Tíminn - 27.03.1990, Qupperneq 2
2 Tíminn
Þriöjudagur 27. mars 1990
Bankaráð Seðlabankans vísar gagnrýni umboðsmanns Alþingis í Ávöxtun-
armálum á bug og telur Bankaeftirlitið hafi starfað í anda þágildandi laga:
Fullt traust á
Bankaeftirlit
„Lengst af þeim tíma sem Ávöxtun sf. starfaði, giltu ekki nein
lög um fjármálastarfsemi af þessu tagi og bankaeftirlitið hafði
engar sérstakar heimildir eða skyldur til þess að hafa afskipti af
eða eftiriit með rekstrínum.
Þetta segir í yíirlýsingu sem banka-
ráð Seðlabankans lét frá sér fara fyrir
helgi vegna gagnrýni umboðsmanns
Alþingis á framgöngu bankaeftirlits
Seðlabankans í málum Avöxtunar sf.
Þann 5. mars sl. barst bankaráði
Seðlabankans „Alit umboðsmanns Al-
þingis í tilefni af kvörtunum vegna
ófullnægjandi eftirlits viðskiptaráðu-
neytis og bankaeftirlits Seðlabanka ís-
lands með starfsemi Avöxtunar sf. og
verðbréfasjóða tengdum fyrirtækinu.“
Bankaráðið fundaði um málið fyrir
rúmri viku síðan og tók svo gagnrýni
umboðsmannsins til lokaafgreiðslu á
fostudag. Ráðið vísaði gagnrýni hans á
bug í meginatriðum og lýsti yfir fullu
trausti á störfum og starfsmönnum
Bankaeftirlitsins.
„Við teljum að Bankaeftirlitið hafi
sinnt sínum störfum eðlilega miðað við
þær heimildir sem það hafði á þessum
tíma,“ sagði Ólafur B. Thors formaður
bankaráðsins eftir fundinn i gær.
Ólafur sagði að um væri að ræða
tvö tímabil í starfsemi Avöxtunar:
Annars vegar tímabilið fyrir gildistöku
laga um verðbréfamiðlun árið 1986 en
hins vegar eftir gildistöku þeirra.
A þvi fyrmefnda hefði bankaeftir-
litið engan aðgang haft að máli Ávöxt-
unar utan það að ganga úr skugga um
að fyrirtækið færi ekki inn á svið
banka, sparisjóða og innlánsdeilda og
tæki við peningum til ávöxtunar.
Bankaeftirlitið hefði talið að Ávöxtun
hefði einmitt gert þetta og kærði til rík-
issaksóknara sem taldi ekki ástæðu til
aðgerða.
Eftir að lögin frá 1986 tóku gildi og
fram til gildistöku núgildandi laga frá
1989 telur bankaráðið að eftirlitið hafi
haft þau afskipti af Ávöxtun eins og við
var að búast og ætlast mátti til sam-
kvæmt þeim. I yfirlýsingu bankaráðs-
ins segir að svo virðist sem umboðs-
maður túlki heimildir Bankaeftirlitsins
til afskipta á þessu tímabili miklu víð-
tækar en eðlilegt getur talist.
„Mismunurinn á okkar áliti og áliti
umboðsmannsins sýnist okkur helst
vera sá að hann telji lagaheimildir til
afskipta hafa verið rýmri en við telj-
um,“ sagði Ólafúr B. Thors formaður
bankaráðs Seðlabanka íslands.
—sá
Gæludýrafóður
frá Akureyri
Á næstu dögum verða settar á þróun gæludýrafóðurs. Aðalhrá-
markað hérlendis nokkrar tegundir efni verksmiðjunnar eru fiskimjöl
gæludýrafóðurs, sem unnar eru og og mjólkurduft ásamt hvers kyns
framleiddar hjá Dettifossi h.f á Ak- bætiefnum. Að sögn Lárusar hefur
ureyri. Aðaláherslan verður lögð á framleiðslu verksmiðjunnar nú um
framleiðslu fóðurs fyrir hunda og nokkurt skeið verið dreift til hóps
ketti, en fóður fyrir nagdýr, gæludýraeigenda á Akureyri í til-
hamstra og fugla verða eins konar raunaskyni, og hafa þær tilraunir
hliðargreinar. Þá er hugmyndin að staðfest að framleiðslan er fyllilega
gera tilraunir með nýjar tegundir, samkeppnisfær, og sambærileg við
m.a. fyrir hesta. Þá verður í sumar innfluttar vörur. Lárus sagði enn-
hafin framleiðsla á kattasandi. Til fremur að efnafræðingar hefðu
að byrja með verður gæludýrafóðr- bent á að hollusta íslenska fóðurs-
ið eingöngu sett á markað innan- ins væri mun meiri en þess inn-
lands, en í framtíðinni er stefnt að flutta, þar sem hormónaefni eru
útflutningi. Nokkrar tilraunasend- ckki notuð. Jafnframt hefðu þeir
ingar hafa farið eriendis, og hafa bent á að í innfluttu gæludýrafóðri
fengíst jákvæð viðbrögö m.a. ffá væru cfni sem bannað væri að
Bandaríkjunum. Framleiðsla sem flytja til landsins, svo sem dýrafita.
