Tíminn - 10.03.1990, Síða 14
26 Tíminn
Laugardagur 10. mars 1990
Sýningarsalur FÍM:
„Obsessions 2“
Guðjón Bjarnarson
Guðjón Bjarnarson sýnir að
KJARVALSSTÓÐUM
í dag, 10. mars, opnar Guðjón Bjarnar-
son sýningu í austursal og forsal Kjar-
valsstaða. Á sýningunni cru áttatíu mál-
verk og skúlptúrar, unnin í tré og striga í
Bandaríkjunum og hcrlendis á sl. ári.
Guðjón er fæddur 1959 í Reykjavík.
Hann varð stúdent frá MR 1979, nam
lögfræði við lagadeild Háskóla Islands
1979-’81, en hélt þá til Bandaríkjanna.
Þar lagði hann stund á nám í arkitektúr
við Rltode Idland School of Design í
Providence í Nýja Englandi. Hann lauk
BFA gráðu 1983 og B. Arch. ári seinna.
Frá Ferðafélagi íslands
Sunnudagsferð 11. mars
Kl. 10:30 - Skíðaganga um Kjósarskarð.
(kr. 1000)
Kl. 13:00 Stórstraumsfjöruferð: Hval-
Ijörður - Hvammsvíkurhólmi. Létt rölt
um fjölbreytta strönd. (kr. 1000)
Kl. 13:00 -Skíðagöngunámskeið. Leiö-
beinandi er Halldór Matthíasson. (kr.
1000)
Kl. 13:00 - Skíðaganga á Mosfellshciði.
Brottför frá Umferöarmiöstööinni, aust-
anmegin. Farmiöar við bíl (kr. 1000).
Mánudagur 12. mars kl. 20:00 - Kvöld-
ganga og blysför í Viðey. Létt ganga á
fullu tungli. Litiö inn í Viöeyjarkirkju.
Brottför frá Viöeyjarbryggju Sundahöfn.
Far 500 kr. og blys kr. 100.
Vetrarfagnaður í Risinu, Klúbbnum,
Borgartúni 32, laugard. 17. mars. Pantiö
tímanlega.
l'áskaferðir: 1. Snæfellsnes - Snæfells-
jökull 3 og 5 dagar. 2. Þórsmörk 3 og 5
dagar. 3. Landmannalaugar, gönguskíöa-
ferö.
Athugiö sértilboö á Árhókum F.í.
Aðalfundur F.í. veröur haldinn í Sókn-
arsalnum, Skipholti 50A, miövikudaginn
14. mars kl. 20:30. Venjuleg aöalfundar-
störf. Félagsmenn sýni ársskírteini frá
árinu 1989 viö inngangi.
Stjórn Ferðafélags íslands
Erindi í Neskirkju
Tvo næstu sunnudaga, 11. og 18. mars,
llytur dr. Gunnar Kristjánsson erindi í
safnaðarheimili Neskirkju að lokinni
guðsþjónustu.
Erindin fjalla urn helstu stef föstunnar
og píslarsögunnar i myndlist. Það fyrra
tekur fyrir efni er tengist síðustu kvöld-
máltíðinni en í því síðara verður fjallað
um krossfestinguna. Auk talaðs máls
sýnir dr. Gunnar litskyggnur af kunnum
listaverkum.
Erindin hefjast kl. 15.15. Veitingar
verða á boðstólum. Öllum er að sjálf-
sögðu heimill aðgangur.
Lagadeild H.í:
Lektor í skoskum sifjarétti
heldur fyrirlestur
Mánudaginn 12. mars kl. 12.00 heldur
dr. Anne Griffiths, lektor í skoskum
sifjarétti við Edinborgar-háskóla, fyrir-
lestur á vegum lagadeildar Háskóla
íslands. Fyrirlesturinn nefnist „Disputing
the Family: Legal Rulesof Social Process-
es“ og fjallar um sáttaumleitan í fjölskyld-
uerjum meðal Kwena-ættbálksins í
Botswana t' Suður-Afrfku, með sérstakri
hliðsjón af stöðu kvenna.
Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu
101 í Lögbergi, húsi lagadeildar, og er
öllum opinn.
Hafnarborg
Nýlega var opnuð í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnarfjarð-
ar, sýningin NONAGINTA.
Þátttakendur eru: Björn Roth, Daði
Guðbjörnsson, Eiríkur Smith, Kjartan
Guðjónsson og Ómar Stefánsson.
Sýningin er opin kl. 14:00-19:00 alla
daga nema þriðjudaga. Sýningin stendur
til 19. mars.
