er ekki sýnt stórt kýli sem er hægra megin á hálsi hins „ástkæra
leiðtoga". Þúsundir slíkra mynda hafa birst í norðurkóreskum blöðum
undanfarna áratugi, enda hefur Kim II Sung lengi undirbúið alþýðu
Norður-Kóreu undir það að Kim Jong II taki við forsetaembættinu. Kim
Jong II mun loks hnjóta hnossið 15.apríl, 48 ára gamall.
Ólga á svæðum blökku-
manna í Suöur-Afríku:
Fimmtán drepnir
FRÉTTAYFIRLIT
GENF - EFTA og Ungverjar
munu að líkindum að skrifa
undir samning um bætt við-
skipti og stóraukna efnahags-
samvinnu á næstunni.
AUSTUR-BERLÍN
Háttsettir embættismenn frá
þýsku ríkjunum tveimur hittust
í Austur-Berlín og ræddu í
þrjár klukkustundir um fyrir-
hugaða sameiningu þýsku ríkj-
anna.
BONN - Hans-Dietrich
Genscher utanríkisráðherra
sagði að sameining Þýska-
lands gæti ekki gengið eins
hratt og Helmut Kohl kanslari
vill að verði gert. Þá má geta
þess að Mitterand forseti
Frakklands hefur hvatt Kohl til
að kveða fastar að orði um að
landamærum Þýskalands og
Póllands verði ekki breytt.
PEKING - Eftir að hafa
neytt tvær milljónir einkafyrir-
tækja til að hætta starfsemi í
fyrra segja kínversk stjórnvöld
nú að einkarekstur í Kína sé
staðreynd sem ekki verði
breytt eigi eftir að jafna sig.
MOSKVA - Aðskilnaðar-
sinnar í Litháen kröfðust þess
að þing Litháen lýsi yfir sjálf-
stæði og aðskilnaði frá Sovét-
ríkjunum nú um helgina.
PORT-AU-PRINCE -
Mótmælagöngur og fjölda-
fundir voru haldnir gegn Prosp-
er Avril forseta Haiti og bendir
allt til þess að dagar Avrils í
forsetastól séu brátt taldir.
Kona hans er þegar komin til
Bandaríkjanna.
MEXÍKÓBORG - Átján
manns, þar af þrír lögreglu-
menn hafa verið drepnir í pólit-
ískum átökum í suðvesturhluta
Mexíkó ef marka má orð stjórn-
arandstæðinga. Ríkisstjórnin
sigaði lögreglu á fjölmenna
fundi sem haldnir voru til að
mótmæla meintu kosninga-
svindli. Opinberir aðilar segja
að fimm manns hafi fallið.
OSLÓ - Meirihluti Norð-
manna vill að dregið verði úr
útgjöldum til varnarmála þar
sem ekki sé lengur hætta á
innrás frá Sovétríkjunum.
Þetta er þvert á stefnu ríkis-
stjórnarinnar sem hefur ákveð-
ið að auka útgjöld til varnar-
mála, mest NATO ríkja.
Stjórnvöld í Pjongjang höfuðborg
Norður-Kórcu höfðu áður tilkynnt
að kosningingum til Æðsta ráðs
þjóðarinnar hefði verið flýtt og þær
haldnar 22.apríl, sex mánuðum fyrr
en áætlað var. Vegna þessa höfðu
sérfræðingar í málefnum Norður-
Kóreu búist við einhverjum tíðind-
um í stjórnmálum landsins.
Reyndar höfðu flest sólarmerki í
fjölmiölum Norður-Kóreu bent til
þess að loksins ætti Kim Jong II að
taka við völdunum af föður sínum.
Enn meira hafði verið rætt um
frægðarverk og dásemdir Kim Jong
ll en áður, þó flestum utan Norður-
Kóreu hefði þótt nóg um fyrir. Var
honum þökkuð aukning í fram-
leiðslu á neysluvörum, en tölur þar
af lútandi birtust í fjölmiðlum í
Norður-Kóreu í síðustu viku. Þá var
mikið fjtillað unt nýja tegund blóma
af begóníuætt sem framleidd hefur
verið mcð kynblöndun og hlotið
hefur nafnið „Kimjongilia" eftir hin-
um verðandi forseta. Var básúnað
hve hröð útbreiðsla þessa töfrablóms
hefði orðið út um allar jarðir, allir
blómaræktendur vilji „Kimjongi-
liuna“ ræktað hafa.
Kim II Sung, hinn sérstaki forseti
Norður-Kóreu hefur ríkt af mikilli
festu í landinu frá því árið 1948.
Einangrun Norður-Kóreu þennan
Það var varla búið að stilla til
friðar í blóðugum innbyrðis átökum
kristinna manna í Líbanon fyrr en
að andstæðar fylkingar Shíta hófu
að murka lífið úr hvor öðrum.
Michel Aoun hershöfðingi sem
stefndi sveitum sínum gegn kristnum
trúabræðrum sínum í sfðasta mánuði
hefur nú lýst því yfir að innbyrðis
styrjöld kristinna manna sé liðin tíð.
í framtíðinni verði deilumál þeirra
leyst í friðsamlegum samningavið-
ræðum.
