Tíminn - 24.03.1990, Page 4
4 Tíminn
Laugardagur 24. mars 1990
FRETTAYFIRLIT
AUSTUR-BERLlN —
Lothar de Maiziare leið-
togi Kristilega lýðræðis-
flokksins í Austur- Þýska-
landi, langstærsta flokks
landsins, hefur gefið kost
á sér sem forsætisráð-
herra. Hann hefur hingað
til verið tregur til starfans.
De Maiziare hafði varla
gefið út yfirlýsingu þessa
efnis er fréttir bárust af
því að hann hafi verið í
skjölum öryggislögregl-
unnar Stasi undir dul-
nefni.
AUSTUR-BERfcÍN —
Ríkissaksóknari Austur-
Þýskalands hefur neitað
að taka þátt í rannsókn á
því hvort nýkjörnir þing-
menn tengist á einhvern
hátt Stasi, hinni illræmdu
öryggislögreglu. Sérstök
nefnd sem skipuð var til
þess að tryggja að Stasi
yrði leyst upp hyggst
gera slíka rannsókn, en
ríkissaksóknarinn segist
telja að rannsóknin gæti
brotið í bága við stjórnar-
skránna og vill að þing
verði fyrst kallað saman
til að taka ákvörðun um
það hvort og hvernig
standa skuli að rann-
sókn.
CANBERRA — Mjótt er
á munum í kosningabar-
áttunni í Ástralíu þar sem
þingkosningar fara fram í
dag. Skoðanakannanir
sýna, að stjórnarand-
staðan sem saman-
stendur af Frjálslynda
flokknum og hinum
íhaldssama Þjóðarflokki,
hafa náð forskoti Verka-
mannaflokksins.
BÚDAPEST — Skoð-
anakönnun sýnir að tveir
flokkar er fremstir og
jafnir í kosningabarátt-
unni í Ungverjaland, en
þar fara á morgun fram
fyrstu frjálsu kosningarn-
ar í fjóra áratugi. Það eru
Bandalag frjálslyndra
lýðræðissinna og Ung-
verski lýðræðisvettvang-
urinn, sem er á miðju
ungverskra stjórnmála.
Flokkarnir hafa rétt rúm-
lega 20% fylgi hvor um
sig. ___________
JERÚSALEM — Hátt-
settur ísraelskur embætt-
ismaður sagði þá ákvörð-
un ungverska
ríkisflugfélagsins að
fresta flugi með sovéska
Gyðinga til ísrael vera
uppgjöf Ungverja fyrir
hryðjuverkum Araba.
Sovétmenn hafa meinað eriendum blaðamönnum aö starfa f Litháen næstu daga og er það einn liður í að þrýsta á sjálf-
stæðishreyfingu Litháa. Þá hafa þeir sent fleiri hermenn á vettvang.
Forseti Litháen leitar eftir stuðningi heimsbyggðarinnar gegn auknum
þrýstingi Sovétmanna, sem sent hafa fleiri hermenn til lýðveldisins:
Blaðamðnnum bannað
að starfa í Litháen
Sovésk stjómvöld hafa meinað er-
lendum fréttamönnum að halda til
Litháen og þeir fréttamenn sem þeg-
ar eru í lýðveldinu hafa fengið fyrir-
skipun um að halda á brott með sitt
haíurtask. Þetta gerist á sama tíma og
forseti Litháen sakar Sovétmenn um
að senda fleiri hersveitir til Litháen
og ákallar ríki heims um að veita
sjálfstæðisbaráttu Litháa stuðning.
Litháar hafa undanfama daga þurft
að afhenda sovéskum hermönnum
vopn sín í samræmi við fyrirskipanir
Mikhaíls Gorbatsjof forseta Sovét-
ríkjanna sem vill ekki heyra minnst á
sjálfstæði Litháen. Hafa stjómvöld
undirbúið vopnaleit hjá Litháum til
þess að fylgja fyrirskipunum Gorbat-
sjofs eftir.