Minningarkort SJÁLFSBJARGAR
í Reykjavík og nágrenni
- fást á eftirtöldum stöðum:
Reykjavfk: Reykjavíkur apótek,
Garðsapótek, Vesturbæjarapótek,
Kirkjuhúsið við Klapparstíg, Bókabúð
Fossvogs, Grímsbæ við Bústaðaveg,
Bókabúðin EmbL Drafnarfelli 10,
Bókabúðin Úlfarsfell, Hagamel 67,
Verslunin Kjötborg, Búðargerði 10.
Hafnarfjörður: ‘iókabúð Olivers
Steins, Strandgötu !
Kópavogur: Póstliúsið.
Minningarkort f.ist • innig á skrifstofu
Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Gíróþjónusta.
Árið 1987 lauk hann meistaragráðu í
myndlist og skúlptúr við School of Visual
Art í New York og lagði síðan stund á
framhaldsnám í arkitektúr við Columbia
háskóla og lauk meistaragráðu í arkitekt-
úr sl. vor.
Guðjún býr og starfar í New York.
Þetta er önnur einkasýning hans og sú
fyrsta hér á landi, en hann hefur tekið
þátt í fjölda samsýninga á sl. árum í
Bandaríkjunum.
Slagverkshópurinn Snerta og Infermó
5 munu leika tilbrigði við verkin við
opnun sýningarinnar á laugardag og á
sunnudag kl. 20:30 leika Jón Aðalstcinn
Þorgilsson og Þorsteinn Gauti rómantísk
verk á klarinett og píanó.
Sýningin er opin daglega til 25. mars.
Útivist um heigina
Þórsmerkurgangan, 5. ferð, sunnudaginn
11. mars.
Nú erum við komin til byggða. Gengin
verður gamla þjóðleiðin frá Reykjum í
Ölfusi meðfram Ingólfsfjalli. fram hjá
Sogni, Gljúfri og Hvammi að Fjalli.
Síðan verður gengið um Hellisbrú að
hinni fornu lögferju hjá Laugardælum. Ef
skilyrði veröa hagstæö veröur ferjað yfir
ána á gamla vaðinu með aðstoð Slysa-
varnardeildarinnar Tryggva. Staðfróðir
Árnesingar verða fylgdarmenn. Brottför
kl. 10,30 frá Umferðarmiðstöð- bensín-
sölu. Stansað við Árbæjarsafn. Eftirmið-
dagsferð: Samcinast morgungöngunni við
Kögunarhól. Brottför kl. 13.00 frá Um-
ferðarmiðstöð- bcnsínsölu. Stansað við
Árbæjarsafn.
Skíöaganga, sunnudaginn 11. inars
Genginn léttur hringur í nágrcnni Jós-
efsdals. Brottför kl. 13.00 frá Umferðar-
miðstöð-bensínsölu. Stansað við Árbæj-
arsafn.
Sigluf jarðarprestur og kirkjukór
heimsækja Grafarvogsprestakall
Grafarvogs-söfnuður tekur á móti góð-
um gestum á sunnudag, því að þann dag
mun guðsþjónusta sunnudagsins í Grafar-
vogi vera flutt af sóknarpresti Siglfirð-
inga, sr. Braga Ingibergssyni, kirkjukór
Siglufjarðar undir stjórn Tonys Raleys.
Að lokinni guðsþjónustunni er „kirkju-
kaffi“ á vegum Siglfirðingafélagsins í
Reykjavík. Guðsþjónustan veröur í
messuheimili Grafarvogssafnaðar, Fél-
agsmiðstöðinni Fjörgyn, en þar fcr fram
allt guðsþjónustuhald safnaðarins, barna-
messa kl. 11:00 og guðsþjónusta kl. 14:00
hvern sunnudag.
Sóknarprestur Grafarvogs-safnaðar er
Vigfús Þór Árnason, sem áður var prestur
á Siglufirði.
Almanakshappdrætti
Þroskahjálpar
Almanakshappdrætti Landssamtak-
anna Þroskahjálpar. Virmingurinn í
janúar kom á nr. 6726 og vinmngurinn í
febrúar á nr. 2830.
Spilakvöld í Kópvogi
Alþýðubandalagið í Kópavogi heldur
spilakvöld í Þinghóli, Hamraborg 11,
þriðju hæð, mánudaginn 12. mars kl.
20:30. Allir velkomnir.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík
Helgistund verður kl. 17:00.
Föstuguðsþjónusta er á miðvikudag kl.
20:30. Orgelleikari Pavel Smid.