Aoun hafði varla sleppt orðinu
þegar Hizbollah samtökin og Amall-
iðar hófu að berjast af mikilli
grimmd í suðurhluta Líbanon og í
héruðunum suður af Beirút. Ekki er
ljóst hvort mannfali varð í átökum
þeirra í gær, en þeir skutu eldflaug-
um, sprengjum og byssukúlum að
hvor öðrum af miklum móð.
Þeir bardagar voru ekki einu átök-
in í Líbanon í gær því að ísraelar
gerðu loftárás á stöðvar öfgafullra
Palestínuskæruliða í norðurhluta
Líbanon. Var loftárásin gerð óvana-
lega norðarlega í Líbanon, en skot-
markið voru bækistöðvar hins ill-
tíma hefur verið gífurleg og hefur
Kim 11 Sung beitt fjölmiðlum í
áróðursskyni allan þennan tíma af
miklum hagleik. Virðist vera að
almenningur í Norður-Kóreu trúi
því að hann lifi í Paradís á jörð og
lífsgæðin þar séu einsdæmi í veröld-
inni.
Að sjálfsögðu hefur Kim II Sung
leitt þessa þróun til paradísar. Hefur
hann vísað vegin með svokallaðri
Juche heimspeki, sem er einhvers-
konarsambland af kommúnistískum
fræðum og guðlegri dýrkun á leið-
toganum. Hvort sonurinn Kim Jong
II nær að halda þessari stefnu föður-
ins áfram verður tíminn að leiða í
ljós, en ljóst er í kjölfar þeirra
breytinga sem orðið hafa í kommún-
istaríkjum Austur-Evrópu gæti verk
Kim Jong II orðið snúið. Telja flestir
sérfræðingar í málefnum Norður-
Kóreu að þrátt fyrir að sonurinn taki
við forsetaembættinu af föðurnum,
þá muni Kim II Sung ætla sér að
halda föstum tökum um valdataum-
ana. Efast reyndar margir um getu
Kim Jong II í forsetaembættinu,
enda herma sögur að Kim Jong II
hafi helst áhuga á kvenfólki, sport-
bílum og vestrænum kvikmyndum,
en fjöllyndi, bílaeign og vestrænar
kvikmyndir eru forboðnir hlutir í
Norður-Kóreu.
ræmda Ahmeds Jibril 60 km norður
af Beirútborg. Árásin var greinleg
hefnd fyrir för fimm palestínskra
skæruliða innfyrir svokallaða örygg-
islínu ísraela í Suður-Líbanon á
fimmtudaginn. Skæruliðarnir fimm
voru felldir.
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna skýrði frá því í gær að banda-
rísku herliði yrði beitt í mjög auknu
mæli gegn eiturlyfjasmyglurum.
Herinn mun beit mun fleiri herskip-
um, flugvélum og njósnaloftbelgjum
til að fylgjast með ferðum eiturlyfja-
smyglara sem flytja kókaín og mar-
íjúana frá Rómönsku Ameríku til
Bandaríkjanna.
Samkvæmt áætlun varnarmála-
ráðuneytisins munu hermenn fá það
Fimmtán menn voru drepnir í
átökum blökkumanna í borginni
Katlehong í Suður-Afríku í fyrri-
nótt. Að auki voru hundrað og
fimmtíu manns særðir í átökunum
sem urðu á milli stríðandi hópa
blakkra leigubílsstjóra sem deila
um réttinn til að aka milli Katl-
ehong og Jóhannesarborgar.
Átökin voru sérlega grimmileg,
en væringjar milli tveggja ættbálka
spila inn í átökin sem staðið hafa
hlutverk að rannsaka vörur sem
fluttar eru inn til Bandaríkjanna,
bæði gegnum hafnir og um landa-
mærastöðvar á landamærum Banda-
ríkjanna og Mexíkó. Þá mun eftirlit
á Karabíska hafinu, Mexíkóflóa og
Kyrrahafsströndinni verða stórauk-
ið.
Njósnaloftbelgirnir verða tengdir
við NORAD radarkerfið sem er
gífurlega öflugt viðvörunarkerfi
gegn kjarnorkuvopnaárásum á
meira ogminna í tvær vikur. Liggja
um fjörtíu manns í valnum eftir
þau átök. Ástandið ku vera þannig
í Katlehong að stór hluti hinna 250
þúsund íbúa hafa farið fram á að
suðurafrískir hermenn taki málin í
sínar hendur og komi á lögum og
reglu.
Alls hafa því á þriðja hundrað
manns fallið í átökum blökku-
manna í Suður-Afríku undanfarn-
ar vikur.
meginland Bandaríkjanna. Alls
hyggjast bandaríska stjórnvöld eyða
1,2 milljarði dollara í aðgerðir
þessar.
Reyndar hefur orðið nokkur
árangur á baráttunni gegn eiturlyfja-
smygli undanfarna daga. Bandaríska
eiturlyfjalögreglan 4,5 tonn af kóka-
íni í Kaliforníu í vikunni og frá
Venezúela bárust þær fréttir að
þjóðvarðliðið hefði komist yfir rúmt
tonn af kókaíni í gær.
Kristnir menn í Líbanon hætt-
ir að berjast innbyrðis, en:
Shítar hefja
blóðbað á ný
HERNUM BEITT AF HORKU
GEGN EITURLYFJASMYGLI