Vytautas Landsbergis forseti Lithá-
en skýrði þingi lýðveldisins frá því
að sovéski herinn hafi sent mikinn
liðsstyrk til Litháen og að hermenn
hefðu tekið sér stöðu þungvopnaðir
við mikilvægustu staði landsins. Hét
hann síðan á heimsbyggðina að
þrýsta á Sovétríkin að láta af þving-
unaraðgerðum sínum og koma í veg
fyrir að hervaldi verði beitt.
„Við erum að upplifa órofinn utan-
aðkomandu þrýsting...í miðju Lithá-
en í formi erlends hervalds. Fjöldi
þessara hermanna eykst stöðugt. Þeir
em þungvopnaðir og tilbúnir í hvað
sem er“, sagði Landzbergis á þing-
inu.
Tass fféttastofan staðfestirþessi um-
mæli Landsbergis, segir að öryggis-
gæsla í Litháen hafi verið aukin og að
fulltrúar innanríkisráðuneytisins hafi
þegar hafið vopnaleit.
Þá hefúr fréttastofan staðfest að er-
lendum fréttamönnum hafi verið
meinaður aðgangur að Litháen og
þeir sem fyrir eru eigi að yfirgefa
lýðveldið. Hins vegar höfðu sovéskir
embættismenn ekki tjáð sig um mál-
ið.
Takmarkanir á ferðum erlendra
blaðamanna í Litháen kemur nokkuð
á óvart, því nokkrum klukkustundum
áður en bannið var sett, hafði Genn-
adí Gerasimov talsmaður sovéska ut-
anríkisráðuneytisins sagt að fréttarit-
arar í Moskvu gætu óhindrað ferðast
til Litháen með venjulegum fyrir-
vara.
George Bush Bandaríkjaforseti ít-
rekaði áskorun sína til sovéskra
stjómvalda um að þau beiti ekki her-
valdi í Litháen og skoraði á báða að-
ila að setjast niður og semja um sjálf-
stæði Litháen.
Kosovo:
Dularfull
barnaveiki
kemur af
stað átökum
Tíu manns særðust í átökum í
Kosovohéraði í Júgóslavíu í gær eft-
ir að hundmð bama af albönsku
bergi brotnu veiktust af dularfúllum
ástæðum. Telja Albanir að eitrað
hafi verið fyrir bömum sínum því
albönsk böm em þau einu sem sýkst
hafa.
Bömin sem veiktust hastarlega á
fimmtudagsmorgun, kvarta yfir
ógleði, magaverkjum og öndunar-
erfiðleikum. Hafa að minnsta kosti
fjögurhundmð böm veikst.
Atökin hófúst seinnipart fimmtu-
dags þegar reiðir foreldrar bamanna
réðust inn á höfuðstöðvar kommún-
istaflokksins í bænum Podujevo,
grýttu lögreglustöðvar og bmtu rúð-
ur.
Ólgan breiddist síðan út til fimm
annarra bæja þar sem böm hafa
veikst. Ráðast Albanir gegn Serbum
sem em í miklum minnihluta í
Kosovo, en Kosovohérað missti
sjálfstjóm sína til Serbíu fyrir rétt
rúmu ári síðan.
Að minrnta kosti einn maður fórst
og nokkrir slösuðust, þegar mikill
eldur kora upp í sendíráði Sovét-
ríkjanna i Beirút í gær, skömmu eft-
ir að öfgasamtök múslíma í Líban-
on fordæmdu Sovétmenn harðlega
fyrir að leyfa sovéskum Gyðingum
aö flytjast til ísrael í stórum stíl.
Ekki er Ijóst hver oldsupptök voro,
en sendiráðið er í borgarhluta súnn-
ita í vesturhluta Beirútborgar. Fjór-
tán slökkviliðsbflar og tólf' sjúkra-
bílor komu a staðmn skömmu eftir
að eldurinn braust út, Sovéskir ör-
yggisverðir og sýrlenskir hennenn
girtu af svæðtð kringum sendiráðið
og nteinuðu fréttamönnum aðgang.