Cecil Haraldsson
Ein af myndum Karólínu á sýningunni
Karólína sýnir í NÝHÓFN
Karólína Lárusdóttir opnar sýningu í
Listasalnum Nýhöfn, Hafnarstræti 18,
laugardaginn 10. mars kl. 14:00-16:00. Á
sýningunni verða vatnslitamyndir og
dúkristur.
Karólína er fædd í Reykjavtk árið
1944. Hún nam við Ruskin School of Art
í Oxford 1965-’67 og Barking College of
Art 1980 undir handleiðslu Harry Ecclest-
on. Hún kenndi myndlist um fimm ára
skeið, en vinnur nú alfarið að list sinni.
Karólínu var boðin aðild að Royal
Society of Painter-Etchers and Engravers
árið 1980 og kosin meðlimur 1984.
I sept. 1989 fékk hún Dicks and
Greenbury verðlaunin fyrir mynd sína
„Bið“ á haustsýningu Painter-Etchers í
Bankside Gallery í London.
Þetta er þrettánda einkasýning Karó-
línu, en hún hefur einnig tekið þátt í
fjölda samsýninga erlendis.
Sýningin, sem er sölusýning, er opin
virka daga kl. 10:00-18:00 og kl. 14:00-
18:00 um helgar. Henni lýkur 28. mars.
Þorsteinn Gauti Sigurðsson og Jón Aðal-
steinn Þorgeirsson.
Ásgeir Smári
sýnir nýjar olíu- og vatnslitamyndir í
Gallerí Borg, Pósthússtræti 9.
Sýningin er opin virka daga frá kl.
10-18 og um helgar frá 14-18. Henni lýkur
þriöjudaginn 20. mars.
Sunnudaginn 11. mars heldur hljóm-
sveitin Súld tónleika í Duus húsi við
Fischersund. Súld hefur ekki leikið opin-
berlega síðan í júlí 1988 en þá kom
hljómsveitin fram á djasshátíð í Montrcal
í Kanada. Tónlistin sem Súld flytur eru
Páll Pálsson, bassi, Tryggvi Húbner,
gítar, Lárus Grímsson, hljómborð,
Steingrímur Guðmundsson, trommur, og
Maarten Van der Valk, slagverk.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30.
Sunnudaginn 11. mars halda þeir Jón
Aðalsteinn Þorgeirsson klarinettleikari
og Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleik-
ari tónleika að Kjarvalsstöðum og hefjast
þeir kl. 20.30. Flutt verður tónlist frá
rómantíska tímabili tónlistarsögunnar.
Á efnisskránni er sónata eftir C. Saint
Saens op. 167 fyrir klarinett og píanó,
Grand Duo Consertant op. 48 fyrir klari-
nett og píanó eftir C.M.V. Weber og loks
sónata fyrir klarinett og píanó eftir J.
Brahms op. 120, nr. 2.
Aðalfundur Bandalags kvenna
í Reykjavík
Bandalag kvenna í Reykjavík heldur
aðalfund sinn laugardaginn 10. mars 1990
í Höfða, Hótel Loftleiðum, Reykjavík.
Fundurinn hefst kl. 09:00 meö helgi-
stund í fundarsal í umsjón Sigrúnar
Einarsdóttur, form. Kirkjumálanefndar
BKR. Þá setur Kristín Guðmundsdóttir,
formaður BKR, fundinn, en síðan verða
ávörp gesta og önnur aðalfundarstörf.
Eftir hádegishlé verður sérstakt mál-
efni á dagskrá sem nefnist „Þjónusta í
þágu aldraðra", en sú dagskrá er í umsjá
Ellimálanefndar BKR.
Aðalfundinum er síðan slitið kl. 19:00
í kvöldverðarfagnaði í Víkingasal Hótels
Loftleiða.
Breiðfirðingafélagið
í Reykjavík:
Félagsvist
Breiðfirðingafélagið í Reykjavík verð-
ur með félagsvist í Breiðfirðingabúð,
Faxafcni 14, sunnudaginn 11. mars og
hefst kl. 14.30 stundvíslega. Góð verð-
laun. Kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Laugardaginn 10. mars verður opnuð í
sýningarsal FÍM sýning á verkum hönn-
uðarins og listamannsins Daniel Morgen-
stern. Sýningin nefnist „Obsessions 2“.
Elinborg Guðmundsdóttir, leirlist, Erla
B. Axelsdóttir, listmálun, Helga
Ármanns, graltk, Margrét Gunnarsdótt-
ir, leirlist og Sigrún Gunnarsdóttir, leirl-
ist, standa að Art-tíún hópnum.
