Tíminn - 10.03.1990, Side 9
r.co t oii-rf: ( < n injsþ'iRniiP I
Laugardagur 10. mars 1990
Tíminn 9
íslenskur maður á fimmtugsaldri, kvæntur og tveggja barna faðir er með eyðni
á lokastigi. Sjúkdóminn fékk hann eftir að hafaheimsóttdanskagleðikonu:
Skrapp á hóruhús
er nú með eyðni
„Margir álíta að þetta sé ekkert vandamál, þetta sé bara mál
homma og eiturlyfjaneytenda, en komi venjulegu fólki ekkert
við. Það eru einmitt menn sem eru þessarar skoðunar sem leita
uppi staði eins og ég fór á. Menn virðast loka augunum fyrir
því að á hóruhúsunum eru eiturlyfjasjúklingar sem gera allt
fyrir peninga.“
Þetta eru orð sem maður á fimm-
tugsaldri lét falla þegar Tíminn
ræddi við hann um sjúkdóminn
eyðni sem hann er smitaður af. Þetta
er ósköp venjulegur íslendingur,
kvæntur og tveggja barna faðir.
Árið 1984 brá hann sér á hóruhús í
Danmörku. Gleðikonan sem hann
lá með var smituð af eyðni. Fyrir
rúmu ári uppgötvaði heimilislæknir
mannsins að hann var kominn með
eyðni á lokastigi. Maðurinn var þá
búinn að vera meira og minna veikur
í langan tíma.
Nokkuð hefur dregið úr umræðu
um eyðni á seinustu árum. Á síðustu
sex mánuðum hefur ekki orðið vart
við ný eyðnitilfelli hér á landi. Átján
mánuðina þar á undan greindust að
meðaltali einn á mánuði með smit.
Haraldur Briem, læknir á Borgar-
spítalanum, segir að þrátt fyrir að
færri greinist nú með sjúkdóminn sé
engin ástæða til að ætla að hann sé í
rénum hér á landi.
Viðmælandi Tímans segir að sjálf-
sögðu hafi verið hcimskulegt af sér
að leita til gleðikonu. Hann bendir
þó á að þegar þetta gerðist hafi
umræðan um sjúkdóminn verið
mjög takmörkuð og lítið hafi verið
vitað um hann. Hann segir að ef
hann hefði vitað meira um þá hættu
sem er því samfara að samrekkja
með gleðikonu hefði þetta vonandi
aldrei gerst.
Eins og áður segir uppgötvaðist
sjúkdómurinn ekki fyrr en á síðasta
ári. Þrátt fyrir þetta hefur viðmæl-
andi okkar ekki náð að smita konuna
sína. „Það er raunar merkilegt að
hún skuli hafa sloppið og alveg
hreint undur. Svona er þetta bara
með þennan sjúkdóm, hann hagar
sér svo einkennilega. Hann er eins
og rússnesk rúletta."
Viðmælandi okkar segir að það
hafi verið mikið áfall fyrir sig og
fjölskyldu sína að fá það staðfest að .
hann væri með eyðni. „Það var erfitt
að viðurkenna þetta fyrir sjálfum
sér. Þetta er hins vegar enginn
dauðadómur, maður lifir a.m.k. í
voninni. Maður verður að halda fast
í vonina því að hún er svo stór þáttur
baráttunni gegn sjúkdómnum."
Maðurinn er einn af þeim sem fá
lyfið AZT sem hann segir að hægi
mikið á sjúkdómnum. Hann segir að
læknarnir Haraldur Briem og Sig-
urður Guðmundsson eigi miklar
þakkir skyldar fyrir frábært starf.
Þegar sjúkdómur mannsins uppgötv-
aðist í byrjun síðasta árs var heilsa
hans afar slæm, en með hjálp lækn-
anna hefur líðanin batnað. Heilsan
er samt enn slæm. „Maður er ótta-
legur aumingi," segir hann og hlær.
„Mótstaða líkamans gegn sjúkdóm-
um er engin. Maður er alltaf að fá
hita. Þrekið minnkar sífellt. Stund-
um er heilsan sæmileg í viku hálfan
mánuð en þá kemur niðursveifla
sem maður getur verið lengi að ná
sér upp úr.“
Viðmælandi okkar hefur ekkert
getað unnið í nærri tvö ár. Hann
segist ekki geta stundað reglu-
bundna vinnu. „Ég er 75% öryrki og
verð það sem eftir er eða þangað til
lausnin finnst."
Fjölskylda mannsins hefur nýlega
fengið að vita um hvernig komið er
fyrir honum. „Fólk skyldi auðvitað
ekkert í af hverju ég væri ekki í
vinnu.“
Nú er rúmt ár liðið síðan sjúkdóm-
ur mannsins uppgötvaðist. Hann
viðurkennir að hann hafi verið farinn
að gruna ýmislegt. Meðan hann
dvaldi erlendis voru alls kyns kveisur
að hrjá hann, en læknar gerðu sér
ekki grein fyrir hvernig komið var.