Vassili Kolotusha sendtherra Sovét-
rikjanna sá sjálfur um yfirstjóm
slökkvistarfsins. Hins vegar vildi
hvorki hann né aðrir starfsmenn
scndiráösins tjá sig ura brunann í
gær.
Þess raá geta að kristnir raenn hófu
að berjast innbyrðis aö nýju í fjöll-
unum norðaustur af Beirút.
Almenningur í Bretlandi tekur Margaret Thatcher í karp-
húsið vegna hins illræmda kosningaskatts hennar:
Verkarrtannaflokkur
malar Ihaldsflokk
Frambjóðandi Verkamannaflokksins malaði frambjóð-
anda íhaldsflokksins í aukakosningum sem haldnar voru í
Mid-Staffordshire í Miðlöndunum í Englandi í gær. Sylvia
Heal frambjóðandi Verkamannaflokksins hlaut 49% at-
kvæða á meðan Charies Príor frambjóðandi íhaldsflokks-
ins hlaut einungis 32% atkvæða. í kosningunum áríð 1987
hlaut íhaldsflokkurínn 50,6% atkvæða.en Verkamanna-
flokkurínn 24,7% svo ósigur íhaldsflokksins er gífuríegur.
HVOLPI
BJARGAD
ÚR MAGA
SLÖNGU
Bændahjón í Suður-Afríku náðu að
bjarga lífi sjö vikna gamals hvolps í
gær. Þriggja metra löng slanga hafði
gleypt hvolpinn litla ásamt tveimur
bræðmm hans, en hvuttinn var ekki
á því að geispa golunni og gelti ákaft
í iðmm slöngunnar. Bændahjónin
heyrðu gá hvolpsins og neyddu
slönguna til að æla hvolpunum
þremur með því að rifa gin slöm
gunnar upp og hrista hausinn hressi-
lega. Tveir hvolpanna vom dauðir,
en sá þriðji var á lífi, dasaður þó.
Hann hefúr nú náð sér eftir þessa
óhuggulegu lífsreynslu.
Hins vegar koma úrslit þessi ekki
mjög á óvart, því að skoðanakannan-
ir undanfamar vikur hafa sýnt að
íhaldsflokkurinn hefur misst traust
breskra kjósenda á meðan uppgangur
Verkamannaflokkurinn hefúr náð
mesta fylgi sínu um áratuga skeið.
Sýnir skoðanakönnun BBC að ef
allsherjarþingkosningar yrðu haldnar
nú mætti Verkamannaflokkurinn eiga
von á um 50% atkvæða, en íhalds-
flokkurinn einungis rétt um 30% at-
kvæða. Næstur kæmi Frjálslyndi-
flokkurinn með rúmlega 10%
atkvæða, en Jafnaðarmenn og Græn-
ingjar til samans rúmlega 5%.
Talið er ljóst að almenningur í Bret-
landi sé að hegna Margaret Thatcher
fyrir hinn illræmda kosningaskatt
sem allir eiga að greiða, óháð efna-
hag, en skatturinn á að taka við af
eignaskatti. Slíkur skattur kemur
harðast niður á þeim fátækustu og
millistéttinni, en stóreignamenn
þurfa að greiða margfalt lægri skatta.
Það er einmitt millistéttin sem stutt
hefúr Thatcher undanfarin kjörtíma-
bil og óttast margir þingmenn íhalds-
flokksins að erfitt verði að vinna hylli
stéttarinnar aftur. Hafa nokkrir þing-
menn íhaldsflokksins sett ffarn þá
skoðun sína að Thatcher eigi að segja
af sér formennsku í Ihaldsflokki til
þess að bæta ímynd hans að nýju.