Myndlist og skák í Faxafeni
Art-Hún hópurinn hefur opnað mynd-
listarsýningu í hinum nýju húsakynnum
Taflfélags Reykjavíkur og Skáksambands
Virgill litli og Tóta Sigga, en Karl Emil
horfir á
Leikfélag Kópavogs:
„Virgill litli“ sýndur um helgar
Nýlega frumsýndi Leikfélag Kópavogs
barnaleikritið „Virgil litla“ eftir hinn
kunna barnabókahöfund Ole Lund
Kirkegaard, en hann hefur m.a. skrifað
barnabækurnar Fúsa Froskagleypi,
Gúmmí Tarsan o.m.fl.
Þetta er í þriðja skipti sem Leikfélag
Gestir frá Sovétríkjunum
hjáMÍR
Dagana 13.-18. mars dveljast hér á
landi á vegum MÍR, Menningartengsla
íslands og Ráðstjórnarríkjanna, tveir
gestir frá Sovétríkjunum, þau Elena A.
Lúkjanova lögfræðingur og Alexander
V. Lapúkhin blaðamaður. Koma þau
m.a. fram, flytja fyrirlestra og svara
fyrirspurnum, í félagsheimili MÍR,
Vatnstíg 10, þriðjudagskvöldið 13. mars
Id. 20:30 og a aðalfundi félagsins á sama
stað laugardaginn 17. mars, að loknum
aðalfundar-störfum sem hefjast kl. 14:00.
Elena Lúkjanova er dósent við laga-
deild Ríkisháskólans í Moskvu og sér-
grein hennar innan lögfræðinnar er ríkis-
réttur. Hún hefur samið nokkur fræðirit
og tekið þátt í samningu frumvarps til
nýrra laga um alþýðufræðslu í Sovétríkj-
unum
Alexander Lopúkhin er sálfræðingur
og hagfræðingur að mennt, en hefur um
langt árabil unnið við blaðamennsku og
starfar nú á ritstjórn dagblaðsins Prövdu.
Aðgangur að fyrirlestrum gestanna frá
Sovétríkjunum á Vatnsstígnum er öllum
heimill.
Það er tímaritið Mannlif sem gengst fyrir
þessari sýningu. Daniel Morgenstern kom
til Bretlands fyrir þremur árum frá heima-
landi sínu, ísrael, og hefur skapað sér
nafn sem einn merkasti hönnuður þar í
landi.
Sýningin verður opin alla daga kl.
14:00-18:00 til 27. mars.
íslands við Faxafen. Sýningin er haldin í
tengslum við Stórveldaslaginn og Búnað-
arbankamótið, sem haldin eru í mars.
Sýningin er opin meðan á skákmótunuin
stendur.
I Art-Hún hópnum eru 5 myndlistar-
Tienn sem hafa allir vinnustofur á sama
itað, að Stangarhyl 7 í Reykjavík, og
reka þar jafnframt Gallerí.
Kópavogs frumflytur verk eftir Kirke-
gard. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson þýð-
ir og staðfærir leikgerð höfundar, ásamt
því að semja lög og söngtexta í leikritið.
Leikstjóri er Ásdís Skúladóttir, Gerla
hannar leikmynd og búninga, en Egill
Örn Árnason sér um lýsingu.
Sýningar á Virgli litla eru í Félagshei-
mili Kópavogs á laugardögum og sunn-
udögum kl. 14:00. Hægt er að panta miða
allan sólarhringinn í sima 41985.
Frá Félagi eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, á
morgun sunnud. kl. 14:00. Frjálst spil og
tafl. Kl. 20:00 er dansað.
Athugið: Dagur aldraðra í umferðinni.
Guðsteinn Þengilsson frá Medical Alert
og fulltrúi frá Umferðarnefnd halda fram-
söguræður um „Öryggi í umferðinni”
sunnudaginn 11. mars kl. 15:00 í Goð-
heimum, Sigtúni 3.
Kjarvalsstaðir:
EPTA píanótónleikar
Á mánudagskvöld kl. 20.30 verða
haldnir EPTA píanótónleikar á Kjarvals-
stöðum. Þar leikur Nína Margrét Gríms-
dóttir verk eftir Bach, Haydn, Jónas
Tómasson, Debussy og Choptn.
Kvikmynd Stanislavs Rostotskí
„Hvíti Bim Eymablakkur“
sýndíMÍR
Sunnudaginn 11. marskl. 16:00 verður
sýnd verðlaunamyndin „Hvíti Bim
Eyrnablakkur”, eftir hinn kunna sovéska
kvikmyndaleikstjóra Stanislavs Rostotskí
í bíósal M(R, Vatnsstíg 10.
Aðgangur að kvikmyndasýningum
MÍR er ókeypis og öllum heimill.