Viðmælandi Tímans finnst of mik-
il áhersla hafa verið lögð á að eyðni
sé hommasjúkdómur. í áróðrinum
gleymist sú staðreynd að hver sem er
getur fengið þennan sjúkdóm. Hann
leggur einnig áherslu á að umræða
um þessi mál sé of lítil. „Umræðan
er skammt á veg komin hér á landi,
ég vil segja hættulega stutt."
Maðurinn gagnrýnir einnig þá fé-
lagslegu þjónustu sem eyðnisjúkl-
ingum er látin í té. Hann segir að sá
félagsráðgjafi sem hann leitaði til
hafi algerlega brugðist.
Viðmælandi Tímans er ekki sá
eini sem hefur smitast eftir að hafa
heimsótt gleðikonu erlendis. í nýj-
asta tölublaði af tímaritinu Bleikt og
blátt segir frá manni sem hefur
svipaða sögu að segja.
Haraldur Briem, læknir á Borgar-
Haraldur Briem, læknir
spítalanum, var spurður hvort áróð-
ur gegn eyðni hefði ekki verið of
mikið tengdur hommum og fíkni-
efnaneytendum og gleymst hefði að
leggja áherslu á að gagnkynhneigðir
geta fengið þennan sjúkdóm?
„Áróðurinn hefur verið tengdur
þessum áhættuhópum, en það er
velþekkt að þetta getur smitast með-
al þeirra sem ekki eru í hefðbundn-
um áhættuhópum. Þetta er frekar
bundið við hegðun. Það kann hins
Útboð
■ m.
N M ■
i|f
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Borgarverkfræðingsins í
Reykjavík óskar eftir tilboðum í gatnagerð og lagningu holræsa og
jarðvinnu vegna vatnslagna í Vatnagarða frá Sægörðum að Holt-
avegi.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 9.000m3
Fyllingar 6.500 m3
Lagning holræsa 410 m
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 20. mars 1990 kl.
14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
L
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
vegar vel að vera að þessu sé ekki
haldið nægilega vel á lofti, en ég held
þó að ekki sé hægt að segja með
sanngirni annað en að þessum skila-
boðum hafi verið komið áleiðis, þ.e.
að þetta geti smitast við kynmök frá
karli til konu og konu til karls alveg
eins og milli karla og við sprautun.
Það er hins vegar áhyggjuefni að
nicnn taka þetta ekki alvarlega. Það
hefur sýnt sig í Bandaríkjunum að
hommar hafa tekið þetta alvarlega
enda brennur þetta meira á þeim en
öðrum. Það er meiri aukning núna
meðal gagnkynhneigðra en meðal
þessara svokölluðu áhættuhópa.
Tíðnin meðal gagnkynhneigðra er
þó enn miklu minni en meðal hinna.
Þetta sama kemur í ljós ef litið er á
aðra kynsjúkdóma. Það hefurdregið
úr sárasótt hjá hommum cn ekki hjá
gagnkynhneigðum. Þá má því með
nokkrum rökum segja að áróðurinn
hafi ekki skilað sér til allra, en við
verðum að hafa það í huga að
vandamálið er svo framandi fyrir
flest alla.“
Hér á landi eru um 68% þeirra
sem eru smitaðir hommar. Gagn-
kynhneigðir eru einungis um 10%
smitaðra. Sex íslendingar hafa látist
úr eyðni, en alls hafa þrettán fengið
sjúkdóminn á lokastigi. 54 hafa
greinst með smit. -EÓ
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Kópavogur Linda Jónsdóttir Hamraborg 26 641195
Garðabær Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Keflavik GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Ingvi Jón Rafnsson Hólsgötu 23 92-37760
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík Linda Stefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur EsterFriðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut3 93-41447
ísafjörður Jens Markússon Hnifsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Hólmavík Elísabet Pálsdóttir Borgarbraut5 95-3132
Hvammstangi Friðbjörn Níelsson Fífusundi 12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlið13 95-5311
Siglufjörður Sveinn Þorsteinsson Hlíðarveig 46 96-71688
Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Hamarsstíg18 96-24275
skrifstofa Skipagata 13 (austan) 96-27890
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Sveinbjörn Lund Brúargerði 14 96-41037
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð 8 96-62308
Raufarhöfn Sandra ösp Gylfadóttir Aðalbraut 60 96-51258
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaður BirkirStefánsson Miðgarði 11 97-71841
Reyðarfjörður Marinó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167
Eskifjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svínaskálahlíð 19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hlíðargötu4 97-51299
Djúpivogur Jón Biörnsson Borgarlandi 21 97-88962
Höfn Skúli Isleifsson Hafnarbraut 16 A 97-81796
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún 51 98-34389
Þorlákshöfn Þórdís Hannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu 28 98-31198
Stokkseyri Jón Ólafur Kjartansson Eyjaseli 2 98-31293
Laugarvatn Halldór Benjam í nsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur JónínaogÁrnýJóna Króktún 17 98-78335
Vík IngiMárBjörnsson Ránarbraut 9 98-71122
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
PÓSTFAX TÍMANS