Tíminn - 10.03.1990, Síða 20

Tíminn - 10.03.1990, Síða 20
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA UM ÞESSAR HENDUR FARA 3.660 TONN Á EINUM DEGI UPPLYSINGAR ERU VERÐ- MÆTISEM SKIPTA MÁLI Nútímaflutningaþjónusta byggist ekki síst á nákvæmum upplýsingum víðs vegar að úr heiminum. Víðtækt tölvunet EIMSKIPS gerir fært að skipuleggja á skömmum tíma hag- kvæmustu leið hverrar vöru og finna þá áætlun sem hentar þörfum viðskiptavinar- ins. Honum eru síðan tryggðar greiðar upplýsingar um stöðu og staðsetningu vörunnar í flutningsferlinu - hvort sem sendingin er að fara um borð í Brúarfoss í Rotterdam, er á leiðinni milli Hamborgar og Tokyó eða geymist á tiltekinni hillu í vöruhúsum Sundahafnar. RÉTT VARA Á RÉTTUM STAÐ ÁRÉTTUMTÍMA Nákvæm vitneskja um vörusendingar, ásamt tíðum siglingum og öruggum flutningaáætlunum, er viðskiptavinum EIMSKIPS ómetanleg við að halda vöru- birgðum í lágmarki en tryggja jafnframt rekstraröryggi. Þannig lækkar kostnaður við birgðahald og heildardreifingarkostnaður minnkar en veltuhraði og arðsemi aukast. AÐGANGURAÐ ALÞJÓÐLEGRJ ÞEKKINGU EIMSKIP hefur öðlast haldgóða þekk- ingu á markaðsaðstæðum erlendis gegnum eigin skrifstofur og umboðsaðila og gætir þar hagsmuna viðskiptamanna sinna. Allt bendir til að þessi þjónusta reynist enn mikilvægari á næstu misserum þegar íslensk fyrirtæki hasla sér traustari völl á erlendum vettvangi. VANDVIRKNIOG TRAUST Gott upplýsingakerfi og góð flutninga- tæki nægja aldrei ein sér til að skapa góða flutningaþjónustu. Þar þarf að koma til alúð og árvekni starfsmanna. Um leið og fyrirtæki velur EIMSKIP í þjónustu sína fær það til liðs við sig 670 kunnáttumenn sem eru alltaf til taks þegar reynir á greiðan og öruggan flutning. Heildarflutningar EIMSKIPS voru um 950.000 tonn á síðasta ári, eða sem svarar til 3.660 t. á einum vinnudegi. Þetta magn sýnir sterka stöðu EIMSKIPS á íslenska flutningamarkaðinum og speglar jafnframt traust viðskipti. Það er okkur kappsmál að njóta þess trausts áfram með því að vera vakandi yfir þörfum viðskiptavina okkar. EIMSKIP VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.