Tíminn - 23.03.1990, Blaðsíða 13
Tíminn 13
Föstudagur 23. mars 1990
i Mnr
Selfoss
Viðtalstími L.F.K.
Ingibjörg Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi verðurtil viðtals fimmtudaginn
22. mars n.k. kl. 15.00-17.00 á skrifstofu Framsóknarflokksins,
Eyrarvegi 15.
Allir velkomnir.
L.F.K.
Kópavogur - Kosningaskrifstofa
Kosningastarfið er í fullum gangi.
Opið hús alla virka daga frá kl. 13.00-19.00 laugardaga frá kl.
10.00-19.00
Sími41590
Framsóknarfélögin í Kópavogi.
Akranes - Bæjarmál
Fundur verður haldinn í Framsóknarhúsinu laugardaginn 24. mars kl.
10.30. Fundarefni:
1. Bæjarmálefnin
2. Kosningarnar framundan
Allir velkomnir.
Bæjarfulltrúarnir
Aðalfundur
Framnes hf., Hamraborg 5, Kópavogi verður haldinn laugardaginn
24. mars 1990 og hefst kl. 10.00 f.h. í húsi félagsins.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða rædd húsnæðismál félagsins.
Stjórnin
Borgarnes - Félagsvist
Félagsvistinni sem vera átti 9. mars hefur verið frestað. Þriggja kvölda
keppni hefst 23. mars kl. 20.30 í Félagsbæ.
Framsóknarfélag Borgarness
REYKJANES
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 17-19, sími 43222.
KFR.
Framsóknarfólk Norðurlandi vestra
Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár-
króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga
og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757.
Kópavogur - Bingó
Fjölskyldubingó að Hamraborg 5, sunnudaginn 25. mars kl. 15.
Framsóknarfélögin
Norðurland eystra
Skrifstofa Framsóknarflokksins Hafnarstræti 90, Akureyri er opin alla
virka daga frá kl. 16-19, sími 96-21180.
Framsóknarfélögin í Hafnarfirði
- Fundarboð -
Mánudagskvöldið 26. mars n.k. kl. 20.30 er boðað til fundar í
Fulltrúaráði Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði.
Boðaðir eru bæði aðal- og varafulltrúar.
Dagskrá: 1. Afgreiðsla framboðslista Framsóknarflokksins við
bæjarstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði 26. maí 1990.
2. Kosningastarfið
3. Önnur mál.
Áríðandi er að aðal- og varafulltrúar fulltrúaráðsins mæti á fundinn.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði.
Illl Reykjavík ||||
Létt spjall á laugardegi
Finnur Ingólfsson mun ræöa kosningaundirbúninginn
í vor laugardaginn 31. mars n.k. í Nóatúni 21
Fulltrúaráðið
Ingólfsson
Finnur
ivýSSSí:
Tom Cruise sem Ron Kovic í myndinni „Fæddur 4. júlí'
í myndinni „Þrumudagar" (Days of Thunder) leikurTom Cruise kappaksturs-
helju, en hann hefur mikinn áhuga á kappakstri og segir hann vera sitt mesta
áhugamál, næst leiklistinni
Mimi Rogers og Tom Cruise þegar
þau voru nýgift, — en nú eru þau
skilin
—sem nú leikur í „Fæddur 4. júlí“ í Laugarásbíói
Þó kvilcmyndaleikarinn Tom Cru-
ise sé ekki nema 27 ára hefur hann í
mörg ár verið með vinsælustu
bandarísku leikurunum.
Nú upp á síðkastið hefur hann
unnið sér stöðugt meira álit sem
góður leikari, og má nefna leik
hans í myndum eins og „Regn-
manninum" (Rain Man), „Top
Gun“, „Þrumudagar" (Days of
Thunder) o.fl.
Eldri og reyndari leikarar sem
hafa leikið með Cruise hafa allir
hælt honum mikið, bæði sem leik-
ara og sem persónu. Hann lék á
móti Dustin Hoffman í „Rain Man“
og varð þeim Tom vel til vina. Paul
Newman varð mótleikari Tom Cru-
ise í myndinni „The Color of Mon-
ey“ og varð Paul mikill vinur hans
eftir það.
Því varð það þegar hjónaband
Toms og Mimi Rogers fór í vaskinn
nú nýlega, að þá kom Paul New-
man til skjalanna og reyndi að
verða sáttasemjari, en árangurs-
laust.
Tom og Mimi höfðu verið gift í
tvö og hálft ár, en síðustu mánuðina
hafði samkomulagið ekki verið upp
á það besta. Eftir því sem Tom gekk
betur á framabrautinni versnaði
heimilislífið hjá þeim. Þau höfðu
bæði haft áhuga á að eignast bam,
en það virtist ekki geta gengið,
þrátt fyrir ráðleggingar lækna.
Mimi er 37 ára, eða 10 ámm eldri
en Tom. Þau hafa nú gert alvöru úr
því að skilja og er sagt að bæði beri
sig vel og hafi eignast nýja ástvini.
„Fæddur4. júlí“
Myndin sem ftumsýnd var í Laug-
arásbíói, „Fæddur 4. júlí“ er nú
með þeim efstu á vinsældalistanum
vestan hafs. Hún segir sögu Ronna
Kovacs, sem gengur í landgöngulið
ameríska flotans, áður en hann hef-
ur lokið skólagöngu. Bandaríkin
em um það leyti að auka aðstoð
sína við stjómina í Saigon,og það er
ekki gert ráð fyrir að striðið standi
lengi. Landgönguliðar koma í skóla
Ronna og gylla vistina í hemum og
fá hann og nokkra vini hans til að
skrá sig.
En vemleikinn verður annar og
Ronna ofbýður grimmd stríðsins.
Hann særist alvarlega og er lamað-
ur og fýrirsjáanlegt að hann verði
bundinn við hjólastól það sem eftir
er ævinnar. Þetta er sögð mjög
áhrifarík mynd.
Þama er Tom Cruise í aðalhlut-
verki og hann hefur fengið þann
dóm um leik sinn, að nú hafi hann
bætt við enn einum stórsigrinum á
glæsilegum leikferli sínum.
HVERT LEIKAFREKIÐ AF
ÖÐRU HJÁ T0M CRUISE