þessi á sér ekki hliðstæðu á íslandi, Dettifoss h.f. á nú I samstarfi
og mun því alfarið keppa við inn- við Rannsóknarstofnun fiskiðnað-
fluttar vörur. arins varðandí þróun á alhliða þurr-
Dettífoss h.f. var stofhað í nóv- fóðri fyrir hunda og ketti. Sameig-
ember s.l. og hefur síðan verið unn- inlega hafa þessir aðilar ásamt
iö að vöruþróun og undirbúningi Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar sótt
markaðsátaks. Rcyndar á vöruþró- um styrk til Rannsóloian-áðs ríkis-
unin sér lengri sögu, því Lárus ins vegna þessa verkefnis, sem
Hinriksson einn eigenda og aðal- áætlað er að standi í eitt ár.
hvatamaðurinn að stofnun fyrir- hiá-akureyri.
tækisins, hefúr í nokkur ár unnið að
Sjóli tók niöri á grynningum
Ferming-
ar og
áfengi
eiga ekki
samleið
„Fermingar og áfengi eiga ekki
samleið. Eyðileggjum ekki hátíð-
leika fermingarinnar með neyslu
áfengra drykkja. Munum að bjór er
einnig áfengi.“ Svo hljóðar yfirlýs-
ing frá sex félagasamtökum sem sjá
sig knúin til að vekja athygli á þessu
máli, nú rétt fyrir fermingar. Þessi
sex samtök eru Vímulaus æska, Hús-
mæðrafélag Reykjavíkur, Prestafé-
lag íslands, Áfengisvamarráð, Átak
til ábyrgðar og íslenskir ungtemplar-
ar.
Erlendur Garðarsson talsmaður
Átaks til ábyrgðar sagði í samtali við
Tímann, aðspurður hvers vegna fé-
lagasamtökin sjái sig knúin til að
minna á þetta, að í fyrra hafi borið á
þvi að bjór hafi verið borinn fram í
fermingarveislum. Hann sagði að
það hafi kannski verið vegna þess að
herferðin, að bjór væri einnig áfengi,
hafi ekki verið komin á fullt skrið.
„Við höfum það á tilfinningunni
að á of mörgum stöðum hafi bjórinn
komið inn á fermingarveisluborðin,
sem drykkur til að drekka með
veislufongum. Trúlega hefúr það
ekki verið í hugum fólks að það.væri
að bjóða áfengi," sagði Erlendur.
Hann sagði að bjór væri líka áfengi
og þó að margir hverjir geti vel með
farið, þá eigi áfengur drykkur ekki
heima í fermingarveislu.
í þjóðarátaki skömmu fyrir 1960
tókst að gera áfengi útlægt úr ferm-
ingarveislum. „Við vitum það að
fólki dytti ekki í hug í dag að bjóða
upp á sterka drykki eða vín með
matnum i fcrmingarveislum. Við
viljum bara vekja athygli á þessu
núna, svo bjórinn komist ekki ómeð-
vitað inn á veisluborðin vegna þess
að fólk hafi gleymt því að hann sé
áfengur," sagði Erlendur.
—ABÓ
Sjóli HF 1, strandaði þegar skipið
var á útleið frá Hafnarfirði síðdegis á
sunnudag. Tilkynning um strandið
barst lögreglu kl. 15.45. Þegar tekist
hafði að losa Sjóla af strandstað var
Boðuð hefur verið stofnun sérstaks
bæjarmálafélags til þess að bera fram
nýtt framboð til bæjarstjómar á Sel-
tjamamesi í vor. Það em félagar í Al-
þýðubandalagi, Alþýðuflokki, Borgara-
flokki, Framsóknarflokki, Kvennalista
og fólk óháð stjómmálaflokkum, sem
honum siglt á ný til Hafnarfjarðar.
Kafari var fcnginn til að kanna
skemmdir á botni skipsins og kom í
Ijós að þær vom minni en óttast var í
fyrstu. Á útsiglingunni þurfa skip að
standa að framboðinu.
I fféttatilkynningu ffá hinu nýja
ffamboði, sem væntanlega mun bera
heitið Nýtt afl, segir að bæjarmálafélag-
ið skuli vera nýr vettvangur fyrir þá sem
vilja breytingar á stjóm Seltjamames-
bæjar, aðra forgangsröð verkeína og
fylgja tiltölulega þröngri rennu, og em
grynningar á báða bóga. Skip sem
kom að skömmu eftir að Sjóli strand-
aði setti taug á milli og hélt Sjóla kyrr-
um þar til fallið hafði undir hann og
lýðræðislegri stjómunarhætti en hafi
tíðkast.
Nýtt afl mun efna til opins prófkjörs
um skipan ffamboðslista dagana 6. og
7. april næst komandi. Frestur til þess
að skila inn ffamboðum er til hádegis
fostudaginn 30. þessa mánaðar - ÁG
losnaði hann þá af strandstað. Myndin
sýnir Sjóla á leið inn til hafriar í Hafn-
arfirði, skömmu eftir að hann losnaði
af strandstað. Skipið hélt til veiða á
sunnudagskvöld. Timamynd Pjetur
Opið hús í Borgar-
leikhúsinu:
Ljóða- og
söngvadagskrá
Boðið verður upp á ljóða- og söngva-
dagskrá í Borgarleikhúsinu þann í
kvöld. Meðal þeirra sem ffam koma em
Valgeir Skagfjörð, Bubbi Morthens, Jón
Sigurbjömsson, Laufey Sigurðardóttir,
Grettir Bjömsson, Edward Frederiksen,
Þorsteinn frá Hamri, Leikfélagskórinn
ásamt fleirum. Umsjón með dagskránni
hefur Eyvindur Erlendsson. Dagskráin
hefst kl. 20.30 og er aðgangur ókeypis.
Fyrir mánuði var boðið upp á ljóðadag-
skrá sem þessa í leikhúsinu og þurftu þá
margir frá að hverfa.
Nýtt afl, sameiginlegt framboð á Seltjarnarnesi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar:
Eitt framboð gegn
Sjálfstæðisflokki